Morgunblaðið - 13.12.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998
FRÉTTIR
Selfoss-
lögreglan
leitar vitna
Á MILLI kl. 22 og 23 föstudaginn 4.
desember síðastliðinn varð það
óhapp að jeppabifreið var ekið á
trébúkka sem komið hafði verið fyr-
ir á Suðurlandsvegi skammt sunnan
við söluskálann Skalla og Shellstöð-
ina norðan Ölfusárbrúar á Selfossi.
Nokkurt tjón varð á jeppabifreið-
inni og litlu mátti muna að annarri
bifreið hefði verið ekið á þennan
sama búkka. Ökumaður þeirrar bif-
reiðar sneri við og var á leið til baka
að koma búkkanum af veginum þeg-
ar jeppabifreiðina bar að og lenti á
þessum búkka. Skömmu áður en
þetta gerðist sást til þriggja pilta á
gangi við Shellstöðina.
Skorað er á þá að gefa sig fram
við lögreglu, einnig er óskað eftir
öllum þeim upplýsingum er leitt
gætu til þess að upplýst yrði með
hvaða hætti trébúkkanum var kom-
ið fyrir á veginum og hver eigandi
hans er. Upplýsingar verða mót-
teknar í síma lögreglunnar á Sel-
fossi 4821111.
---------------
Jólagrautur í
hádeginu
FJÖLMENNT var á fyrsta hádeg-
isverðarfundi eldri skáta í Skáta-
húsinu við Snorrabraut 9. nóv. sl. er
Páll Gíslason, læknir og ív. skáta-
höfðingi, sagði frá Landsmótinu á
Þingvöllum 1962.
Mánudaginn 14. desember verður
boðið upp á jólagraut og möndlugjöf
að jólasið og Ólafur Skúlason, bisk-
up flytur jólahugvekju og Gunnar
Eyjólfsson, fv. skátahöfðingi, mun
Iesa upp eitthvað skemmtilegt.
Hádegisverðarfundirnir eru ann-
an mánudag í hverjum mánuði og
standa frá kl. 11.30-13.30.
FÉLAG ÍÍ&LtEIGNASALA
I EIGNASALAN
Suðurlandsbraut 52, við Faxafen • Fax 530 1501 • www.husakaup.is
TIL SÖLU VANDAÐ IÐNAÐARHÚSNÆÐI — VIÐARHÖFDI4
Til sölu sérstaklega vandað húsnæði, alls 2000 fm, sem skiptist í tvær einingar:
A) 1292 fm sem skiptast í 1.030 fm sal með 5 metra lofthæð. 193 fm skrifstofuhúsnæði
og 49 fm starfsmannaaðstöðu. Burðarvirki eru steinsteyptar burðarsúlur. 2 háar
innkeyrsludyr, önnur við ramp fyrir lyftubíla. Skrifstofuhlutinn er mjög glæsilegur
með stórum útbyggðum glugga sem setur mjög skemmtilegan svip á húsnæðið. Inn
af skrifstofunni er starfsmannaaðstaða og kaffistofa á millilofti.
B) 742,5 fm steinhús með límtrésþakbitum. Að stærstum hluta í einum sal en þó er
stúkuð af móttaka u.þ.b. 100 fm. Lofthæð er minnst 5 metrar og hæst 5,8 metrar.
Engar burðarsúlur. Tvennar góðar innkeyrsludyr. Þessi bygging liggur L-laga á
stærri eininguna.
%-■ ...
1
(\
,©5301500
HUSAKAUP
mbl.is
__/U-LTAf= GiTTH\SA& iSiÝTT
Afvinnuhúsnæði
Til sölu:
Skútuvogur, ca 400 fm lager- og skrifstofuhúsnæði.
Dalvegur Kóp., ca 350 fm nýtt lager- og skrifstofuhúsn.
Dalvegur Kóp., ca 306 fm nýtt þjónustuhúsnæði, fullbúið.
Dalvegur, Kóp., 265 fm þjónustuhúsnæði, fullbúið.
Dalvegur, Kóp., 233 fm þjónustuhúsnæði, fullbúið.
Lyngás Gb., ca 600 fm skrifstofuhúsnæði, fullbúið, laust.
Bíldshöfði, ca 300 fm skrifstofuhúsnæði, laust.
Hlíðarsmári Kóp., ca 600 fm nýtt verslunarhúsnæðí.
Hlíðarsmári Kóp., ca 600 fm nýtt skrifstofuhúsnæði.
Langholtsvegur, ca 584 fm verslunarhúsn.
Gylfaflöt, frá ca 200—1700 fm iðnaðarhúsnæði.
Hamraborg Kóp., ca 400 fm skrifstofuhúsnæði.
Til leigu:
Bíldshöfði, ca 110 fm iðnðarhúsnæ. innkeyrsludyr.
Eldshöfði, ca 165 fm iðnaðarhúsnæði, innkeyrsludyr.
Hlíðarsmári Kóp., ca 400 fm (skiptanlegt) verslunarhúsn.
VANTAR VANTAR VANTAR
Vantar allar stærðir og gerðir af atvinnuhúsnæði hvort
sem er til sölu eða leigu.
e ÁSBYRGIf
SuAurlandsbraul 54
vló Faxafen, 108 Raykfavlk,
simi 568-2444, fux: 568-2446.
2ja—3ja herb. óskast —
sterkar greiðslur í boði
Leitum fyrir öflug félagasamtök í Reykjavík og fjársterkan
aðila í Kópavogi að 2ja—3ja og 4ra herb. íbúðum, góðum
húsum, í Reykjavík og Kópavogi. Jafint í stórum fjölbýlishús-
um sem og minni sameignarhúsum. Sterkar greiðslur í boði.
Vinsamlega hafið samband við sölumenn okkar sem verða við
símann í dag milli kl. 11.00 og 14.00. Skoðum samdægurs.
Skoðunargjald innifalið í söluþóknun.
Valhöll fasteignasala,
sími 5884477, fax 5884479
Opið hús í dag!
Freyjugata 25C
Á þessum eftirsótta stað er til sölu glæsileg og mikið endur-
nýjuð 3ja herb. 89 fm íbúð sem er hæð og ris í tvíbýli, ásamt
16 fm geymslu á baklóð. Nýjar innréttingar, gólfefni o.fl. íbúðin
er laus fljótlega. Verð 9,9 millj. Áhv. 5,1 millj.
Eignin verður sýnd í dag á milli kl. 13.00 og 16.00.
Gimli, Þórsgötu 26, sími 552 5099.
Heiðargerði 100
— opið Hús
Vorum að fá í einkasölu þetta
fallega og vel skipulagða ein-
býli. Húsið er hæð og ris á frá-
bærum stað innst í lokaðri
götu ca 130 fm (án súðar) auk
34 fm bílskúrs. 4—5 svefn-
herb. Mjög falleg ræktuð suð-
urlóð. Ahv. húsbréf 6,0 millj.
Verð 12,9 millj. Til sýnis í dag
(sunnudag) milli kl. 14 og 16.
Mosfellsbær
— vantar strax
Okkur bráðvantar einbýli, raðhús eða parhús fyrir fjár-
sterkan kaupanda. Möguleiki að afh. þurfi ekki að vera
fyrr en í maí/júní 1999.
Hringið á Valhöll eða Ingólf í síma 896 5222,
Þórarinn í síma 899 1882 eða Boga í síma 699 3444.
Valhöll fasteignasala,
Síðumúla 27, sími 588 4477
4
í húsinu eru tvær íbúðir (önnur ósamþykkt).
Eignin selst í núverandi ástandi, skuld- og
veðbandalaus.
í fasteignamati er húsið skráð 207,8 m2 og 746 m3.
Stærri íbúðin er talin 161,4 m2, 3-4 stofur
og 3 - 4 svefnherbergi.
Minni íbúðin er talin 46,4 m2 og er hún 2ja herbergja.
Lóðin er eignarlóð og skráð 577,5 m2.
Brunabótamat er kr. 22.976.000.
Fasteignamat húss og lóðar er kr. 15.854.000.
Eignin verður sýnd í dag, 13. desember kl. 15-17.
Tilboð sendist í pósthólf 8635, 128 Reykjavík
fyrir 22. desember n.k.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er,
eða hafna öllum.
OPIÐ HUS!
Fasteignin
Garðastræti 36 í Reykjavík