Morgunblaðið - 13.12.1998, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998 57
----------------------------
Mikið úrval af
glæsilegum fatnaði
ÞAÐ gengur ýmislegt á í heimsendamyndinni Deep Impact.
Vonir og væntingar
(Great Expectations) ★★'/2
Nútímaútgáfu af samnefndri skáld-
sögu Charles Dickens. Ljúf og róman-
tísk mynd sem minnir á ævintýri og
umgjörðin er glæsileg í álla staði.
Bróðir minn Jack
(Nly brother Jack)***
Oflugt fjölskyldudrama þar sem
Marco Leonardi fer á kostum í hlut-
verki gæðablóðs sem fer villur vegar
og lendir í klóm vímuefna.
Byssumenn
(Men with Guns) **★
Algjörir aulabárðar draga þá álykt-
un að besta lausnin á vanda sínum sé
að notast við byssur en annað kemur á
daginn.
Hinn fallni (The Fallen)**r‘/2
Trúarbragðahrollvekja sem byijai-
eins og dæmigerð löggumynd en reyn-
ist vera um heim fallinna engla og bar-
áttu góðs og ills.
Töframaðurinn
(The Rainmaker) ***
Francis Ford Coppola hristir af sér
þann tilgerðarsperring sem hefur vilj-
að loða við kvikmyndir úr hugarheimi
Johns Grishams.
Öskur 2 (Scream 2) ★★'/2
Skemmtileg úi'vinnsla á lögmálum
kvikmyndageirans um framhalds-
myndir. í heildina skortir fágun og
leiðist myndin út í lágkúra í lokin.
Eftirminniiegt símtal
(A Call to Remember) ★★í/2
Fjallað af næmi, reynslu og innsæi um
fólk sem glímir við tilveruna eftir að
hafa lifað af hörmungar. Gott drama
en léleg afþreying.
Bófar (Hoodlums) ★★'/2
Gamaldags bófamynd um átök glæpa-
gengja í New York. Sagan kunnugleg
eins og nöfn bófaforingjanna en helst
til þunglamaleg.
Harður árekstur
(Deep Impact) ★★★
Sú betri af tveimur myndum um lof-
stein sem grandar lífi á jörðinni. Góður
leikur og leikstjórn og laus við röð for-
múlukenndra hetjudáða.
U-Turn / U-beygja ★★★ !4
Vægðarlaus spennumynd sem byggir
á þræði og minnum úr „Film Noh-“-
hefðinni og Oliver Stone bindur inn í
glæsilega stílheild.
„Half Baked“ ★★1/2
Sprenghlægileg vitleysa sem fjallar
um maríúana og kemur virkilega á
óvart.
„Kundun“ ★★★
Nýjasta mynd bandaríska meistai-ans
Martin Scorsese um sögu Dalai Lama
og Tíbet frá 1937 - 1959. Ákaflega
vönduð, löng og alvarleg úttekt á sögu
framandi þjóðar og menningar.
„U.S. Marshals" ★★1/2
Algjör formúlumynd en gott dæmi um
hvernig slíkar myndir geta heppnast.
Tommy Lee Jones er frábær að vanda,
mikill hasar og mikil læti.
Hinn mikli Lebowski
(The Big Lebowsk9 ★★★‘/2
Bráðíyndin og vel gerð gamanmynd
frá Coen-bræðram sem einkennist af
hugmyndaauðgi og einstakri næmni
fyrir sérbrigðum mannlífsins.
Go Now / Farðu, núna ★★★
Ahrifaríkt breskt drama sem sviðsett
er í verkamannabænum Bristol. Leik-
stjórinn Winterbottom gefur myndinni
ferskt og óvenjulegt yfirbragð.
Afterglow / Endurskin ★★★
Fáguð mynd um öngstræti ástarsam-
banda prýdd merkingarhlöðnum og
margræðum samtölum. Julie Christie
og Nick Nolte era hreinasta afbragð.
Heroines / Söngdísirnar ★★’A
Kraftmikil tónlistarmynd sem fjallar á
dramatískan hátt um frægð, vináttu og
mannkosti. Skemmtileg tilbreyting,
einkum fyrir yngri kynslóðina.
Þveröfugt við kynlíf
8The Opposite of Sex9 ★★★
Áhugaverð og vel leikin kvikmynd sem
byggir á vönduðu handriti, þar sem
sjálfsvísandi fi-ásagnarhætti er beitt á
einkar hugmyndaríkan máta.
Guðmundur Ásgeirsson,
Heiða Jóhannsdóttir
og Ottó Geir Borg
Opið í dag, sunnudag,
ftdkl. 13-17.
mnarion
Reykjavíkurvegi 64, sími 565 1147