Morgunblaðið - 13.12.1998, Side 2

Morgunblaðið - 13.12.1998, Side 2
2 SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Sjávarútvegsráðherra segir veiðirétt smábáta hafa stóraukist Gagnrýni Einars Odds er byggð á misskilningi ÞORSTEINN Pálsson sjávarút- vegsráðherra segir gagnrýni Einars Odds Kristjánssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, á frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingu á lögum um stjórnun fiskveiða byggða á nokkrum misskilningi. Dómur Hæstaréttar um kvótamálið segi það eitt að 5. grein laganna um stjórn fískveiða standist ekki stjórnarskrána. Einar gagnrýnir að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir að sóknardagakerfi krókabáta verði afnumið og allir smábátar færðir í aflamarkskerfi en telur dóm Hæstaréttar ekki hafa sett ki'ókaleyfiskerfið í uppnám. Sjávarútvegsráðherra segir ekki hægt að takmarka fjölda þeiira sem fá veiðileyfi og því sé sóknardaga- kerfið opið fyrir alla eftir dóm Hæstaréttar. „Ef ekki væri brugðist við því myndi ásókn nýrra manna á ör- skömmum tíma eyðileggja veiðirétt þeirra sem eru fyrir,“ segir ráð- herrann. „Nýir aðilar myndu éta upp veiðirétt þeirra sem eru fyrir og gera að engu lífsafkomu allra þeirra sem í dag stunda þessar veið- ar. Þess vegna var nauðsynlegt að grípa til aðgerða í þeim tilgangi að verja atvinnurétt þeirra sem eru fyrir í greininni. Eg er sannfærður um að við Einar Oddur erum sam- mála um að það er fullkomlega rétt- lætanlegt og í fullu samræmi við stjórnarskrána að verja hagsmuni þeirra trillukarla sem hafa veitt undanfarin ár og ekki jafnrétti í því fólgið að svipta þá atvinnuréttinum til að færa hann einhverjum öðr- um.“ Veruleg rýmkun á þessu fiskveiðiári Sjávarútvegsráðherra segir, vegna sjónarmiða smábátasjó- manna sem fram komu í Morgun- blaðinu í gær, að viðræður hafi átt sér stað við fulltrúa Landssam- bands smábátaeigenda og gert sé ráð fyrir því bráðabirgðafyrirkomu- lagi að veiðidagai-nir verði 32 með 30 tonna þaki á þessu fiskveiðiári. „Frumvarpið felur því í sér veru- lega rýmkun á þessu fiskveiðiári frá því sem ella hefði orðið og þannig er komið til móts við sjónarmið þeirra. Við höfum með aðgerðum aukið veiðirétt smábáta í landinu um 60% á þremur árum og ég tel að það hafi verið mjög skynsamleg ráðstöfun. Það höfum við gert í samvinnu við forystu Landssambands smábáta- eigenda og þessar aðgerðir hafa verið mjög mikilvægar í þeim til- gangi að verja byggð víða um land.“ Jarðboranir hf. gera tilraunir með nýja bortækni við Kröflu Skökk bor- stefna en ár- angur góður TILRAUNIR með nýja tækni við borun eftir gufu sem fram fóiu við Kröflu í sumar hafa borið góðan ár- angur, þó að við fyrstu tilraun hafi borinn farið nokkuð aðra leið en ráðgert var. Þetta var í fyrsta sinn sem hin nýja aðferð var reynd utan rannsóknarstofu, og hefur skekkj- an nú verið lagfærð. Það er fyrirtækið Jarðboranir hf. í samstarfi við Halliburton, alþjóð- legt þjónustu- og tæknifyrirtæki á sviði olíuborunar, sem hefur staðið fyrir tilraunum fyrir Landsvirkjun. Að sögn Asgeirs Margeirssonar, tæknistjóra Jarðborana, miða þær að því að auka nákvæmni svo- nefndra stefnuborana. Tækni við stefnuborun hefur ver- ið þróuð í olíuiðnaði. Notuð eiu sér- stök stefnumælingartæki til að láta borinn beygja í rétta átt djúpt í jörðu. Segulmögnuð hraunlög „Það hafa verið nokkrir ann- markar á þeirri mælitækni sem beitt hefur verið hingað til við bor- anir á íslenskum háhitasvæðum," segir Asgeir. „Annars vegar er um að ræða mælingar á segulsviði jarð- ar og hins vegar mælingar með svo- nefndum gýróáttavita sem tekur mið af snúningi jarðar. Segulmæl- ingar verða oft fyrir verulegum truflunum í íslenskum hraunlögum, sem víða eru mjög segulmögnuð. Gýróáttaviti er á hinn bóginn ná- kvæmur en framkvæmd slíkra mælinga er kostnaðarsöm, tíma- frek og erfið. Nýja tæknin sem reynd var við Kröflu byggist á mælingum á þyngdarsviði jarðar. Henni er ætlað að sameina kosti beggja eldri aðferðanna en skilja vankantana frá.“ Asgeir segir að við fyrstu tilraun hafi borinn tekið nokkuð krappari beygju í vestur heldur en til stóð, vegna þess að upphafsviðmiðim að- ferðarinnar hafi verið röng. Arang- urinn varð engu að síður sá sem stefnt var að og borholan verður virkjuð. Þegar hefur verið ákveðið að fleiri holur verði boraðar með þessari aðferð næsta sumar. SKÝRINGARMYNDIN sýnir þá leið sem borinn fór við tilraunaborun- ina sem fram fór við Kröflu í sumar. Dýptartölurnar eiga við lóðrétta dýpt en ekki lengd borsins. Beygjan neðst er nokkuð ýkt til að gera myndina skýrari en borinn fór lengra í vesturátt en ráðgert var. pitro.mM.Jnb MORGUNBLAÐINU í dag fylgir átta síðna blaðauki um ævi og störf Margi'étar Guðnadóttur prófessors. Fyrir skömmu var skýrt frá tilraun- um hennar með bóluefni gegn visnu/mæðiveiki í sauðfé. Nið- urstöðurnar vekja vonir um að hægt sé að búa til bóluefni gegn eyðniveirunni. Sjötíu metra reykháfur felldur SJÖTÍU metra hár reykháfur fiski- mjölsverksmiðjunnar á Kletti í Laugarnesi verður felldur með sprengingu í dag kl. 14. Ráðgert hafði verið að fella reykháfinn í gær, en vegna hvassviðris var því frestað. Öryggissvæði í kringum turninn verður rýmt og munu tíu lögreglu- menn gæta þess að engir farí þar inn fyrir. Tæknideild Reykjavíkur- hafnar varar við því að hár hvellur muni fylgja sprengingunni og hætta er á því að steypubrot geti þeyst upp við fallið, sérstaklega út frá þeim stað sem toppur reykháfs- ins lendir, en hann verður látinn falla í norðvesturátt. Viðvörunar- merki verður gefíð einni mínútu fyrir sprenginguna. Morgunblaðið/EAX STROMPURINN í Laugarnesi sem brátt heyrir sögunni til. Reykháfurinn, sem er um 4,2 metrar í þvermál og 560 tonn að þyngd, er það síðasta sem stendur eftir af verksmiðjunni. Reykjavík- urhöfn vinnur nú að því að endur- skipuleggja Klettsvæðið. Olíustöðin í Laugamesi hefur verið lögð niður og er verið að fjarlægja olíutanka hennar. Alfreð Þorsteinsson Yfirlýsingar Finns og Ólafs sérkennilegar ALFREÐ Þorsteinsson borgarfull- trúi segir það sérkennilegt að þing- menn Framsóknai-fiokksins, Finnur Ingólfsson og Ólafur Örn Haralds- son, skuli lýsa stuðningi hvor við annan í prófkjöri flokksins í Reykja- vík áður en þeir viti hverjir muni taka þátt. Hann segist sjálfur ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann býður sig fram en frestur rennur út 30. desember. Alfreð segir aðspurður að yfirlýs- ingar þeirra Finns og Ólafs dragi ekki úr sér hvað þátttöku í prófkjör- inu varðar. „Ég hef einfaldlega ekki gert upp við mig hvort ég fer fram, en það hefur verið skorað töluvert á mig að gera það. Það er alltaf spurn- ing hvort sveitarstjórnarmenn eigi að sinna störfum alþingismanna jafnframt. Innan Framsóknarflokks- ins hafa verið uppi þau sjónarmið að menn ættu að aðgreina þetta.“ þjóðarlíkan ►Púlsinn tekinn á gagnagrunns- frumvarpinu fyiú' lokaumræðuna á Alþingi. /10 Stóri slagurinn á farsímamarkaðnum ► Farsímarnir verða stöðugt full- komnari og eru farnir að ógna einkatölvunni. /12 Stundum gefið á bátinn ► í Viðskiptum/Atvinnulífi á sunnudegi er rætt við Björgvin Magnússon og Hall Stefánsson í versluninni Svalbarða. /30 ►1-8 Margrét Guðnadóttir ► Blaðauki um ævi og störf eins vh-tasta og kunnasta vísinda- manns Islands. /1-8 c ► l-36 Heiddi, hvenær ætlarðu að fullorðnast? ► Heiðar Jóhannsson er 44 ára Akureyringur, þekktur þar í bæ og víðar fyrir mótorhjóladellu. /1&18-20' Útverðir við Ódáðahraun ► í Svartárkoti búa útverðir mannabyggðar á Norðurlandi, hjónin Tryggvi Harðarson og Elín Baldvinsdóttir. /6 Að rífa upp sár - og græða þau ►Eva Klonowski réttarmannfræð- ingur vinnur nú við að grafa upp bein fómarlamba í Bosníu- Herzegóvinu. /12 IHferdalög ►1-4 Mesta hagnaðar- aukning milli ára ► islandia í 100. sæti í samantekt Res & Travel News um stærstu ferðaskrifstofur í Svíþjóð. /1 Grænland ►Að mörgu að hyggja fyrii- ferð út í óvissuna /2 E. mmBiLAR ►1-4 Stærsta safn amerískra fornbíla á götum Kúbu ►Þar eru ameriskir bíiar frá miðri öldinni algeng sjón. /2 Reynsluakstur ► Ný Mazda 323F - áherla lögð á hagkvæmnina. /4 Fatvinna/ RAD/SMÁ ► l-20 Úttekt hjá Sorpu á 2000-vandanum ► Tæknival hefur tekið út upplýs- ingakerfi Sorpu með tilliti til 2000- vandans. /1 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Brids 50 Leiðari 32 Stjörnuspá 50 Helgispjall 32 Skák 50 Reykjavíkurbréf 32 Fólk í fréttum 54 Skoðun 34 Utv/sjónv. 52,62 Minningar 40 Dagbók/veður 63 Myndasögur 48 Mannl.str. 22b Bréf til blaðsins 48 Dægurtónl. 32b ídag 50 INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK ERLENDAR FRÉTTIR: 1&6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.