Morgunblaðið - 13.12.1998, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
+
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998 33
plnrgminMitlíllí
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
HARKALEGAR deilur hafa
blossað upp vegna þeirra
ákvæða i frumvarpi ríkisstjórn-
arinnar um breytingar á lögum
um stjórn fiskveiða, sem snúa að
smábátaútgerð í landinu og þá
sérstaklega á Vestfjörðum. Ljóst
er, að trillukarlar á Vestfjörðum
eru æfir og telja að með frum-
varpinu hafi verið kveðinn upp
dauðadómur yfir smábátaútgerð
þar.
Annar af þingmönnum Sjálf-
stæðisflokksins á Vestfjörðum,
Einar Oddur Kristjánsson, end-
urspeglar þessa reiði með býsna
stórorðum yfírlýsingum. Hann
hefur lýst því yfir, að hann muni
berjast gegn frumvarpinu af
„heift“ og hann hefur jafnframt
sakað flokksbróður sinn, Þor-
stein Pálsson, sjávarútvegsráð-
herra, um að hafa beitt „blekk-
ingum“.
í samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Einar Oddur Krist-
jánsson m.a.: „Þeir sem voru
hatursmenn krókakerfisins not-
uðu sér tækifærið vegna þessa
dóms til að kála krókakerfínu.
Þeir voru bara að nýta sér tæki-
færið.“
Hinn þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins í Vestfjarðakjördæmi
segir í samtali við Morgunblaðið
í gær: „Eg er þeirrar skoðunar
að frumvarp ríkisstjórnarinnar
hitti ekki á þá lausn, sem við get-
um sætt okkur við hvað þennan
hluta flotans varðar ... Eg trúi
því ekki að það verði nokkurn
tíma samstaða Alþingis að leysa
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
þannig úr þeim vanda, sem skap-
aðist við dóm Hæstaréttar, að
það hitti sérstaklega fyrir veik-
ustu byggðirnar og þennan út-
gerðarfíokk."
Það er ljóst, að viðbrögð smá-
bátaútgerðarmanna eru sérstak-
lega viðkvæm fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Þannig segir Hálfdán
Kristjánsson frá Flateyri í sam-
tali við Morgunblaðið í gær:
„Fyrir hvað stendur Sjálfstæðis-
flokkurinn? Ef þetta er ekki
sjálfstæður atvinnurekstur þá
veit ég ekki hvað það er að vera
sjálfstæður. Ég skil því ekki
hvers vegna Sjálfstæðisflokkur-
inn með sjávarútvegsráðherra í
fararbroddi ræðst svona á þessa
stétt.“
Einar Oddur Kristjánsson
fullyrðir, að frumvarpið hafi ekki
hlotið efnislegt samþykki í þing-
flokki Sjálfstæðisflokksins held-
ur einungis að það yrði lagt fram
og bætir við:“Ég tel, að okkur
beri nú að gera mönnum grein
fyrir því hve gríðarlegt efna-
hagslegt og félagslegt tjón það
er sem þjóðfélagið verður fyrir,
ef menn láta þetta ganga svona
fram.“
Þetta eru óneitanlega athygl-
isverðar deilur. Þær snúast um
kjarna þess máls, sem um hefur
verið deilt á annan áratug. Nú er
sagt við smábátaútgerðarmenn á
Vestfjörðum: þið getið að sjálf-
sögðu fengið veiðileyfi fyrir bát-
ana ykkar ef þeir fullnægja al-
mennum skilyrðum þar um. Þið
fáið meira að segja svolítinn
gjafakvóta. Ykkur er að sjálf-
sögðu heimilt að veiða meira en
þá verðið þið að kaupa kvótann
af kvótaeigendum, þeim sömu
kvótaeigendum, sem í upphafi
fengu gifurlegt kvótamagn fyrir
ekki neitt.
Um þetta viðhorf segir Olgeir
Hávarðarson í Bolungarvík í
samtali við Morgunblaðið í gær:
„Ég get ekki rekið bátinn með
níu tonnum. Auðvitað má maður
leigja til sín kvóta eða kaupa. En
hvernig á ég að geta gert það,
þegar ég hef svona lítinn
grunn?“
Þetta er kerfið, sem búið hefur
verið til í sjávarútvegi. Og þótt
þingmenn Vestfjarða hafí í orði
haft uppi andóf gegn þessu kerfi
hafa þeir ekki skipað sér í for-
ystusveit þeirra, sem barizt hafa
gegn því. Nú hittir þetta kerfi
umbjóðendur þeirra, smábátaút-
gerðarmenn á Vestfjörðum,
beint í hjartastað.
Auðvitað er þetta óþolandi
kerfi. Auðvitað er það gersam-
lega óviðunandi og hefur alltaf
verið. En það er athyglisvert að
þá fyrst bregðast menn við, þeg-
ar það hittir þá sjálfa fyrir.
Hið jákvæða við þær umræð-
ur, sem nú fara fram um þessi
mál er hins vegar það, að smátt
og smátt er að skapast málefna-
leg samstaða í öllu þjóðfélaginu
og í öllum stjórnmálaflokkum um
það, að nú verði að gera breyt-
ingar. Þær breytingar verða að
taka mið af þeirri kröfu Hæsta-
réttar Islands að jafnræðisregla
stjórnarskrár lýðveldisins sé
virt. í því felst, að smábátaút-
gerðarmenn á Vestfjörðum séu
ekki settir í þá óþolandi og auð-
mýkjandi stöðu að þurfa að
greiða kvótaeigendum hátt verð
fyrir leyfíð til þess að fiska, þeim
sömu kvótaeigendum, sem fengu
kvótann fyrir ekki neitt. Hér
verða allir að sitja við sama borð
og jafnræði verður að ríkja. Það
verður að vera kjarninn í nýju
stjórnkerfi fiskveiðanna við Is-
land.
En nú skilja trillukarlar á
Vestfjörðum og þingmenn Vest-
fjarða kannski betur tilfinningar
mikils meirihluta íslenzku þjóð-
arinnar í garð þessa kerfís.
TRILLUKARLAR
OG KVÓTI
4ég hef oft
•haft áhyggjur af
tungu okkar og fram-
tíð hennar. Og því
meiri sem erlend áhrif
hafa verið, einkum í
sjónvarpi og öðrum
ljósvökum. En ég ætla í bili að
staldra við dálítið atvik sem Berlin
tíundar í fyirnefndu samtali og
vona það megi ávallt eiga við okkar
dýrmæta arf. Hann nefnir sögu sem
Jacob Talmon segir í einni bóka
sinna og lýsir vel þeirri seiglu sem
gróin menning býr yfír. Tveir tékk-
neskir skólastjórar voru að tala
saman snemma á 18. öld. Við erum
líklega hinir síðustu í víðri veröld
sem tala tékknesku, sögðu þeir hvor
við annan. Við blasa endalok henn-
ar. Við munum óhjákvæmilega öll
tala þýzku hér í Miðevrópu og
sennilega einnig á Balkanskaga. Við
erum síðustu móhíkanamir.
Enn tala menn tékknesku og
langur vegur frá endalokum hennar
þótt í uppsiglingu séu einhver átök
milli Tékka og Slóvaka. Og líklega
engin tilviljun að rithöfundur er for-
seti landsins.
Nú um stundir hvarflar hugur-
•inn að víkingum og menningu
þeirra. Hún var sérstæð og sigl-
ingatækni þeirra réð heimssöguleg-
um úrslitum. Þetta voru norrænir
menn og litu áreiðanlega þannig á
sig í víkingasamfélaginu. Þeir áttu
sameiginlega menningu, sameigin-
lega tungu sem arfleifð okkar hefur
varðveitt. Við berum vonandi gæfu
til að festa hana í sessi í þeirri fram-
tíðarsýn sem við blasir. Þetta fólk
mætti vel kalla norse, einnig Leif
heppna sem var að öllum líkindum
fæddur Dalamaður,
en gerðist handgeng-
inn Noregskoningi og
fór vestur um haf sem
kristinboði í hans
nafni. Eiríkur faðir
hans var breiðfírzkur,
segir Ari. Hann nam Grænland.
Um það bil sem Leifur heppni var
allur eru heimildir fyrir því að menn
voru farnir að líta á sig sem Islend-
inga. Oss hafa augu þessi, íslenzk,
kona, vísað brattan stíg að baugi,
segir Sighvatur við sænska konu í
Austurfararvísum sem ortar eru
kringum 1020. Fram að því hefur
þjóðerni verið óglöggt með þessu
fólki, en þó voru afkomendur land-
námsmanna á varðbergi gagnvart
Noregskonungi. í nýlegri sögu um
evrópska kristni er fullyrt að Is-
lendingar hafí tekið kristni í því
skyni að losna við valdbeitingu
Ólafs Tryggvasonar.
Enda þótt þetta sé harla nýstár-
leg söguskoðun er ástæða til að
ætla að þessi vá hafi ávallt staðið
fyrir dyrum og svo fór að lokum að
Islendingar urðu móðir af innan-
landserjum og skiplausir á sturl-
ungaöld - þá greip Hákon gamli
tækifærið og lagði Island undir ríki
sitt.
Hvað sem þessu líður er þetta allt
íhugunarefni og verður að skoðast
af sjónarhóli fornmanna, en ekki
okkar. Fram hjá því verður samt
ekki gengið sem fullyrt er í Reykja-
víkurbréfi fyrr á þessu ári, en þar
segir:
„Einatt er talað um íslenzkar
bókmenntir til foma sem norskar
bókmenntir, en það orð að vísu ekki
notað, heldur annað sem er ein-
hvers konar afsökun fyrir því að
ekki skuli sagt beinum orðum að
þessi arfleifð sé íslenzk enda varð
hún til á Islandi þótt ljóðahefðin
hefði flutzt út hingað með víkingum,
þróazt hér og varðveitzt. Nú er
tízka að nota norse í ensku um alla
norræna arfleifð - og þá ekki sízt ís-
lenzka - en oftast er í raun átt við
íslenzkar bókmenntir þegar gripið
er til þessa orðs. Hér er því um
ákveðna tilraun til blekkingar að
ræða. I Orðabók Chambers fyrir
21. öldina segir m.a. að norse merki
einhver tengsl við Skandinavíu, það
merki Norðmaður; það merki tunga
sem var töluð í Skandinavíu eða
Noregi og í nýlendunum; norse
merki skandinavar, en þó einkum
Norðmenn. í Orðabókinni er ekki
minnzt á að orðið norse sé sérstök
skírskotun til Islands. Þess er aftur
á móti getið að orðið sé að öllum
líkindum komið úr hollenzku á 16.
öld en hollenzka útgáfan var
noorsch. Það eru sem sagt Hollend-
ingar sem hafa komið þessu orð-
skrípi inn í heimstunguna með
þeim afleiðingum að íslenzk rit-
snilld til forna er einatt flutt austur
yfír haf og það gert með þeim
hætti að helzt enginn tekur eftir
því. I nýrri grein um víkingaskipin
er í jafnvirtu vísindariti og Sci-
entific American talað um norse
sagas þegar rætt er um víkinga-
ferðir og fund Ameríku, en þessar
sögur sem eru aðalheimild um
þessar ferðir að sjálfsögðu voru
skrifaðar á íslandi á íslenzku um
svipað leyti og Norðmenn voru að
glata tungu sinni. En þær mega
bara ekki vera íslenzkar!"
M.
HELGI
spjall
REYKJAVÍKURBRÉF
Laugardagur 12. desember
Fyrir rúmum hálfum mán-
uði eða svo urðu töluverð-
ar umræður um stöðu for-
seta íslands í tilefni af um-
mælum, sem herra Ólafur
Ragnar Grímsson hafði
látið falla í samtali við
Svenska Dagbladet. Sumt
af því, sem haft var eftir forsetanum í því við-
tali bar hann til baka en annað ekki. Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra gerði athuga-
semdir við orð, sem eftir forsetanum voru
höfð varðandi samskipti íslands og tveggja
forysturíkja Atlantshafsbandalagsins en for-
setinn skýrði frá því m.a. hér í Morgunblað-
inu að hin sænska blaðakona, sem við hann
talaði, hefði augljóslega misskilið orð hans.
Að því búnu urðu ekki frekari umræður um
þann þátt málsins. Hins vegar fjallaði Morg-
unblaðið í tveimur forystugreinum um hlut-
verk og stöðu forseta Islands í tilefni af öðr-
um ummælum forsetans, sem hann hafði
ekki borið til baka.
í framhaldi af þessu fóru fram umræður í
sjónvarpsþætti í fyrri viku, þar sem þeir
fjölluðu um þessi málefni, Sigurður Líndal
prófessor og Ólafur Þ. Harðarson, dósent.
Ástæða er til að staldra við ummæli Sigurðar
Líndals, sem er og hefur lengi verið prófess-
or í lögum við Háskólann. Rétt er jafnframt
að rifja upp það, sem áður hefur komið fram í
skrifum Morgunblaðsins um forsetaembætt-
ið, að nánast frá upphafi hafa þeir sem gegnt
hafa embætti forseta Islands lagt áherzlu á
að blanda sér ekki í deilur um dægurmál,
enda augljóst, að staða þjóðhöfðingjans í slík-
um umræðum yrði afar erfíð, vegna þess
hlutverks, sem hann gegnir í stjórnskipun
landsins.
Að vísu hafa áður orðið deilur um stöðu
forseta Islands. Þær hófust raunar þegar
hinn 17. júní 1944, þegar áhrifamiklir for-
ystumenn í íslenzkum stjómmálum voru ekki
tilbúnir til að greiða Sveini Bjömssyni, þá-
verandi ríkisstjóra, atkvæði sitt við kjör for-
seta, sem þá fór fram á Alþingi. Af því er
mikil og að verulegu leyti ósögð saga. Eftir
að Sveinn Björnsson hafði verið kjörinn for-
seti var hins vegar friður um embættið, þótt
segja megi að það hafí tekið tímabil tveggja
forseta, þ.e. Sveins og Ásgeirs Ásgeirssonar,
að móta það í þann farveg, sem það hefur að
langmestu leyti verið í síðan.
Þótt forsetar hafí yfirleitt haft lítil afskipti
af stjórnarmyndunum er ljóst, að áhrif þeirra
í þeim efnum geta verið mikil. Um það er
fyrst og fremst eitt dæmi. Það fer ekki á milli
mála, að Ásgeir Ásgeirsson lék lykilhlutverk
í því að Viðreisnarstjórnin var mynduð, með
afskiptum sínum af stjórnarmyndun Emils
Jónssonar í desember 1958 eftir fall vinstri
stjórnar Hermanns Jónassonar. Um þau af-
sldpti var nánast ekkert rætt opinberlega á
þeim tíma og sennilega var sýnt fram á þau
gagngert í fyrsta sinn í ævisögu Ólafs Thors
eftir Matthías Johannessen. Kristján Eld-
járn sætti einu sinni gagnrýni af hálfu Morg-
unblaðsins, þegar hann veitti Lúðvík Jóseps-
syni, þáverandi fonnanni Alþýðubandalags-
ins, umboð til stjórnarmyndunar, sem blaðið
taldi ekkert tilefni hafa verið til á þeim tíma.
Eins og áður hefur verið rifjað upp hér í
blaðinu vöknuðu tvívegis spurningar um
embættisathafnir frú Vigdísar Finnbogadótt-
ir í forsetatíð hennar. Annars vegar þegar
nokkurra klukkutíma bið varð á því að hún
undirskrifaði lög á Kvennafrídegi. Hins veg-
ar vegna samskipta hennar og tveggja for-
ystumanna ríkisstjórnar, þegar EES-samn-
ingurinn kom til afgreiðslu.
Eins og ljóst er af þessu snerust þessar at-
hugasemdir ekki um það, hversu langt for-
seti gæti gengið í þátttöku í deilum um dæg-
unnál á opinberum vettvangi enda hefur
ekkert tilefni verið til þess fyrr en nú að und-
anfórnu.
Mmmmm—mm í fyrrnefndum
Við hveriu sjónvarpsþætti voru
, þátttakendur spurð-
var DUlZt. ir, hvort þeir hefðu á
einhvern hátt orðið
undrandi, þegar fréttir bárust af ummælum
herra Ólafs Ragnars í viðtali við Svenska
Dagbladet. Þeirri spurningu svaraði Sigurð-
ur Líndal prófessor m.a. á þennan veg: „Ef
ég á að svara því, þá get ég nú ekki sagt það.
Eg hef alltaf búizt við því, að þessi forseti
mundi nú tala kannski frekar tæpitungu-
laust.“
Og síðar í þættinum sagði prófessorinn:
„Ég verð nú að segja þó ég hafi nú kannski
ekki haft veruleg afskipti af þessum síðustu
forsetakosningum, ég tók nú engan sérstak-
an þátt í þeim, nema bara að ég kaus, að þá
held ég að enginn hafí svo sem þurft að
ganga eða vera í neinum vafa um það, hvern-
ig núverandi forseti mundi leggja upp emb-
ættið.“
Og enn síðar segir Sigurður Líndal, þegar
hann er spurður, hvort hann telji núverandi
forseta hafa gert grein fyrir því í kosninga-
baráttunni hvernig hann mundi haga störfum
sínum sem forseti: „Ég skal ekki segja, hvort
það var svo alveg kristaltært en mér fannst
svona, að menn þyrftu nú ekki að velkjast í
verulegum vafa um það, að vísu mátti búast
við að hann mundi hægja á sér en ég held, að
það hafí nú enginn, sem þekkti til, þurft að
velkjast í vafa um, að það yrði breyting, það
held ég að sé alveg ljóst og kjósendum mátti
vera það alveg ljóst.“
Hér svarar prófessor í lögum við Háskóla
íslands spurningum um grundvallaratriði í
lýðræðislegri stjórnskipan af ótrúlegri léttúð
og ónákvæmni. Þegar gengið er til kjörs for-
seta Islands eftir að embættið hefur smátt og
smátt mótazt í ákveðinn farveg á hálfri öld er
alveg Ijóst, að gera verður þá kröfu til fram-
bjóðenda, að þeir geri kjósendum skýra
grein fyrir því fyrir kosningar, ef þeir hafa í
hyggju að beina störfum forsetans í nýjan
farveg. I þeim efnum skiptir engu, við hverju
ákveðnir einstaklingar búast og það skiptir
heldur ekki máli, hvert mat prófessors Sig-
urðar er á því, hvað kjósendum mátti vera
ljóst. Að vísu er hægt að gera þá kröfu til
hans að hann rökstyðji þá skoðun sína ná-
kvæmlega, svo að notað sé orðalag hans
sjálfs, að kjósendum hafi mátt vera ljóst, að
það yrðu breytingar í þá átt, sem til umræðu
hefur verið. Sjálfur viðurkennir hann, að það
hafí nú kannski ekki verið alveg „kristaltært"
í kosningabaráttunni.
Auðvitað varð það að vera alveg kristal-
tært. Þegar mótazt hefur hefð og venja í
hálfa öld ganga kjósendur út frá því sem
vísu, að forsetinn hagi störfum sínum í sam-
ræmi við það nema forsetaframbjóðandi reki
kosningabaráttu sína á þeim grundvelli, að
hann hyggist koma fram breytingum. Að
öðrum kosti getur forseti legið undir ámæli
fyrir það að hafa blekkt þjóðina. Það er ill-
skiljanlegt, að lagaprófessor telji, að hægt sé
að umgangast forsetaembættið af því létt-
lyndi, sem fram kemur í orðum hans en það
skal jafnframt skýrt tekið fram, að með því
er ekki átt við að núverandi forseti geri það.
Þessar athugasemdir snúast um ummæli og
skoðanir Sigurðar Líndals, en ekki embætt-
isathafnir núverandi forseta.
I fyrmefndum sjónvarpsþætti fjallaði Sig-
urður Líndal um þá lykilspurningu, sem
Morgunblaðið hefur áður gert að umtalsefni í
þremur forystugreinum, hversu langt forseti
Islands geti gengið í því að blanda sér í um-
ræður um deilur og dægurmál, sem eru til
umfjöllunar á opinberum vettvangi. Um þá
spurningu segir prófessor Sigurður Líndal
m.a.: „...mér finnst ekkert óeðlilegt að hann
tjái sig um mál, sem brenna á þjóðinni. Það
er einu sinni ekki alveg sama, hvernig hann
gerir það og hann verður að gera það með
gát, með vissri gát, það held ég að sé alveg
ljóst og svona forðast árekstra, beina
árekstra við ríkisstjórn, það held ég nú að sé
alveg ljóst. En hann má ræða málin og við
getum kannski komið að því seinna hvernig
maður gæti hugsað sér það, við getum svo
sem nefnt það strax, það er náttúrlega fjöldi
af deilumálum í þjóðfélaginu og mér fínnst
engin ástæða, að forsetinn leiði það alveg hjá
sér, en það væri æskilegt, ef hann gerði það,
að það væri svona kannski á svona dálítið
hærra sjónarhóli en hin venjulega pólitíska
umræða er og ég tala nú ekki um, ef hann
benti svona á nýja fieti á umræðunni og gæti
jafnvel leitt til þess, að menn sæju það í öðru
ljósi. Þá væri það hið bezta mál að mínum
dómi. Við skulum taka t.d. hálendisumræðu,
fiskveiðistjórn, eitthvað þess háttar. Ef hann
sæi nú einhvem sameiginlegan flöt ... eða
nýjar leiðir eða hugsanlegar sáttaleiðir
o.s.frv. þá finnst mér það bara mjög gott. En
það er auðvitað hægara um að tala en í að
komast."
Þessi orð Sigurðar Líndals er ekki hægt að
skilja á annan veg en þann, að hann telji eðli-
legt, að forseti Islands taki þátt í almennum
umræðum um þau mál, sem efst eru á baugi
hverju sinni og þá ekkert síður alvarleg
deilumál, þar sem prófessorinn nefnir sér-
staklega deilurnar um stjórn fiskveiða, sem
staðið hafa á annan áratug og eru einhverjar
mestu þjóðfélagsdeilur, sem risið hafa á lýð-
veldistímanum og hálendisumræðurnar, sem
stefna í sama farveg eins og öllum er vænt-
anlega ljóst. Hann gerir að vísu þá kröfu, að
forsetinn leitist við að tala af hærra sjónarhól
en aðrir landsmenn.
Til hvers mundi það leiða, ef forsetaemb-
ættið yrði þróað í þann farveg, sem prófessor
Sigurður telur greinilega eðlilegt? Kjör for-
seta mundi snúast um afstöðu hans til þeirra
dægurmála, sem efst væru á baugi, þegar
kosningar færu fram. Segjum sem svo, að
þær færu fram næsta vor og forsetafram-
bjóðendur yrðu krafðir sagna um afstöðu
sína til fiskveiðistjórnunar, hálendis- og
virkjunarmála og gagnagrunnsins. Hver er
staða frambjóðendanna við slíkar aðstæður?
Hvernig mundi sú kosningabarátta fara
fram? Er ekki alveg ljóst, að þetta fyrir-
komulag mundi leiða til þess, að stjórnmála-
flokkamir hefðu á ný bein afskipti af því,
hverjir yi’ðu í framboði og mundu jafnframt
beita öllum mætti sínum og skipulagi til þess
að þeirra frambjóðandi næði kjöri?
Þegar forseti hefði verið kjörinn við slíkar
aðstæður mundi sá hluti kjósenda, sem væri
andvígur skoðunum forseta í þessum um-
deildu málum, seint geta litið á hann sem for-
seta sinn, raunverulegan þjóðhöfðingja og
sameiningartákn, sem Sigurður Líndal gerir
að vísu lítið úr. Og þá má jafnframt spyrja: til
hvers að kjósa forseta með þeim hætti? Um
þessi deilumál er tekizt á í almennum kosn-
ingum til Alþingis. Hvaða stjórnskipulega
þýðingu hefði það að kjósa annan þjóðkjörinn
fulltrúa til að sitja á Bessastöðum og kjósa
hann á sömu forsendum og við kjósum al-
þingismenn? Væri þá ekki einfaldara að
leggja forsetaembættið niður og fela forseta
Alþingis að gegna þeim embættisskyldum,
sem frá lýðveldisstofnun hafa hvílt á forseta
íslands? Þeir sem mæla með því, að forseti
íslands taki þátt í almennum umræðum þótt
frá „hærra sjónarhóli“ væri verða að hugsa
þetta mál til enda.
Jafnframt vakna aðrar spurningar. Núver-
andi forseti Islands gerði athugasemdir við
gagnagrunnsfrumvarpið í ræðu sinni á Hól-
um í Hjaltadal á þann veg, að ekki fór á milli
mála. Frumvarpið sjálft er hins vegar lagt
fram á Alþingi í hans nafni. Hvernig getur
forseti lagt fram frumvarp á Alþingi, sem
hann er sjálfur á móti? Verði frumvarpið
samþykkt á Alþingi er það lagt fyrir forset-
ann til undirskriftar. Hver er staða forseta
íslands til þess að skrifa undir lög, sem hann
hefur sjálfur mælt opinberlega gegn? Þýðir
það, að hann er knúinn til að vísa því til þjóð-
aratkvæðagreiðslu til þess að vera sjálfum
sér samkvæmur? Og ef hann gerir það,
kannski í hverju málinu á fætur öðru, til
hvers leiðir það? Er ekki augljóst, að þá er
komin upp alvarleg stjórnskipuleg kreppa í
landinu? Hvernig í ósköpunum stendur á því,
að prófessor í lögum við Háskóla Islands
kemur ekki auga á þessa augljósu vankanta á
eigin málflutningi?
Sigurður Líndal sagði í sjónvarpsþættin-
um, að hann teldi „óþarfa" að skilja ræðu for-
setans á Hólum í Hjaltadal á þann veg, að
hann væri að andmæla gagnagrunnsfrum-
varpinu. Þótt Morgunblaðið sé ósammála
skilningi prófessorsins á ræðunni skiptir það
ekki máli í þessu samhengi, heldur sú al-
menna skoðun Sigurðar Líndals, að forseti
geti og eigi að taka þátt í almennum umræð-
um. Slík þátttaka mundi leiða til þess, sem
hér hefur verið lýst.
í SJÓNVARPS-
þættinum kom Sig-
urður Líndal inn á
þátt forseta íslands í
stjómannyndunum
og sagði m.a.: „Ef
hér væri sífelld stjórnarkreppa og upplausn
þá mundi forseti hafa og það væri alveg inn-
an stjómskipunarinnar, miklu meiri afskipti
af stjórnmálum. Þá gæti hann farið að
möndla til ríkisstjórnir og hræra í hinum
pólitísku pottum dálítið hressilega. En þegar
stjórnarfar er stöðugt, sæmilega stöðugt og
ríkisstjórn styðst við traustan meirihluta og
ekki fyrirsjáanlegar og ekki hafa verið
Forseti og
stjórnar-
myndun
GERT að netum á Eskifirði.
Morgunblaðið/RAX
stjórnarkreppur um alllangan tíma þá geng-
ur þetta dálítið eins og smurð vél.“
Hér hefur lagaprófessorinn fastara land
undir fótum en í öðrum ummælum sínum, og
þó. Lengi hefur verið talið, og það er hægt að
líta svo á samkvæmt orðanna hljóðan, að for-
seti íslands gæti haft mikil áhrif á stjómar-
myndun, ef þannig stæði á. Eftir því, sem
bezt er vitað er eina dæmið um slíkt afskipti
Ásgeirs Ásgeirssonar af stjórnarmyndun í
desember 1958. Þá háttaði þannig til, að
vinstri stjórn Hermanns Jónassonar var fall-
in en skipuleg tilraun stóð yfir til þess að
endurreisa hana. Þá óskaði þáverandi forseti
eftir því, að Alþýðuflokkurinn myndaði
minnihlutastjórn og teningunum var kastað.
Lagður var gmnnur að Viðreisnarstjórn,
sem sat að völdum í 13 ár. Að baki ósk þáver-
andi forseta hafa vafalaust legið samtöl á
milli forystumanna Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks og forsetans.
Frá því að þetta gerðist er ekki vitað til
þess, að forseti hafí haft nokkur áhrif, sem
máli skipta, á stjórnarmyndun. Það má velta
fyrir sér í þessu sambandi stjórnarmyndun
Gunnars Thoroddsens í febrúar 1980 en þó
er ofmælt að segja, að Kristján Eldjám hafí
haft úrslitaáhrif á hana, þótt spurningar hafí
vaknað um þá ákvörðun hans að veita Gunn-
ari Thoroddsen umboð til þess að mynda
stjóm.
Þess vegna má færa að því sterk rök, að
það hafi smátt og smátt myndast fyrir því 40
ára gömul hefð, að forseti hefði ekki þau af-
skipti af stjórnarmyndun, sem Sigurður Lín-
dal telur að hann geti haft. Og þegar tekið er
mið af þróun íslenzkra stjómmála á þessum
tíma er nánast hægt að fullyrða, að forystu-
menn stjórnmálaflokkanna mundu taka því
afar illa, ef þeir yrðu varir við afskipti forseta
af stjórnarmyndun, sem þeir kynnu að telja
að ekki væru við hæfí. Alla vega er Ijóst, að
lagaprófessorinn gengui- býsna langt í því að
fullyrða, að forseti geti „hrært í hinum póli-
tísku pottum dálítið hressilega". Eins og nú
háttar málum gæti það hugsanlega leitt til
mikilla átaka á milli forseta og einhvers hluta
Alþingis a.m.k.
Friður um
forseta-
embættið
HÉR HAFA VERIÐ
færð rök að því, að
það mundi hafa
óheillavænleg áhrif á
forsetaembættið, ís-
lenzk stjórnmál og
þjóðfélag okkar, ef forsetaembættið yrði þró-
að í þann farveg, sem Sigurður Líndal, pró-
fessor, virðist telja eðlilegt samkvæmt um-
mælum hans sjálfs í umræðuþætti í ríkis-
sjónvarpinu. Við íslendingar þurfum á öðru
að halda en deilum um forsetaembættið.
Við kjósum alþingismenn til þess að hafa
löggjafarvaldið með höndum og meirihluti
Alþingis kemur sér saman um ríkisstjórn til
þess að fara með framkvæmdavaldið. Þjóðin
þarf ekki viðbótarfulltrúa, þjóðkjörinn for-
seta, til þess að sjá um þessa hlið mála. Sem
sjálfstæð þjóð þurfum við á að halda þjóð-
höfðingja, sem kemur fram fyrir hönd ís-
lenzku þjóðarinnar út á við og sinnir ákveðn-
um embættisskyldum inn á við. Við þurfum
m.ö.o. sameiningartákn. Það er mikilvægasta
hlutverk forseta íslands og það er ekki lítið
hlutverk. Þvert á móti skiptir það verulegu
máli.
Auðvitað þróast forsetaembættið með tím-
anum og tekur breytingum. Það er óhjá-
kvæmilegt. En það skiptir máli í hvaða átt
þær breytingar stefna. Frú Vigdís Finnboga-
dóttir var frumkvöðull að einni grundvallar-
breytingu í rekstri forsetaembættisins. Hún
hóf að beita áhrifamætti þjóðhöfðingjans
meðal annarra þjóða til framdráttar íslenzku
atvinnu- og viðskiptalífí. Núverandi forseti
hefur fylgt þeirri breytingu fast eftir. Óhætt
er að fullyrða, að bæði frú Vigdís og herra
Ólafur Ragnar hafa haft jákvæð áhrif á starf-
semi íslenzkra fyrirtækja erlendis. Þannig
má leiða líkur að því, að forsetinn hafi haft
heillavænleg áhrif á þær samningaviðræður,
sem nú standa yfír á milli sænska risafyrir-
tækisins Ericssons og íslenzka hugbúnaðar-
fyrh’tækisins Oz, viðræður sem geta haft
mjög mikla þýðingu. Þetta er dæmi um að
forsetaembættið hafi verið þróað í nýjan og
jákvæðan farveg.
í fyrrnefndum sjónvarpsþætti sagði Sig-
urður Líndal m.a.: „Mér finnst gæta oft tals-
verðs misskilnings um stöðu embættisins
innan stjórnskipunarinnar og ég verð nú því
miður að segja það að mér þykir Morgun-
blaðið hafa löngum alið á slíkum misskilningi.
Ég skrifaði einu sinni 6 greinar í DV til þess
svona að reyna aðeins að leiðrétta vissar
missagnir í Morgunblaðinu og hef nú reynd-
ar aldrei fengið neinar athugasemdir svo ég
geri ráð fyrir því að þeir fallist á þær.“
Því miður virðist það hafa farið fram hjá
ritstjórn Morgunblaðsins, að prófessorinn
hafí skrifað 6 greinar í DV til þess að „leið-
rétta ... missagnir“ Morgunblaðsins. Þar af
leiðandi getur hann engar ályktanir dregið af
því, að um þær hafí ekki verið fjallað. Hins
vegar hefur hér verið fjallað um þau sjónar-
mið, sem hann setti fram opinberlega í fyrri
viku og fer þá væntanlega ekki lengur á milli
mála, hver skoðanamunur prófessorsins og
Morgunblaðsins er.
„Hvernig getur for-
seti lagt fram frum-
varp á Alþingi, sem
hann er sjálfur á
móti? Verði frum-
varpið samþykkt á
Alþingi er það lagt
fyrir forsetann til
undirskriftar. Hver
er staða forseta Is-
lands til þess að
skrifa undir lög,
sem hann hefur
sjálfur mælt opin-
berlega gegn? Þýð-
ir það, að hann er
knúinn til að vísa
því til þjóðarat-
kvæðagreiðslu til
þess að vera sjálf-
um sér samkvæm-
ur? Og ef hann ger-
ir það, kannski í
hverju málinu á
fætur öðru, til
hvers leiðir það? Er
ekki augljóst, að þá
er komin upp alvar-
leg stjórnskipuleg
kreppa í landinu?
Hvernig í ósköpun-
um stendur á því,
að prófessor í lög-
um við Háskóla Is-
lands kemur ekki
auga á þessa aug-
ljósu vankanta á
eigin málflutningi?“