Morgunblaðið - 13.12.1998, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ
56 SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998
♦ Gefðu þá Trend gjafapakkninguna
♦ Hún er á tilboðsverði
♦ Með Trend næst árangur
Fæst í apótekum og snyrtivöruverslunum um allt land
Andtítskremin írá Trend
í tilboðspakkningum
1. Duo-Liposome krem, dsg- og næturkrem
2. Free Radical gel, til að fjarlægja úrgangsefni úr húðinni.
3. AHA krem til að fjarlægja dauðar húðfrumur.
Notist sem næturkrem eina viku í mánuði.
Með Trend næst árangur
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Ingólfsapótek, Kringlunni, - Rima Apótek, Grafarvogi.
UTILIF
adidas mmi&m
Handboltinn á Netinu ^mbl.is
ALLTAf= eiTTH\SA& A/ÝT7
FÓLK í FRÉTTUM
Verðugur minnisvarði
TONLIST
Geisladiskur
SÖKNUÐUR
Ellefu söngvarar heiðra minningu
Vilhjálms Vilhjálmssonar og syngja
lögin hans. Flytjendur: Helgi Björns-
son, Björgvin Halldórsson, Sigríður
Beinteinsdóttir, Andrea Gylfadóttir,
Stefán Hilmarsson, Bubbi Morthens,
Páll Rósinkranz, KK og EUen Krist-
jánsdóttir, Pálmi Gunnarsson, Vil-
hjálmur Vilhjálmsson, auk hljómlist-
armanna úr ýmsum áttum. Laga- og
textahöfundar ýmsir. í mörgum til-
vikum annast flytjendur sjálfir út-
setningar ásamt öðrum, þ.á m. Mána
Svavarssyni í þremur lögum, sem
einnig annast upptökustjórn á sömu
lögum, en í öðrum lögum eru ýmsir
upptökustjórar. Skífan gefur út.
Lengd: 38:25 min.
ÞEGAR ráðist er í útgáfu á göml-
um lögum, sem notið hafa fádæma
vinsælda, taka menn vissulega
mikla áhættu. Ekki síst þegar um
er að ræða lög sem virtir og ástsæl-
ir listamenn á borð við Vilhjálm
heitinn Vilhjálmsson hafa gert
ódauðleg. Eg verð því að játa að ég
var fullur efasemda þegar ég heyrði
fyrst af þeirri útgáfu sem hér er til
umfjöllunar, þar sem nokkrir
þekktir söngvarar og tónlistarmenn
flytja lög Vilhjálms í nýjum útsetn-
ingum. Einhvem veginn fannst mér
að þessi verk Vilhjálms væru
ósnertanleg og við þeim ætti ekki að
hrófla, enda yrði tæpast betur gert.
Þessar efasemdir hurfu þó fljótlega
eftir að ég fór að hlusta á plötuna
enda hefur vel tekist til, að mínu
mati, og er .verkið í heild verðugur
minnisvarði um þá tónlist, sem Vil-
hjálmur skildi eftir sig og arfleiddi
okkur hina að. Og það er eins og
maður fínni hjá hverjum og einum
flytjanda, að hann hefur gengið til
verks af einlægri virðingu fyrir
minningu Vilhjálms.
Helgi Bjömsson ríður á vaðið og
syngur lagið Ég fer í nótt, með
„sínu nefi“, en lagið er gamall
amerískur slagari sem margir
þekkja undir nafninu „Put your
sweet lips“. Svona fyrirfram fannst
manni Helgi kannski ekki heppileg-
asti kandídatinn til að flytja þetta
lag, en hann kemur hér þægilega á
óvart og hefur sniðið laginu, sem
hann útsetur sjálfur ásamt ágætri
hljómsveit og Ólafi Gauk, þann
stakk sem hentar honum vel. Björg-
vin Halldórsson syngur titillagið
Söknuð eftir Jóhann Helgason við
texta Vilhjálms, en þetta lag er lík-
lega eitt þekktasta og vinsælasta
lag Vilhjálms, og án efa eitt falleg-
asta lag sem Jóhann hefur samið
um ævina. Björgvin syngur lagið,
sem hann hefur sjálfur útsett ásamt
Þóri Baldurssyni, af tilfinningu, en
útsetningin er látlaus og ekki
ósvipuð hinni upprunalegu í meðför-
um Vilhjálms. Sigríður Beinteins-
dóttir syngur lagið Lítill drengur
eftir Magnús Kjartansson við texta
Vilhjálms í sérlega skemmtilegri út-
setningu Sigríðar og Mána Svavars-
sonar, sem einnig annast upptöku-
stjórn. Sigga fer afskaplega vel með
þetta lag og góður undirleikur
þeirra Eiðs Arnarsonar á bassa,
Jóns E. Hafsteinssonar á gítar og
Mána Svavarssonar á hljóðgervil
gefur laginu nýja vídd. Lagið Bíddu
pabbi er hér í flutningi og útsetn-
ingu hljómsveitarinnar Sóldaggar,
en einhverra hluta vegna finnst mér
sveitin ekki nægilega sannfærandi í
þessu lagi, því miður.
Frostrósir eftir Freymóð
Jóhannsson í flutningi Andreu
Gylfadóttir er hins vegar hápunktur
þessarar plötu, að mínum dómi.
Andrea syngur lagið af slíkri tilfinn-
ingu og innlifun að það getur tæpast
látið nokkurn mann ósnortinn sem á
hlýðir. Að minnsta kosti kallar túlk-
un hennar fram afar sterk hughrif
hjá mér í hvert skipti sem ég hlusta
á lagið. Útsetning lagsins er ein-
staklega vel heppnuð, en heiðurinn
af henni á Andrea sjálf, ásamt
stórgóðri hljómsveit sem annast
undirleikinn, þar sem hæst rísa
smekklegar slaufur Kjartans Valdi-
marssonar á píanó. Stefán Hilmars-
son syngur lagið Það er svo skrýtið
eftir Magnús Eiríksson og gerir það
vel eins og hans er von og vísa, og
enn gerir skemmtileg útsetning,
upptaka og hljóðblöndun Mána
Svavarssonar lagið sérlega áheyri-
legt.
Líkt og með Helga Björnsson
hafði ég fyrirfram ákveðnar efa-
semdir um Bubba Morthens í hlut-
verki túlkanda á verkum Vilhjálms,
en hann sleppur vel frá þessu.
Bubbi syngur hér lagið Hrafninn
eftir Gunnar Þórðarson við texta
Kristjáns frá Djúpalæk, en þetta
lag vai’ ekki í hópi þekktustu laga
Vilhjálms á sínum tíma svo ég muni.
Líklega hefur Bubbi hitt naglann á
höfuðið þegar hann hætti við að
krefjast þess að fá að syngja Sökn-
uð og valdi þetta lag í staðinn. Lagið
stingur í stúf við annað efni á plöt-
unni og túlkun Bubba gefur því
ákveðna sérstöðu. Bubbi syngur og
spilar þetta lag á gítar og munn-
hörpu og honum til aðstoðar við út-
setningar er Eyþór Gunnarsson. Að
mínu mati hefur þeim félögum tek-
ist ágætlega upp á því sviði. Páll
Rósinkranz syngur Svefnljóð eftir
Magnús Kjartansson í suðrænni út-
setningu Þorvaldar B. Þorvaldsson-
ar með dálítið „skemmtaralegu"
undirspili. Páll fer ágætlega með
lagið, en þótt það sé eitt eftirminni-
legasta lag, sem Vilhjálmur heitinn
söng inn á hljómplötu á sínum tíma,
situr ekki mikið efth’ af því í mínum
huga eftir að hafa hlustað á það í
þessum flutningi. Ellen Kristjáns-
dóttir og KK, bróðir hennar, flytja
og útsetja lagið Ljúfa líf, sem Vil-
hjálmur söng ásamt systur sinni,
Ellý Vilhjálms, inn
á hljómplötu á sín-
um tíma. Samsöng-
ur þeirra systkina,
Ellenar og Krist-
jáns, lætur vel í eyr-
um og útsetning
Kristjáns virkar vel
á mann, og því bet-
ur sem oftar er
hlustað.
Það tók mig dálít-
inn tíma að venjast
túlkun Pálma
Gunnarssonar á
laginu I rúmi og
tíma eftir Magnús
Einarsson, en lagið
vinnur á við hlust-
un. Pálmi útsetur
sjálfur ásamt Krist-
jáni Edelstein, en þeir tveir annast
einnig hljóðfæraleik. Pálmi er enn-
fremur höfundur síðasta lagsins á
þessum geisladiski, Dans gleðinnar,
en þetta lag er annað stærsta tromp
þessarar útgáfu, að mínu mati.
Bæði er lagið sjálft stórgott frá
hendi höfundar og það sem meira
er: Hér syngur Vilhjálmur sjálfur
og er stuðst við upptöku frá því
1976, þar sem lagið er flutt í útsetn-
ingu Magnúsar Ingimarssonar.
Máni Svavarsson annast útsetningu
þessarar endurgerðar, og með að-
stoð stafrænu tækninnar færir hann
lagið í nútímalegri búning, meðal
annars með því að skipta um hljóm í
undirleikshljóðfærum. Hér er afar
smekklega að verki staðið og í raun
merkileg reynsla að upplifa með
þessum hætti möguleika
nútímatækni í hljóðupptöku. Það
hvarflaði að mér, eftir að hafa hlust-
að á þetta lag fram og til baka,
hvort það hefði verið ráð að vinna
alla plötuna með þessum hætti? I
öllu falli er skemmtilegt að velta því
fyrir sér hvernig útkoman hefði þá
orðið. Með þessum hugleiðingum er
ég þó ekki að gera lítið úr túlkun
þeirra sem hér koma við sögu, síður
en svo. Þessi diskur er hinn eiguleg-
asti gripm- og öllum hlutaðeigandi
til sóma.
Sveinn Guðjónsson
NIKEBÚÐIN
Laugavegi 6