Morgunblaðið - 16.12.1998, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1998
FRETTIR
MORGUNBLADIÐ
mm,
-79*0 -
iin,,"
WC skípta niáLL
Magnarl: 2 x 50W rns
útvarp neð 24 stöðva mlnnL
þrlggja dlska spllarl
TVöfalt segulband
Hátalarar tvCsklptlr: 8ow
pouer bass
Magnarl: 2 x íoow rms
útvarp með 24 stöðva mlnnl
brlggja dlska spLLarL
TvöfaLt seguLband
HátaLarar tvLskLptLr: i20w
pouer bass
pauer
MagnarL 2 x 120W rms
útvarp með 24 stöðva mLnnL
26 dLska spLLarL
TvöfaLt seguLband
HátaLarar tvískLptLr: 150W
pouer bass
pauer
i E5 § es;>-v manMl
fci, ^4' IS«^íí35?^Í>Íl
Drengjakór Laugarneskirkju
Sumir hafa
verið í kórnum
frá upphafí
Friðrik Kristinsson
A
KVÖLD, miðviku-
daginn 16. desember,
verða í Seltjarnarnes-
kirkju jóla- og útgáfutón-
leikar Drengjakórs Laug-
ameskirkju. Friðrik S.
Kristinsson er stjórnandi
kórsins.
„Drengjakór Laugar-
neskirkju var stofnaður
haustið 1990 og hann var
og er eini drengjakór
landsins. I byrjun voru
fimmtán drengir í kórn-
um en hann hefur stöðugt
vaxið og nú eru kórfélag-
arnir orðnir þrjátíu og
fimm.“
- A hvaða aldri eru pilt-
arnir?
„Drengirnir í kórnum
eru á aldrinum átta til
fjórtán ára og meðal kór-
félaga eru piltar sem hafa sungið
í kórnum frá upphafi, eða í níu ár.
Þeir eru nú komnir í eldri deild-
ina eins og við köllum þann kór.
Þetta er þriðji veturinn sem sá
kór er starfræktur og í honum
era átta piltar á aldrinum 17-19
ára.“
- Hvernig er starfí kórsins
háttað?
„í hverjum mánuði kemur kór-
inn reglulega fram við guðsþjón-
ustur í Laugarneskirkju. Auk
þess hefur hann haldið bæði jóla-
og vortónleika og síðan kemur
hann fram við önnur margvísleg
tækifæri.“ I því sambandi segir
Friðrik að megi nefna að kórinn
kom fram í jólamessu biskups ís-
lands í sjónvarpinu árið 1991,
hann kom fram hjá forseta ís-
lands á Bessastöðum sama ár, á
aðventutónleikum með Karlakór
Reykjavíkur árið 1995 og á Evr-
óputónleikum ríkisútvarpsins árið
1997.
Hann segir að drengjakórinn
hafi verið gestgjafi nokkurra er-
lendra drengjakóra og annað-
hvert ár fer kórinn utan í söngför.
„Þess á milli förum við um landið
og höldum tónleika. I sumar fór-
um við til Englands og fyrir
tveimur árum var ferðast um Sví-
þjóð og Danmörku."
- Er auðvelt að fá stráka til að
syngja í kór?
„Já, það er nægilegt framboð
af piltum sem vilja syngja í kór og
það komast færri að en vilja. Við
höfum miðað við að hafa ekki
fleiri en 35 drengi í kórnum.
- Hvernig lög syngur kórínn ?
„Drengjakórinn er fyrst og
fremst kirkjukór og syngur því
marga sálma og lofsöngva.
Þar fyrir utan má segja að allt
sé tekið fyrir og kórinn syngi allt
frá Bach og að Bítlunum.“
Friðrik segir að strákarnir
syngi flest lög í þriggja radda út-
setningum en í blönduðum kór
eru lögin venjulega
sungin í fjórum rödd-
um. „Þegar eldri kór-
inn syngur með okkur
syngjum við í fjögurra
radda útsetningu.“
- Æfír kórínn mikið í viku
hverrí?
„Við æfum tvisvar í viku í
Laugarneskirku og höldum svo
aukaæfingar ef eitthvað stendur
til eins og jólatónleikarnir í kvöld.
Að baki kórnum stendur öflugt
foreldrafélag og kórstarfið myndi
aldrei ganga svona vel ef for-
eldrastarfsins nyti ekki við. Auk
þess styður Laugarneskirkja vel
við bakið á piltunum.“
-Hvað ætlið þið að syngja á
tónleikunum í kvöld?
►Friðrik Kristinsson er fædd-
ur í Stykkishólmi árið 1961.
Hann tók söngkennarapróf frá
Söngskólanum í Reykjavík árið
1987.
Friðrik hefur starfað sem
söngkennari og söngstjóri und-
anfarin 9 ár og verið söng-
stjóri Snæfellingakórsins,
Karlakórs Reykjavíkur og
Drengjakórs Laugarneskirkju.
Eiginkona hans er Þórdís
Helgadóttir hárgreiðslumeist-
ari og eiga þau 2 dætur.
„Fyrri hluta tónleikanna flytj-
um við eingöngu lög af nýja disk-
inum okkar og eftir hlé verðum
við með jólatónlist á dagskrá.“
- Er þetta í fyrsta skipti sem
kórínn syngur inn á geisladisk?
„Nei, við höfum gert þetta einu
sinni áður. A þessum geisladiski
kennir ýmissa grasa. A honum
syngur kórinn til dæmis verk eft-
ir íslensk tónskáld eins og Te De-
um eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
Þá er að finna á honum Vínarljóð
eftir Frans Schubert en titillag
kórsins er úr Vínarljóðinu og
heitir Hvað vitið þið fegra?“
Friðrik segir að strákarnir
sjmgi líka dúetta og einsöng. „Við
erum líka með tvö ensk þjóðlög á
diskinum sem við sungum í
Englandi í sumar. Það má segja
að þetta sé tónleikadiskur því á
honum er efnisskráin sem við fór-
um með til Englands í sumar.
Undii-leikari á tónleikunum í
kvöld er Peter Máté,“
- Hvað er framundan hjá kórn-
um?
„Við höfum að undanfórnu ein-
beitt okkur að því að æfa fyrir
tónleikana sem verða í kvöld í
Seltjarnarneskirkju. 19. desem-
ber næstkomandi ætlum við að
syngja með Sinfóníuhljómsveit
íslands á jólatónleikum hennar.
Þá syngur kórinn við messu í
Laugarneskirkju
klukkan 18 á aðfanga-
dagskvöld. Á nýju ári
föram við svo að æfa
dagskrá fyrir vorið en
þá er meiningin að
halda í ferðalag um landið okkar
og halda tónleika.“
Tónleikar Drengjakórs Laug-
arneskirkju verða að þessu sinni
haldnir í Seltjarnarneskirkju eins
og komið hefur fram. Friðrik seg-
ir að með því að prófa að halda
tónleikana í öðru húsnæði en
Laugarneskirkju kynnist strák-
arnir því að syngja annars staðar
en á heimavelli. Tónleikarnir sem
hefjast klukkan 20.30 eru öllum
opnir og verður miðasala við inn-
ganginn.
Jóla- og út-
gáfutónleíkar
í kvöld