Morgunblaðið - 19.12.1998, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
7,8%
6,0%
Skipting rekstrargjalda Reykjavíkurborgar 1999
__j 30,5%
\ FÉLAGS- OG ÖLDRUNARMÁL
| DAGVIST BARNA
ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDAMÁL
GÖTUR OG HOLRÆSI
UMHVERFIS- OG HREINLÆTISMÁL
MENNINGARMÁL
j| STJÓRN BORGARINNAR
gH ALMENNINGSSAMGÖNGUR
JJ SKIPULAGS- OG BYGGINGARMÁL
1,8% VIÐHALD EIGNA
1,3% BRUNA- OG ALMANNAVARNIR
ÖNNUR ÚTGJÖLD
HÉR má sjá hlutfallslega skiptingu á útgjöldum Reykjavíkurborgar
eftir málaflokkum.
Mesta fólksíjölgun
í ár síðan 1991
MANNFJÖLGUN á íslandi á þessu
ári hefur verið sú mesta síðan 1991
en samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu íslands um mannfjölda á
íslandi 1. desember síðast liðinn,
voru 275.277 einstaklingar búsettir
hérlendis. Þar af voru karlar 137.880
talsins og konur 137.397 talsins.
Hinn 1. desember í fyrra voru
íbúar á landinu 272.069 talsins. Á
einu ári fjölgaði íbúum því um 3.208
eða 1,18%, sem er mun meiri fólks-
fjölgun en á árinu 1997. Síðustu tíu
ár hefur fólki á landinu fjölgað um
23.587 eða 9,4%.
Tölur um fjölda fæðinga, andláta
og flutninga til og frá landinu árið
1998 liggja ekki enn fyrir en brágða-
birðatölur benda til þess að um
4.200 börn hafí fæðst frá desember
1997 til nóvember 1998 og að tæp-
lega 1.900 manns hafi látist á sama
tíma.
Fækkar ekki alls staðar
á Vestfjörðum
Fóiki fjölgaði á höfuðborgarsvæð-
inu árið 1998, Suðurnesjum, Vestur-
landi og Suðurlandi en fækkaði á
öðrum landssvæðum. Mest varð
fækkunin á Austurlandi, eða um 258
íbúa, sem nemur 2,1% fækkun, og á
Norðurlandi vestra, eða um 218
íbúa, sem nemur 2,2% fækkun. Á
Vestfjörðum fækkaði um 54 íbúa,
eða sem nemur 0,6% fækkun. Þrátt
fyrir þessa niðurstöðu, fjölgaði íbú-
um á Tálknafirði, Bfldudal, Þingeyri,
Flateyri, Suðureyri og Drangsnesi.
Á síðasta áratug hefur íbúum fækk-
að mest á Vestfjörðum af landinu
öllu, eða um 1.507 íbúa.
Nú býr 61% mannfjöldans á höf-
uðborgarsvæðinu, þar af 39,4% í
Reykjavík.
Tillögu sjálfstæðismanna um að falla frá útsvarshækkun visað frá
Reykjavíkurlistinn stað-
festi útsvarshækkunina
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur vísaði frá til-
lögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisílokksins um að
fallið yrði frá hækkun útsvars á næsta ári en
tillagan kom fram við umræðu um fjárhagsá-
ætlun borgarinnar íyrir næsta ár á borgar-
stjómarfundi á fimmtudag. „Borgarstjórn
Reykjavíkur samþykkir að staðfesta fyrri
ákvörðun um hækkun útsvarshlutfalls í
Reykjavíku úr 11,24% í 11,99%/“ sagði m.a. í
frávísunartillögu Reykjavíkurlistans og var
hún samþykkt með 8 atkvæðum meirihlutans
gegn 7.
Við þessa atkvæðagreiðslu, sem fram fór
laust eftir miðnætti, hafði Anna Geirsdóttir,
varaborgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, tekið
sæti á fundinum en framan af fundi hafði Pétur
Jónsson setið sem varafulltrúi en eins og
Morgunblaðið hefur greint frá úrskurðaði sett-
ur félagsmálaráðherra að seta Péturs sem
varamanns Hrannars B. Arnarssonar væri
ólögmæt. Hafði Inga Jóna Þórðardóttir, odd-
viti sjálfstæðismanna, lýst því yfir á fundinum
að vegna úrskurðarins væri ákvörðun borgar-
stjórnar frá 30. nóvember um hækkun útsvars-
ins ólögmæt þar sem Pétur tók þátt í þeirri at-
kvæðagreiðslu.
Alls verða skatttekjur borgarinnar á næsta
ári 18,4 milljarðar króna og hækkuðu um 200
milljónir frá fyrri umræðu. Rekstrargjöld
verða alls 15,5 milljarðar. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri sagði í lokaorðum
ræðu sinnar að forgangsröðun borgaryfirvalda
endurspeglaðist í fjárhagsáætluninni og að
áhersla væri öðru fremur lögð á að efla skóla-
starf, fegra umhverfið, styrkja miðborgina í
Morgunblaðið/Golli
FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykjavíkurborgar
var samþykkt á borgarsljórnarfundi sem lauk
laust eftir miðnætti á fimmtudagskvöld. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri er í
ræðustóli og fjær sést í Guðrúnu Ágústsdótt-
ur, forseta borgarstjórnar.
sessi og renna styrkari stoðum undir menning-
arstarf borgarinnar.
Útsvarshækkunin
svik við borgarbúa
Inga Jóna Þórðardóttir sagði breytingartil-
lögur meirihlutans á fjárhagsáætluninni áfram-
haldandi vitnisburð um að Reykjavíkurlistanum
hefði mistekist við stjórn borgarinnar og að
hann hefði gefist upp. Borgarfulltrúinn sagði
það svik við borgarbúa að hækka útsvarshlut-
fallið og sagði það ekki gott veganesti fyrir nýtt
orkufyrirtæki að skuldsetja það með því að taka
frá því þrjá milljarða króna, það hlyti að leiða til
hækkunar á orkugjöldum þegar á næsta ári.
í bókun sjálfstæðismanna segir að útgjöld
borgarsjóðs séu í sögulegu hámarki og að
eyðslu- og útþenslustefna sé helsta ástæða þess
að meirihlutanum takist ekki að loka fjárhagsá-
ætlun án þess að leggja álögur á Reykvíkinga
með útsvarhækkun. „Meirihluti borgarstjórnar
hefur hafnað tillögu okkar sjálfstæðismanna um
að falla frá hækkun útsvars og ganga til sam-
starfs um niðurskurð á útgjöldum borgarinnar
um þá upphæð. Með þeirri afstöðu undirstrikar
meirihlutinn viljaleysi sitt til að ná tökum á fjár-
málastjórn borgarinnar," segir m.a. í bókuninni.
I bókun Reykjavíkurlistans segir m.a. að fjár-
hagsáætlunin einkennist af ábyrgri fjármála-
stjóm, metnaðarfullri uppbyggingu og öflugri
þjónustu. Rekstrargjöld sem hlutfall af skatt-
tekjum lækki úr rúmlega 85% í tæplega 82%,
eignamyndun borgarsjóðs verði um 2,4 milljarð-
ar á næsta ári og að skuldir lækki um tvo millj-
arða króna.
Ihuga að kaupa sér hlut í stóðhesti
Galsi frá Sauð-
árkróki metinn
á 14 milljónir
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
GALSI frá Sauðárkróki er með glæstan feril að baki og hefur ávallt
verið í fremstu röð og vakið mikla athygli hvar sem hann hefur verið
sýndur. Myndin er tekin á landsmótinu í sumar þar sem hann stóð efst-
ur í A-flokki gæðinga, knapi er annar tveggja eigenda hestsins, Bald-
vin Ari Guðlaugsson.
ÞRJÚ hrossaræktarsambönd eru
með drög að samningi um kaup á
stóðhestinum Galsa frá Sauðárki'óki
til skoðunar en hann er í eigu Þjóð-
verjans Andreasar Trappe og Bald-
vins Ara Guðlaugssonar. í samnings-
drögunum er gert ráð fyrir að sam-
böndin kaupi 65% í hestinum og
greiði fyrir 9 milljónir króna en
Trappe eigi áfram 25% og fái jafn-
framt helming af þeim sæðisskömmt-
um sem koma til með að verða frystir
til ráðstöfunar. I samningsdrögunum
er gert ráð fyrir að teknir verði 50
sæðisskammtar úr hestinum árlega
og má því ætla að hann skili vel yfir
eitt hundrað folöldum á ári. Þá er
gert ráð fyrir að Baldvin Ari muni
eiga 10% í hestinum verði af kaupum.
Verði af kaupum yrði hesturinn
metinn á fjórtán milljónh' króna sem
er metverð íyrir stóðhest hér á landi.
Er það um sjö milljónum króna
hærra verð en hrossaræktarsam-
bönd hér á landi hafa greitt hæst fyr-
ir stóðhest eftir því sem næst verður
komist.
Hrossaræktarsamtök Suðurlands,
hrossaræktarsambönd Skagfirðinga,
Vesturlands og Dalamanna eru að
hugsa málið varðandi kaup á hestin-
um. Sunnlendingar og Skagfirðingar
yrðu með sinn þriðja hlutinn hvor að-
ili en Vestlendingar og Dalamenn
yrðu saman um einn hlut.
Galsi á að baki glæsilegan feril á
mótum. Hann stóð til að mynda efst-
ur fjögurra vetra hesta á landsmóti á
Gaddstaðaflötum 1994 og tveimur ár-
um síðar var hann sýndur í kynbóta-
dómi í Gunnarsholti og hlaut þá 7,87
fyrir byggingu og 9,01 fyrir hæfi-
leika, samanlagt hlaut hann í einkunn
8,44. Sterkustu eiginleikar Galsa
voru afar gott brokk og skeið auk
þess að fá yfir 9,0 fyrir vilja og feg-
urð í reið. Á landsmótinu á Melgerð-
ismelum var Galsi sýndur í A-flokki
gæðinga og stóð þar efstur. Vakti
hann þar athygli fyrir feiknagott
brokk og skeið og sömuleiðis þótti fas
hans og framsækni með því besta
sem þar sást. I kynbótamatinu hefur
Galsi 125 stig og fram hafa komið
fjögur afkvæma hans.
Samkvæmt heimiidum Morgun-
blaðsins þykii- líklegt að lagt verði til
að gert verði gagntilboð í hestinn.
Kærunefnd
jafnréttismála
Skógræktin
braut jafn-
réttislög
KÆRUNEFND jafnréttismála hef-
ur komist að þeirri niðurstöðu að
ráðning forstöðumanns Rannsókn-
arstöðvar Skógræktar ríkisins í
febrúar síðastliðnum hefði brotið
gegn ákvæðum jafnréttislaga. Er
þeim tilmælum beint til Skógræktar
ríkisins að fundin verði viðunandi
lausn á málinu.
Þrír umsækjendur voru um stöð-
una, tveir karlar og ein kona sem
kærði ráðningu annars karlsins.
Skógrækt ríkisins hélt því fram að
grunnmenntun þess sem í starfið
var ráðinn hefði ráðið úrslitum við
valið. Kærunefndinni þótti að ekki
hefðu verið færð fyrir því fullnægj-
andi rök að sá sem var ráðinn stæði
kæranda framar hvað varðar
menntun eða að menntun hans nýtt-
ist betur en menntun kæranda. St-
arfsreynsla hafi verið svipuð og
stjómunarreynsla kæranda hafi
virst ívið meiri. Greinaskrif þess er
var ráðinn hafi þó virst meiri.
Nær allar æðstu stöður
skipaðar körlum
I jafnréttislögum segir að teljist
umsækjendur af báðum kynjum
jafn hæfir beri með vísan til 1. og 5.
greinar laganna að ráða einstakling
af því kyni sem er í minnihluta í við-
komandi starfsgrein.
I áliti kærunefndarinnar segir:
„Verður ekki séð af þeim upplýsing-
um sem fyrir liggja að sá sem ráð-
inn var búi yfir öðrum sérstökum
hæfileikum umfram kæranda. Að
teknu tilliti til menntunar, starfs-
reynslu og fræðistarfa er það álit
kærunefndar að kærandi sé a.m.k.
jafn vel að starfinu kominn og sá
sem ráðinn var. Við úrlausnina
verður því að líta til forgangsreglu
1. tl. 5. gr. jafnréttislaga. Upplýst er
að nær allar æðstu stöður hjá Skóg-
rækt ríkisins eru skipaðar körlum.
Skógræktinni bar því að skipa kær-
anda í stöðuna til þess að fullnægju
skyldu sinni samkvæmt jafnrétt-
islögum."
--------------
Ný GSM stöð
í Kringlunni
OPNUÐ hefur verið ný GSM-stöð í
Kringlunni í Reykjavík en kvartað
hefur verið undan lélegu GSM sam-
bandi í nokkrum verslunum þar.
Landssíminn opnaði stöðina á
fimmtudagskvöld.
Radíóbylgjur eiga ekki alls staðar
greiða leið í gegnum þykka veggi
verzlunarmiðstöðvarinnar og hefur
því borið á sambandsleysi af þeim
sökum. í fréttatilkynningu segir að
nú geti viðskiptavinir Landssímans
hins vegar verið í góðu farsímasam-
bandi um alla Kringlu.