Morgunblaðið - 19.12.1998, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
GENGI á hlutabréfum sem selja á starfs-
mönnum fyrirtækisins Stofnfisks hf. við
einkavæðingu þess hefur verið nefnt 1,4.
Samkvæmt útreikningum Lúðvíks Bergvins-
sonar alþingismanns, sem gagnrýnt hefur
aðdraganda einkavæðingarinnar, er það
gengi tvöfalt á við það sem upphaflega var
ákveðið á fyrirtækið þegar átti að einkavæða
það í sumar. Hann segir að samkvæmt bréfi
einkavæðingarnefndar til landbúnaðarráðu-
neytisins frá því 14. júlí í sumar virðist sem
ætlunin hafi verið að selja bréf í fyrirtækinu
á genginu 0,6-0,7, ef mið er tekið af því að
hlutafé sé um 50 m. kr. í dag. Hann segir að
endurmat á fyrirtækinu og umræðan um
málefni þess hafi hækkað þessa almennings-
eign um helming í verði og gengið sé nú orð-
ið 1,4. Ef ekki hefði komið til umræðan og
skýrsla Ríkisendurskoðunar um fyrirtækið
hefði ríkisfyrirtæki verið selt langt undir
raunvirði.
Leyniupplýsingar vegna
viðskiptahagsmuna
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
voru tekjur í ársreikningnum vantaldar um 14
milljónir króna og í skýrslu Ríkisendurskoð-
unar er bent á, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, að útflutningsskýrslur
sýni að magn hrogna þar stóðst ekki
á við það sem flutt var út, jafnvel sem
nam allt að 30% til Chile í desember
1997. Viðhlítandi skýringar hafa ekki
fengist á þvi af hverju þetta gerðist
enda ber landbúnaðarráðuneytið því
við að því sé ekki heimilt að láta upp-
lýsingar, úr skýrslu Ríkisendurskoð-
unar um fyrirtækið frá 14. ágúst sl.,
af hendi þar sem um hlutafélag er að
ræða og viðskiptahagsmunir þess séu
í húfí.
Ríkisendurskoðun er nú með mál
Stofnfisks í athugun að beiðni þing-
flokks Jafnaðarmanna og skilar brátt
niðurstöðu. Ríkisendurskoðun var
reyndar þegai- búin að ljúka málinu
af sinni hálfu og í nóvember segir
hún í svari til landbúnaðarráðuneyt-
isins að stofnunin telji að hún hafi
fengið viðunandi upplýsingar og
skýringar á reikningsskilum Stofn-
fisks hf. 30. júní.
Sérréttindi eða
viðskiptasamningur
Deilt er um hvort selja eigi íyrir-
tækið með samningi þess við land-
búnaðarráðuneytið um kynbætur á
laxahrognum fyrir fiskeldið í landinu
og til útflutnings. Þetta kalla fiskeld-
ismenn sérréttindi eða ríkisstyrk.
Vísa þeir til ákvæðis í lögum fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu
þar sem segir að afnema skuli öll lög-
boðin sérréttindi íyrirtækis áður en
það er selt.
Samningurinn kveður á um mán-
aðarlegar greiðslur fyrir kynbætum-
ar og er í gildi til ársins 2007. Fyrir
þjónustuna greiðir landbúnaðarráðuneytið
Stofnfiski 22,9 m. kr. á ári og lækkar þessi
fjárhæð um 2% á ári og miðast við lánskjara-
vísitölu 1. janúar 1998. Einnig fær félagið
ókeypis afnot af húsnæði og aðstöðu í Kolla-
firði í skiptum fyrir þjónustuna. Um u.þ.b. 200
milljóna samning er því að ræða.
Samningurinn er góður og gildur í sjálfu
sér ef ekki kæmu til einkavæðingaráförm
landbúnaðarráðuneytisins en fiskeldismenn
sjá fyrir sér að samkeppnisgrundvöllur þeirra
verði ójafn fari fyrirtækið í einkaeigu, og í
samkeppni við sjálfstætt starfandi fiskeldis-
stöðvar, með fastan samning við ríkið í
farteskinu.
Stofnfiskur var stofnaður árið 1991 í þeim
tilgangi að hefja kynbætur á vatna- og sjávar-
dýrum. Fyrirtækið er mikilvægt fiskeldinu í
landinu þar sem það hefur unnið að kynbótum
á norskum eldislaxi þannig að hann þoli ís-
lenskar aðstæður betur.
Fyrirtækið er hlutafélag að 93,7% í eigu
ríkisins og að 6,3% í eigu Vigfúsar Jóhanns-
sonar annarsvegar og fiskeldisfyr-
irtækisins Öxnalækjar hinsvegar.
Fyrirtækinu er skylt, samkvæmt
3. gr. samningsins við landbúnað-
arráðuneytið, að selja öllum laxeld-
isfyrirtækjum starfandi á íslandi
laxahrogn til eigin nota.
Að öðru leyti er gert ráð fyrir að Stofnfisk-
ur fjánnagni sjálft rekstur félagsins með tekj-
um af starfsemi sinni. Þær tekjur fær félagið
að stórum hluta í gegnum samning við fyrir-
tækið Patagonia í Chile, en sá samningur er
um sölu á hrognum, erfðafræðiþekkingu og
þjónustu.
Málið er í bið
Skarphéðinn Steinarsson, starfsmaður
framkvæmdanefndar um einkavæðingu, segir
að málið sé í bið sem stendur, beðið sé niður-
Hrogn í
hringiðu einka-
væðingar
Væringar eru vegna væntanlegrar einkavæðingar físk-
eldisfyrirtækisins Stofnfísks hf. Þóroddur Bjarnason
kynnti sér málið og komst að því að það snýst m.a. um
verðmat á fyrirtækinu sem tengist ásökunum um
rangan ársreikning fyrirtækisins og 200 milljóna kyn-
bótasamningi þess við landbúnaðarráðuneytið.
STOFNFISKUR hf. er að 93,7% hluta í eigu ríkisins, og samtals 6,3% í eigu Vigfúsar Jóhannssonar og
Oxnalækjar. Fyrirtækið er sérhæft í erfðafræði físka og kynbdtum og þjónustar íslensk laxeldisfyrirtæki
Fyrirtækið
tvöfalt verð-
meira nú en í
sumar
stöðu í athugun Ríkisendurskoðunar á samn-
ingi landbúnaðarráðuneytisins við Stofnfisk.
Skarphéðinn segir að þegar sú athugun
liggi fyrir sé það í höndum eigenda fyrirtækis-
ins, landbúnaðarráðuneytisins íýrir hönd rík-
isins og stjórnar félagsins að ákveða næstu
skref í málinu.
Skarphéðinn segir að framan af hafi hug-
myndin verið sú að ríkið seldi hlutabréf sín í
fyrirtækinu og einnig yrði bætt við nýju hluta-
fé. Þetta átti að gerast í haust. Frá því var
fallið að sögn Skarphéðins og í staðinn ákveð-
ið að gefa út nýtt hlutafé og ríkið héldi sinum
bréfum um óákveðinn tíma _en seldi síðan
starfsmönnum af sínum hiut. Ástæða nýs fyr-
irkomulags er sú að að ákveðið var að láta
duga í bili að bæta við nýju hlutafé, selja það
og styrkja þar með félagið með nýjum eig-
anda sem yrði til þess að verðgildi hlutar rík-
isins yxi. Eftir söluna yrði hlutur ríkisins í fyr-
irtækinu rétt innan við 50%.
Skarphéðinn segir að tilboðsfyrirkomulag
yrði haft á sölu hlutafjárins, nema því sem
_________ færi til starfsmanna, en hug-
myndir hafa verið uppi um að
gengi á bréfum til starfsmanna
yrði 1,4, það gæti þó hækkað ef
verðmat á fyrirtækinu breytist, i
kjölfar athugunar Ríkisendur-
skoðunar.
Hlutabréf að kaupverði 350 þúsund verða í
boði til starfsmanna, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, sem svarar til þess að sam-
tals yrðu, ef allir keyptu, um 10% heildar-
hlutafjár fyrirtækisins í eigu starfsmanna í
lok sölunnar.
íslandsbanki hefur undirbúið söluna og
gert verðmatið. „Þegar niðurstaða kemur frá
Ríkisendurskoðun, og ef allt er í lagi, er að
mati einkavæðingarnefndar í raun ekkert að
vanbúnaði að hefja sölu hlutafjár í fyrirtæk-
inu,“ sagði Skarphéðinn.
Staða málsins í landbúnaðarráðuneytinu er
einnig í biðstöðu samkvæmt Jóni Erlingi
Jónassyni aðstoðarmanni landbúnaðarráð-
herra. „Það er ekkert að gerast hjá okkur,
nema að ráðherra sagði í umræðum um fjár-
lög í vikunni að ekkert yrði aðhafst fyrr en
svar kæmi við fyrirspum jafnaðarmanna frá
Ríkisendurskoðun.
Jón segir að ráðuneytinu sé erfitt um vik að
tjá sig um málið vegna úrskurðar úrskurðar-
nefndar um upplýsingamál sem heimilar það
ekki. Málið sé viðskiptalegs eðlis og því sé op-
inberlega ekki hægt að gefa viðhlítandi skýi'-
ingar til fjölmiðla á því sem gagnrýnt hefur
verið í sambandi við málið, viðskiptahagsmun-
ir séu í húfi.
Vonum að félagið
hafi ekki skaðast
Aðspurður hvort ráðlegt sé að einkavæða
fyrirtækið með þær ásakanir á bakinu sem
komið hafa fram segir Jón að þeim hafi verið
svarað af hálfu Ríkisendurskoðunar. „Ef það
er búið að rýra álit markaðarins á _______
félaginu getur verið álitamál
hvort á að einkavæða fyrirtækið.
Við vonumst samt til þess að um-
ræðan um málefni fyrirtækisins
og einkavæðinguna hafi ekki
skaðað fyrirtækið. Það eru mikil
verðmæti fyrir ríkið í þessu fyrirtæki og
vonandi hafa þau ekki beðið skaða af,“ sagði
Jón.
Fiskeldismenn kalla samninginn ríkisstyrk
og segja að um sérréttindi sé að ræða sem
ekki eigi, né megi, fylgja fyrirtækinu í einka-
eigu. „Við höfum aldrei verið sammála þessari
fullyrðingu. Þetta er viðskiptasamningur þar
sem kynbætur á laxi eru keyptar hjá ákveðnu
fyrirtæki og svo vill til að fyrirtækið er í eigu
ríkisins. Við getum falið jafnt einkaaðilum
sem ríkisfyrirtækjum kynbætur á laxi en höf-
um talið verkefninu betur borgið hjá Stofn-
fiski þar sem það var upphaflega sett á stofn.
Við teljum samninginn við Stofnfisk tvímæla-
laust góðan kost til að tryggja áframhaldandi
framfarir í laxeldi."
Jón segir að fiskeldismenn hafí komið á
fund ráðuneytismanna og á þá hafi verið hlust-
að og þannig hafi samningunum verið breytt
hvað varðar varðveislu efðaefnisins. Ríkið
standi því jafnfætis fyrirtækinu. Það getur
alltaf haldið áfram kynbótum jafnfætis Stofn-
fiski, hætti Stofnfiskur þjónustu við ríkið, t.d.
við lok samningsins.
Jón segir að ekki séu allir fískeldismenn á
móti einkavæðingunni. Aðrir eru það og telja
reksturinn í betri höndum hjá ríkinu en þeir
vilji fyrirtækinu vel. Þeir tala þó mikið um að
það veiki samkeppnisstöðu annarra fyrir-
tækja í fískeldi ef Stofnfiskur fer inn á seiða-
markaðinn."
En fyrirtækið er nú þegar á seiðamarkaði?
„Já, það er rétt, það er ein tekjuleið fyrir-
tækisins um þessar mundir. Ef menn telja á
sér brotið þar, verða þeir að sækja það mál
eftir þeim leikreglum sem gilda þar um.“
Hefur einhver lýst áhuga á að kaupa félag-
ið?
„Söluferlið er ekkert komið af stað og sal-
an er einungis í undirbúningi."
I Ijósi þess að málið snýst að
miklu leyti um það hvað stendur í
skýrslu Ríkisendurskoðunar, at-
hugasemdir um ársreikning og
birgðastöðu um síðustu áramót,
verður málið nokkuð snúið. Svörin
gætu legið í skjölum sem ekki fást
birt og ef ekki má skýra frá þeim, el-
ur það á tortryggni í garð félagsins.
Þetta viðurkennir Jón.
Hann bendir blaðamanni á það að
í sambandi við ósk Lúðvíks Berg-
vinssonar um að fá að sjá skjöl Rík-
isendurskoðunar, að honum hafi ver-
ið bent á það að hann og aðrir al-
þingismenn geti beðið ráðherra um
munnlegar upplýsingar í þingnefnd
um málefni Stofnfisks gegn trúnaði.
Þessu hafi hvorki hann né aðrir sýnt
áhuga.
Vigfús Jóhannsson framkvæmda-
stjóri Stofnfisks segir aðspurður um
ásakanir um 14 m. kr. misræmi og
vantaldar birgðir í ársreikningi að í
fyrsta lagi hafi ásakanirnar ekki
komið frá neinum ábyrgum aðila. „I
þessari umfjöllun eru dregnar úr
samhengi athugasemdir sem ríkis-
endurskoðandi, sem hefur það hlut-
verk að óska skýringa ef nauðsyn
krefur, gerði þegar fyrirtækið var í
undirbúningi að einkavæðingu. Mál-
ið snýst um hvernig birgðir eru með-
höndlaðar," sagði Vigfús.
Hann segir að um birgðir sé að
ræða sem fæstir þekkja né kunna að
fara með. Þær hafi stuttan líftíma
og þar af leiðandi byggist gagnrýnin
á misskilningi. „Málið snýst um
hvernig birgðir voru metnar um
áramót. Laxaaugnhrogn má aðeins flytja eft-
ir ákveðið þroskastig, eftir það hafa þau
skamman líftíma. í staðinn fyrir að lokast
inni hér á landi þar sem er ekki markaður
fyrir hrognin, flytjum við þau út í geymslu
þar sem þau eru skráð sem birgðir. Allt
þetta tal um vantaldar 14 m. kr. snýst um að
birgðir okkar skiluðu í raun hærri tekjum en
við höfðum vænst í okkar áætlunum, og
þetta er allt staðfest hjá Ríkisendurskoðun.
Þetta mál er ekkert annað en pólítískt þref
um afstöðu til einkavæðingar ríkisfyrir-
tækja. Þess vegna hafa stjórnendur fyrir-
tækisins ekki tekið þátt í þessari innihalds-
rýru umræðu."
Um sögur sem heyrst hafi um að aðilar í
stjórn félagsins hafi ætlað að komast yfir
fyrirtækið fyrir lítinn pening, segir Vigfús að
skýrt sé að selja eigi nýtt hlutafé í fyrirtæk-
inu gegn hæsta tilboði. „Ég tel að fáar sölur
ríkisins hafi fengið eins nákvæma meðferð
og þetta mál hefur fengið.“
Hefur haft alvarleg
áhrif á fyrirtækið
Vigfús segir að frestunin á
einkavæðingu fyrirtækisins, og
þar með því að fá nýtt hlutafé inn í
reksturinn sé farið að hafa alvar-
legar afleiðingar. „Fyrirtækið
stendur á tímamótum og það er ljóst að fyrir-
tækið getur staðið í fremstu röð í heiminum á
sínu sviði. í þetta þyrfti að ráðast strax og
fjármagnið átti að koma með hlutafénu. Þetta
hefur mjög alvarleg áhrif á þróun fyrirtækis-
ins, sem hefur reiknað með þessu fjármagni
allt þetta ár.“
Vigfús sagðist að lokum vera spenntur að
sjá hvaða augum fjárfestar líta starfsemina
sem fyrirtækið er að fara inn á á sviði erfða-
fræði fiska og ráðgjafar á erlendum mörkuð-
um, þegar sala á fyrirtækinu hefst.
Vantar hluta-
féð til að
sækja fram er-
lendis