Morgunblaðið - 19.12.1998, Side 22
22 LAUGAKDAGUR 19. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Heildarsamtök íslenskra lífeyrissjóða sameinast
Stefnt að hagræðingu
og lækkun kostnaðar
NY HEILDARSAMTOK lífeyris-
sjóða, Landssamtök lífeyrissjóða,
voru stofnuð í Reykjavík í gær. Sam-
tökunum er ætlað að koma í stað
þeirra tvennra samtaka, sem starfað
hafa að málefnum lífeyrissjóðanna á
undanfórnum áratugum, Landssam-
bands lífeyrissjóða og Sambands al-
mennra lífyeyrissjóða. Víðtæk þátt-
taka er meðal lífeyrissjóðanna í
stofnaðild að nýju samtökunum og
hafa lífeyrissjóðir með yfir 96% af
heildareignum sjóða landsmanna
ákveðið aðild að þeim.
Ráðgert er að Landssamtök líf-
eyrissjóða (LL) hefji starfsemi 1.
janúar næstkomandi. Frá sama tíma
mun starfsemi Sambands almennra
lífeyrissjóða og Landssambands líf-
eyrissjóða verða lögð niður.
Þorgeir Eyjólfsson, fráfarandi for-
maðui- Landssambands lífeyrissjóða,
segir að markmiðið með stofnun
hinna nýju samtaka sé að auka hag-
ræði og lækka rekstrarkostnað.
„Menn komust að þeirri niðurstöðu
að best væri að ná slíkri hagræðingu
fram með tvennum hætti: Sameina
HOT
þau heildarsamtök sem fyrir voru,
Landssamband lífeyrissjóða og Sam-
band almennra lífeyrissjóða, og
breikka undirstöðuna með því að ná
inn í samtökin sjóðum sem hingað til
hafa verið utan sambanda. Nú þegar
hafa flestir lífeyrissjóðir, sem hafa
staðið utan sambandanna hingað til,
ákveðið að ganga til liðs við nýju
samtökin.“
Árgjald lækkar
Við sameininguna lækkar ái'gjald
þeirra lífeyrissjóða, sem áður voru
innan SAL, um 2/3 og verður það hið
sama og í Landssambandinu. Er því
um verulega hagræðingu að ræða
fyrir þá sjóði, að sögn Þorgeirs. Á
stofnfundinum í gær var ákveðið að
árgjald samtakanna yrði 0.075% af
iðgjaldsstofni liðins árs.
Auk þess að gæta hagsmuna
sjóðfélaga er samtökunum ætlað að
vera málsvari lífeyrissjóðanna í þeim
málum, sem varða heildarhagsmuni
þeirra, og koma sjónarmiðum þeirra
á framfæri við stjórnvöld og alla
aðra aðila í öllum meiri háttar mál-
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FJÖLMENNI var á stofnfundi Landssamtaka lífeyrissjóða í gær.
um sem varðað geta sameiginlega
hagsmuni aðildarsjóðanna. Þá er
þeim ætlað að hafa fiumkvæði í ai-
mennum umræðum um málefni
sjóðanna og um lífeyrismál.
Auka þarf fræðslu um
lífeyrismál
Lífeyrissjóður verzlunarmanna er
stærsti sjóðurinn innan hinna nýju
samtaka. Víglundur Þorsteinsson,
formaður sjóðsins, segist vera
ánægðm- með stofnun samtakanna
og vænta mikils af þeim í fram-
tíðinni. „Það skiptir miklu máli að
samtök lífeyrissjóða skuli nú vera
ein heild og án efa þjappar það
mönnum saman við að vinna að
hagsmunum sjóðfélaga. Einnig má
búast við því að reksturinn verði
hagkvæmari en áður. Þá verður það
þýðingarmikill þáttur í starfi hinna
nýju samtaka að upplýsa almenning
um lífeyrismál en það er alltaf að
koma betur í ljós að fólk vantar
meiri og betri upplýsingar um þessi
mál,“ segir Víglundur
Á stofnfundinum voru eftirtalin
kosin í stjórn nýju samtakanna:
Aj'nar Sigurmundsson, Lífeyrissjóði
Vestmannaeyinga, Þórunn Svein-
björnsdóttir Lífeyrissjóðnum
Framsýn, Þórir Hannesson Lífeyr-
issjóðnum Lífíðn, Árni Guðmunds-
son Lífeyrissjóði sjómanna, Þórólf-
ur Árnason Lífeyrissjóði verk-
fræðinga, Haukur Hafsteinsson Líf-
eyrissjóði starfsmanna ríkisins,
Víglundur Þorsteinsson Lífeyris-
sjóði verzlunarmanna og Margeir
Daníelsson Samvinnulífeyrissjóðn-
um. Stjórnin mun hittast nk. þriðju-
dag og væntanlega skipta með sér
verkum.
Forsvarsmenn útgerðarfélaganna Gunnvarar hf. og Hraðfrystihússins hf. eiga nú í viðræðum um hugsanlegan
samruna fyrirtækjanna. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins binda hluthafar vonir við að hægt verði að ganga
frá sameiningu nú um áramótin. Hér er yfirlit yfir eignir fyrirtækjanna og aflaheimildir skipa þeirra á fiskveiðiárinu:
Hraðfrystihúsið hf.
Gunnvör hf.
Páll Pálsson ÍS, ísfisktogari
Bessi ÍS, frystitogari
Andey ÍS, ísfiskskip
Örn ÍS, rækjubátur
Hafrún ÍS, rækjubátur (að hálfu, ekki í útg.)
Frystihús í Hnífsdal (bolfiskvinnsla)
Frystihús í Súðavík (rækjuvinnsla)
Mjölvinnslan hf. (helm. á móti íshúsfél. ísf.)
Leiguskip: Skagfirðingur og Hjörleifur Q
og eru bæði gerð út á rækjuveiðar (
Aflaheimildir 1998/99
Júlíus Geirmundsson ÍS, frystit.
Framnes ÍS, frystitogari
íshúsfélag ísfirðinga hf.
Éignir þess: Stefnir ÍS, togari
Frystihús á ísafirði
Rækjuvinnsla í Hnífsdal (ekki starfr.)
Mjölvinnslan hf. (helm. á móti Hraðfr.h.)
Páll Pálsson ÍS, Bessi ÍS, Andey ÍS, Örn ÍS, Hafrún ÍS
Tegund Þorskígildi
Þorskur 2.960,4 tonn
Ýsa 366,3 tonn
Ufsi 185,1 tonn
Karfi 641,3 tonn
Steinbítur 393,1 tonn
Grálúða 638,2 tonn
Skarkoli 70,2 tonn
Úthafsrækja 2.330,8 tonn
Innfjarðarækja 115,3 tonn
Síld 108,6 tonn
Úthafskarfi 73,5 tonn
Rækja, Flæm.gr. 134,0 tonn
iHnífsdalur
) ísafjörður
O Súðavík
Aflaheimildir 1998/99
SAMTALS
8.016,8 tonn
Júlíus Geirmundsson ÍS, Framnes ÍS, Stefnir ÍS
Tegund Þorskígildi
Þorskur 3.040,7 tonn
Ýsa 443,1 tonn
Ufsi 287,3 tonn
Karfi 793,0 tonn
Steinbítur 65,8 tonn
Grálúða 389,6 tonn
Skarkoli 28,4 tonn
Úthafsrækja 1.001,6 tonn
Innfjarðarækja - tonn
Síld - tonn
Úthafskarfi 1.180,0 tonn
Rækja, Flæm.gr. - tonn
SAMTALS 7.230,9 tonn
Gengi hlutabréfa deCode hækkar
Markaðsverðmætið
18 milljarðar
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup
HLUTABRÉF í deCode Genetics,
móðurfélagi Islenskrar erfðagrein-
ingar, hafa hækkað mikið í verði að
undanfömu og var lokaverð á
fimmtudag 10,7 dollarar fyrir hvem
hlut. Þetta þýðir að
markaðsverðmæti fyi-irtækisins er
tæpir 18 milljarðar. í útboði á ís-
landi í mars á þessu ári var gengi
bréfa í deCode 5 dollarar.
í Morgunkorni Fjárfestingar-
banka atvinnulífsins í gær segir að
eftirspurn eftir bréfum í deCode hafí
verið knúin áfram af væntingum
fjárfesta um að Islenskri erfðagrein-
ingu yrði veitt einkaleyfí á upplýs-
ingum úr miðlægum gagnagranni á
heilbrigðissviði. Alþingi hefur nú
samþykkt veitingu leyfísins og í
kjölfar þess hafí væntingar fjárfesta
um verðmæti fyrirtækisins stórauk-
ist._
I Morgunkorninu er þeirri spurn-
ingu velt upp hvað hækkanimar geti
haldið lengi áfram og hvort raun-
verulega sé rými fyrir meiri hækk-
anir að svo stöddu. „Til að fá svör við
þeim vangaveltum er ekki fjarri lagi
að skoða nokkrar stærðir hjá sam-
keppnisaðilum deCode. í útboðslýs-
ingu sem gefín var út í mars em tal-
in upp nokkur fyrirtæki sem sögð
em í samkeppni við ÍE ... Athyglis-
vert er að sjá að öll fyrirtækin nema
eitt eru enn í taprekstri og ekki er
gert ráð fyrir hagnaði á næsta ári.
Éinnig vekur eftirtekt að öll fyrir-
tækin eru skilgreind sem „buy“ eða
„strong buy“ af sérfræðingum sem
meta fyrirtæki í greininni. Ef
reiknað er hlutfall tekna miðað við
markaðsverðmæti kemur í ljós að
þar hefur deCode lægsta hlutfallið,
um 3,9%. Verðmæti fyrirtækja í
þessari grein endurspeglar greini-
lega miklar væntingar um framtíðar-
hagnað,“ að því er fram kemur í
Morgunkomi FBA.