Morgunblaðið - 19.12.1998, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998 29
ÁRÁSIRNAR Á ÍRAK
Lífíð gekk sinn vanagang
þrátt fyrir sprengjuregn
Reuters
Særðar mæðgur
MÓÐIR hinnar fimm ára gömlu Mæðgurnar særðust báðar í loft-
Susan Jasin huggar hana á árásum Bandaríkjamanna og
sjúkrahúsi í Bagdad í gær. Breta á írak.
bryggju hefðu gereyðilagst í árás-
unum. Hvorki Bandaríkjamenn né
Bretar staðfestu þessa frétt í gær.
Sjónarvottar í Bagdad sögðu að
bandarískt eða breskt flugskeyti
hefði hæft höfuðstöðvar ráðs, sem
stjórnar hergagnaframleiðslu
Iraka, í fyrrakvöld. Gat var á þaki
byggingarinnar, sem er tíu hæða,
og innviðir hennar eyðilögðust, en
útveggirnir voru heilir. Nokkrh-
öryggisverðir vora í byggingunni
þegar árásin varð gerð.
Byggingin var á meðal nokkurra
skotmarka í Bagdad í þremur
árásarhrinum bandarískra og
breskra herþotna í fyrrinótt. Hún
er um kílómetra frá upplýsinga-
ráðuneytinu í Bagdad, þar sem er-
lendir fréttamenn halda til, og var
þetta ein af fáum árásum sem þeir
hafa orðið vitni að.
íraskir embættismenn hafa sent
fréttamennina á sjúkrahús og
íbúðarhveríi til að beina athygli
þeiiTa að mannskaðanum og
skemmdum á íbúðarhúsum. Þeir
hafa hins vegar ekki viljað sýna
fréttamönnunum hvaða tjón hefur
orðið á byggingum sem eru taldar
mikilvægar fyrir her og leyniþjón-
ustu Iraks.
Heimildarmaður í Bagdad-há-
skóla sagði að safn og lyfjafræði-
skóli á svæði háskólans hefðu verið
á meðal skotmai’kanna. Miklar
skemmdir hefðu orðið á bygging-
unum og tveimur öðrum húsum,
læknamiðstöð og stúdentagarði.
Þá var haft eftir heimildarmanni
í menningar- og upplýsingaráðu-
neytinu í Bagdad að bandarískar
herþotur hefðu varpað niður
„ögrandi áróðursbæklingum" í suð-
urhluta landsins í fyrrakvöld. Shíta-
múslimar á svæðinu gerðu upp-
reisn gegn stjóm Saddams eftir
Persaflóastríðið árið 1991 en írask-
ar hersveitir kváðu hana niður.
Það að vai'pa áróðursbæklingum
á svæðum þar sem ætla má að and-
staðan við Saddam Hussein sé mest
gefur til kynna að eitt af markmið-
um hemaðaraðgerðanna sé að ýta
undir uppreisn gegn honum.
Árásir á 50 skotmörk
fyrsta daginn
Embættismenn í varnarmála-
ráðuneytinu í Washington segja að
bandaríski herinn hafi notað rám-
lega 70 herflugvélar og um 200
stýriflaugar í árásum á rámlega 50
skotmörk á fyrsta degi árásanna.
Mohammed Saeed al-Sahaf, ut-
anríkisráðherra Iraks, sagði að
flugskeyti hefðu hæft höfuðstöðvar
leyniþjónustu hersins og öryggis-
lögi’eglunnar í fyrstu árásarhrin-
unni sem hófst á miðvikudag.
Flugskeytum hefði ennfremur ver-
ið skotið á ýmsar verksmiðjur, sem
vopnaeftirlitsnefnd Sameinuðu
þjóðanna (UNSCOM) telur að hafi
verið notaðar til að þróa gereyð-
ingai'vopn. Utanríkisráðherrann
greindi ekki frá því hvar þessar
verksmiðjur era.
Starfsmenn hjálp-
arstofnana Sam-
einuðu þjóðanna
fara frá írak
MANNSKAÐINN
Bagdad. Reuters.
AÐ MINNSTA kosti 25 Bagdad-
búar hafa látið lífið og 75 til viðbót-
ar særzt í flugskeyta- og loftárás-
um Bandaríkjamanna og Breta á
írak, að sögn Umeed Mubarak,
heilbrigðisráðherra Iraks, en mjög
erfitt hefur reynzt að fá staðfestar
fréttir af raunvemlegu mannfalli.
Aðfaranótt gærdagsins dundu
sprengiflaugar á írösku höfuð-
borginni aðra nóttina í röð og
fréttamenn þar staddir töldu að
minnsta kosti þrettán stórar
sprengingar. Síðasta sprengju-
bylgjan reið yfir rétt fyrir dögun.
Eftir birtingu í gær virtist lífið í
hinni þjáðu höfuðborg Iraks þó
ganga sinn vanagang, að mestu
leyti.
Yfir 100 hjálparstarfsmenn Sam-
einuðu þjóðanna yfirgáfu Bagdad í
gær og fluttust í öraggari höfn í
Jórdaníu.
„Lágmarksfjöldi látinna sem
sjúkrahúsin hafa upplýsingar um
eru 25 í gær og í dag,“ sagði heil-
brigðisráðhemann á fimmtudags-
kvöld. Hann sagði að alvarlegur
lyfjaskortur væri á sjúkrahúsun-
um og þau gætu tæpast valdið því
að þjónusta aukinn fjölda slasaðra
og særðra.
Khalid al-Ubaidi, yfirmaður
„Sjúkraborgar Saddams", stærsta
sjúkrahúss Iraks, sagði að þrír
sjúklingar hefðu látizt úr hjarta-
áfalli vegna þi-ýstingsbylgna frá
sprengingum í nágrenninu.
„Hið ótvíræða blísturshljóð frá
stýriflaug sem nálgast rauf hina
yfirborðslegu ró sem ríkti í írösku
höfuðborginni,“ skrifar fréttaritari
The Irish Times frá Bagdad.
„Loftvarnaskothríð þakti nætur-
himininn," segir í Irísh Times.
„Ellefta hvert skot er glóðarkúla,
sem lýsir upp skotstefnuna og ger-
ir skyttunni kleift að miða á skot-
mark í myrkrinu. En stýriflaug-
arnar fljúga á meira en hljóðhraða,
sem gerir viðleitni loftvamaskytt-
anna nærri tilgangslausa."
Árásirnar fylgja sama mynstri
Árásirnar virðast alltaf fylgja
sama mynstrinu. Fyrst glymur í
loftvarnaflautunum, sem vara íbú-
ana við yfirvofandi árás. Þá tekur
við hávaðinn af skothríð loftvarna-
fallbyssanna. Skömmu síðar rignir
flugskeytunum niður.
Erlendir blaðamenn sem fylgd-
ust með atburðum af þaki íraska
upplýsingamálaráðuneytisins, sem
er í miðborg Bagdad, sögðust hafa
talið stærstu sprengingamar og
lýstu því hvernig reykjarbólstrar
liðuðust upp á mörgum stöðum. I
sprengingunum lýstist himininn
upp og eld mátti sjá hér og þar.
Sjúkrabílar æddu um göturnar
með sírenur vælandi eftir að árás-
irnar hófust um kl. 19 að staðar-
tíma, eða 22 að íslenzkum tíma.
Fram að upphafi árásarinnar hafði
borgin virzt ætla að láta sem ekk-
ert bjátaði á. Umferð í miðborg-
inni var nærri því eins mikil og
venjulega. Það var fyrst þegar
stýriflaugarnar lentu með tilheyr-
andi gauragangi á skotmörkum
sínum að fólk fór að leita skjóls.
Það olli undran blaðamanna sem
til sáu að hermenn gengu um göt-
urnar á meðan á djöfulganginum
stóð til að skoða skemmdirnar. Á
meðan sprungu loftvarnaskotin, en
úr þeim rigndi sprengjubrotum
sem dreifðust yfir borgina.
Ferðalangar sem komu til
Bagdad sögðu frá þremur miklum
sprengingum sem lýst hefðu upp
himininn um 15 km austur af bæn-
um Ramadi, sem er um það bil
miðja vegu milli landamæranna við
Jórdaníu og Bagdad. Þessar
sprengingar hefðu orðið á sama
tíma og fyrsta sprengingabylgjan
gekk yfir Bagdad.
Hans von Sponneck, yfirmaður
hjálpai-starfs SÞ í Irak, sagði að
yfir 100 hjálparstarfsmenn hefðu
farið til Jórdaníu í gær. Eftir væri
aðeins algjört lágmarkslið.
Sprengjur á íbúðarhús?
Mohammed Saeed el-Sahaf
sagði að stýriflaugar hefðu lent á
íbúðarhverfum. „Þeir réðust á
íbúðarhverfi í Bagdad,“ tjáði hann
fréttamönnum. Árásimar hefðu
valdið „miklu manntjóni og gífur-
legum skemmdum [á mannvirkj-
um]“. Sahaf sagði að hemaðarað-
gerðin, sem Bandaríkjamenn og
Bretar hafa nefnt „Eyðimerkur-
ref‘, ætti í raun að heita „villimenn
í arabísku eyðimörkinni". Hann
sagði „yfirgang“ Bandaríkja-
manna og Breta vera dæmdan til
að mistakast.
í Irísh Times segir að ein
stýriflaugin hefði lent á íbúðar-
húsakjai'na, þar sem margir ráðu-
neytisstarfsmenn búa og aðrir sem
væru í nánum tengslum við Baath-
flokkinn, stjómarklíku Saddams
Husseins. Skotmarkið í bygginga-
kjarnanum telja blaðamenn að hafi
verið miðstöð áætlanagerðar Iraka
í hergagnaiðnaði.
En einnig er bent á, að ekki sé
útilokað að loftvarnaskot trafli för
stýriflaugar sem villist þar með af
leið og geti lent hvar sem er.
En einn reginmunur þykir vera
á áhrifum loftárásanna nú í saman-
burði við það sem gerðist í
Persaflóastríðinu. Þá voru mörg
flugskeytin ekki með eins full-
kominni stýringu og nú, og þá
urðu gífurlegar skemmdir m.a. á
samgöngukerfí landsins. Að þessu
sinni era skotmörkin valin af kost-
gæfni, þannig að svo til einungis
hernaðarlega mikilvæg mannvirki
era eyðilögð.
Þessi munur lýsir sér ekki sízt í
því hve íraskur almenningur virð-
ist taka árásunum með miklu jafn-
aðargeði. Eftir aðra loftárásanótt-
ina í röð gengu þeir erinda sinna á
götum Bagdad eins og á hvei'jum
öðram virkum degi.
BARNAH ANSKAR KR
ULPA KR. 7990
BARNABOLIR/RULL. KR. 1690