Morgunblaðið - 19.12.1998, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998 37
Við þröskuld
fullorðinsáranna
Islensk tónlist
fyrir einleiksfíðlu
RUT Ingólfsdóttir fiðluleikari leikur flmm íslensk einleiks-
verk á nýútkominni geislaplötu.
Bækur
Skáldsögur
GÓÐA FERÐ, SVEINN
ÓLAFSSON
eftir Friðrik Erlingsson. 240 bls.
Iðunn, Reykjavík 1998.
„ÉG ER stjarna, blikandi stjarna.
Ég er ungbarn á grafarbakka og
öldungur í vöggu, bæði fiskur á
himni og fugl í sjó; ég er stelpa að
innan, en strákur að ut-
an, saklaus á líkama,
sekur í sálinni."
Þannig hefst þroska-
saga hins þrettán ára
Sveins Ólafssonar,
Reykjavíkurpilts á því
herrans ári 1976; saga
sem hann segir sjálfur
og nær frá afmælisdegi
hans í febrúar og fram
að páskum. Á þeim
tíma breytist Sveinn úr
barni í pilt, tekur út
þroska, bæði líkamleg-
an og andlegan, verður
ástfanginn og líður
óbærilegar þjáningar,
vex uppúr besta vini
sínum, öðlast nýjan
skilning á sambandinu við móður
sína, sem ein hefur alið önn fyrir
honum frá því hann var sex ára.
Jafnframt breytist skilningur hans
á tengslunum við fjarlægan föður-
inn. Það er óþarft að orðlengja það
að Friðrik Erlingssyni tekst prýðis-
vel hið erfiða ætlunarverk sitt, að
segja þroskasögu Sveins Ólafssonar
með orðum hans sjálfs, hugarheim-
ur drengsins sem stendur á þrösk-
uldi fullorðinsára verður ljóslifandi
og trúverðugur, frásögnin gengur
alltaf upp í hugsun aðalpersónunn-
ar, verður hvergi of „fullorðinsleg“
né of „barnaleg" til að eiga ekki við
hinn þrettán ára sögumann.
Vafalaust má benda á hliðstæðar
bækur skáldbræðra Friðriks; á
tímabili var nánast í tísku að fyrsta
bók ungra skáldmenna væri
„drengjasaga" og var hin fyrsta og
sennilega besta í þeirri seríu, bók
Péturs Gunnarssonar Punktur,
punktur, komma, strik. Síðan eru
liðin um 25 ár. Þrátt fyrir þennan
sögulega skyldleika fer Friðrik sína
eigin leið og Góða ferð, Sveinn
Ólafsson, minnir ekki nema laus-
lega á drengjasögurnar svokölluðu.
Frásagnaraðferð Friðriks er ólík,
því auk þess að hverfa sjálfur á bak
við fyrstu persónufrásögn Sveins
Ólafssonar, er frásögnin einlægari
MÍNÚTUGRILL
Nýju mínútugrillin frá
Dé Longhi eru tilvalin -
þegar þig langar í l
gómsœtan grillmat; \
kjöt; fisk, grœnmeti eöa 1
nánast hvaö sem er.
4 geröir á jólatilbodsveröi
frá kr. 6,400,- til 7,900,-
og persónulegri en fyrri skrásettar
athuganir á lífi ungra drengja.
Gálgahúmor og stílstælar eru víðs-
fjarri. Rammi frásagnarinnar vísar
jafnvel enn lengi-a aftur; sterkur
raunsæisblær hvílir yfir umgjörð-
inni og sviðsetningin er kunnugleg
úr íslenskum piltasögum frá því um
miðja öldina; efnispiltur sem býr
við kröpp kjör hjá einstæðri móður,
lendir í tímabundnum ógöngum en
réttir úr kútnum og allt bendir til
þess að hann verði að nýtum manni.
Þetta er þó enginn
galli á sögunni því
myndin sem Friðrik
dregur upp er sann-
færandi og varla eru
þeir færri sem alist
hafa upp hjá einstæðu
foreldri síðustu tutt-
ugu árin en áratugina
þar á undan. Um leið
er sagarl prýðisgóður
vitnisburður um
ákveðið tímabil, árið
1976 var kannski ekki
ýkja sögulegt í víðara
samhengi, en skipti þó
höfuðmáli fyrir kyn-
slóð Sveins Ölafssonar
persónulega.
Friðrik hellir sér út í
könnun á þeim andlegu umbrotum
sem eiga sér stað í huga þrettán ára
pilts; athuganir hans eru í senn
skáldlegar og raunsæjar, og ekki
síst skemmtilegar því sagan er
leiftrandi af kímni um leið og hún
grípur lesandann sterkum tilfinn-
ingalegum tökum. Kómískar eru
lýsingarnar á erótískum hugmynd-
um Sveins um 17 ára frænku sína,
ófullnægðri ástarþrá hans til bekkj-
arsystur sinnar og bráðfyndnar lýs-
ingar á kennurum og foreldrum vin-
anna. Djúpur tragískur tónn er
sleginn í lýsingum á samskiptum
Sveins við föður sinn, grátbrosleg-
ast er atriðið er þeir hittast á Borg-
inni, gleðilegast er þegar Sveinn
byrjar að gera sér grein fyrir að
foreldrar hans eru bara fólk, með
öllum sínum kostum og göllum.
Stærsti kostur þessarar sögu er
hversu æðrulausa sýn og jákvæða
hún veitir lesandanum á lífið_ sem
blasir við söguhetjunni Sveini Ólafs-
syni. Bernskan er að baki, fullorð-
insárin blasa við, á þeim tímamótum
kynnumst við Sveini, stelpu að inn-
an, strák að utan. Þetta er bók sem
hiklaust ætti að setja í hendurnar á
unglingum á öllum aldri, þrettán
ára og eldri.
ÍSLENSK tónlist íyrii- einleiksfiðlu
er heiti nýútkominnar geislaplötu
Rutar Ingólfsdóttur fiðluleikara. Á
plötunni, sem Islensk tónverkamið-
stöð gefur út, eru fimm verk eftir
jafnmörg íslensk tónskáld, þá Jón
Leifs, Hallgrím Helgason, Magnús
Blöndal Jóhannsson, Atla Heimi
Sveinsson og Tiýggva M. Baldvins-
son.
Rut segir aðdragandann að útgáf-
unni tónleika sem hún hélt á Myrkum
músíkdögum 1995 með þeirri efnis-
skrá sem heyra má á plötunni, en á
henni er að auki eitt verk sem samið
var fyrir hana ári seinna. „Þetta eru
verk sem spanna alla öldina, það elsta
er eftir Jón Leifs, samið 1924, og
yngsta verkið, Adagio, samdi Tryggvi
M. Baldvinsson fyrir mig 1996,“ segir
hún. „Kannski er aðdragandinn þó
ennþá lengri," segir hún svo eftir
nokki-a umhugsun. „Fyrir nokkrum
árum útbjó ég efnisskrá með einleiks-
verkum eftir Baeh og Ysayé. Síðan
hef ég farið á hverju ári alein með
mína fiðlu út á land, heimsótt héruð
þar sem ekki er kennt á strengja-
hljóðfæri, haldið tónleika í kirkjum og
kynnt fiðluna í skólum. Það má eigin-
lega segja að upp úr þessu hafi
sprottið þessi íslenska efnisskrá með
einleiksverkunum, sem nú er komin á
plötuna.“
Allir möguleikar
fiðlunnar kannaðir
„Þessi fimm verk eru öll mjög
ólík,“ segir Rut þegar hún er spurð
um efnistök og áferð plötunnar. Og
aldur verkanna segir ekki alla sög-
una. Til dæmis segir Rut að verk
Magnúsar Blöndals Jóhannssonar,
Dimension, sem hann samdi árið
1961, sé tvímælalaust nútímalegasta
verkið á allri plötunni, mun nútíma-
legra en yngri verkin. „Þau eru miklu
lýrískari og melódískari en verkið
hans Magnúsar,' sem er auðvitað
barns síns tíma, tilraunatónlist þai-
sem allir möguleikar fiðlunnai- eru
kannaðir. Þegar ég spilaði það á tón-
leikunum 1995 var það frumflutning-
ur, því það hafði aldrei verið flutt á
sínum tíma. En þó að það sé svona
nútímalegt, þá er það að mínu mati
alveg ótrúlega fallegt, því það er svo
mikil heiðríkja í því. Þetta er mjög
erfitt verk, en það má reyndar segja
um þau öll og það held ég að sé eðli
verka sem samin eru fyrir einleiks-
fiðlu. Þau eru mjög krefjandi tækni-
lega, því það er ekkert annað hljóð-
færi til þess að fylla upp í, fiðlan verð-
ur ein að standa undir verkinu öllu,“
segir Rut.
Jón Leifs samdi verkið Studie op.
3 árið 1924, þá tæpra 25 ára gamall.
„Þá hafði hann nýlokið námi í
Leipzig og hefur greinilega verið að
kynna sér verk Johanns Sebastians
Bachs. Þetta verk Jóns og yngsta
verkið eftir Tryggva, sem er fæddur
árið 1965, eiga vissa þætti sameigin-
lega, þó að langt sé á milli þeirra í
tíma. Það er að mínu mati óskaplega
mikill tregi í þessum verkum báðum,
sem brýst út í mikla örvæntingu, en
síðan enda þau í sátt.“
Verk Hallgríms Helgasonar,
Sónata fyrir einleiksfiðlu, var samið
árið 1971. „Það er mjög gaman að
spila þessa sónötu, því hún er svo vel
skrifuð fyrir fiðluna, enda var hann
sjálfur fiðluleikari,“ segir Rut. Lag
og tilbrigði með eftirmála er heiti
verks Atla Heimis. „Lagið sjálft er
hægi kaflinn úr verki sem hann
samdi fyrir Kammersveit Reykjavík-
ur fyrir vígslu Borgarleikhússins
1989, þá var þessi kafli fiðlusóló, sem
ég spilaði, og svo var undirleikur í
strengjunum, pizzicato. Þetta vai-
svo fallegur kafli að ég spurði Atla
hvort hann gæti ekki útbúið þetta
þannig að ég gæti spilað það ein, það
var upphafið að þessu verki. Hann
breytti íyrst þessum fyrsta kafla,
síðan bætti hann við fjórum köflum,
sem eru mjög ólíkir. Atli Heimir hef-
ur þann stórkostlega eiginleika að
geta samið svo fallega tónlist að hún
snerti hjartað,“ segir Rut.
Rut segist vera búin að eyða fimm
árum af ævi sinni í plötuna. ,Áður en
kemur að tónleikum er maður yfir-
leitt búinn að glíma lengi við verkin
og svo tók það auðvitað langan tíma
að koma þessu öllu í verk, því það er
mikil vinna að taka upp og klippa,"
segir- hún og bætir við: „Kammer-
sveit Reykjavíkur hefur verið minn
aðalstarfsvettvangur og þar sem ég
hef alla mína starfsævi haft mjög
skerta starfsorku, vegna veikinda í
baki, hálsi og höndum hef ég ekki
getað spilað eins mikið og mig hefur
langað til. Það að þessi plata skuli
loksins vera orðin að veruleika er
stór sigur fyrir mig persónulega og
ég er óumræðilega glöð að sjá verkið
á enda.“
Hávar Sigurjónsson
HERRASKOR
Teg.543030
Stærðir: 40-46
VERÐ: 3.995
Litur: Svartir
5% staðgreiósluafsláttur - Póstsendum samdægurs
T
oppskórinn
VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1212
BORÐSTOFUHUSGOGN
NÝ SENDING - MIKIÐ ÚRVAL
VtSA
Innspr.borð og stólar 83.780 stgr.
Teg.
Meran
— Hnota
Borð og stólar aðeins 1 37.300 stgr.
Opið í dag 10-18, sunnudag 14-17
□E3HHEE31 c
HÚSGAGNAVERSLUN llJ
36 món. Reykjavikurvegi 66, Hafnarfirði, simi 565 4100 36món.
Friðrik
Erlingsson
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420