Morgunblaðið - 19.12.1998, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
MARGMIÐLUN
MORGUNBLAÐIÐ
Nytsemd
og fordómar
„Svo mikill hefurhróður fnytjastefnunn-
ar] verið lengst afað nefna má 20.
öldina, öndverða efekki alla, öld
nytjastefnunnar. “
Kristján Kristjánsson: Nytjastefnan.
Er hugsanlegt að
það sjónarmið að
reisa beri virkjanir
á miðhálendi Is-
lands, sé að miklu
leyti byggt á fordómum, en
ekki bara köldu skynsemis-
mati?
Því hefur verið haldið fram
að mesta hindrunin í vegi þekk-
ingarleitar og raunverulegra
framfara sé tregða fólks til að
skipta um skoðun. A hverjum
tíma eru tilteknar grundvallar-
hugmyndir og gildismat ríkj-
andi, en forsenda eiginlegra
framfara er að mögulegt sé að
endurskoða þessar hugmyndir
og gildi.
Svona rót-
VIÐHORF fastar hug-
EfUr'---- myndir og
Kristján G. gildismat sem
Arngrímsson aldrei hefur
verið tekið til
endurskoðunar er hinn frjói
jarðvegur fordóma, það er að
segja, dóma sem í rauninni eru
felldir fyrirfram, áður en maður
kynnist röksemdum með og á
móti.
Þótt það kunni að vera auð-
veldara að telja fólk á eina
skoðun frekar en aðra er ekki
þar með sagt að rökin fyrir
henni séu raunverulega betri
eða hin gagnstæða skoðun sé í
sjálfti sér „röng“. Það er alltaf
auðveldara að fá samþykki
manna við skoðun sem er í sam-
ræmi við ríkjandi grundvallar-
viðhorf en við skoðun sem ekki
skírskotar til fyrirfram gefins
gildismats.
Þess vegna hljóma nytjarök
svo sannfærandi. Ekki endilega
vegna þess að þau séu í sjálfu
sér hin einu réttu rök í öllum
málum, heldur jafnt vegna þess
að þau enduróma viðtekið gUd-
ismat, er kveður á um að jafnan
skuli meta alla hluti í ljósi þess
hvort og hvemig hægt sé að
nota þá.
Þannig má segja að nytjarök-
in njóti fordóma sem era hlið-
hollir nytsemd. Það er að segja,
nytjarök eru fyrirfram - áður
en þau eru sett fram - ásættan-
legri en til dæmis vistfræðileg
rök er skírskota til beinna
tengsla mannsins við náttúrana
og draga í efa að náttúran sé
einungis auðlind sem mönnum
beri að nýta.
Þetta stafar ekki af því að
nytjarökin séu í sjálfu sér
sterkari en önnur, heldur af
því, að nytjahyggjan er nú þeg-
ar hið ríkjandi gildismat. Hug-
myndir um að náttúran skipti
máh burtséð frá þeim notum
sem hafa má af henni era hins
vegar nýrri af náhnni og höfða
til verðmæta sem blasa kannski
ekki við fyrr en nánar er að
gáð.
Nytjahyggjan er svo rótfóst í
hugmyndaheiminum að að óat-
huguðu máU gæti manni virst
sem um væri að ræða náttúra-
lögmál - óhrekjanlegan sann-
leika - en ekki gildismat. Rök
sem ekki höfða tU þessa gildis-
mats kunna þess vegna að virð-
ast veikari, þótt þau séu það
kannski ekki í sjálfu sér. En
vegna þess að þau höfða ekki til
ríkjandi grandvallarhugmynda
hljóta þau síður hljómgrunn.
Þess vegna era það fordómar
- fyrirfram felldur dómur - að
nytsemd skuli skera úr um
hvað beri að gera. Það eru ekki
einungis rökin sjálf sem ráða
úrslitum, heldur einnig og ekki
síður hið ríkjandi gildismat.
Þetta má kalla fordóma gagn-
vart því sem ekki er í samræmi
við ríkjandi hugmyndir. En það
era í rauninni veik rök að eitt-
hvað skuli gert bara vegna þess
að það hafi hingað til alltaf ver-
ið gert.
Því er málstaður þeirra sem
andvígir era virkjanaáformum
á miðhálendinu torsóttari en
málstaður virkjunarsinna. Ekki
vegna þess að rök verndunar-
sinna séu í sjálfu sér veikari en
rök virkjunarsinna, heldur
vegna þess að verndunarsinnar
eiga í höggi við þá fordóma sem
spretta af því, að ríkjandi gild-
ismat hefur sveipast dularklæð-
um hins eina stóra sannleika.
Það er rétt að taka fram að
hér er ekki verið að veitast að
nytjahyggju sem siðfræðikenn-
ingu, heldur einungis verið að
huga að þeirri stöðu sem hún
hefur sem ríkjandi gildismat.
Þetta gæti sem best orðið hlut-
skipti annarra kenninga, og
reyndar er óhjákvæmilegt að
einhverskonar gildismat sé ríkj-
andi hverju sinni; annars er
hætt við að ringulreiðin yrði al-
ger. En einmitt þess vegna er
nauðsynlegt að endurskoðun sé
möguleg.
Þegar því er haldið fram að
„rök en ekki tilfinningar“ skuli
ráða því hvort virkja beri eða
ekki þá er fólgið í því viðhorfi
annað djúpstæðara viðhorf,
sem er það, að einungis
nytjarök séu eiginleg rök, en
öll önnur „rök“ séu bara dul-
búin tilfinningasemi. Hugsunin
er þá sú, að nytjarökin
skírskoti til hlutlægs „raun-
veraleika" en ekki gildismats.
Öll önnur rök höfði hins vegar
til gildismats sem eigi upptök
sín í persónubundnum sjónar-
miðum.
En það sem þarna er á ferð-
inni undir nafninu „hlutlægur
raunveruleiki“ er alls ekki eitt-
hvað sem er óháð öllu gildis-
mati heldur þvert á móti hið
ríkjandi gildismat, það er að
segja, nytjahyggja.
Það er ekki þar með sagt að
nytjahyggja sé einfaldlega með
öllu ótækt gildismat sem beri
að kasta fyrir róða eins og hún
leggur sig, og fordæma allt það
sem gert hefur verið í nafni
hennar. Alls ekki. En það er
rangt að hún sé hlutlægur
raunveraleiki, og alveg óháð
gildismati. Þvert á móti.
Nauðsynlegt er, að hægt sé
að endurskoða ríkjandi gildis-
mat og framforsenda slíkrar
endurskoðunar er að þetta gild-
ismat taki ekki á sig mynd
óhagganlegs sannleika. Annars
verða fordómar með öllu óupp-
rætanlegir, og vafasamt að
raunverulegar framfarir geti
orðið.
g tölva fyrir
venjulegt fólk
iMac er frábær-
lega vel hönnuð
og á skaplegu
verði. Hún er kjör-
in til þess
að vafra um Netið
og gallarnir eru
fáir og smáir.
FÁAR TÖLVUR hafa vakið
aðra eins athygli og iMac tölv-
an frá Apple. Það er kannski
ekki að undra, því víst er um það, að
vélin er um margt afar sérstök í út-
liti jafnt og innvolsi. Ekki skiptir
heldur minna máli, að þessi vél ein
og sér hefur blásið nýju lífi í Apple,
sem margir spáðu hægum og sárs-
aukafullum dauðdaga ekki alls fyrir
löngu. Viðtökurnar hér á landi hafa
verið á sömu lund og annars staðar
og þegar þetta er ritað hafa ríflega
700 vélar verið seldar og markaðs-
hlutdeild Makkans því aukist úr 5%
í 10% á undraskömmum tíma. Ekki
kæmi á óvart þó salan ætti enn eftir
að aukast, því verð þeirra verður
lækkað um 10% í allri Evrópu á
næstu dögum. En er iMae jafnfrá-
bær og af er látið?
iMac var frá upphafi ætlað að
bjarga Apple. Hún átti að vera ein-
stök í útliti, hafa allt sem máli skipti
innanborðs, vera einstaklega þægi-
leg í notkun, vera á skaplegu verði
og vera hönnuð með Netið í huga.
Frómt frá sagt hefur þetta flest
gengið eftir.
Það er (bókstaflega) barnaleikur
að setja tölvuna upp. Kunningi und-
irritaðs, sem á í erfiðleikum með að
skipta um rafhlöður í vasaljósi, var
fenginn til þess að taka vélina úr
kassanum og tengjast Netinu. Frá
því að hann opnaði kassann liðu að-
eins rúmar níu mínútur þar til tölv-
an var búin að ræsa upp. Tuttugu
mínútum síðar var hann farinn að
brima um Netið.
Hið fyrsta, sem maður tekur eftir
við iMac er útlitið, en hönnun henn-
ar hefur þegar unnið til verðlauna.
Tölvan og skjárinn era í sama ávala
hylkinu og fyrir vikið tekur hún
minna rými en margar aðrar tölvur.
Hluti hennar er úr hálfgagnsæju
sægrænu plasti, sem setur mjög
sterkan svip á hana; og í raun er út-
koman svo vel heppnuð að hvaða
Apple-fyrirtækið
er komið á kúrsinn
eftir hremmingar
undanfarinna ára.
Andrés Magnússon
tók til kosta helsta
tromp Apple nú um
stundir, iMac.
stássstofa sem er væri fullsæmd af
iMac.
Skjárinn er einstaklega skarpur,
en sumum finnst hann hugsanlega
fulllítill. Hann er 15“ en það er hægt
að nota 1024x768 upplausn, sem al-
gengust er á 17“ skjám. Á móti
kemur að þá minnkar litafjöldinn á
skjánum.
Lyklaborðið er fremur smátt, en
það er samt sem áður þægilegasta
lyklaborð, sem ég hef notað frá því
að IBM Selectra kúluritvélarnar
voru og hétu. Á hinn bóginn var ég
engan veginn sáttur við músina. I
fyrsta lagi er hún fulllítil, en aðal-
gallinn við hana er sá, að hún er al-
veg kringlótt. Fyrir vikið getur
maður ekki alltaf gripið hana blind-
andi og byrjað að nota hana eins og
á við um hefðbundnar egglaga mýs.
Til allrar hamingju er hægt að fá
hefðbundna mús (en þó hálfgagn-
sæja) fyrir lítinn pening. Hins vegar
finnst börnum hún þægilegri en
venjulegar mýs.
Það er lítið út á gangverldð að
setja. Örgjörvinn er 233 MHz G3 og
af sjálfu leiðir að vélin er afar hrað-
virk. 4 Mb harður diskur er í tölv-
unni og hann er líka býsna sprækur.
Til þess að gleðja leikjafíklana er
ATI Rage II í vélinni. 24x geisladrif
er í iMac, en þó að það sé ágætt, læt-
ur fullhátt í því og sleðinn er ekki
vélknúinn. Tveir hátalarar eru fram-
an á vélinni og hljómurinn er fínn
fyrir leiki, en síðri fyrir hljómdiska.
Eitt er líka rétt að nefna enn, sem er
að á kyrrlátu heimili heyrist fullmik-
ið í viftunni. iMac er sérstaklega vel
tengd tölva, því í henni er ógnarhratt
56K mótald, 10/100BASE-T Ether-
net-tengi og innrautt tengi, sem
gengur við G3 fartölvur og sumar
handtölvur.
Það, sem flestir gagnrýna við
iMac, er þó það, sem ekki er í tölv-
unni. Fyrst og fremst era menn
agndofa yfir þeirri ótrúlegu ósvífni
að ekki skuli vera disklingadrif í
tölvunni. í þær vikur, sem ég notaði
tölvuna, saknaði ég þess þó aldrei.
Sannleikurinn er sá að hugbúnaði
er núorðið dreift á geisladiskum eða
Netinu. Þurfi maður að koma
skrám frá sér, notar maður svo bara
Netið. Og sá maður, sem á iMac en
ekki notar Netið, er fífl. Netteng-
ingin er eins einföld og hugsast get-
ur og menn hafa bara enga afsökun
fyrir því að nota Netið ekki.
Hitt er svo annað mál, að það er
sáralítið hægt að stækka við iMac.
Það er hægt að bæta minni og
skjáminni í hana og það er hægt að
tengja prentara, skanna og önnur
jaðartæld við hana (svo framarlega
sem þau hafa USB-tengi, SCSI eða
ADB ganga ekki nema með sérstök-
um millistykkjum). En þá er það líka
upp talið. Kjósi maður til dæmis
fremur 3Dfx skjákort en Rage er
ekkert við því að gera, því það eru
engar raufír fyrir aukaspjöld í tölv-
unni.
En það skiptir í sjálfu sér litlu
máli. iMac er einmitt ætluð til þess
að hún sé tekin beint upp úr kassan-
um og sé tilbúin í slaginn. Hún er
ekki gerð með þarfir tölvunarða eða
þrívíddarhönnuða í huga, heldur er
hún ætluð venjulegu fólki. Og hún
er frábær sem slík.
Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígrcen
eöaltré, í hæsta gœðaflokki og prýða þau nú
mörg hundruð íslensk heimili.
10 ára ábyrgð
12 stærðir, 90 ■ 500 cm
Stálfótur fylgir
» Ekkert barr að ryksuga
Truflar ekkí stofublómin
Eldtraust
» Þarfekki að vökva
í* íslenskar ieiðbeiningar
Traustur söluaðili
i&, Skynsamleg fjárfesting
JORRABRAUT 60
Bondotag ísiertskra skóta
(3®
—