Morgunblaðið - 19.12.1998, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998 55
Stórmeistararn-
ir í efstu sætum
SKAK
í|)róttahúsið
við Strandgötu
FJÓRÐA GUÐMUNDAR
ARASONAR MÓTIÐ
14.-22. des. - Aðgangur ókeypis.
ÞEGAR fjórum umferðum er
lokið á mótinu eru stórmeistar-
arnir farnir að raða sér í efstu
sætin og í kjölfar þeirra koma al-
þjóðlegu meistararnir. Hins veg-
ar eru það íslensku skákmenn-
irnir sem hafa náð bestum ár-
angri miðað við skákstig. Þannig
hafa þeir Dan Hansson, Sævar
Bjarnason, Arnar Gunnarsson og
Kristján Eðvarðsson allir fengið
hátt í vinningi meira en yænta
mátti miðað við skákstig. Árang-
ur Sævars þarf ekki að koma á
óvart miðað við frammistöðu
hans í skákmótum að undan-
förnu. Hins vegar er ánægjulegt
að sjá að Dan Hansson virðist
engu hafa gleymt þrátt fyi'ir að
hann hafi lítið teflt í kagpskák-
mótum undanfarin ár. Urslit í
fjórðu umferð urðu þess:
Sævar Bjarnason - Aleksei Lugovoi
0-1
Vasily Yemelin - Alexander Raetsky
V2-V2
Stefán Kiistjánsson - Ralf Akesson 0-
1
Krístján Eðvarðsson - Manuel Bos-
boom 0-1
Albert Blees - Róbert Harðarson V2-
a
Arnar Gunnarss. - Tapani
Sammalvuo VtrVz
Áskell Örn Kárason - Bragi Þorfinns-
son 1-0
Davíð Kjartansson - Jón Viktor
Gunnarss. 0-1
Tómas Björnsson - Dan Hansson 0-1
Sigurður Steindórss. - Heikki
Westerinen 0-1
Heimir Ásgeirsson - Bergsteinn Ein-
arsson 0-1
Jón Árni Halldórss. - Bjöm
Þorfinnss. V2-V2
Einar Kr. Einarsson - Einar H. Jens-
son 0-1
Jón G. Viðarsson - Hjalti R. Ómars-
son 1-0
Þorvarður Ólafss. - Kjartan Guð-
mundss. 0-1
Röð efstu manna að loknum
fjórum umferðum er þessi:
1.-2. Ralf Akesson, Aleksei Lugovoi
3V2 v.
3.-5. Vasily Yemelin, Alexander Raet-
sky, Manuel Bosboom 3 v.
6.-14. Sævar Bjarnason, Albert Blees,
Áskell Örn Kárason, Arnar Gunnars-
son, Róbert Harðarson, Stefán Krist-
jánsson, Jón Viktor Gunnarsson,
Tapani Sammalvuo, Dan Hansson 2V2
v.
í fimmtu umferð tefla m.a.
saman:
Aleksei Lugovoi - Ralf Akesson
Manuel Bosboom - Vasily Yemelin
Alexander Raetsky - Albert Blees
Jón V. Gunnarsson - Áskell Örn
Kárason
Tapani Sammalvuo - Stefán Krist-
jánsson
Róbert Harðarson - Arnar Gunnars-
son
Dan Hansson - Sævar Bjarnason
Heikki Westerinen - Einar Hjalti
Jensson
Það verða því erlendu skák-
mennirnir sem tína punktana
hver af öðrum á pfstu borðum,
sem gæti gefíð Islendingunum
færi á að blanda sér í toppbarátt-
una á nýjan leik.
Stefán Kristjánsson
sigrar á Bikarmóti TR
Bikarmóti TR er lokið. Önigg-
ur sigui'vegari varð Stefán Krist-
jánsson sem hlaut 14 vinninga og
gerði einungis tvö jafntefli.
Tefldar voru atskákir og féllu
keppendur úr leik eftir fímm töp.
Úrslit urðu sem hér segir:
1. Stefán Kristjánss. 14 v. (1 tap)
2. Guðni Stefán Pétursson 10 v.
3. Dagur Arngrímsson 8V2 v.
4. Halldór Pálsson 7V4 v.
5. Einar K. Einarsson 5!4 v.
6. Sigurður Ingason 5‘/2 v.
7. Rafn Jónsson 4 v.
8. Kjartan Ó. Guðmundsson 4
9. Guðmundur Kjartansson 3 v.
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson
BRIDS
II111 sj011 Arnór G,
Ragnarsson
Bridgefélag Reykjavíkur
þriðjudagskvöld BR
Þriðjudaginn 16. var síðasta spila-
kvöld þriðjudagskvölda BR fyiir jól.
18 pör spiluðu Monrad Barómeter.
Spilaðar voru 7 umferðir með 4 spil-
um á milli para. Efstu pör voru:
Guðmundur Baldursson - Jens Jensson +55
Magnús Þorsteinss. - Guðmu. Vestmann +26
Guðbjörn Þórðarson - Jón Ingþórsson +21
Guðm. Skúlas. - Jón Viðar Jónmundss. +20
Sigurjón Karlsson - Aðalsteinn Sveinsson +20
11 pör tóku þátt í Verðlaunapott-
inum. 1. verðlaun, 4.000 kr. runnu til
Guðmundar og Jens og 2. verðlaun,
1.500 kr., runnu til Guðbjörns og
Jóns.
Hraðsveitakeppni BR
Hraðsveitakeppni BR lauk mið-
vikudaginn 16. desember. Sveit Sæv-
ai-s Þorbjörnssonar vann eftir mikla
keppni við sveit Samvinnuferða-
Landsýn. Með Sævai-i spiluðu:
Sverrir Ánnannsson, Sigti'yggm'
Sigurðsson, Bragi Hauksson, Aðal-
steinn Jörgensen og Baldvin Valdi-
marsson. Fyrii' Samvinnuferðir-
Landsýn spiluðu: Helgi Jóhannsson,
Guðmundm- Sv. Hermannsson, Þor-
lákur Jónsson, Guðmundur Páll Arn-
arson, Karl Sigurhjartarson og
Björn Eysteinsson.
Lokastaða efstu sveita:
Sv. Sævars Þorbjörnssonar 2368
Sv. Samvinnuferðar-Landsýn 2352
Sv. Steinars Jónssonar 2288
Sv. Arnar Amþórssonar 2286
Sv.Olís 2232
Sv. Gumma Pé og pjakkanna 2221
Sv. Guðnýjar Guðjónsdóttur 2221
Meðalskor kvölds vai- 540 og
hæsta kvöldskor í hvorum riðli náðu:
A-riðill
Sv. Sævars Þorbjörnssonar 604
Sv. Samvinnuferða-Landsýn 602
Sv. Olís 578
Sv. Steinars Jónssonar 570
B-riðill
Sv. Guðnýjar Guðjónsdóttur 609
Sv. Nota bene 606
Sv. Jóns Steinars Gunnlaugss. 594
Sv. Dúu Ólafsdóttur 559
Milli jóla og nýárs stendur BR
fyrir einskvölds keppnum þriðjudag-
inn 29. desember og miðvikudaginn
30. desember.
BR stendur fyrir árlegu minninga-
móti félagsins um Hörð Þórðarson.
Mótið fer fram 27. desember og
hefst kl. 12.00. Veitt verða verðlaun
fyrh' 4 efstu sætin auk þess sem
efstu pör í flokki kvenna, yngi'i spil-
ara og eldri spilara fá verðlaun. Þátt-
tökugjald er 2000 kr. á spilara.
Spilaform er Monrad Barómeter. 11
umferðir með 4 spilum á milli para.
Félag eldri borgara
Fimmtudaginn 10. des. sl. spiluðu
20 pör Mitchell tvímenning.
NS
Rafn Kristjánsson - Oliver Kristóferss. 281
Jón Andréss. - Guðmundur Guðmundss. 244
Jón Stefánsson - Sæmundur Björnsson 240
AV
Hannes Ingibergsson - Anton Sigurðsson 246
Ólafur Ingvarsson - J óhann Lúthersson 243
Þomrður Guðmundss. - Jóhann Guðmundss.
243
Meðalskor 216
Mánudaginn 14. des. sl. spiluðu 20
pör. Úrslit urðu þessi.
NS
Ólafur Ingvarsson - Jóhann Lúthersson 273
Júlíus Guðmundsson - Rafn Kristjánsson 244
Eyjólfur Halldórss. - Þórólfur Meyvantss. 223
AV
Lárus Hermannsson - Eysteinn Einarsson 306
Albert Þorsteinss. - Auðunn Guðmundss. 258
Sæmundur Björnsson - Jón Stefánsson 251
Meðalskor 216
Bridsdeildin óskar öllum félögum
sínum gleðilegra jóla og gæfuríks
nýárs.
MINNINGAR
KRISTJAN
PÁLSSON
+ Kristján Páls-
son fæddist á
ísafirði 24. septem-
ber 1916. Hann lést
á Fjórðungssjúkra-
húsinu á ísafirði 30.
nóvember síðastlið-
inn og fór útför
hans fram frá Isa-
fjarðarkirkju 5. des-
ember.
Okkur langar til að
minnast ástkærs afa
okkar sem er látinn
eftir erfið veikindi.
Mikið eigum við eftir að sakna
hans afa okkar en hann er örugg-
lega feginn að vera leystur frá erf-
iðum veikindum.
Alltaf var jafn gaman að koma í
Hrannargötuna til afa og ömmu.
Við sjáum afa fyrir okkur þar sem
hann sat á stólnum við ofninn og
reykti pípuna sína í rólegheitum.
Þegar hann heyrði dyrnar opnast
leit hann við og sagði brosandi:
„Erað þið nú komnar, elskurnar?“
Ætíð fundum við hversu vel-
komnar við vorum og ekki voru
þær fáar ferðirnar sem við áttum
til afa og ömmu. Stundum var hleg-
ið að því að við áttum það til að
koma inn og rétt segja halló og
bless, en það var þessi vani hjá
okkur að heilsa alltaf upp á afa og
ömmu hvem dag. Þessar minning-
ar eru okkur mjög dýrmætar og
eigum við eftir að segja börnum
okkar og vonandi barnabörnum frá
því hve gott var að finna þessa
hlýju og fá að umgangast afa eins
mikið og við gerðum í uppvextin-
um. Alltaf hafði afi nógan tíma til
að tala við okkur og oft dansaði
hann við okkur 0g seinna dansaði
hann við bömin okkar á sama hátt.
Alltaf fórum við vel saddar úr
Hrannargötunni því það var vel
passað upp á það að við borðuðum
vel af því sem var á boðstólum. Ha-
fragrauturinn var alltaf góður og
sagði afí okkur að lýsið ætti alltaf
að fylgja grautnum og við ættum
að borða vel til að verða stórar og
sterkar. Einnig sagðir hann okkur
oft sögur af hans uppvexti og telj-
um við að það hafí verið mjög gott
fyrir okkur því þá vissum við hve
vel við máttum el una við það sem
við höfðum. Selma man mjög vel
eftir því þegar afi var að gefa henni
magamjólk og sagði alltaf að svona
væri að vera veikur í maga en að
magamjólkin lagaði mjög fljótt
magaverkinn.
Lína minnist þess þegar hún fór
í göngutúr niður í bæ með dúkku-
vagninn sinn og ein skiúfan í hon-
um gaf sig, þá var að sjálfsögðu
gengið upp í Hrannargötu og afí
gerði við vagninn og hafði mikla
ánægju af því. í dag notar langa-
fastelpan hans vagninn og heldur
skiúfan honum enn saman.
Við minnumst þess þegar afi gaf
okkur kringlu og kaffi, þá kenndi
hann okkur hvernig ætti að borða
kringlu á réttan hátt. Það var
þannig að hann sat með sykurkarið
og kaffibollann, dýfði síðan kringl-
unni í kaffibollann og svo beint í
sykurkarið. Þetta fannst okkur al-
veg frábært því alltaf var verið að
tala um hve óhollur sykur væri en
afi hélt nú ekki, þess vegna sparaði
hann aldrei sykurinn.
Við munum eftir öllum ullasokk-
unum sem afi prjónaði og útsaum-
uðu myndunum sem hann saumaði
eftir að hann hætti að vinna.
Elsku afa þökkum við fyrir langa
og góða samfylgd og munum alltaf
minnast hans með gleði í hjarta því
minningarnar um hann eru svo
góðar. Ömmu þökkum við fyrir
hversu vel hún stóð með afa í veik-
indum hans enda hefur hún verið
afa ómetanlegur styi'kur. Við biðj-
um góðan Guð að vera með ömmu
og Boggu.
Selma og Dagbjört
Lína Kristjánsdætur.
Hann móðurafi okk-
ar, Kristján Pálsson
frá Isafirði, er látinn.
Sjúkralega hans var
stutt, aðeins ein vika.
En hann afi okkar átti
margar sjúkralegurn-
ar að baki, enda var
hann ekki góður til
heilsunnar eftir sjó-
slysið sem hann lenti í
1941, árið sem hún
amma Munda gekk
með hana mömmu
okkar. En þrátt fyrir
heilsuleysið sem hrjáði
hann alla daga síðan bjó afi yfir
miklum lífski'afti og bjartsýni.
Okkur systkinin á Bakkavegi 13
langar að kveðja hann afa Didda
með nokkmm orðum.
Elsku afi Diddi. Það era vissu-
lega blendnar tilfinningar sem við
berum í brjósti á þessari stundu,
annars vegar feginleiki fyrir þína
hönd, elsku afi, því við vitum að þú
varst orðinn þreyttur og þráðir
hvíldina, og hins vegar mikill sökn-
uður og sorg yfir því að við njótum
samvistanna ekki lengur við þig.
Við eigum margar góðar og falleg-
ar minningar um þig, elsku afi. Þú
varst alltaf svo blíður og góður við
okkur og aldrei var langt í gaman-
semina hjá þér. Hrannargata 8 var
alltaf fastur viðkomustaður þegar
við komum utan úr Hnífsdal og í
bæinn. Það var alltaf svo gott að
koma til ykkar ömmu í Hrannó og
síðar á Hlíf, enda komum við aldrei
að tómu kotinu. Alltaf voruð þið og
Bogga frænka að sýsla eitthvað,
þær mæðgur voru gjarnan að gera
eitthvað í eldhúsinu eða sátu við
hannyrðir og þú sast á litla stóln-
um við ofninn með pípuna þína. .
Seinni árin tókst þú stundum í
prjónana þína eftir að þú hættir að
vinna í Ishúsinu. Það vora líka
rnargir hissa þegar litlu börnin
okkar fengu frá þér ullarsokka og
sögðu að afi Diddi hefði prjónað þá.
Þær vora ófáar ferðirnar sem við
systkinin og síðar börnin okkar
fórum með ykkur ömmu og Boggu
í berjamó. Berin hafa alltaf verið
fastur punktur hjá ykkur á
haustin. Það var alltaf svo mikið
sport að fara með ykkur í Engidal-
inn á „Skódilakk" og tína aðalblá-
berin.
Þú sagðir okkur margar sögur,
frá því að þú varst ungur drengur
og frá því þegar þið amma hittust.
Þú hafðir mikla unun af því að
dansa og það kom alltaf glampi í
augun þín þegar þú tókst okkur
upp og síðar barnabarnabörnin þín
og dansaðir við okkur. Alltaf vor-
um við jafnhissa þegar þú fékkst
þér kaffið þitt með öllum sykrin-
um, þú fékkst þér alltaf fjórar
skeiðar í kaffið því fimm voru of
mikið, sagðir þú! Við sögðum líka
að hún Sigi'íður systir okkar hefði
lært það af þér að borða svona
mikinn sykur.
Elsku afí, við eram þakklát fyrir -r
allar góðu stundirnar okkar saman
og vonum að þér líði vel þar sem þú
ert núna.
Elsku amma Munda og Bogga
frænka, megi góður guð styrkja
ykkur í sorg ykkar.
Halldóra, Sigríður Inga,
Finnbjörn og
Guðmunda Kristín.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
BIRGIR BREIÐFJÖRÐ PÉTURSSON,
Egilsgötu 18,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu að kvöldi fimmtudagsins
17. desember. Jarðarförin auglýst síðar
Erla Gísladóttir
Lovísa Birgisdóttir,
Hanna Ingibjörg Birgisdóttir, Guðmundur Jónasson,
Pétur Birgisson, María Aðalbjarnardóttir,
Gísli Kristján Birgisson, Anna Kristín Kristinsdóttir,
Ágústa Hera Birgisdóttir, Haukur Sigurðsson,
Hlynur Freyr Birgisson, Stefanía Arnardóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
RÖGNU EIRÍKSDÓTTUR,
Sléttuvegi 13,
Reykjavík.
Sigursteinn Sævar Hermannsson,
Jóhann Bragi Hermannsson,
Eríkur Rúnar Hermannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Anna Þórarinsdóttir,
Guðrún Ingadóttir,
+
Alúðarþakkir til þeirra ótalmörgu, sem sýndu
okkur hlýhug og kærleika við andlát og útför
JÓNS HARALDSSONAR,
Brekkubrún 6,
Fellabæ.
Læknum og hjúkrunarfólki á gjörgæsludeild
Landspítalans er einnig þökkuð af alhug um-
hyggjan í veikindum hans.
Guð blessi ykkur öll.
Hildigunnur Valdimarsdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn
og aðrir vandamenn.