Morgunblaðið - 19.12.1998, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNB L AÐIÐ
Nýr Barnaspítali Hrings-
ins - Hverra þarfír eru
hafðar í fyrirrúmi?
SA ánægjulegi við-
burður átti sér stað um
miðjan nóvember síð-
astliðinn að heilbrigðis-
ráðhen-a tók fyrstu
skóflustunguna að nýj-
um Barnaspítala Hr-
ingsins. Fyrir okkur
sem höfðum tekið virk-
an þátt í undirbúningi
spítalans vakti það
furðu okkar að
nokkrum dögum fyrr
höfðu fulltrúar sterkra
hagsmunahópa tjáð sig
opinberlega um teikn-
ingar nýja spítalans og
sett verulega út á þær.
Það er ekki ætlun þess-
arar greinar að svara
þeirri gagnrýni sem þar kom fram,
enda virðist hún byggð á misskiln-
ingi. Hins vegar má gera ráð fyrir að
þessi gagnrýni hafi þyriað upp ryki
' * hjá þeim aðilum sem málið varðar og
erfltt er að ná til nema í gegnum fjöl-
miðla. Þessi hópur er foreldrar og
aðstandendur barna á Islandi, en þó
sérstaklega foreldrar og aðstand-
endur langveikra barna. Þessi hópur
á rétt á að fá útskýringar á því
hvemig nýr Barnaspítali Hringsins
sinnir þörfum barna þeirra. Sjúkra-
húsinnlögn hefur ákveðna röskun í
för með sér fyrir börn og unglinga.
Hvert barn er einstakt og hefur sín-
ar persónulegu þai-fír sem foreldrar
„ eru best í stakk búnir til að meta og
uppfylla.
Til að svara þessari spurningu,
„Hverra þai-fir eru hafðar í fyrir-
rúmi?“ mun ég byrja á að fara yfir
hvemig staðið hefur verið að þvi að
móta þær tillögur sem nú liggja fyrir
varðandi teikningar Bamaspítala
Hringsins. Síðar mun ég leggja
áherslu á þær breytingar sem orðið
hafa á teikningum frá fyrstu tillög-
um til dagsins í dag. Að lokum mun
ég stuttlega fara yfir þá þætti sem
enn era í mótun og hvernig notenda-
hópar geta tryggt að nýr Bamaspít-
ali Hringsins uppfylli þær þai-fir sem
þeir vænta.
Hvernig var staðið
að verkefninu?
Byggingamefnd hefur
yftramsjón með verkinu
og ber ábyrgð á þeim
ákvörðunum sem teknar
eru og framkvæmd
verksins. Fyrsta verk
byggingameftidar var
að efna til samkeppni
um teikningar fyrir nýj-
an Bamaspítala, haustið
1997. Niðurstaða þein-ar
samkeppni var kynnt á
ársfundi Ríkisspítala
fyrir rúmu áii. I útboðs-
lýsingu var stuðst við
niðurstöður starfshópa
innan bamaspítalans og
fulitrúa foreldrafélaga. Staðsetning
byggingarinnai- var ákveðin sem næst
kvennadeild þar sem tenging við fæð-
Hvert barn er einstakt
og hefur sínar persónu-
legu þarfir, segir Anna
Olafía Sigurðardóttir,
sem foreldrar eru best
í stakk búnir til að
meta og uppfylla.
ingargang kvennadeildar er mikilvæg,
þannig er bein leið yfir á vökudeild
sem er gjörgæsla nýbui'a.
I byijun þessa árs var stofnaður
stýrihópur fyrir verkið sem hefur
m.a. það verkefni að vera tengiliður
milli notenda og arkitekta. Með
fyrstu verkum stýrihópsins var að
mynda vinnuhópa notenda. I þessum
notendahópum era m.a. starfsmenn
barnaspítalans ásamt aðstandendum
langveikra barna. Þær tillögur sem
nú liggja fyrir eru afrakstur vinnu
þessara hópa. A öllum stigum var
reynt eftir fremsta megni að verða
við þeim ábendingum sem upp komu
hjá þessum hópum.
Sá misskilningur sem upp kom
rétt fyrir fyrstu skóflustungu á ræt-
ur að rekja til þess að ákveðnir aðil-
ar settu sig ekki inn í þær breytingar
sem gerðar hafa verið á teikningum.
Helstu breytingar
Þær teikningar sem nú liggja fyrir
era afrakstur góðrar samvinnu milli
notenda og arkitekta. Allir þeir sem
tekið hafa þátt í þessari vinnu hafa
unnið af miklum dugnaði og fag-
mennsku. Þar hefur m.a. verið tekið
á eftirtöldum þáttum sem sett var út
á í upphaflegum teikningum:
Svefnaðstaða aðstandenda er
tryggð við hlið allra venjulegra
sjúkrarúma. Þetta var gert með því
að stækka herbergin. Einfalt er að
fylgjast með einu herbergi á hverri
deild í gegnum glugga frá vakther-
bergi. Kapellu hefur verið komið fyr-
ir á góðum stað. Jafnræði hefur
skapast milli starfsstétta hvað varð-
ar vinnuaðstöðu. Unglingaherbergi
hefur verið fært nær legudeild. Að-
staða fyrir sjúkraþjálfun barna hefur
verið aukin. Búningsherbergi starfs-
manna ásamt geymslum og tækni-
rými var komið fyi’ir í kjallara.
Vinna framundan
Þó fyrirliggjandi séu teikningar af
herbergjaskipan nýs bamaspítala er
langt þvi frá að vinna stýrihóps og
notenda sé lokið. Þessa dagana er ver-
ið að stofna nýja notendahópa, sem
fara nákvæmlega yfir búnað og þarfir
hvers rýmis, þannig að tryggt verði að
bamaspítalinn nýtist til þess verks
sem honum er ætlað. Það er von stýri-
hópsins að notendur verði jafn virkir í
þessu ferli eins og þeim fyrri.
Markmið okkar er að byggja
barnaspítala sem tekur mið af þörf-
um barna og aðstandenda þeirra,
ásamt því að hann uppfylli kröfur
starfsfólks og nema um gott vinnu-
umhverfí.
Höfundur er hjúkrunarfræðingur
og verkefnisstjóri notendaþáttar við
byggingu nýs Bamaspítala Hrings-
ins
l SNJOBRETTI
l BRETTAFATNAÐUR
BRETTASKÓR
BRETTAHANSKAR
BRETTAGLERAUGU
í BRETTAPOKAR
Bretti með bindingum, tilboð,
kr. 26.200, stgr. 24.890.
Barnabretti með bindingum,
irerð frá kr. 6.900.
Brettaskór frá kr. 9.400.
Armúla 40,
símar 553 5320
og 568 8860.
Ysmlunln
Um starfsskil-
yrði og
frumkvöðla
FRUMKVÖÐLAR
taka áhættu, bera
kennsl á leiðir til að
mæta þörfum neyt-
enda og ryðja brautina
inn á nýja markaði.
Þeir leita hins óþekkta
og fara ótroðnar slóðir
á öllum sviðum og
greinum atvinnulífs-
ins.
Hvað hvetur menn í
tvísýnt átak nýsköpun-
ar? Hvaða hæfileika
þarf til að verða frum-
kvöðull? Var það, svo
dæmi sé tekið, þekk-
ing, útsjónarsemi,
skynsemi eða fíldirfska
sem gerði framkvöðla úr hjónunum
Arngrími og Þóra hjá Atlanta, Öss-
uri hjá samnefndu stoðtækjafyrir-
tæki og Friðriki hjá Tölvumynd-
um? Eða var það hagnaðarvonin,
þöi-fín fyrir að skapa og ráða sem
áorkaði svo miklu?
Almenn góð starfsskilyrði
skipta miklu
Nýsköpun framkvöðla er mæl-
anleg í aukinni verðmætasköpun,
nýjum störfum, vaxandi framleiðni,
aukinni fjölbreytni og útrás at-
vinnulífsins. Samanburður hefur
gert mönnum kleift að beina kast-
Ijósinu að þeim sem bestum ár-
angri hafa náð. Þannig hefur sköp-
un áðurnefndra frumkvöðla hlotið
alþjóðlega viðurkenningu. Samtök-
Er nýsköpun frum-
kvöðla meiri þar sem
fjármagnsmarkaður er
virkur, skattar lágír,
spyr Ingólfur Bender,
vinnumarkaðurinn
sveigjanlegur, sam-
keppnin mikil og opin-
ber reglubyrði og um-
svif lítil? Svarið er hik-
laust já.
in Europe’s 500 telja þá og fleiri ís-
lenska meðal 500 framsæknustu í
Evrópu. Valið lýtur ströngum skil-
yrðum um vöxt og tilurð hans, s.s.
eignaraðild framkvöðuls, sjálf-
stæði, veltuaukningu, atvinnusköp-
un, arðsemi, stærð og aldur fyrir-
tækisins. Nokkuð þarf til að kom-
ast inn á listann því að fjöldi evr-
ópskra fyrirtækja skiptir milljón-
um. í valinu felst því mikil viðm--
kenning og heiður.
Framlag stjórnvalda í formi
góðra starfsskilyrða til nýsköpunar
er ekki jafn greinanlegt og framlag
einstakra framkvöðla og fyrir-
tækja þeirra. Hægt er að benda á
eitt fyrirtæki, telja starfsmenn
þess, mæla veltu og arðsemi og
segja þetta er afrakstur þess sem
framkvöðullinn ýtti úr vör. Erfið-
ara er að segja nákvæmlega til um
hvað aukið frelsi í viðskiptum hér á
landi, svo dæmi sé tekið, hefur fætt
af sér í fjölgun starfa og auknum
hagvexti. Starfsskilyrðin era hins
vegar álitin ráða miklu, eða svo
segja niðurstöður rannsókna a.m.k.
Leitað hefur verið svara við spurn-
ingum sem þessum: Er nýsköpun
framkvöðla meiri þar sem fjái--
magnsmarkaður er virkur, skattar
lágir, vinnumarkaðurinn sveigjan-
legur, samkeppnin mikil og opin-
ber reglubyrði og um-
svif lítil? Svarið er hik-
laust já.
I nýlegu riti Efna-
hags- og framfara-
stofnunar (OECD),
sem ber nafnið „Fram-
kvæði í fóstri“ (e.
Fostering Entreprene-
urship), er greint frá
því hvað framkvöðlar
þurfa til nýsköpunar.
Þar segir að vilji
stjómvöld virkja frum-
kvæði þegnanna beri
þeim að tryggja að
markaðir fjármagns,
vinnuafls, vöra og
þjónustu virki lipur-
lega. Framkvöðlar þrífast í sam-
keppni. Stjórnvöld eiga að halda
umsvifum sínum í lágmarki og hafa
að leiðarljósi að flækjast ekki fyrir.
Lækkun skatta sem og einföldun
laga og reglna er dæmi um skref í
þá átt. Síðast en ekki síst ættu
stjómvöld ávallt að vera opin fyrir
ábendingum atvinnulífsins um það
hvemig megi bæta starfsskilyrðin.
Að fara dalinn
Silicon Valley í Bandaríkjunum
hefur fremur huglæga merkingu
en staðbundna. Sú er niðurstaða
úttektar sem hið víðlesna rit the
Economist gerði á síðasta ári. Dal-
urinn býður hentugt umhverfi fyrir
atvinnurekstur og nýsköpun - ekki
vegna þeirra náttúraauðlinda sem
þar finnast heldur vegna góðra
starfsskilyrða og einstakrar fram-
kvöðlamenningar. Þar ríkir já-
kvætt hugarfar í garð atvinnu-
rekstrar. Stjórnvöld og embættis-
menn líta á sig sem samherja at-
vinnulífsins en ekki andstæðinga,
þjóna þess en ekki herra. Þar er al-
mennur skilningur á því að hags-
munir fyrirtækja og launþega fara
saman. Dalurinn er ekki staður
heldur leið sem farin er til að auka
hagvöxt: „Leið til að skapa nýjar
hugmyndir og ný fyrirtæki.“
Sjö íslensk fyrirtæki era á lista
yfir þau framsæknustu í Evrópu.
Er það vísbending um góð starfs-
skilyrði og framkvöðlamenningu
hér á landi? Eram við á leið inn í
dalinn ef svo mætti að orði komast?
Er ekki hagvöxtur hér mikill, þjóð-
artekjui' háai', atvinnuleysi lítið og
atvinnuþátttaka með því mesta sem
gerist vegna þess að við eram vel á
veg komin? Komumst við lengra?
Það má til sanns vegar færa að
með auknu frjálsræði, virkari sam-
keppni og sveigjanleika hefur mið-
að áleiðis. Abatinn felst í því góð-
æri sem við búum við. Arangurinn
hefur skilað sér fyiir tilstilli okkar
eigin breytni og við eigum enn
nokkum veg ófarinn.
Stjómvöld era í víðtækum
rekstri hér á landi í samkeppni við
einkaaðila eða þar sem hæglega
væri hægt að koma á samkeppni.
Má þar nefna starfrækslu fjár-
máiastofnana, stoðdeilda í hugbún-
aðargerð, útvarps, iðnaðar, áfeng-
is- og tóbaksverslunar og vinnslu,
dreifingu og sölu raforku. Þannig
mætti lengi telja. Slík umsvif ríkis-
valdsins flækjast fyrir og hindra að
nýsköpun fái notið sín í aukinni
hagkvæmni og hagvexti. Segja má
að það sé nýstárlegt að verðlauna
ríkisstjórnina sem frumkvöðul árs-
ins fyrir að hefja einkavæðingu
fjármálastofnana. Vonandi fær hún
verðlaun fyrir einkavæðingu á
hverju ári hér eftir.
Höfundur er hagfræðingur Sam-
taka iðnaðarins.