Morgunblaðið - 19.12.1998, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998 67
AÐSENDAR GREINAR
habíba
Oboðinn gestur
í veislunni
RIKISSTJORN Is-
lands er ríkisstjórn
skömmtunarinnar.
Hún vill skammta
þeim sem henni hentar
þau gæði sem landið
okkar býður upp á,
hvort sem það eru auð-
lindir í iðrum jarðar, í
sjónum eða hugvitið í
líftækniiðnaðinum.
Umræðan um kvót-
ann, hálendið, jarðhit-
ann og gagnagrunninn
einkennist af því að
annars vegar er það
ríkisstjórnin sem vill
úthluta þessum gæð-
um til þeirra sem
henni þóknast og hins vegar ein
það þeir sem tala fyrir fjöldann
sem ekki fær að vera með í veisl-
unni. Þeir sem vilja að allir lands-
menn eigi sanngjarnan rétt til að
njóta gæðanna sem um ræðir. Rík-
isstjórnin vill ekki jöfn tækifæri á
meðal landsmanna til að nálgast
þessi verðmæti, hún vill úthluta
þeim til útvalinna og veisluhöldin
um kvótann hafa nú staðið í 15 ár.
Hæstiréttur ógnar
veisluhöldunum
Þá gerist það að æðsti dómstóll
þjóðarinnar gerist boðflenna í
partíi rikisstjórnarinnar og kveður
upp dóm sem á eftir að hafa gífur-
leg áhrif á það á hvern hátt er
hægt að úthluta veiðiheimildum í
framtíðinni. Hæsth'éttur hefur með
svokölluðum kvótadómi stöðvað
veisluhöldin og dæmt að þau brjóti
í bága við jafnræðisreglu og at-
vinnufrelsisákvæði stjórnarskrár-
innar. Dómurinn tekur ótvírætt til
úthlutunar veiðiheimilda og það
mat ríkisstjórnarinnar að hann nái
aðeins til úthlutunar veiðileyfa, þ.e.
5. gr. laganna um stjórn fiskveiða
er í raun ótrúlega ófýrirleitin túlk-
un. Með því er verið að segja að
Hæstiréttur skilji ekki muninn á
gi'undvallarhugtökum laganna, þ.e.
veiðileyfi annars vegai' og veiði-
heimild hins vegar, því í dóminum
er talað um veiðiheimildir og for-
sendui' við úthlutun þeirra. Við-
brögð ríkisstjórnarinnar við dómi
þessum eru reyndai' öll með ólík-
indum, ráðherrar hafa ýmist haldið
því fram að hann skipti ekki máli af
því að það hafi aðeins verið fimm
dómarar sem dæmdu í málinu, eða
að það þyrfti að breyta stjórnar-
skránni úr því að lögin um stjórn
fiskveiða brytu í bága við hana,
eins og utanríkisráðherra hefur
ljáð máls á! Það er afar sérstakt að
ráðherrar skuli leyfa sér slík um-
mæli, því þau ógna
beinlínis grundvallar-
stoðum stjórnskipunar
okkar og mannréttind-
um landsmanna.
Óréttlætinu
hnekkt
Lögin um stjórn
fískveiða hafa verið
umdeild frá upphafi,
ekki síst sá máti sem
þar er ákveðinn um að
úthluta veiðiheimild-
um til tiltekins hóps
manna sem höfðu róið
Bryndís til fiskjar á ákveðnu
Hlöðversdóttir tímabili. Sú fram-
kvæmd hefur valdið
meiri og meiri óánægju í tímans
rás, ekki síst þegar kerfið verður
grónara, hópur hinna útvöldu hefur
Það er hægt að fara þá
leið að bjóða upp þær
veiðiheimildir sem til
ráðstöfunar eru, segir
Bryndís Hlöðvers-
dóttir, eða leigja þær
út til árs í senn í stað
þess að deila þeim út
til útvalins hóps.
augljós forréttindi á kostnað ann-
arra og þá hefur það valdið úlfúð
þegar menn horfa upp á fólk auðg-
ast á veiðiheimildum sem það hefur
erft frá einhverjum öðram, án þess
að hafa nokkurn tíma komið ná-
lægt útgerð sjálft. Ákvæðið í 1. gr.
laganna um að fiskurinn í sjónum
sé sameign þjóðarinnar verður æ
hjákátlegra í ljósi þessarar fram-
kvæmdar og óánægja fjöldans
eykst. Fjölmargir hafa verið til að
benda á þetta óréttlæti á umliðnum
áram en með dómi Hæstaréttar
verða ákveðin vatnaskil. Þar era
núverandi leikreglur við úthlutun
veiðileyfa og veiðiheimilda dæmdar
í bága við tvö stjómarskrárákvæði,
Hæstiréttur segir að forsendurnar
sem við notum við úthlutun veiði-
heimilda standist ekki og þó að til-
teknar aðgerðir, sem kunni að fela
í sér mismunun á milli manna, eigi
rétt á sér í nafni verndunar fiski-
stofna, þá mega þær aldrei verða
til frambúðar.
Yfirklór ríkisstjórnarinnar
nægir ekki
Ríkisstjórnin hefm' í kjölfar
dómsins farið þá leið að breyta
bara 5. gr. laganna um stjórn fisk-
veiða, en ekki þeirri grein sem
fjallar um úthlutun sjálfra veiði-
heimildanna. Það er fráleitt að
telja að slíkt yfirklór sé nægilegt til
að koma til móts við gagnrýni HR,
því eftir sem áður er mismununin
enn við lýði við úthlutun veiðiheim-
ildanna. Forsendur þeirrar úthlut-
unar eru þær sem dómurinn tínir
til, þ.e. ákveðin skip sem haldið var
úti á öndverðum níunda áratugnum
eða hafa komið í stað slíkra skipa
og þær forsendur standast ekki að
mati dómsins. Svo einfalt er það.
Til að koma til móts við gagnrýni
Hæstaréttar þarf í fyrsta lagi að
setja sólarlagsákvæði í lögin, til að
svara því að ekki megi festa kerfið
í sessi um ókomna tíð. I öðra lagi
tel ég að það þurfi að afnema nú-
verandi kerfi um úthlutun veiði-
heimilda og fara leið sem nálgast
markmiðið um að nytjastofnarnir í
sjónum séu í sameign þjóðarinnar.
Tryggja þarf jöfn tækifæri og
heilbrigða samkeppni
í gegnum tíðina hefur verið bent
á leiðir til að koma til móts við
gagnrýni sem fram hefur komið á
núverandi kerfi. Það er t.d. hægt
að fara þá leið að bjóða þær veiði-
heimildii' sem til ráðstöfunar era
upp eða leigja þær út til árs í senn í
stað þess að deila þeim út til útval-
ins hóps. Slíku kerfi mætti koma
við í áföngum, til þess að koma í
veg fyrir efnahagslegt hrun í kjöl-
far kollsteypu kerfisins sem nú er
við lýði. Gjaldið fyrir leiguna gæti
rannið í ríkissjóð eða í sjóð sem
yi'ði varið til rannsókna, þróunar
og frekari verkefna, eftir því
hversu mikið það væri. Með slíku
kei'fi stæði landsmönnum að
minnsta kosti til boða jafn aðgang-
ur að því að nýta auðlindina, í stað
þess að útvalinn hópur nyti forrétt-
inda á grundvelli sem ekki stenst
stjórnarskrá.
Höfundur er þingmaður
A Iþýðu Imndalagsins.
GANGA I GAMÐ
». 1 £'
Jóladagskrá íFjölskyldu
og Húsdýragardinum
í dag, laugardag:
Kl. 13:00 Ungir meðlimir Harmonikkufélags
Reykjavíkur leika ljúfa jólatóna
Kl. 13:00 Sigurður Gíslason matreiðslumaður úr
Perlunni sker út listaverk úr ís og hver
voil nema þú getir fengið að spreyta þig!
Kl. 14:00 Lúðrasveitin Svanur leikur nokkurjólalög
Kl. 15:00 Skyrgám ber að garði
Á inorgun, sunnudag:
Kl. 14:00 Jólaball meö Geirfuglunum!
Bjúgnakrækir fer á kreik og fieira óvænt
Jólasvcinn kemur í heimsókn á
hverjurn degifram að jólum!
TM ■ HÚSGÖGN
l SíSumúla 30 -S!mi 568 6822
55 FJOL5KYLDU- OC
HÚSDÝRAGARÐURINN
Lnuganlal. Hafrarell v/ltngjaveg, 104 Ilevkjatík
Sími 553 77(M), Fax 553 7140
SEXTIU OG SEX NORÐUR
Verslanir 66°N: Faxafeni! 2 s: 588 6600
og Skúlagötu 51 s: 552-7425
||mbl his LLTA/= e/TTH\/AT> A/V'/ /