Morgunblaðið - 19.12.1998, Page 87
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998 87^
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. b.u6.
CoaáÍ
H-J, Jfi
www.vortex.is/stiornubio/
Magga Stína fær góöa dóma
Drottning hi
ar fjölsnærð
danstónlistar
TÓNLISTARBLÖÐ í Bretlandi og Bandaríkjunum gefa
Plötu Möggu Stínu, „An Album“, mjög góða dóma, en
platan er gefin út af fyrirtækinu Ear, sem er ný út-
gáfa á vegum One Little Indian í eigu Bjarkar
Guðmundsdóttur.
í Evening Standard skrifar Max Bell að fyrsta
platan sem gefin sé út af fyrirtæki Bjarkar sé með
..íslenskri kvenhetju með sinn eigin stíl.“ Hann segir
að tónlistin sé seiðandi og grípandi og skemmtilega
sérviskulegt útlit plötunnar eigi vel við tónlistina.
Næsta Bond-lag?
í Exposure skrifar Adam B að það sé „sjaldgæf ánægja
að fá að heyra plötu sem sé jafn skemmtilega öðruvísi en aðr-
ar plötur. Magga Stína blandi saman ólíkum tónlistarstíl-
brigðum og syngi með sinni barnslegu rödd áhugaverða
texta“. Hann segir að þessi samsetning minni stundum ó
Björk en þó sé platan frumleg og einstök. Honum finnst lag-
ið „Agent Bibi“ vera tilvalið sem titillag næstu James Bond-
myndarinnar og talar um að textarn-
ir séu stundum harkalegir, stundum
sorglegir og að Magga Stína bregði
fyrir sig íslenskunni á stundum. Eini
ijóðurinn á plötunni að dómi Adam er
að raddbeiting Möggu Stínu sé
stundum svolítið fjarræn. Sá ljóður
kemur þó ekki í veg fyrir að hann
gefi plötunni fjórar stjömur.
Abba og ættstórir síamskettir
Derry Journal gefur Möggu Stínu
einnig jákvæða umfjöllun en dómur-
inn hefst á því að benda á að Magga
Stína sé engin eftirmynd Bjarkar
þótt þær eigi sama föðurland og talað
er um að fyrri hljómsveit Möggu
Stínu, Reptile, hafi hitað upp fyrir
Sykurmolana fyrr á árum. „An Alb-
um“ er sögð vera persónuleg plata og
sagt að Magga Stína hljómi stundum
eins og báðar söngkonurnar í Abba
eða síamskettirnir í Hefðarköttun-
um! Nú gæti einhverjum þótt þessi
lýsing einkennileg en höfundur
dómsins telur svo ekki vera því hann
segir að Magga Stína ætti að eiga sér
stað í hjarta hvers manns sem
drottning hinnar fjölsnærðu danstón-
listar. Hann klykkir út með að smá-
skífulagið Naturally sé jafn skemmti-
lega sérkennilegt og öll lögin sem
Sykurmolarnir sendu frá sér og hægt
sé að finna sömu „innblástursgeð-
veikina" í gegnum alla plötuna og var
aðalsmerki Molanna.
Sarah skrifar í Waterfront að allir
Bjarkar-aðdáendur skuli skella sér á
n.Vju plötuna hennar Möggu Stínu
enda séu þær náskyldar í tónlistinni.
Hún segir að lög eins og „Naturally",
..Plights" og „Agent Bibi“ beri með
sér sáðkorn snillinnar, og því séu það
Hinir síungu sprellikarlar, Jack Lemmon og Walter
Matthau fara á kostum í léttri og sprenghlægilegri
gamanmynd um þá félaga Felix og Oscar sem hafa
ekki hist í þrjátíu ár en nú þurfa þeir að ferðast
saman í brúðkaup bama sinna!
Sýnd kl. 5,7,9 og 11.
vonbrigði að hlýða á „Butterfly
Love“ og „Operation" sem standi
þeim langt að baki.
Tim L. skrifar í Blue Lines að
dansþema svífi yfir vötnum plötunn-
ar og gefi henni fágað yfirbragð. Pó
séu einkennileg hljóð notuð inn á
milli eins og tölvupíp og dýrahljóð en
það gangi einhvern veginn alveg upp.
Hann segir að rödd Möggu Stinu sé
mýkri og ljúfari en rödd Bjarkar sem
gæti aflað henni breiðari aðdáenda-
hóps. Textarnir séu oft skrýtnir og
samhengislausir, en þeir virki samt
vel. „Ljóshærðar íslenskar konm- sem
hljóma likt og Björk hafa þegar unnið
hálfa orrustuna hjá mér, en Magga
Stína rekur þar lokahnykkinn með
stæl.“
Barry Witherden, lijá bandaríska
blaðinu Soundcheck, gefur Möggu
Stínu glimi-andi dóma og segir að nú
megi Björk fara að líta yfir öxl sér á
væntanlegan keppinaut. ,JVlagga
Stína á sjálfstraustið sameiginlegt
með Björk og hefur sama „úlfynju í
sauðsgæi-u“-viðhorfið.“ Barry segir að
heimur Möggu Stínu endurspegli
stundum martraðai-kenndan heim þar
sem tilfinningar og þrár ráða ríkjum.
Af ofangreindum dómum má ráða
að Magga Stína hafi unnið hug og
hjörtu erlendra tónlistarrýna. Það
verður að teljast gott þar sem greini-
lega er alltaf fyrst byrjað á að bera
íslenskt tónlistarfólk saman við frum-
kvöðulinn Björk Guðmundsdóttur,
sem er eins og hin erkitýpíska móðir
íslenskrar popptónlistar í hugum er-
lendra tónlistargagnrýnenda. Að
komast gegnum þann samanburð er
stórvirki í sjálfu sér.
Barbie
ilmvatn
Ilmur fyrir ungar stúlkur
aaraoai' v
Clear Day
Q
AIGNER
\ t'ARri/MS
IW4
Ðnnigfrá Ravensburger...
Fjöiskylduspil * púsiuspit • Þroskaspi!
Málaö eftir númerum
JÓLAGJÖF FJÖLSKYLDUNNAR
SMbC
HEIMAÍSVÉLIN
Einfalt - Auðvelt - Fljótlegt
Rjómaís - Mjólkurís - Jógúrtís
ísinn tilbúinn á 30 mín. - Fjöldi uppskrifta fylgir
AlþjóBa versSHiiarlitflagift elif.
Skipholt 5, 105 Reykjavík, Sími: 5114100
Útsölusta&ir: Heimskringlan Kringlunni, Húsasmiðjan Skútuvogi, Rafbraut Bolholti, Samkaup
Keflavlk, Árvirkinn Selfossi, Reynisstaður Vestmannaeyjum, K.A.S.K. Byggingavðrur Höfn.
Rafalda Neskaupsstað, Sveinn Guðmundsson Egilsstöðum, K.Þ. Smiðja Húsavik, KEA Bygg-
ingavörur Akureyri, KH Byggingavörur Blönduósi, Straumur Isafirði. Verslunin Vfk Ólafsvik,
Rafþj. Sigurdðrs Akranesi._