Morgunblaðið - 23.12.1998, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ákvörðun verðlags-
nefndar búvöru
Mjólkur-
lítrinn
hækkar
um 2 kr.
MJOLK og mjólkurafurðir hækka í
verði um áramótin, samkvæmt
ákvörðun verðlagsnefndar búvöru.
Smásöluverð á mjólkurlítra mun þá
hækka um 2 krónur ef að líkum læt-
ur, úr 73 í 75 kr. Skyrið hækkar
meira, eða um tæp 12%.
Hækkun á heildsöluverði mjólk-
urvara stafar fyrst og fremst af
hækkun á greiðslum afurðastöðva
til bænda um 4,24% sem kemur til
framkvæmda um áramót. Fram-
leiðslukostnaður, þar á meðal laun
bóndans, hefur þá verið framreikn-
aður frá því verð mjólkur breyttist
síðast, en það var fyrir ári.
Mjólkui-vörurnar hækka að með-
altali um 3,66%. Heildsöluverð
mjólkur hækkar minna, eða um
2,86%, smjör hækkar um 3,2%, ost-
ur um 3,6-4,6% en skyr þó mest, eða
um tæp 12%. Að sögn Guðmundar
Sigþórssonar, ritara Verðlags-
nefndarinnar, er verið að færa
heildsöluverð afurðanna nær fram-
leiðslukostnaði. Þannig hefur skyr
verið niðurgreitt á kostnað annarra
vara. Hækkun skyrverðs umfram
meðalverð leiðir til þess að verð á
mjólk hækkar minna en annars
hefði orðið.
Mjólkurlítrinn í 75 kr.
Verðlagning mjólkurvara er
frjáls í smásölu. Leiðbeinandi smá-
söluverð á mjólk í eins lítra pökkum
var 73 krónur og má búast við að
verðið hækki um áramót um 2 krón-
ur, upp í 75 krónur lítrinn.
Verðlagsnefnd búvara telur að
verðbreytingar á mjólkurvörum
leiði til 0,1% hækkunar vísitölu
neysluverðs.
---------------
Tvísýnt um
jólasnjóinn
EKKI ræðst fyrr en síðdegis á að-
fangadag hvort jólin verða hvít eða
rauð, en spáð er ágætu innkaupa-
veðri í dag.
„Þetta verður vafamál alveg fram
til klukkan sex á aðfangadag," segir
Friðjón Magnússon, eftirlitsmaður
á Veðurstofu, um jólasnjóinn. „Við
spáum því að þá verði snjókoma eða
slydda en það er brot úr gráðu sem
ræður því hvort verður ofan á.“
f dag spáir Veðurstofan því að
suðvestanlands verði léttskýjað og
norðan gola eða kaldi en hæg aust-
læg eða breytileg átt og rigning
með köflum austan til. Hiti verður
frá frostmarki og upp í fimm stig. Á
aðfangadag er spáð vaxandi suð-
austanátt og annaðhvort snjó eða
slyddu, fyrst suðvestanlands. Á
jóladag og annan í jólum má búast
við éljum víða um land og fremur
hægum austlægum áttum.
Sjötíu ára
hjúskap-
arafmæli
Landssíminn með tillögur að innanhússsamningi
Launahækkun geg'n
fækkun kaffitíma
í DAG eru liðin sjötíu ár frá því
hjónin Steinunn Ágústsdóttir og
Björn Björnsson frá Bjarkarlundi
á Hofsósi gengu í hjónaband.
Hjónin bjuggu á Hofsósi lengst-
um en eru nú á Dvalarheimili
aldraðra á Sauðárkróki og er
Steinunn þar rúmföst. Björn er
vel rólfær og bæði fylgjast þau
vel með daglegum fréttum. Stein-
unn er komin fast að níræðu en
Björn er á 93. aldursári. Steinunn
er eini núlifandi íslendingurinn
sem fædd er í hinum forna versl-
unarstað Grafarósi, skammt inn-
an við Hofsós. Björn, sem er
Svarfdælingur, var meðal annars
verksljóri í frystihúsi á Hofsósi
og vann við eitt og annað tengt
sjósjókn og sjávarútvegi. Afkom-
endurnir eru um eitt hundrað.
STJÓRN Landssímans mun gera
starfsfólki fyi-irtækisins tilboð ein-
hvern næstu daga um að koma á
ákveðinni hagræðingu í rekstri
gegn hækkun launa. Jafnframt
verður hugað að lífeyrisréttindum
ákveðinna hópa starfsfólksins.
„Við viljum koma til móts við ósk-
ir starfsfólks okkar um launahækk-
anir og jafnframt auka hagræði í
rekstri, teljum að hagsmunir okkar
fari saman í því efni,“ sagði Guð-
mundur Bjömsson, forstjóri Lands-
símans í gær. í tilboði sem stjórn
fyrirtækisins hyggst leggja fyrir
starfsfólk í dag og næstu daga er
gert ráð fyrir hagræðingu í rekstri,
aðallega með því að fella niður kaffi-
tíma að morgni til. Guðmundur seg-
ist ekki geta farið út í tilboðið í ein-
stökum atriðum vegna þess að það
hafi ekki verið kynnt fyrir starfs-
fólki. Hann staðfestir þó að á móti
hagræðingunni komi ákveðin hækk-
un launa, um 2% til allra og hugsan-
lega örlítið meira til hópa sem
meira leggja af mörkum.
Frágangur lífeyrisréttinda
Guðmundur segir að jafnframt
verði reynt að ná samkomulagi um
frágang lífeyrisréttinda við það
starfsfólk sem sé óánægt með rétt-
indi sín eftir að Pósti og síma var
breytt í hlutafélag árið 1996. Tekur
forstjórinn fram að stjórnendur fé-
lagsins telji að skilið hafí verið við
þau mál á réttan hátt en vilji eigi að
síður freista þess að setja niður
óánægjuna.
Hugmyndin er að gera innan-
hússsamning við starfsfólk Lands-
símans á grundvelli umrædds til-
boðs og að hann verði borinn undir
atkvæði í mismunandi starfsgreina-
hópum. Lögð er mikil áhersla á að
gengið verði frá málinu fyrir ára-
mót.
Morgunblaðið/Björn
Daginn tekið að lengja á ný eftir vetrarsólstöður
Lengist um eina til tvær
mínútur á dag í fyrstu
VETRARSÓLSTÖÐUR voru í
gær og tekur þá daginn að lengja
þótt í smáum skömmtum sé. Þá
byrjar mörsugur í dag, á Þor-
láksmessu, og í dag eru einnig
haustvertíðarlok, en allt kemur
þetta fram í Almanaki Háskóla
Islands.
Sól rís klukkan 11:22 í dag og á
morgun og það er ekki fyrr en 29.
desember að hún rís einni mínútu
fyrr og á gamlársdag rís hún
klukkan 11:20. Sólin sest hins
vegar einni mínútu síðar hvern
dag næstu daga eða 15:31 í dag,
15:32 á morgun og 15:33 og undir
lok mánaðarins tekur hún
tveggja mínútna stökk milli daga.
Myrkur telst ekki skollið á fyrr
en laust fyrir klukkan 17, þ.e.
16:50 í dag og á morgun og ekki
fyrr en 16:58 á gamlársdag.
Sé litið heldur lengra fram í
tímann eða til þorrans eftir tæp-
an mánuð er sólarupprás orðin
næm klukkustund fyrr og myrk-
ur skellur þá á klukkan 17:45.
Úrskurðarnefnd um
dómarastöður
Tveir viku
sæti vegna
vanhæfni
TVEIR af þremur fulltrúum í nefnd
sem úrskurðar um hæfni umsækj-
enda um dómarastöður hafa tíma-
bundið vikið úr henni vegna tengsla
við umsækjendur um stöðu dómara
við Héraðsdóm Reykjavíkur.
Að sögn Hrafns Bragasonar
hæstaréttardómara, sem er formað-
ur nefndarinnar, vék Sigríður Ingv-
arsdóttir héraðsdómari, fulltrúi
Dómarafélagsins í nefndinni, úr
sæti samkvæmt ákvörðun sam-
nefndarmanna sinna vegna kvört-
unar sem borist hafði frá einum um-
sækjendanna. Taldi hann að í bréfi
sem Sigríður skrifaði í fyrra til þá-
verandi úrskurðarnefndar vegna
veitingar annarrar dómarastöðu,
hefði komið fram stuðningur við
ákveðinn umsækjanda sem nú sækti
um stöðu héraðsdómara.
Þórunn Guðmundsdóttir hæsta-
réttarlögmaður, fulltrúi Lögmanna-
félagsins, vék úr sæti í nefndinni að
eigin ósk vegna þess að hún er ná-
kunnug einum umsækjenda um
héraðsdómarastöðuna. Ingibjörg
Benediktsdóttir héraðsdómari tók
sæti Sigi’íðar í nefndinni en Ólafur
Gústafsson hæstaréttarlögmaður
kom í stað Þórunnar.
--------------
Tveir alvar-
lega slasaðir
TVEIR sjúklingar liggja enn alvar-
lega slasaðir á gjörgæsludeild
Borgarspítalans eftir hinn harða
árekstur sem varð milli tveggja bif-
reiða á Reykjanesbraut seint á
mánudagskvöld.
Fimm manns voru fluttir á
sjúkrahús vegna slyssins, þar á
meðal tvö börn sem eru nú útskrif-
uð af barnadeild.
jH ov(ttmlv(níiií)
úrVERINU
" ■ f ■■■:• ■• • '■ ■’•••• ' •................'
ÚR VERINU fjallar m.a. um skipasmíðar í Chile, þróunl
varútvegs í kanadíska ríkinu Nova Scotia og fiskeldi í *
rópu. Jafnframt er sagt frá aflabrögðum og staðsetn- •
r fiskiskipanna sýnd að venju. I
Jólateikningar,
sögur og föndur ’
• Hver verður kosinn
l íþróttamaður ársins?/B4
• Zinedine Zidane knattspyrnu-
! maður Evrópu/B1
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is