Morgunblaðið - 23.12.1998, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998 21
Samrunaáætlun Jökuls hf. og SR-mjöls hf.
Hluthafar Jökuls ein-
huga um samrunann
Á HLUTHAFAFUNDI Jökuls hf., sem haldinn var fyrr í vikunni, var sam-
þykkt fyrirliggjandi samrunaáætlun SR-mjöls hf. og Jökuls hf. samkvæmt
tillögu stjórnar Jökuls hf. Samkvæmt tilkynningu frá SR-mjöli verður sam-
runi félaganna ræddur á hluthafafundi félagsins sem haldinn verður 30.
desember nk. kl. 14 í fundarsal á efstu hæð í Húsi verslunarinnar, Kiingl-
unni 7 í Reykjavík.
Alþjóðleg könnun á verðbréfaeign þjóða
Yfir 30 millj-
arðar í vörslu
innlendra aðila
MARKAÐSVIRÐI erlendra verð-
bréfa í umsjá innlendra fjárvörslu-
aðila, banka og verðbréfafyrir-
tækja nam 17 milljörðum króna í
árslok 1997. Þetta kemur fram í al-
þjóðlegri könnun á verðbréfaeign
þjóða sem sérfræðinganefnd Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins á sviði
greiðslujafnaðartölfræði gekkst
fyrir í þeim tilgangi að bæta upp-
lýsingar um verðbréfafjárfestingu
milli landa. Hún fór fram miðað við
stöðu í lok árs 1997 og var áherslan
lögð á markaðsvirði hluta- og
skuldabréfa og landaflokkun þeirra
eftir lögheimili útgefenda.
Landaskipting upplýsir um
verðbréfaskuld hvers lands
í mánaðarlegum hagtölum
Seðlabankans fyrir desember kem-
ur fram að bankastjórnin ákvað að
Island tæki þátt í könnuninni þar
sem landaskipting verðbréfaeignar
gefur upplýsingar um verðbréfa-
skuld hvers lands. Könnunin stað-
festir að umtalsverð viðskipti hafa
verið við verðbréfasjóði í Lúxem-
borg, en um 31% af erlendri verð-
bréfaeign Islendinga hefur verið
gefin út af lögaðilum þar í landi.
Annars var verðbréfaeign að
mestu bundin við stórveldin þrjú,
Bandaríkin, Bretland og Þýska-
land, eða rúmlega helmingur.
I könnuninni voru fagfjárfestar,
s.s. lífeyrissjóðir og tryggingarfé-
lög, beðnir um upplýsingar um er-
lenda verðbréfaeign sína sem ekki
Erlend
verðbréfa-
viðskipti
ísiendinga
1991-1998
milljarðar kr.
Skuldabréf
Hlutabréf—
E3 E3
'91 ’92 ’93 ’94 ’95
*janúar-október1998
var í fjárvörslu á íslandi. Þetta var
gert til að koma í veg fyrir tvítaln-
ingu og leiddi könnunin í ljós að um
10 milljarðar króna af 27 ma.kr. er-
lendri verðbréfaeign þeirra var í
fjárvörslu innlendra aðila í árslok
1997.
Erlend verðbréfaeign fjárvörslu-
aðila og verðbréfasjóða í þeirra
umsjá var um 4 ma.kr. samkvæmt
efnahag þeirra í árslok 1997, að því
er fram kemur í Hagtölum mánað-
arins. I heild var erlend verðbréfa-
eign fjármálastofnana 31,4 ma.kr.,
en annarra innlendra aðila (fyrir-
tækja og heimila) sem könnunin
náði til 2,4 ma.kr. í árslok 1997.
LANDSBANKI íslands og
Sumitomo Bank Ltd. undirrituðu í
gær lánasamning upp á 100 milljóna
bandaríkjadala fjölmyntalán sem
svarar til um 7 milljarða króna.
Draga má á lánið í fjórum myntum
auk myntkörfunnar ECU. Um ára-
mót kemur evran í stað ECU og
verður þá unnt að draga á lánið í
fimm myntum. Sumitomo bankinn
er í samstarfl við fímm evrópska
banka um lánveitinguna. Lánið er
til 5 ára og ber LIBOR vexti með 17
punkta álagi (0,17%).
Hagstæð lánskjör
í fréttatilkynningu frá Lands-
bankanum kemur fram að lánskjör-
in séu hagstæð og að þau teljist sér-
staklega góð í ljósi breyttra að-
stæðna á alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum undanfarna mánuði.
Lánskjörin endurspegla sterka
stöðu Landsbankans á alþjóðlegum
mörkuðum sem byggja m.a. á
traustum alþjóðlegum viðskipta-
í tilkynningunni frá félaginu segir
að verði samruninn samþykktur á
fundinum felist jafnframt í honum
samþykki við hækkun á hlutafé SR-
mjöls hf. úr 947 milljónum króna í
kr. 1.229.870.130.
Hækkuninni verður, samkvæmt
tilkynningunni, varið til greiðslu á
öllum hlutum hluthafa í Jökli hf.
Kvótadómur hefur ekki áhrif
Jóhann M. Olafsson, fram-
kvæmdastjóri Jökuls hf., segh’ að-
spurður að svokallaður kvótadómur
Hæstaréttai’ hafi ekki haft áhrif á
samrunaferlið. Einhugur var um
samrunann meðal hluthafa Jökuls,
að sögn Jóhanns, og samþykktu
99,7% þeirra 80% hluthafa félagsins
sem mættu á fundinn, áætlunina.
„Þótt þessi dómur hafí komið ein-
hverjum óróa af stað í þjóðfélaginu
sé ég ekki að hann eigi að hafa ein-
hver áhrif á samrunann, enda fjallar
dómurinn einkum um úreldingarmál
frekar en kvótamálið sem slíkt,“
sagði Jóhann í samtali við Morgun-
blaðið.
Ef af samruna verður verða hlut-
hafar hins sameinaða félags 1.150
talsins. Velta SR-mjöls hf. á síðasta
ári nam ríflega 5,2 milljörðum króna
en velta Jökuls hf. nam um 958 millj-
ónum króna.
Sameinað fyi’h’tæki stefnir að auk-
inni þátttöku í útgerð en eftir sam-
runann hefur félagið yfir að ráða
7.728 þorskígildistonna kvóta, auk
veiðiréttinda í norsk-íslenska síldar-
stofninum.
Mannabreyting-
ar hjá Lands-
bankanum
• STEFÁN H. Stefánsson, fyrrver-
andi forstöðumaður fjármálasviðs í
deild alþjóða- og fjármálasviðs
Landsbanka Is-
lands hf. hefur
tekið við stöðu for-
stöðumanns mark-
aðsviðskipta hjá
bankanum. Jón
Helgi Egilsson
sem áður gegndi
þessari stöðu hef-
ur látið af störfum
að eigin ósk.
Stefán er fyrrverandi starfsmaður
Landsbréfa. Hann starfaði sem
stundakennari við viðskiptaskor Há-
skóla íslands frá 1994 til 1995 er
hann hóf störf hjá Landsbréfum.
Hann er cand. oecon frá Háskóla Is-
lands af viðskiptaskor, fjármálasviði.
Einnig hefui’ Stefán M.Sc. gráðu frá
háskólanum í Reading í Englandi.
• Jóhann Þór Einarsson hefur tek-
ið við hlutverki Gísla Heimissonar
sem látið hefur af störfum að eigin
ósk. Gísli hefur
verið annar for-
stöðumanna upp-
lýsingavinnslu
bankans. Jóhann
er með 1. hluta-
próf í rekstar-
tæknifræði frá TÍ
1984, og M.Sc.-
próf í iðnverkfræði
frá Álborg Uni-
versitetscenter 1989. Hann hefur
staifað sem verkfræðingur hjá
Logimatic og hjá B&W Skibsværft
og síðan 1990 hjá Einari J. Skúla-
syni. Jóhann er ráðinn tímabundið í
verkefnin hjá Landsbankanum með
fullum stuðningi EJS.
Frigg hf. í samstarf við
bandarískt fyrirtæki
Samningur
um fram-
leiðslu á
hreinsiefnum
til Evrópu
FRIGG hf. hefur gert fímm ára
samstarfssamning við bandaríska
fyrirtækið Bullen um framleiðslu á
hreinsiefnum fyrir Evrópumarkað.
Öll framleiðsla fer fram í verk-
smiðju Friggjar í Lyngási og er
gert ráð fyrir að útflutningur á vör-
unni, sem fer á markað undir nafn-
inu Arctic Air, hefjist í febrúar á
næsta ári. Um er að ræða fram-
leiðslu á lyktareyðandi efnum sem
eru notuð í staðinn fyi’ir klór.
Bandaríska fyrirtækið sér um allt
sölu- og markaðsstarf en hugmynd-
ir eru um að nýta nafnið til frekari
markaðssetningar á vörum frá Bul-
len í Evrópu.
Afgreiðslutími
styttist
Lúther Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Friggjar, segir að
bandaríska fyrirtækið sjái marga
kosti við að láta framleiða vöruna á
Islandi fyrir Evrópumarkað. „Af-
greiðslutími vörunnar styttist tals-
vert miðað við ef varan væri flutt
frá Bandaríkjunum. Þá getur fyrir-
tækið komist hjá tollaálögum í álf-
unni.“
Lúther segir að samningurinn
verði án efa lyftistöng fyrir starf-
semi Friggjar, gefi möguleika á
aukinni framleiðni, auknu vöruúr-
vali og fjölgun starfsfólks er fram
líða stundir. Hjá Frigg starfa nú 21
starfsmaður.
. ’w * " •* ,
Landsbankinn tekur 7
milljarða fjölmyntalán
fjárstöðu og batnandi rekstraraf-
komu á þessu ári.
„Lántaka þessi hefur vakið at-
hygli á alþjóðlegum mörkuðum og
var nýlega fjallað um lántökuna og
lánskjörin í International Finance
Review. Mat fjármálatímaritsins
var að þetta væru sérstaklega hag-
stæð kjör fyrir bankann og þau
bestu sem íslensk lánastofnun hefði
samið um til þessa þegar tekið væri
tillit til eillðra markaðs aðstæðna á
þessu hausti.
Ofangreind lántaka Landsbank-
ans er m.a. ætluð til að fjármagna
ört vaxandi umsvif bankans í lán-
veitingum í erlendri mynt til inn-
lendra atvinnuíyrirtækja,“ segir í
fréttatilkynningunni frá bankanum.
Halldór J. Kristjánsson banka-
stjóri og Gunnar Þ. Andersen,
framkvæmdastjóri alþjóða- og fjár-
málasviðs, undirrituðu samninginn
af hálfu Landsbankans og Hideo
Yamashita, bankastjóri Sumitomo
Bank í London, af hálfu Sumitomo
- t
17
yr iimriiir
v “T
er.
JMIll
Á Þorláksmessu í hádeginu skellum við skötu á jólahlaðborðið
okkar og mætum þannig óskum og gömlum hefðum. Verð 2.950 kr.
Vegna feikna vinsælda
og þar sem færri komust að en vildu, höfum við ákveðið að
bjóða jólahlaðborðið okkar áfram til og með 30. desember.
W Lokað 24. 25. og 26. desember
>r Gamlárskvöld upppantað
w Nýárskvöld upppantað
V 2. janúar 1999 upppantað
C9skum landsmönnum öllum
gleðilegrar hátíðar
Starfsfólk Perlunnar.
P? itLAK
ifte/u/u/'t