Morgunblaðið - 23.12.1998, Síða 23

Morgunblaðið - 23.12.1998, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998 23 ERLENT Hnattflugmenn í kröggum yfir Kína London. Reuters. LOFTBELGURINN „Global Challenger", með Bretanum Ric- hard Branson, Bandaríkjamann- inum Steve Fossett og sænska flugmanninum Per Lindstrand innanborðs, sést hér á flugi yfir Himalayafjöllum. Kínversk stjórnvöld féllust í gær á að heimila að þeir héldu áfram för í gegn um kínverka lofthelgi, og afturkölluðu með því fyrri skipun um að belgnum skyldi tafarlaust lent, sem hefði bundið enda á þessa nýjustu tilraun tii að fljúga viðstöðulaust í loftbelg umhverfis jörðina. Fimm dögum eftir flugtak í Marokkó var belgurinn í gær á hægu flugi yfir Ilimalaya-fjöll- um. Þegar komið var myrkur og belgurinn staddur yfir Tíbet kröfðust stjórnvöld í Peking þess að honum yrði lent. Lendingartil- raun í myrkri í fjöllunum hefði verið lífshættuleg. Um miðjan dag að íslenzkum tíma tilkynnti síðan brezka utan- ríkisráðuneytið að kínversk yfir- vöfd hefðu fallizt á að verða við eindregnum beiðnum frá brezk- um og bandarískum sfjórnvöld- um um að belgfararnir fengju heimild til að halda áfram. Mike Kendrick, sem stýrir að- gerðum í sfjórnstöð loftbelgsleið- angursins, fagnaði ákvörðuninni mjög, en heill sólarhringur hafði farið í að leita samninga við ráðamenn í Peking. Branson og Fossett flugu inn í kínverka lofthelgi skömmu fyrir miðnætti á mánudagskvöld að ís- lenzkum tima, lítið eitt norðan þeirrar flugleiðar sem áður hafði verið samið um við Kínveija. Belgurinn hafði orðið að víkja af áður áætlaðri flugleið vegna sprengjuárásanna á Irak. Þegar Kínveijar kröfðust þess að belgurinn Ienti sögðust þeir fyrst og fremst hafa áhyggjur af almennu flugöryggi í Mið- og Austur-Kína, þar sem er jafnan mikil flugumferð. Sem fyrst út úr lofthelgi Belgurinn var í gær í um 10 km flughæð og mjakaðist áfram á um 80 km hraða, en virtist síð- an vera að ná upp hraða í há- Ioftavindi. Kendrick sagði ómögulegt að segja hve langan tíma það tæki að fljúga yfir Kína, en Kínverjar kröfðust þess að belgurinn væri kominn út úr loft- helgi sem allra fyrst. Fossett og Branson eiga nokkrar misheppnaðar tilraunir til hnattflugs í loftbelg. Þeir snem bökum saman í haust, eftir að Fossett komst naumlega lífs af úr síðustu mettilraun sinni. Frakkar reyna að hasla sér völl í framhaldi af árásum á írak Vilja nákvæmar upp- lýsingar um árangur París. Reuters. FRÖNSK stjórnvöld fóru í gær fram á það við Bandaríkjamenn og Breta að þeir greindu nákvæmlega frá árangri árásanna á Irak svo Sa- meinuðu þjóðirnar (SÞ) geti lagt fram nýjar tillögur um eftirlit með vopnaframleiðslu íraka. Sagði tals- maður franska utanríkisráðuneytis- ins að útilokað væri að leyfa Irök- um að byggja á ný upp vopnabúr og ógna þannig nágrannaríkjum sínum og því væri nauðsynlegt að fá að vita nákvæmlega hversu mörg af flugskeytum Breta og Bandaríkja- manna hefðu hitt í mark, og hvar, því á grundvelli þeirra upplýsinga mætti útbúa nýjar áætlanir um vopnaeftirlit í Irak. Höfðu Hubert Vedrine, utanrík- isráðherra Frakka, og Alain Ric- hard varnannálaráðherra í fyrra- dag kynnt hugmyndh- sínar um breytt fyrh'komulag eftirlits með vopnaframleiðslu Iraka. Greindi franska dagblaðið Liber- ation frá því í gær að myndir sem franskar eftirlitsflugvélar höfðu tekið í írak hefðu verið notaðai- til að miða út hernaðarlega mikilvæg skotmörk í árásum Breta og Bandaríkjamanna. Afhenti franski Reuters Kínverskir andófsmenn hljóta þunga fangelsisdóma Kínversk stjórnvöld harðlega gagnrýnd Peking. Reuters. KÍNVERSK stjórnvöld vísuðu í gær á bug harðri gagnrýni Bandaríkj- anna og ýmissa Evrópuríkja á úr- skurð kínverskra dómstóla, sem dæmdu á mánudag tvo kínverska andófsmenn til fangelsisvistar fyrir niðurrifsstarfsemi. Einn andófsmað- ur til viðbótar hlaut fangelsisdóm í gær, en mennirnh- eru allir meðal stofnenda hins ólöglega Kínverska lýðræðisflokks. Þekktastur andófsmannanna er Xu Wenli, en dómstóll í Peking dæmdi hann á mánudag í 13 ára fangelsi fyrir að skipuleggja með leynd deildir Kínverska lýðræðis- flokksins í Peking og Tianjin. Var honum auk þess gefið að sök að þiggja fjárhagsaðstoð frá „fjand- samlegum erlendum aðilum", í því skyni að grafa undan stjórnvöldum, að því er opinbera fréttastofan Xin- hua greindi frá. Eiginkona Xus sagði fréttamönn- um að hann hafnaði réttarhöldunum sem „pólitískum ofsóknum" og hefði neitað að svara spurningum dómar- anna. Hún sagði að hann myndi ekki áfrýja úrskurðinum, enda myndi það jafngilda þvi að hann játaði sig sek- an. A mánudag var einnig kveðinn upp ellefu ára fangelsisdómur yfir andófsmanninum Wang Youcai í borginni Hangzhou og þriðji með- limur Kínverska lýðræðisflokksins, Qin Yongmin, var í gær dæmdur í tólf ára fangelsi í borginni Wuhan. „SýndaiTéttarhöld“ Þremenningarnir voru handteknir fyrir nokkrum vikum, eftir að hafa reynt að skrá Kínverska lýðræðis- flokkinn formlega sem stjórnmála- flokk. Þeir hafa allir setið áður í fangelsi fyrir skoðanir sínar. Fangelsisdómamir þykja benda ótvirætt til þess að kommúnista- flugherinn bandaríska flughernum þessai’ upplýsingar allt þar til Frakkar hættu þátttöku í eftirliti í Irak í síðustu viku þegar Richard Butler, yfirmaður vopnaeftirlits- nefndarinnar (UNSCOM), lagði fram skýrslu sína þar sem sagði að Irakar hefðu ekki sýnt sam- starfsvilja við UNSCOM, en á grundvelli þeirrar skýrslu hófu Bandaríkjamenn og Bretar árásirn- ar á Irak. Þykja upplýsingar Liber- ation nokkuð kaldhæðnislegar því Frakkar voru allt annað en sátth- við einhliða aðgerðir Breta og Bandaríkjamanna í Irak. Bandaríkjamenn sagðir hafa niðurlægt Kofi Annan Fyrr í gær hafði Paul Quiles, fyrrverandi varnarmálaráðherra Frakklands, sakað stjórnvöld í Washington um að niðurlægja Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sa- meinuðu þjóðanna, með því að gangast upp í rullu „alheimslög- reglu“ og hefja árásir á Irak án þess að hafa fyrst tryggt sér sam- þykki SÞ. í grein sem Quiles ritaði í Liber- ation sagðist hann telja að Banda- ríkjamenn vildu draga úr mætti SÞ og beita Atlantshafsbandalaginu (NATO) í ríkari mæli við hernaðar- aðgerðir í fjarlægum löndum. Hélt Quiles því fram að trúverðugleiki Annans og öryggisráðs SÞ hefði beðið mikinn skaða. „Og maður hlýtur að velta því fyrir sér hvort það hafi ekki einmitt verið eitt af óbeinum markmiðum með árásun- um á Irak.“ Frönsk stjórnvöld hafa hingað til ekki gengið svo langt að gagnrýna Breta og Bandaríkjamenn með beinum hætti fyrir árásirnar, þótt þau létu óánægju sína í ljós. Með grein Quiles í gær lýsh’ frammá- maður í frönskum stjórnmálum því í fyrsta sinn opinberlega áhyggjum Frakka. Gagnrýndi Quiles einnig Breta fyrir að fylkja liði með Bandaríkja- mönnum í þessum aðgerðum og sagði að afstaða Breta sýndi með skýrum hætti að forsætisráðherr- anum Tony Blair hefði ekki verið fyllilega alvara þegar hann lýsti því nýlega yfir að Evrópuríkin yi’ðu að huga frekar að samvinnu Evrópu- ríkjanna í varnarmálum. stjórnin í Kína hafi ekki linað tökin og muni áfram brjóta alla andstöðu á bak aftur. Bandaríkjamenn, Bretar, Frakkar og Þjóðverjar hafa fordæmt dómana harðlega og Maiy Robinson, framkvæmdastjóri mannréttinda- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, hef- ur látið í ljós áhyggjur vegna réttar- haldanna yfii’ andófsmönnunum við sendiherra Kína hjá SÞ. I yfirlýsingu mannréttindasam- takanna Human Rights Watch segir að réttarhöldin yfir Xu, sem stóðu einungis í þrjár klukkustundir, hafi ekki verið annað en sýndarréttar- höld, og ljóst sé að undirritun Kín- verja á mannréttindasáttmálum sé einskis virði. Talsmaður kínverska utanríkis- ráðuneytisins, Zhu Bangzao, sagði í gær að réttarhöldin yfir Xu Wenli væru innanríkismál, og að kínversk stjórnvöld vísuðu gagmýni erlendra ríkja á bug. Árásir þjappa aröbum saman Stjórnvöld í Sýrlandi fordæmdu í gær --------------^ .... , loftárásirnar á Irak og sögðu að þær hefðu ógnað öryggi íbúa arabalanda. Jóhanna Kristjónsdóttir, sem býr í Damaskus í Sýrlandi, segir að þótt litlir kærleikar séu með sýrlenskum og íröskum stjórnvöldum sé líklegt að árásirnar sameini araba. Á LAUGARDAG urðu þau fá- heyrðu tíðindi hér í Sýrlandi að mótmælagöngur fóru fram út um alla borg. Nemendur í framhalds- skólum hófu þær og síðan bætt- ust fleiri við með hverri klukku- stundinni. Allt fór þetta að vísu friðsamlega fram en fólk bar mót- mælaspjöld og myndir af íröskum börnum og hrópaði slagorð gegn árásunum á Irak. Enginn sem ég hef rætt við minnist þess að mótmælagöngur og fjöldafundir hafi verið hér í landi. Það er þó ekki rétt að túlka þetta sem stuðning við Saddam Hussein Iraksforseta, heldur blöskrar fólki þessar skyndilegu árásir og þær komu einnig á afar viðkvæmum tíma fyrir múslima, eða rétt um það bil sem ramadan var að ganga í garð. Margir staðhæfa að Bill Clint- on Bandaríkjaforseti hafi gripið til þessa ráðs til að leiða athyglina frá umræðum í bandaríska þing- inu um kynlífsmál hans og fleira. Fáir hafa trú á því að tilgangur- inn hafi verið sá að koma Saddam frá völdum og eitthvað virðast bandarískar sprengjur hafa hitt fleira en hernaðarlega mikilvæga staði í Irak þvi verulegt mannfall virðist hafa orðið og sýrlenska sjónvarpið sýndi um helgina myndir af fjöldanum af særðu fólki og látnu og einhverjar sprengjur eru sagðar hafa fallið á sjúkrahús. Afleiðingar þessara aðgerða nú munu væntanlega verða þær ein- ar að þjappa arabaþjóðum enn þéttar saman og gegn Banda- ríkjamönnum og varla hefur það verið tilgangur þeirra. Hvort þetta hefur áhrif á friðarmál í þessum heimshluta er mér ekki ljóst en hygg þó að það muni ekki skýrast fyrr en eftir nokkurn tíma. Svo fi-emi allar arabaþjóðh’ sameinist - náttúrulega að Kú- veitum og Sádí-Aröbum undan- skildum - er ekki vafi á að Banda- ríkjamenn munu eiga erfiðara uppdráttar í þessum heimshluta fyrir vikið. Strax og fréttir bánist um árásirnar var öryggisvarsla efld stórlega hér í Damaskus og var þó mikil fyrir. Þegar Ijóst var að Bandaríkjamenn og Bretar héldu árásunum áfram og mannfall hafði orðið meðal hrjáðra íraskra borgara urðu menn bálreiðir og leitað var samþykkis að fá að efna til þeirra einstæðu fjöldafunda sem fóru fram um helgina. Var öllum götum sem liggja að banda- ríska sendiráðinu lokað hér í borg en þó kom fjöldi fólks saman þar til að lýsa mótmælum sínum. „Klám út í loftið" „Þetta er klám út í loftið og Clinton og Tony Blair, forsætis- ráðherra Bretlands, eiga efth- að súpa seyðið af þessu.“ Það virðist mér í flestum orðum túlka hug manna hér í Damaskus, en eins og alkunna er hafa ekki verið neinir dáleikar með forsvars- mönnum í Irak og Sýrlandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.