Morgunblaðið - 23.12.1998, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998 27
LISTIR
Greinasafn til minningar um
Eyjólf Konráð Jónsson
Minnisstæður
baráttumaður
ÚT ER komin bókin Hugmyndir -
Greinasafn til minningar um Eyjólf
Konráð Jónsson, ritstjóra og alþing-
ismann. I bókinni eru greinar ef'tir
22 einstaklinga sem allir eru fæddir
á sjöunda og áttunda
áratugnum eða um það
leyti sem bók Eyjólfs
Konráðs, Eykons, Al-
þýða og athafnalíf, kom
út.
Ritstjóri bókarinnar,
Þór Sigfússon hagfræð-
ingur, segir ástæðu
þess að ráðist var í út-
gáfu greinasafnsins þá
að Eykon hafi verið
mjög minnisstæður
baráttumaður. „Hann
var einn af þessum hug-
myndafræðingum sem
lögðu margt til sem
fékk misjafnar viðtökur
á sínum tíma, en nú er
tíminn aftur á móti að
leiða í ljós að margar af
þessum hugmyndum
áttu rétt á sér og eiga
enn,“ segir Þór. Hann
kveðst með þessari bók
hafa viljað feta nýja leið
í formi á minningarriti.
„I stað þess að fjalla um
Eykon og persónu hans
tökum við upp hug-
myndir sem hann hefur
sett fram og þróum þær
áfram. Breytingarnar
sem hafa orðið á þess-
um tíma eru gríðarleg-
ar en þeim er ekki lok-
ið. Ætlunin er að halda
áfram að velta upp hug-
myndum sem kunna að
þykja róttækar núna,
en munu án efa eftir nokkur ár þykja
jafnsjálfsagðar og margar þeirra
hugmynda sem Eykon vann með og
þykja orðið sjálfsagðar í dag,“ segir
Þór ennfremur.
Hugmyndir um sölu
ríkisfyrirtækj a
Þrjátíu ár eru liðin frá því að Al-
þýða og athafnalíf kom út. „I bók
sinni ræddi Eykon m.a. hugmyndii-
um opin hlutafélög í eigu almennings,
sölu ríkisfyrirtækja, verðbréfamai’k-
að, áhættufjármagn í atvinnurekstri,
fjárfestingarfélög og erlenda fjái-fest>
ingu í atvinnulífinu. Á þessum tíma,
og reyndar fram á síðustu ár, þóttu
margai’ þessai’a hugmynda framandi.
Nú þegar aldahvörf nálgast ríkir hins
vegar vaxandi skilningur á því hversu
mikilvægt er að búa atvinnulífinu það
umhverfi sem Eykon lagði áherslu á í
skrifum sínum. Þá kemur sífellt betur
fram hversu framsýn barátta Eykons
í málefnum norðurslóða vai’,“ segii’
m.a. í kynningu.
Höfundar greina í bókinni eru:
Andri Teitsson, framkvæmdastjóri
Þróunarfélags íslands, Andri Þór
Guðmundsson, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Lýsis hf., Ari Edwald,
aðstoðarmaður sjávar-
útvegsráðherra, Arnar
Þórisson, framkvæmda-
stjóri Kih’oy travels í
Danmörku, Auður Guð-
mundsdóttir, kynning-
arfulltrúi hjá Eimskip,
Ágúst Þór Ingason, sér-
fræðingur hjá Búnaðar-
bankanum Verðbréf,
Ásgeir Þórðarson, ráð-
gjafi hjá McKinsey &
Co. í Danmörku, Bene-
dikt Amason, deildar-
stjóri í iðnaðar- og við-
skiptaráðuneytinu, Ey-
þór Arnalds, fram-
kvæmdastjóri þróunar-
sviðs OZ hf., Guðrún
Högnadóttir ráðgjafi
hjá VSÓ rekstrarráð-
gjöf, dr. Gylfi Magnús-
son, sérfræðingur hjá
Hagfræðistofnun Há-
skóla íslands, Hanna
Birna Kristjánsdóttir,
framkvæmdastj óri
þingflokks sjálfstæðis-
manna, Hannes Smára-
son, framkvæmdastjóri
fjármála- og þróunar-
sviðs Islenskrar erfða-
greiningar hf., Hugi
Ölafsson, deildarstjóri í
umhverfisráðuneytinu,
Orri Hauksson, aðstoð-
armaður forsætisráð-
herra, Ólafur Þ. Steph-
ensen, forstöðumaður
upplýsinga- og kynn-
ingarsviðs Landssíma Islands hf.,
Ragnheiður Elín Árnadóttir, aðstoð-
armaður fjármálaráðherra, Skarp-
héðinn Berg Steinarsson, settur
ski’ifstofustjóri í forsætisráðuneyt-
inu, Svanbjörn Thoroddsen, fram-
kvæmdastjóri Markaðsviðskipta hjá
Fj árfestingarbanka atvinnulífsins,
Svafa Grönfeldt, lektor við við-
skipta- og hagfræðideild Háskóla Is-
lands, Sverrir Sveinn Sigurðai’son
viðskiptafræðingur og Þórir Kjart-
ansson, framkvæmdastjóri Þórs-
brunns hf.
Davíð Oddsson, forsætisráðherra
og formaður útgáfuráðs bókarinnai’,
ritar ávarp. Aðrir í útgáfuráði eru
Baldvin Tryggvason fynverandi
sparisjóðsstjóri og Hörður Einars-
son hæstaréttarlögmaðui’.
Bókin er 240 blaðsíður að stærð.
Matthildur Sigurgeirsdóttir sá um
umbrot og hönnun og Oddi sá um
prentun. Ritstjóri bókarinnai’ er Þór
Sigfússon. Fjölsýn forlag gefur út en
ísbók ehf. dreifir.
Eyjólfur
Konráð Jónsson
Þdr Sigfússon
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
Spilað í Grindavík
Grindavík. Morgunblaðið.
FJÖLMENNI kom á tónleika sem
ungir tdnlistarmenn héldu í
Kvennd, eins og heimamenn
segja, og að tdnleikum loknum
var kaffisamsæti á efri hæðinni.
Á myndinni eru efnilegir
trompetleikarar, Anna Þdrunn
og Alma Rut.
pwwiaHmHnOT
I
GANGAíGAMÐ
Jólasveinn í heimsókn
á hverjum degi frá
12. desemher!
SFIÖLSKYLDU-OC
HUSDÝRACARDURINN
■MHnHE
itl
8
I
m
íi
AKAl
Útvarp
Geislaspilari
Segulband
Fjarstýring
FERÐASTÆÐA
gEÍslandi®&
AKAI
qóé kaup!
REYKJAVlK: Neimskringlan. Kringlunni.VESIURLAl: Hljámsýn. Akranesi. Kauplélag Bnrglirðinga. Borgarnesi. Blómstun/ellir, Hellissandi. Guflni Hallgrimsson. Grundarfiröi.VESTflRBIR: Ralhúð Jðnasar flórs. Patreksfiröi. Pðllinn, Isatirði.
NORÐURLAND: Kf Stelngrímsfiarðar, Hðlmavlk. KFV-Húnvetninga. Hvammstanga. KF Húnvetninga, Blónduðsi. Skagfirðingabúð. Sauðárkrðki. KEA. Dalvík. Liósgiafinn.Akureyri.Kf Þingeyinga, Húsavik. Urö, Raufarhöfn.AUSTURLAND: KF Héraðsbúa. I
Egilsstöðum.Verslunin Vík, Neskaugsstað. Kauptún,Vnpnatitöi. Kl Vopnliröinga. Vopnafirði. KF Hétaðsbúa. Seyðisfirði. Tumbræður, SeyðislirðLKF Fáskrúðsfjarðar. Fáskrúðstitði. KASK. Diúpavogi. KASK. Höfn Homafiröi. SUÐUHEAND: Rafmagnsverkstæði 1
KR, Hvolsvelli. Mosfell. Hellu. Heimslæknl. Selfossi. KÁ Selfossi. Rás. Porlákshöln. Brimnes. Vestmannaeyjum. REYKJANES: Rafborg. Grindavik. Rallagnavinnust. Sig. Ingvarssonar, Garði. Ralmæiii, Halnarlirði. Tðnborg, Kknmi.J
UNITED
starrænt utvurp IIDDQQCIí
m/ stödvaminnum UlllfUwQw
Geislaspilari FERÐASTÆÐA
Segulband
• Stafrænt útvarp
m/stoövaminnum
FERÐATÆKI * GeislaspUan
• Segulband
KP. 14.900
/