Morgunblaðið - 23.12.1998, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998
MORGUNBLADIÐ
LISTIR
I minningu Þorláks helga
„DÝRLINGURINN", eggtempera á tré, eftir
Kristínu G. Gunnlaugsdóttur.
MYJVDLIST
Hallgrímskirkja
MÁLVERK, SKÚLPTÚR
Þorlákur helgi, myndlistarsýning í
Hallgrímskirkju á aðventu og jólum.
MYNDLISTARSÝNING list-
vinafélags Hallgrímskirkju, sem
stendur nú um aðventu og jól, á sér
nokkum aðdraganda. Þegar Sverrir
Guðjónsson, söngvari, undirbjó
flutning á Þorlákstíðum fyrir Lista-
hátíð, fékk hann þá hugmynd að
leita til nokkurra myndlistarmanna
að vinna myndverk fyrir sýningu
sem yrði tileinkuð Þorláki helga
Þórhallssyni. Þorlákstíðir eru tíða-
söngvar sem varðveist hafa í hand-
riti frá fjórtándu öld, um helgi Þor-
láks biskups á Skálholti, og voru
fluttar af kanúkahópnum Voces
Thules í Kristskirkju. Svo vill til að
Þorlákur lést hinn 23. desember
(sem við hann er kenndur) fyrir átta
hundruð árum, 1198, þannig að það
er vel við hæfi að myndlistarsýning-
in skuli haldin við þetta tækifæri.
Myndlistarmennirnir, sem Sverr-
ir valdi til samstarfs, eru þau Krist-
ín G. Gunnlaugsdóttir, Jón Axel
Björnsson, Páll Guðmundsson,
Gunnar Örn Guðmundsson, Helgi
Þorgils Friðjónsson og Kristján Da-
víðsson. Verkin eru alls sex, fimm
málverk og ein höggmynd. Auk
þess er litljósmynd á striga af sext-
ándu aldar altarisklæði frá Hóla-
dómkirkju, sem sýnir biskupana
Guðmund góða Arason, Jón helga
Ögmundsson og Þorlák helga.
Sýningin er hið ágætasta framtak
og hugmyndin vel til fundin. Það er
óneitanlega forvitnilegt að sjá
hvernig listamennirnir nálgast við-
fangsefnið. Engar skýrar fyrir-
myndir eða hefðir eru til í nútíma-
myndlist um hvernig taka skuli á
trúarlegum og kirkjulegum
myndefnum. Þetta er ekki aðeins
vegna þess að frelsi listamanna er
skilyrðislaust og áherslan á einstak-
lingsbundin efnistök meiri en áður,
heldur hefur nútímamyndlist einnig
fjarlægst þann frásagnarmáta í
myndum sem tíðkaðist fyrr á tím-
um, þar sem lýsing á persónum og
atburðum fléttaðist saman við tákn-
mál kristinnar trúar. Það er því
ekki hægt að fara eftir þekktum
kennileitum til að finna trúarlega
rnyndlist í nútímanum, og menn eru
oft ósammála um hvar hana sé að
finna. Getur abstrakt, óhlutbundin
myndlist, til dæmis, verið trúarlegs
eðlis? Þarf listamaður að bera sig
öðru vísi að þegar vinna skal út frá
trúarlegu þema?
Sexmenningarnir eru hver með
sitt sterka svipmót, sem einkennir
þeirra verk og þau nálgast sögnina
um Þorlák hvert með sínum hætti.
Þrír þeirra draga upp mynd af Þor-
láki sjálfum. Gunnar Öm, í málverki
sínu „Þorlákur helgi, trúarankeri
síns tíma“, bregður upp allt að því
bókstaflegri mynd af Þorláki með
biskupsmítur, og með útréttar
hendur, þannig að hann tekur á sig
sköpulag akkeris, og krossmarks.
Höggmynd Páls, sem stendur rétt
innan við forsalinn, er lágmynd
höggvin í stein af svip Þorláks þar
sem hann heldur uppi hendi til
blessunar. Málverk Kristjáns Da-
víðssonar er án titils og nokkuð frá-
brugðið því sem hann hefur verið að
gera að undanförnu, minnir frekar á
poi'trettmyndir hans frá sjötta og
sjöunda áratugnum, mynd í anda
„art-brut“ af tveimur höfðum, öðm
lóðréttu og hinu láréttu - lifandi og
dauðu. Ef til vill era hér saman-
komnir hinn jarðneski Þorlákur
sögunnar og hinn himneski Þorlák-
ur trúarinnar.
Hin þrjú fara aðra leið og þar er
Þorlákur sjálfur ekki beinlínis inni í
myndinni. Málverk Jóns Axels, sem
er án titils, er samsett úr þremur
aðskildum myndum. Ofan á stóra
svai’t/hvíta kolamynd af yfirborði
jarðar, líflausu hrauni og grjóti, era
festar tvær minni myndir sín á
hvorn vænginn, rauðar myndir af
mannshöfðum. Hér er aðskilnaður
skýr milli efnis og anda, hinnar
gráu ösku jarðarinnar og hins rauða
bjarma sálarinnar, sem lýsir upp til-
verana, en virðist þó ekki tilheyra
efnisheimi. Hér er ef til vill verið að
lýsa hvernig návist Þorláks helga
veitti ljósi inn í tilveru trábræðra
hans.
Myndverk Helga Þorgils er einna
sérkennilegast, líkast ráðgátu, og
maður veit ekki hversu langt á að
ganga í því að ráða í gátuna. Verkið
heitir „Birtingin" og er gert úr tólf
smámyndum, sem er raðað saman.
Sum þeirra sýna höfuð með þremur
andlitum, hinar sýna ekki neitt,
nema sjóndeildarhring og bláma.
Ég get aðeins komið með tillögu að
túlkun, en þrískipta andlitið, sem
snýr til þriggja átta, mætti túlka
sem lýsingu á alltumlykjandi skynj-
un, tráarlega upphafning og al-
gleymi: þegar hið guðlega birtist þá
birtist það ekki í einum hlut, sem
við getum beint sjónum að (aðeins
tómið blasir við), heldur fyllir það
heiminn í allar áttir.
Kristín G. Gunnlaugsdóttir
stendur hinni kirkjulegu hefð næst,
að því leyti að hún hefur sótt stíl-
legar fyrirmyndir í síðgotneska,
ítalska myndlist. Hún fer þó eigin
leiðir í meðferð myndefnisins. Mál-
verk hennar, lítil og fínleg mynd
máluð með eggtemperu á tré, heitir
„Dýrlingurinn". I myndinni sést
hvar manneskja sveiflar sér í rólu
og er rétt í þann mund að sleppa
takinu og svífa í átt til blikandi
stjarna.
Er þarna dýrlingnum rétt lýst,
sem þeim sem lætur trána bera sig
áfram í átt að guðdóminum án þess
að hafa nokkuð annað fast í hendi til
að styðja sig við?
Hver og einn verður að nálgast
myndirnar af eigin ímyndunarafli,
en af þessum tillögum mínum má
sjá að sýningin leynir á sér, þótt
hún sé ekki stór í sniðum og forsal-
ur Hallgrímskirkju sé ekki ákjós-
anlegasti sýningarstaður, því
myndirnar gefa tilefni til hinna
margvíslegustu hugrenninga.
Þannig að ef menn eiga leið í Hall-
grímskirkju um jólahátíðina, þá er
ástæða til að staldra ögn við í for-
salnum og gefa myndunum þar
góðan gaum.
Gunnar J. Arnason
SAMSAFN
BÆKUR
Ljófl
FRUMKVÆÐI
Eftir Ingólf Steinsson. íslenska
bókaútgáfan 1998 - 43 bls.
HÉR er um að ræða verk vel
að vöxtum, 77 ljóð og flest í
lengra lagi. Þau eru
greinilega ort af
ýmsu ólíku tilefni og
frá ólíkum tímum.
Kalda stríðið, Ví-
etnam, E1 Salvador
og Níkaragva era til
vitnis um það.
Höfundur bregð-
ur fyrir sig margs
konar stíl og era
ljóðin ýmist bundin,
hálfbundin eða
óbundin. Mörg ljóð-
in era útleitin, ein
hugsun kveikir auð-
veldlega aðra. Ut-
leitnin er vandmeð-
farin og hætt við að
hugsunin leysist
sundur í málæði. Dæmi um Ijóð af
þessu tagi era Heimsðsómi, 16th
and Mission rap og nokkur ljóð
sem nefnast Afvötnun.
Mörg Ijóðin era athyglisverð.
Ég nefni sem dæmi Tímabil, SQd-
arsumar og Landflóttamann. Hið
síðastnefnda hefst svo:
Pegar yfir mig holskefla hellist
af hraðsoðnum fréttum úr dýrtíð,
þegar gengið er getulaust fallið
og gæfan er komin af vertíð.
I samræmi við þetta litla dæmi
er höfundi einkar lagið að yrkja
rímað og stuðlað án þess að stíll-
inn stífni.
Erfitt er að meta
þessa bók í heild og
ráða hvað höfundi
liggur helst á hjarta.
Röðun ljóðanna er
ruglingsleg og efni
þeirra ósamstætt.
Það er til dæmis
óskiljanlegt að kvæð-
um á ensku er stung-
ið inn hér og hvar í
bókina. Sá sem hér
talar telur sig illa
dómbæran á fagur-
fræði enskrar tungu,
fullyrðir þó að bókin
hefði batnað mikið ef
ensku kvæðunum
hefði öllum verið
sleppt eða þau sett í aðra bók.
Um þessa bók má segja eins og
um svo margar aðrar: Hún væri
betri ef væri hún styttri.
Ingi Bogi Bogason
Ingólfur
Steinsson
Hvaðan kemur
EINAR Kristján Einarsson gítar-
leikari hefur sent frá sér geislaplötu
með verkum eftir Johann Sebastian
Bach, Agustin Barrios, Karólínu Ei-
ríksdóttur, Fernando Sor og
Francisco Tárrega.
Þetta er fyrsta einleiksplata Ein-
ars en hann hefur komið víða við
með gítarinn á undanfömum árum,
m.a. á Gítarhátíð á Akureyri, Sumar-
tónleikum í Skálholti, Sumartónleik-
um á Norðurlandi og Myrkum mús-
íkdögum. Hann hefur leikið með
Caput-hópnum og leikið einleik með
Kammersveit Akureyrar, Kammer-
sveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljóm-
sveit Islands, auk þess sem hann
leikur í hljómsveitinni Rússíbönum,
sem nýverið sendi frá sér sína aðra
geislaplötu, Elddansinn.
Einar segir gítarplötuna hafa ver-
ið í bígerð lengi. Hann hafi byrjað
upptökur af miklum ki-afti árið 1996
en orðið frá að hverfa að sinni, sök-
um þess að hann kvefaðist illilega.
Þegar hann fór að hlusta á upptök-
urnar heyrðist svo mikið más í hon-
um að hann gat ekki notað þær. í júlí
síðastliðnum hófst hann svo aftur
handa í Laugarneskirkju ásamt Jóni
Skugga, félaga sínum úr Rússíbön-
unum, sem sá um upptökur og eftir-
vinnslu. „Þetta er falleg kirkja og fín
fyrir gítar og þar fékk ég að valsa
um að vild,“ segir hann.
Fyllist lotningu við
fótskör meistarans
Upphafsverkið á plötunni, sem er
eftir Femando Sor, heitir Tilbrigði
um stef eftir Moz-
art op. 9. „Þetta
er dæmigerð 19.
aldar músík. Það
var mjög vinsælt
form að taka vin-
sælt lag eða aríu
og semja tilbrigði
við það. Þetta er
eiginlega sama
lagið og Tumi fer
á fætur. Þetta
byrjaði ég að spila þegar ég var nem-
andi og hef alltaf haft gaman af því,
það virkar alltaf vel, svo mér fannst
ágætt að opna plötuna á því. Svo era
verk eftir tvo nítjándu aldar róman-
tíkera, Barrios og Tárrega, hugljúfar
melódíur og svona ekta gítarmúsík,"
segir Einar. Enn er ótalin Svíta í e-
moll eftir Johann Sebastian Bach,
sem samdi raunar ekkert fyrir gítar.
Hann segir ekki vitað hvort þetta
verk sé samið fyrir lútu eða sembal
eða jafnvel einhverskonar blending af
þessu tveimur hljóðfærum. „Það er í
þanriig tóntegund, e-moll, sem er góð
tóntegund fyrir gítar. Það er rosalega
mikil fjallganga að spila Bach, maður
fyllist lotningu við fótskör meistar-
ans.“
Eitt íslenskt verk er á plötunni.
Það er eftir Karólínu Eiriksdóttur
og heitir Hvaðan kemur lognið? Hún
samdi það sérstaklega fyrir Einar,
sem frumflutti það í Skálholti sumar-
ið 1990.
Það er spænski gítarsmiðurinn
Joaquín García sem á heiðurinn af
gítarnum sem Einar leikur á. „Ein-
Einar Kristján
Einarsson
N^jar bækur
• ÚTISETUR. Samband geð-
lækninga, bókmennta og sið-
menningar
Bókmenntafræðistofnun Háskóla
íslands hefur gefið út bókina Uti-
setur. Samband geðlækninga, bók-
mennta og siðmenningar, sem hef-
ur að geyma ritdeilu frönsku
heimspekinganna Michels
Foucaults og Jacques Derrida um
gildi sturlunar í menningu Vestur-
landa.
I þeirri deilu er tekist á um for-
sendur vestrænnar skynsemi,
tengsl listar og brjálsemi, stöðu
geðlækninga og ystu mörk tungu-
málsins. Birtir era þrír kaflar úr
þekktustu bók Foucaults, Sturlun
og óskynsemi. Saga Sturlunar á
skynsemisöld, frá 1961, gagnrýni
Derrida, „Cogito og saga sturlun-
ar“, og svargrein Foucaults, „Lík-
ami minn, þetta blað, þessi eldur“.
I ritinu er einnig grein eftir Sos-
hana Felman um deiluna,
„Foucault/Derrida. Sturlun þess
sem hugsar/talar“ og kafli úr Hug-
leiðingum um frumspeki eftir
René Descartes. Ritstjóri verksins
skrifar einnig ítarlegan eftirmála,
„Blendin köllun postulans", þar
sem fjallað er um heimspekilegar
tilraunir Foucaults í ljósi deilunnar
við Derrida.
I upphafskafla sínum segir
Foucault meðal annars um þau
hvörf sem urðu þegar sturlun og
holdsveiki höfðu hlutverkaskipti í
vestrænni menningu: „Við lok mið-
alda hvarf holdsveikin af Vestur-
löndum, en á útjaðri samfélagsins,
við borgarhhðin, var engu líkara
en miklar lendur lykjust upp ...
Frá fjórtándu öld til þeirrar sautj-
ándu biðu þau og seiddu til sín
með undarlegum söng nýjan hold-
gerving hins illa, aðra grýlu, end-
urvakinn hreinsunar- og útskúfun-
argaldur...“
Utisetur er 10. bindi í ritröðinni
Fræðirit sem Bókmenntafræði-
stofnun gefur út. Ritstjóri bókar-
innar er Matthías Viðar Sæmunds-
son. Þýðendur eru Ólöf Péturs-
dóttir og Garðar Baldvinsson.
Dreifingu bókarinnar annast Bók-
menntafræðistofnun og Háskólaút-
gáfan.
Útisetur. Samband geðlækn-
inga, bókmennta og siðmenningar
er í kilju, 354 bls. að stærð. Al-
mennt verð er kr. 3.190.
lognið?
hverra hluta vegna hefur hann náð
mikilli hylli hér á íslandi, því við er-
um einir fimm eða sex gítarleikarar
hér sem eigum gítar frá honum.
„Skemmtilegur smiður og svolítið
óhefðbundinn. Hann vinnur þvert á
margar teoríur, setur t.d. mikið af
þverböndum inn í gítarinn, sem sum-
ir vilja meina að drepi tóninn, sem er
þó alls ekki tilfellið hjá honum, því
honum tekst að halda mjög sterkum
tóni,“ segir Einar ánægður með gít-
arinn sinn, sem hefur nú fylgt hon-
um í ellefu ár. „Hann er eins og snið-
inn fyrir íslenskar aðstæður, ég er
búinn að þvælast með hann yfir fjall-
vegi í kulda og trekki, en hann er
ósprunginn enn.“
------------
Lesið í Kaup-
mannahöfn
STEINGRÍMUR St.Th. Sigurðsson
las úr nýútkominni bók sinni - Lausn-
arsteinn - lífsbók mín, fyrir íslendinga
í Kaupmannahöfn í
vikunni og um leið
var ákveðið að
hann héldi mynd-
listarsýningu þar í
borg í febrúar nk.
Steingrímur
segir að hann sé
byrjaður að undir-
búa næstu bók,
Sleingrímur St.Th. sem beri rinnu-
Sigurðsson heitið Lífsmynd.