Morgunblaðið - 23.12.1998, Qupperneq 44
>44 MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Er Galsi á
leið út í lönd?
Hátt verð virðist standa í vegi fyrir því að
fjögur hrossaræktarsambönd festi kaup á
stóðhestinum Galsa frá Sauðárkróki. Sunn-
lendingar eru tilbúnir til kaupanna en
Vestlendingar og Skagfírðingar telja sig
ekki ráða við svo stóran bita fyrir ekki
stærri eignarhlut. Dalamenn eru hinsvegar
enn að hugsa málið. Valdimar Kristinsson
kynnti sér stöðuna og tíndi til ýmislegt
fróðlegt um þennan fræga hest.
FÁIR ef nokkrir stóðhestar eiga
jafnglæstan feril að baki og gæðing-
urinn Galsi frá Sauðárkróki. Á þeim
bænum þekkist ekki annað en
fyrsta sæti þegar um keppni er að
ræða og ávallt þegar hesturinn hef-
mr komið fyrir almenningssjónir
hefur hann vakið athygli fyrir
skörulega framgöngu. Hann þykir
framfallegur, faxprúður. Vilji og
geðslag með því besta sem gerist og
hið sama má segja um vekurðina og
brokkið. En allir góðir stóðhestar
eiga það sameiginlegt að hafa ein-
hverja veika punkta og hjá Galsa
þykir töltið í tæpara lagi bæði hvað
varðar takt og eins lyftingu fram-
fóta.
Pennan veika punkt hestins hef-
^Fur aðeins borið á góma í þeirri um-
ræðu sem farið hefur af stað nú
þegar hrossaræktarsamböndin
fjögur veltu fyrir sér möguleikum
á að kaupa hestinn fyrir að því er
virðist metfé. Umræðan um hvert
skuli stefna í hrossarækt á íslandi
hefur einnig borið á góma. Sú stað-
reynd að meginverðmæti íslenskra
hesta felist í töltinu og hinu að hár
framfótaburður auki verðmæti og
geti ráðið úrslitum um sölu hrossa
hefur spunnist inn í umræðuna um
Galsa og sýnist þar sitt hverjum.
Skagfirðingar og Vestlendingar
gefa Galsa frá sér
Formaður hrossaræktarsam-
-*?oands Skagfírðinga Bjarni Marons-
son á Ásgeirsbrekku er ekki í vafa
um að ræktunarverðmæti hestsins
séu fágætt, um það verði ekki deilt
og því slæmt að þurfa að sjá á eftir
honum jafnvel úr landi. Bjarni sagði
það því miður ekki verjandi að
binda svo mikið fé til langs tíma.
Hesturinn væri of dýr miðað við
stöðu hrossaræktarinnar þessa dag-
ana. Ekki væri lengur hægt að
sækja í stofnvemdarsjóðinn og það
væri vissulega áhyggjuefni að við-
spyrna Islendinga til að halda eftir-
sóknarverðum hestum í landinu
væri dvínandi því hrossaræktar-
samböndin væru ekki fjársterk um
þessar mundir. Hvað varðar að-
finnslur um töltið í Galsa sagði
Bjami það oft svo með ýmsa hesta
sem væru mörgum góðum kostum
búnir að mönnum væri gjarnt að
hnjóta um það sem lakast væri í fari
hestanna.
Skagfírðingar hafa tvisvar verið
með Galsa á leigu, síðast í haust er
hann var notaður fram í október.
Sagði Bjarni að eftirspum eftir að
koma hryssum undir hestinn hafi
verið mjög góð og útkoman verið
prýðileg. Var tollurinn seldur á 35
þúsund krónur fyrir félagsmenn en
40 þúsund til annarra.
Formaður Hrossaræktarsam-
bands Vesturlands, Bjami Marinós-
son í Skáney, sagði þá alfarið vera
búna að afskrifa þátttöku í þessum
kaupum. Verðið væri of hátt miðað
við að óvissuþættimir vora margir.
Hann benti á að aðeins hefðu fjögur
afkvæmi verið sýnd undan klárnum
og einkunnir ekki háar. Þetta væri
fulllítið tii að byggja á þegar kaupa
ætti stóðhest í þessum verðflokki og
svo mætti segja að í því fælist
ákveðin öfugmæli að vera einn dag-
inn að leita eftir fjárstuðningi til að
fækka hrossum og kaupa svo hinn
daginn einn dýrásta stóðhest sög-
unnar.
Sunnlendingar era mjög áfram
um að kaupa Galsa og munu þeir
hafa reifað hugmyndir við Hún-
vetninga hvort þeir væru tilbúnir
að koma inn í stað Skagfírðinga og
Vestlendinga og Hrossaræktar-
samband Dalamanna, sem verið
hefur inn í myndinni frá upphafi, er
ennþá að skoða málið að sögn for-
mannsins Svavars Jenssonar. For-
maður Hrossaræktarsamtaka Suð-
urlands Kristinn Guðnason sagði
að einnig væra einstaklingar farnir
að hringja og athuga með mögu-
leika á að taka þátt í kaupunum.
Taldi Rristinn það mjög brýnt að
tryggja áframhaldandi veru hests-
ins í landinu. Hann benti á að á
undanförnum árum hefðu tveir yf-
irburðahestar verið seldir úr landi
án þess að gerðar hefðu verið al-
varlegar tilraunir til að halda þeim
í landinu og átti hann þar við sölu á
Fána frá Hafsteinsstöðum 1995 og
Gusti frá Grund á síðasta ári. Fram
kom í máli Kristins að vissulega
væri fjárhagur Hrossaræktarsam-
taka Suðurlands knappur um þess-
ar mundir þeir stæðu í fjárfrekum
framkvæmdum. Til stæði að selja
stóðhestinn Kveik frá Miðsitju til
að fjármagna kaupin á Galsa ef af
yrði. Hefðu ýmsar hugmyndir ver-
ið inni í myndinni varðandi sölu á
honum en ekkert fast í hendi í þeim
efnum.
I fótsporum Orra
Ef borin er saman staða Galsa í
kynbótamatinu nú þegar hann er
átta vetra við stöðu Orra frá Þúfu á
sama aldri kemur í ljós að hann er
með 125 í einkunn en Orri með 127,
báðir eru þeir með 4 dæmd af-
kvæmi en Galsi er með 91 skráð en
Orri með 58. Öryggið er 88% hjá
Galsa í stað 82% hjá Orra. Galsi er í
43. sæti en Orri í 20. sæti. í millitíð-
inni hefur einkunnaútreikningi ver-
ið breytt en það hafði nánast ein-
göngu áhrif á efstu og neðstu hross-
in og má því ætla að þessar tölu séu
vel samanburðarhæfar. Varðandi
skráningu afkvæma sem héfur að
vísu ekki áhrif á kynbótagildi má
ætla að skýrsluhald sé orðið al-
mennara í dag en var fyrir fjórum
árum og Galsi njóti þess. En af
þessu má sjá að staða þeirra í kyn-
bótamatinu er nokkuð svipuð og því
er ekkert sem segir að Galsi eigi
ekki alla möguleika á að ná svipaðri
stöðu og Orri hefur náð í dag. Svo
má geta þess til gamans að báðir
sigra þessir hestar í gæðingakeppni
á landsmóti á sama aldri.
Blikur á lofti í ræktun töltsins
Mönnum þykir sú spurning mjög
áleitin hvort Galsi skili af sér góðu
tölti í framtíðinni, hreinu og eða
lyftingargóðu. Nokkrir viðmæl-
enda bentu á að fram séu komnir
hestar á undanförnum árum sem
teljast mjög vafasamir þegar
áhersla er lögð á hreint og lyfting-
argott tölt. Ef hrossaræktarsam-
bönd fari að kaupa slíka hesta í
stórum stíl sé voðinn vís því allir
sem komið hafa nálægt hrossasölu
viðurkenni að hreint tölt og fóta-
burður skipti hreinlega sköpum um
það hvort hrossið þyki vænlegt til
kaups eður eigi. Hefur Galsi þrá-
faldlega verið nefndur í þessum
efnum og einnig verið minnst á
kaup Hrossaræktarsamtaka Suð-
urlands á Svartssyninum Núma frá
Þóróddsstöðum sem voru mjög
umdeild á sínum tíma. Gagnrýnis-
raddirnar fengu svo byr undir báða
vængi þegar ljóst var að aðeins
sautján hryssur voru hjá sjö millj-
ón króna hestinum Núma.
Vonin föl
Núverandi eigendur Galsa eru
Þjóðverjinn Andreas Trappe sem á
90% og Baldvin Ari Guðlaugsson
sem alltaf hefur sýnt hestinn með
mikilli piýði. Sökum þessarar eign-
arskiptingar hefur alla tíð frá lands-
mótinu 1994 þegar Galsi sló fyrst í
gegn þótt yfirvofandi að hann færi
úr landi. Málum hagar þannig til að
Trappe á nokkurn fjölda hryssna
hér á landi og hefur því getað nýtt
sér hestinn og því ekki legið mikið á
að taka hann út til síns heima. Eftir
glæsilegan sigur í A-flokki gæðinga
á landsmótinu í sumar er með réttu
hægt að segja að frægðarljómi
Galsa hafí skinið hvað bjartast og
því réttur tími til að fá hæsta mögu-
legt verð fyrir hestinn meðan enn
ríkir kitlandi óvissa um hversu góð-
ur kynbótahestur hann kann að
reynast. Næstu tvö árin verða af-
drifarík um stöðu Galsa í ræktun-
inni og það er meðal annars þess
vegna sem Vestlendingar ganga frá
borði í þessum leik. Kunnur hrossa-
ræktandi á Suðurlandi sagðist hafa
skoðað nokkurn fjölda trippa undan
Galsa og virtist sér sem útlit þeirra
væri lítið yfír meðallaginu og gæfi
ekki neina vísbendingu um að þau
ættu eftir að skera sig úr fjöldanum
í fyllingu tímans. Sér virtist sem
eigendur hestsins væru hér að
reyna að selja vonina í hestinum á
réttum tímapunkti.
Einn þátturinn er ónefndur sem
er ætt Galsa. Hann er fæddur
Sveini Guðmundssyni á Sauðár-
króki undan Ófeigi frá Flugumýri
og Gnótt frá Sauðárkróki. ðfeigur
hefur sem kunnugt er hlotið heið-
ursverðlaun fyrir afkvæmi og sann-
að sig sem margfaldur gæðingafaðir
þar sem góður fótaburður hefur
verið aðal hans afkvæma. Móðir
hans Gnótt hlaut íyrstu verðlaun á
landsmóti 1986 en hún er undan
Hervari 963 frá Sauðárkróki og Hr-
efnu 3792 frá Sauðárkróki. Hervar
er einnig með heiðursverðlaun fyrir
afkvæmi. Saman koma í ætt Galsa
hross með góða fótlyftu og laka og
því ekki vonlaust að hann geti gefíð
afkvæmi með fótaburði. En af þessu
má sjá að gott stendur að baki
Galsa og það ásamt góðum eigin-
leikum hans gerir hann að efnileg-
um kynbótahesti og með réttu hægt
að segja að líkurnar séu með hon-
um.
Sá á kvölina sem á völina
Það verður að teljast fullkomlega
eðlilegt að skoðanir séu skiptar
þegar verið er að ræða um kaup á
hlut í stóðhesti sem verðlagður er á
fjórtán milljónir ki'óna. Allt hans
atgervi og bakgrunnur er sett á
vogarskálarnar og síðan er tekin
ákvörðun. Höfuðverkur forsvars-
manna er sá að þeir verða að taka
áhættuna fyrir félagsmenn. Ef
hlutur verður keyptur í Galsa má
ætla að svarið verði komið eftir
þrjú ár um það hvort hér hafi verið
fjárfest í góðum kynbótahesti. Ef
hann reynist ekki sem skyldi og nú-
verandi stjórnarmenn verða enn við
stjórnvölinn verða þeir vafalaust
látnir taka pokann sinn fyrir að
hafa eytt stórfé í misheppnaðan
kynbótahest. Standi Galsi hinsveg-
ar undir þeim vonum sem við hann
eru bundnar verða þessir sömu
stjórnarmenn settir á stall sem
djúpvitrir fjárfestar með óvenju
næmt auga fyrir góðum kynbóta-
hrossum. I þessu sambandi er vert
að minnast þess þegar félag var
stofnað um Orra frá Þúfu og hlut-
irnir alls sextíu talsins seldir á 100
þúsund krónur hver. Þetta þótti
glæfralegt verð fyrir fjögurra vetra
fola á sínum tíma og þótti nokkuð
ljóst að aumingja mennirnir sem
glöptust á að kaupa hlut hefðu verið
plataðir. I dag þýðir ekki að tala um
minna en 500 þúsund krónur fyrir
hlutinn séu þeir falir á annað borð.
En í dag beinast spjótin að Galsa
frá Sauðárkróki. Kaupa íslenskir
aðilar hann eða munu þeir Trappe
og Baldvin Ari reka hann áfram
eins og verið hefur eða fer Trappe
með Galsa utan?
Vaxandi eftirspurn
eftir veiðileyfum
AUKNING var í umsóknum um
veiðileyfi í fyrstu úthlutun Stanga-
veiðifélags Reykjavíkur. Var hún
mismikil frá einu veiðisvæði til ann-
ars, sums staðar engin, en annars
staðar mikil en dæmi voru einnig
um minni eftirspurn. Metið var um-
sóknarfjöldi í Fáskrúð í Dölum, þar
sem 108% aukning var í umsóknum
frá síðasta ári.
Að sögn Bergs Steingrímsson-
ar hjá SVFR liggja ekki allar töl-
ur á borðinu enn, en í heildina líti
út fyrir að aukningin í heild sé
nokkur. „Mest er þessi aukning í
Fáskrúð, en það er einnig gífur-
leg aukning á umsóknum á öll
helstu veiðisvæði í Soginu, senni-
lega 70-80%. Því veldur auðvitað
að síðasta sumar var besta veiðin
sem þar hefur verið í þó nokkur
ár, lax- og bleikjuveiði er í upp-
sveiflu og veiðileyfín ekki dýr,“
sagði Bergur. „Einhver minnkun“
virtist vera í Stóru Laxá og El-
liðaánum, en ár á borð við
Gljúfurá, Norðurá og fleiri eru
með jafna og góða nýtingu.
Verðhækkanir...
Eitthvað er um verðhækkanir
hjá SVFR eins og frá hefur verið
greint, í Norðurá og Gljúfurá. Er
meðalhækkun á verðskrá í Norð-
urá 6%, en 6,5% í Gljúfurá. Ein-
hverjum kann að þykja þetta um-
talsvei'ðar hækkanir, en þær blikna
og verða ansi rýrar og ræfilslegar
þegar bomar eru saman við það
sem heyrst hefur að sé í gangi í
Hofsá. Þar eru nú komnir í hús er-
lendir leigutakar í samvinnu við
innlenda aðila. Stórlega dregur úr
framboði til íslenskra veiðimanna,
en þó hefur stöku gömlum kúnna
verið boðinn dagur. T.d. voru ein-
um boðnir dagar um miðjan júlí á
VEIÐIMENN reikna greinilega
með góðu laxveiðisumri. Hér er
dæmigerður stórlax, myndin er
frá Svalbarðsá í Þistilfirði og
það er leigutaki hennar, Jör-
undur Markússon, sem hampar
17 punda flugulaxi.
sumri komanda. Sá hinn sami var
síðasta sumar á svipuðum tíma og
greiddi þá 14.000 krónur fyrir dag-
inn. Hafi hann hug á því að heim-
sækja paradísina sína að ári þarf
hann hins vegar að borga 40.000
krónur fyrir daginn. Það kallast al-
vöru verðhækkun. Svona þar fyrir
utan virðist sem verðlag standi
nokkuð í stað og stafar trúlega af
því að litlar hræringai' hafa verið á
útboðsmarkaðnum.
Fleiri kvótar?
Mikil umræða um græðgi og
ósóma í svokölluðum maðkahollum
sem verið hefur í haust hefur leitt
af sér að leigutakar Laxár í Kjós
og Norðurár hafa afráðið að setja
kvóta á umrædda maðkveiðidaga.
Nú hefur því verið fleygt að leigu-
takar Þverár og Kjaraár íhugi að
fylgja fordæminu og setja kvóta á
maðkahollin. Það skýrist fljótlega
hvort af verður og þá hve stór
kvótinn verður.