Morgunblaðið - 23.12.1998, Side 56
■*V 56 MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Jón Viktor í
öðru sæti fyrir
síðustu umferð
SKAK
fþróttahúsið við
Strandgötu
FJÓRÐA GUÐMUNDAR
ARASONAR MÓTIÐ
14.- 22. des. - Aðgangur ókeypis.
JÓN Viktor Gunnarsson er
einungis hálfum vinningi á eftir
efsta manni mótsins, Manuel
Bosboom, þegar ein umferð er
eftir á mótinu. Jón Viktor deilir
öðru sætinu með fjói-um öðrum
skákmönnum. Urslit í áttundu
umferð urðu þessi:
Tapani Sammalvuo - Manuel Bosboom '/tr'k
Vasily Yemelin - Aleksei Lugovoi 1-0
Ralf Akesson - Bragi Þorfinnsson 1-0
Stefán Kristjánss. - Jón V. Gunnarsson 0-1
Heikki Westerinen - Alexander Raetsky 'k-'k
Jón G. Viðarsson - Askell Ö. Kárason 1-0
Albert Blees - Dan Hansson 1-0
Róbert Harðarson - Jón A. Halldórsson 1-0
Arnar Gunnarsson - Björn Þorfinnsson 0-1
Heimir Ásgeirsson - Sævar Bjarnason 0-1
Kristján Eðvarðsson - Einar H. Jensson 1-0
Einar Kr. Einarsson - Bergst. Einarss 'k-'k
Sig. P. Steindórss. - Davíð Kjartanss. 0-1
Þorv. F. Ólafsson - Tómas Björnsson 0-1
Kjartan Guðm.sson - Hjalti R. Omarsson 0-1
í síðustu umferð tefla m.a. sam-
an:
Manuel Bosboom - Ralf Akesson
Jón Viktor Gunnarsson - Vasily Yemelin
Aleksei Lugovoi - Heikki Westerinen
Alexander Raetsky - Tapani Sammalvuo
Jón Garðar Viðarsson - Róbert Harðarson
Bjöm Þorfinnsson - Albert Blees
Jólamót grunnskóla
í Reykjavík
Taflfélag Reykjavíkur og
Iþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur stóðu sameiginlega
að árlegu Jólamóti gi'unnskóla í
Reykjavík. Keppt var í tveimur
flokkum og tefldar sex umferðir
með 15 mínútna umhugsunar-
tíma. í eldri flokki urðu úrslit
þessi:
1. Réttarholtsskóli 20 v. af 24
2. Hólabrekkuskóli 17 v.
3. Hagaskóli-A 15'k v.
4. Seljaskóli 12‘/2 v.
5. Rimaskóli 7 v.
6. Hagaskóli-B 6 v.
7. Breiðholtsskóli 5 v.
Sveit Réttarholtsskóla, sem
einnig sigraði á mótinu í fyrra
var þannig skipuð:
Guðni Stefán Pétursson 4 af 6
Einar Agúst Árnason 5 af 5
Grímur Daníelsson 6 af 6
Guðlaugur Frímannsson 5 af 6
Kári Sigurðsson 0 af 1
Sveit Hólabrekkuskóla skip-
uðu:
Gústaf Smári Björnsson 4 af 6
Ingibjörg Edda Birgisdóttir 4 af 6
Sasvar Ólafsson 5 af 6
Knútur Otterstedt 4 af 6
Sveit Hagaskóla skipuðu:
Sigurður Páll Steindórsson 5 af 6
Aldís Rún Lánisdóttir 2 af 6
Ágúst Gröndal 3'k af 6
Vilhjálmur Þórarinsson 5 af 6
í yngri flokki urðu úrslit sem
hér segir:
1. Melaskóli-A 22 v. af 24
2. Ölduselsskóli-A 21 v.
3. Ártúnsskóli-A 15 v.
4. Rimaskóli-A 14 v.
5. Seljaskóli 13 v.
6. Grandaskóli-A 12 v.
7. Hólabrekkuskóli-A 11 ‘/2 v.
8. Skóli Isaks Jónssonar-A 1114 v.
9. Breiðagerðisskóli-A 1114 v.
10. Skóli Isaks Jónssonar-B 1114 v.
11. Hólabrekkuskóli-B 1114 v.
o.s.frv.
Sigurvegari í stúlknaflokki var
Hólabrekkuskóli-B, en það var
eina stúlknasveitin sem tók þátt í
mótinu. Alls tefldu 18 skáksveitir
sem er nokkur fækkun frá
metárinu í fyrra þegar 27 sveitir
tóku þátt í yngri flokknum. Fyrir
sigursveit Melaskóla tefldu:
Dagur Amgrímsson 6 af 6
Hilmar Þorsteinsson 5 af 6
Viðar Bemdsen 5 af 6
Víkingur Fjalar Eiríksson 6 af 6
Sveit Ölduselskóla skipuðu:
Benedikt Örn Bjarnason 4 af 6
Hjörtur Ingvi Jóhannsson 6 af 6
Hafliði Hafliðason 6 af 6
Vilhjálmur Atlason 2 af 3
Öm Stefánsson 3 af 3
Sveit Artúnsskóla skipuðu:
Guðmundur Kjartansson 5 af 6
Árni Jakob Ólafsson 4 af 6
Birkir Björnsson 3 af 6
Davíð Teitsson 3 af 6
Daði Örn Jónsson
Margeir Pétursson
Guðmundar Arasonar mótið 1998
Hafnarfirði, 14.-22. desember 1998
Nr. Nafn Stig 1 2 3 4 5 6 7 8 Vinn.
1 Manuel Bosboom AM HOL 2490 12' %’6 %’5 1’6 12 17 %5 6
2 Vasily Yemelin GM RÚS 2510 1'7 15 ’Á4 o' ’á’4 1" 13 5'k
3 Aleksei Lugovoi GM RÚS 2525 125 1’2 'k7 1 14 'k' ’Á5 o2 5'k
4 Ralf Akesson GMSVÍ 2510 r 1 %2 110 o3 o5 1’7 '1 '4 554
5 Tapani Sammalvuo AM FIN 2410 i22 o2 120 ’á’9 110 14 %3 'k' 5'k
6 Jón Viktor Gunnarsson 2445 ia o’5 'k19 1 23 1 %7 Ví 6 110 514
7 Alexander Raetsky AM RÚS 2440 124 1’4 %3 %2 1'2 o' Vi6 5
8 Heikki Westerinen GM FIN 2435 !ó'9 %9 o’6 127 124 115 'k1 5
9 Jón G. Viðarsson FM 2375 o" %6 o’7 129 li:21 126 124 I'6 5
10 Stetán Kristjánsson 2250 1429 1" 116 o4 o5 1’3 I’5 o6 414
11 Bjðrn Þorfinnsson 2115 19 o’° o’3 125 1* 02 1" 4y2
12 Albert BleesAMHOL 2430 123 o3 124 'á’3 o7 'k2' ’Á20 1’7 414
13 Róbert Harðarson FM 2325 126 o4 1" 'k'2 o’9 o’° 1 1» 4'/2
14 Bragi Þorfinnsson 2235 126 o7 127 o’6 1’6 %2 119 o4 414
15SævarBjamasonAM 2295 130 16 'k' o3 %’7 o6 o’° 126 4
16 Áskell ð. Kárason 2270 127 •4’ o’° 1’4 o6 'k20 12' o9 4
17 Dan Hansson 2230 02 'kn 19 125 Va’5 1’9 o4 o’2 4
18 Kristján Eðvarðsson 2220 o4 126 16 o' o14 o" 127 124 4
19 Amar Gunnarsson 2180 129 ’Á6 K5 1” o17 o14 0 " 314
20 Jón Ámi Halldórsson 2200 06 130 05 'V’ 123 k ’6 ’4’2 0 13 3)4
21 Bergsteinn Einarsson 2210 o' 027 130 126 %9 'k'2 0'6 'k’a 314
22 Einar Kristinn Einarsson 2125 o5 'k 17 o23 o24 130 1425 128 y22’ 314
23 Davíð Kjartansson 2130 o’2 'k® I22 o6 o20 o28 129 127 3)4
24 Einar Hjalti Jensson 2185 o7 126 o’2 122 o6 127 o9 o'“ 3
25 Tómas Bjömsson FM 2255 o3 k.23 1 29 o’7 o" 'k22 o'3 ,30 3
26 Heimir Ásgeirsson 2115 o’3 018 1 o2’ 129 o9 1 30 o’5 3
27 Sigurður Páll Steindórsson - o'6 12’ o’4 o6 1 o24 016 O23 2
28 Kjartan Guðmundsson - o'4 o24 o26 130 o27 123 o22 o29 2
29 Hjalti Rúnar Ómarsson - 'k 10 o’9 o25 o9 026 0 3° 023 ,28 114
30 Þorvarður Ólafsson 2050 o15 o20 o21 o26 o22 1 29 o26 o25 1
í DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til Fóstudags
Bætur til
öryrkja lágar
ÁGÆTI Velvakandi. Ég
tek undir hvert orð í
ágætu bréfí frá Hafþóri
Baldvinssyni til Davíðs
Oddssonar forsætisráð-
hen-a í Morgunblaðinu 20.
desember. Bætur til okkar
öryrkja eru skammarlega
lágar og til vansæmdar
fyrir ríkisstjórnina. Ég er
orðin leið á þessu sífellda
góðærishjali Davíðs Odds-
sonar. Hvernig þætti hon-
um að hafa til ráðstöfunar
47 þús. kr. á mánuði? Ég
er hrædd um að hann gæti
ekki veitt sér mikið fyrir
þá upphæð. Og er ekki
hægt að hækka skattleys-
ismörkin, sem eru allt of
lág? Það nýjasta heyrði
undurituð í kvöldfréttum
útvarps í gær að hækka
ætti lyfin. Það væri nú eft-
ir öllu öðru. Aðstoðarmað-
ur heilbrigðisráðhema var
eitthvað að reyna að klóra
í bakkann eins og venju-
lega. Spennandi verður að
sjá hvað kemur í budduna
til okkar öryrkja 4. janúar
nk. eftir þessa hækkun
sem þau í rikisstjórninni
eru að guma af. Ég óska
landsmönnum gleðilegrar
hátíðar.
Þuríður Árnadóttir.
Jólatónleikar
í Grensáskirkju
„SIG dog Deres mening"
var yfirskriftin á lítilli
grein í Det Bedsýe -
dönsku útgáfunni af Urvali
- sem ég las endur fyrir
löngu. Þar eru lesendur
með frísklegum hætti
hvattir til að tjá sig, einnig
þegar þeim líkar vel það
sem þeir sjá og heyra. Hér
hjá Velvakanda koma ein-
staka sinnum slík innlegg,
en oftast er verið að finna
að. Nú get ég ekki á mér
setið að koma á framfæri
miklu, miklu þakklæti fyr-
ir frábæra jólatónleika í
Grensáskii’kju 18. þ.m. Ég
finn að ég mun búa lengi
að þeirri hrifningu og gleði
sem gagntók mig þetta
kvöld í hinum bjarta og
fagra helgidómi, þar sem
raddir barnanna, í hinum
þrískipta kór, hljómuðu
svo hreinar og bjartar
undir hrífandi stjórn Mar-
grétar Pálmadóttur og við
listilegan píanó- og/eða
flautuundirleik. Hvað
stjórnandinn náði að töfra
fram hjá börnunum með
ótrúlega lifandi og litríkum
hætti, það var með ólíkind-
um. Þessi Margrét er í
einu orði sagt fágæti hér á
þessu sviði. Vissulega eig-
um við ýmsa góða stjórn-
endur, en þessi einstaka
kona „toppar“ svo greini-
lega. Ekki spillti hinn létt-
leikandi píanóundirleikari,
Ástríður, og flautuleikar-
inn töfrandi. Báðar fengu
þær heitt og innilegt
„knús“ hjá stjórnandanum
í lokin, svo og langt og gott
lófaklapp frá hinum fjöl-
mörgu áheyrendum, sem
fyllti kirkjusalinn. Hvílíkir
tónleikar. Það lyftir
kirkjustarfinu í æðra veldi
að fá slíkan viðauka.
Hjartans þakkir öll þið
sem tjáðuð með slíkum
hætti hina ljúfu list, söng-
lisVtónlist.
Aðdáandi.
Tapað/fundið
Myndavél í óskilum
MYNDAVÉL með filmu í
fannst um síðustu mánaða-
mót. Á filmunni er þessi
mynd. Þeir sem kannast
við myndina eru beðnir um
að hafa samband í síma
551 0912.
Slæða týndist við
Eiðistorg
SLÆÐA, grá og svört,
týndist líklega á Eiðistorgi
eða nágrenni sl. laugardag.
Hennar er sárt saknað.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 567 6110.
Seðlaveski og gler-
augu týndust
á Laugavegi
BRÚNT seðlaveski og
gleraugu týndust sl.
fimmtudag, llklega á
Laugaveginum. Skilvís
finnandi hafi samband í
síma 551 3627.
Verslunarskólaballið
DÖKKBLÁ kvenúlpa með
hettu og gráu fóðri týndist
á Verslóballinu 17. des. sl.
Skilvís finnandi vinsam-
lega hringi I síma 587 1829
eða 505 0754.
Dýrahald
Skógarkettlingar
fást gefíns
SKÓGARKETTLINGAR
fást gefins. Upplýsingar I
síma 586 1485.
Mlbiy Sig. Sigmundsson
Rjúpur
Víkverji skrifar...
RÁÐHERRUM ríkisstjórnar-
innar er margt til lista lagt. í
haust gaf Árni Johnsen út geisla-
plötu með Stórhöfðasvítunni og
fylgdu með nokkur lög, bæði ný og
gömul. Á plötunni söng Geir Hilm-
ar Haarde fjármálaráðherra þrjú
lög, auk þess að syngja bakraddir í
öðrum lögum. Geir hefur flotta
bassarödd sem nýtur sín vel í þeim
lögum sem hann tók til flutnings.
Greinilegt er að ráðherranum læt-
ur vel að fást við fleira en fjárlögin.
Víkverji er viss um að Geir á eftir
að syngja inn á fleiri plötur þegar
fram líða stundir.
Þá hefur heyrst á öldum ljós-
vakans nýtt lag eftir Gunnar Þórð-
arson við ljóð Davíðs Oddssonar
forsætisráðherra. Heitir ljóð Da-
víðs Jólaljós. Davíð átti sem kunn-
ugt er texta við lagið Við Reykja-
víkurtjörn sem kom út á frægri
plötu Gunnars Þórðarsonar árið
1985 og varð það lag landsfrægt.
Nú endurtaka þeir félagar leikinn.
Davíð sendi Gunnari ljóðið í síðustu
viku og hann settist niður og samdi
lag á skömmum tíma. Síðan var
hópur tónlistarfólks drifinn í hljóð-
ver á fimmtudagskvöld og lagið
tekið upp. Það var fínpússað á
föstudeginum og á laugardag
heyrðist það svo í útvarpsstöðvun-
um. Snögg vinnubrögð fagmanna.
Ekki kæmi Víkverja á óvart að
þetta jólalag eigi eftir að heyrast
oft á öldum ljósvakans þegar fram í
sækir.
XXX
I^NÝÚTKOMNUM Skinfaxa,
blaði Ungmennafélags íslands,
er athyglisvert viðtal við Guðjón
Þórðarson landsliðsþjálfara. Sem
fyrr er landsliðsþjálfarinn varkár í
yfirlýsingum og varar við of mikilli
bjartsýni enda gefi hún ekki neitt.
I viðtalinu er Guðjón spurður um
hinn fræga rembingskoss sem
Ingólfur Hannesson íþróttafrétta-
maður smellti á kinn Guðjóns í
gleðivímu eftir jafnteflið fræga við
Frakka í haust.
Svar Guðjóns er athyglisvert en
það er svona: „Ég hef þurft að taka
við alls kyns kossum í gegnum tíð-
ina svo ég kippi mér ekkert upp við
þessa hluti. Mér finnst í raun
kjánalegt að gera mikið úr því ef
mönnum líður vel og sjá ástæðu til
að fagna. Ég held að við íslending-
ar ættum að brjóta klakastykkið af
nefinu á okkur og láta það eftir
okkur að fagna þegar ástæða er til.
Mér finnst það fagnaðarefni ef
menn geta glaðst og kæst. Og ég er
ánægður ef ég get stuðlað að því að
fólki líði vel og sé ánaegt."
XXX
VÍKVERJI keypti á dögunum
diskinn með Stórhöfðasvítunni.
Svítan er samin upp úr lögum Árna
Johnsen og útsett fyrir sinfóníu-
hljómsveit. Er skemmst frá því að
segja þetta er hin áheyrilegasta
tónlist sem vinnur á við frekari
hlustun sem er einmitt eðli góðrar
tónlistar. Ekki spillir fyrir að á
diskinum eru lögin sem svítan er
samin upp úr í upphaflegum flutn-
ingi tónskáldsins svo hægt er að
gera samanburð. Loks eru nokkur
ný stuðlög á diskinum sem koma
fólki í gott skap.