Morgunblaðið - 23.12.1998, Page 60
>60 MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Egypski prinsinn á íslandi
Hafíð engin fyrirstaða
fyrir Draumasmiðjuna
Teiknimyndin Egypski prinsinn frá Draumasmiðjunni var sýnd
um allan heim á föstudag og er sýnd í Háskólabíói í dag. Dagur
Gunnarsson hitti nokkra aðstandendur og aðalleikara myndar-
innar í London og forvitnaðist um gerð hennar.
„SEG ísraelsmönnum, að þeir
haldi áfram; en lyft þú upp staf
þínum og rétt út hönd þína yfir
hafið og kljúf það, og Israelsmenn
’skulu ganga á þurru mitt í gegn-
um hafið,“ segir í annarri Móse-
bók og er vart hægt að hugsa sér
verðugra verkefni fyi'ir tækni-
brellumeistara Hollywood. Eg-
ypski prinsinn er stórmynd sem
stfluð er inn á breiðan áhorfenda-
hóp. Hún hefur litskrúðuga teikni-
myndaformið fyrir börnin og fyrir
fullorðna þá breidd og vídd sem
minnir á stórmyndir á borð við
Arabíu Lawrence, Boðorðin tíu og
Ben Húr.
Tækniþróunin í tölvugrafík hef-
•ur gert það að verkum að fjöldinn
allur af teiknimyndum í fullri bíó-
myndalengd hefur verið fram-
leiddur undanfarin ár. Smám sam-
an hafa framleiðendur þessara
mynda áttað sig á því að fullorðnu
áhorfendurnir þurfa líka að fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð, sífellt fleiri
teiknimyndir eru með tilvitnanir
og brandara sem eru ekki ætluð
smáfólkinu.
Fyrir börn og fullorðna
Með Egypska prinsinum er ver-
ið að gera ,alvöru“ bíómynd sem
notar hið sveigjanlega teikni-
myndaform til hins ýtrasta;
tröllauknar sviðsmyndir, þúsundir
aukaleikara, tælandi landslag og
fjölbreyttir tökustaðir. I Japan er
töluverð hefð fyrir teiknimyndum
fyrh- fullorðna, svokallaðar
Mangamyndir sem eru ofbeldis-
fullar hasarmyndir, en hér í hin-
um vestræna heimi höfum við
ekki haft úr svo miklu að moða í
þessari deild þrátt fyrir gífurlegar
vinsældir sjónvarpsþátta á borð
við Simpsons, Beavis og
Butthead, King of the Hill og
South Park.
Dream Works kvikmyndaverið
var stofnað af þremur „risum“ í
kvikmyndaiðnaðinum í Hollywood,
þeim Steven Spielberg, David
Geffen og Jeffrey Katzenberg. Sá
síðastnefndi er yfir teiknimynda-
gerð Draumasmiðjunnar og hefur
ráðið til sín fjöldann allan af hæfi-
leikaríku fólki sem vann áður með
honum hjá Disney. Katzenberg
hefur haft yfii-umsjón með fram-
leiðslu myndarinnar, en með hon-
um hafa þar að auki unnið tveir
framleiðendur og þrír leikstjórar,
fyrir nú utan hundruðir teiknara,
tölvugrafíkera og listamanna sem
allir hafa unnið að því s.l. fjögur ár
að setja saman þetta stórvirki.
Jeffrey Katzenberg og Simon Wells
Ralph Fiennes og Val Kilmer
Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson
FORSPRAKKAR Draumasmiðjunnar Steven Spielberg, Jeffrey
Katzenberg og David Geffen á frumsýningunni í Los Angeles.
Rödd Guðs
Loksins
ný saga
í teikni-
mynd
v.XEFFREY Katzenberg var yfir
ef teiknimyndadeild Disney kvik-
myndaversins í tíu ár, þar sem hann
hafði yfh-umsjón með stórum verk-
efnum eins og Konungi dýranna og
fleiri stórmyndum. Pegar hann hætti
hjá Disney fyrir fjórum áram til að
stofna DreamWorks kvikmyndaver-
ið með Steven Spielberg og David
Geffen var nokkuð ljóst að hann
myndi skora Disney gamla á hólm
með stórri teiknimynd.
Simon Wells er einn af þremur
leikstjóram myndarinnar. Hann er
Breti sem hefur áður stjómað teikni-
myndahlutanum í Hver skellti skuld-
inni á Kalla kanínu eða „Who framed
Roger Rabbit“ og hannað umgjörð
þrfleiksins Aftur til Framtíðar eða
„Back to the Future".
Egypski prinsinn hefur verið fjög-
ur ár í framleiðslu og er nokkuð ljóst
að Katzenberg er með þessari mynd
að gefa þeim hjá Disney langt nef.
Var það ekki áhættu að gera
teiknimynd í fullri lengd sem ekki er
eingöngu stíluð á böm?
Katzenberg: „Nei, það held ég
ekki, við byrjuðum á að velja þessa
sögu, hugmyndin var að finna stórt
og mikið verkefni íyrir DreamWorks
Animation og nota teiknimynda-
fonnið sem hefur nánast einvörð-
ungu verið notað til að segja sömu
söguna undanfarin sjötíu ár. Teikni-
myndir af þessari stærðargráðu hafa
alltaf verið notaðar til að segja böm-
Ntm ævintýri, með talandi dýram,
dansandi undirskálum, krúttlegum
karakterum og í kjölfarið íylgir sölu-
vamingur og auglýsingar á ham-
borgarastöðum.
Disney skapaði og var framkvöð-
ullinn að mjög góðri formúlu fyrir
sjötíu áram og mjög ákveðinn stfll
sem hefur þróast útfrá þeirri for-
múlu. Ég dáist að þeirri hefð og mér
fannst mjög gaman að taka þátt í að
þróa hana þau tíu ár sem ég vann hjá
Disney, en um leið má benda á fjöl-
breytileikann sem við sjáum og ætl-
umst til að sé í öllum þeim sögum
sem sagðar era í leiknum kvikmynd-
um.
Teiknimyndir hafa nákvæmlega
sömu valkosti, við virðumst öll vera
haldin þeim fordómum að teikni-
myndir eigi að vera ákveðin tegund
af ævintýri með tilheyrandi glensi og
gríni, yfirleitt era tvær aukapersón-
yr sem era með stöðug trúðslæti og
tónlist er notuð á ákveðinn máta.
Þetta hefði alltsaman verið mjög
óviðeigandi fyiir þessa sögu. Ein af
aðal ástæðunum íyrir þessari mynd
og að hluta til ástæðan íyrir því að
ég tók þátt í að stofna DreamWorks
er að gera vísvitandi annað en Disn-
ey sem eru með „einkaleyfi“ á ævin-
týrateiknimyndum. Þeir era bestir
og það er tilgangslaust að stefna að
því að verða næstbestur."
Fengu þið leikstjóramir ákveð-
in fyrirmæli um þann stíl eða áferð -
sem DreamWorks vildi ná fram með
þessari mynd?
Wells: „Já og nei, þó það væri ef-
laust hægt að segja þessa sögu með
sykurhjúpuðum glansstíl, þá krefst
hún ákveðins þroska og þróunar í
frásagnarstfl, til að gera sögunni al-
mennilega skil verður að segja rétt
og satt frá í þeim stíl sem hentar
efniviðnum. Sögupersónumar era
það flóknar að leikstíllinn bæði í
rödd og teiknuðum hreyfmgunum
verður að fylgja eftir í dýpt og
þroska. Fyrir okkur sem vinnum við
teiknimyndir hefur verið mjög erfitt
að horfa uppá leikstjóra eins og
Steven Spielberg sem gerir tvær
gjörólíkar myndir á borð við, Lista
Schindlers og Júragarðinn sama ár-
ið, af hverju fáum við ekki að kljást
við sömu breidd í verkefnavali!"
Afhverju önnur Mósebók?
Katzenberg: „Það gerðist eitthvað
strax á fyrsta fundnum þegar við,
Steven Spielberg, David Geffen og
ég, voram að tala um að stofna fyrir-
tækið. Steven spurði mig hvað mér
fyndist að teiknuð stórmynd ætti að
innihalda og ég hélt tuttugu mínútna
ræðu um stórbrotin örlög, mikilfeng-
legan sigur góðs yfir hinu illa, magn-
að þrek mannsandans og hrífandi
tónlist sem tengir allt saman og þar
fram eftir götunum.
Steven hallaði sér fram og sagði;
Þú meinar eins og Boðorðin tíu?
„Nákvæmlega," segir Katzenberg.
„Það var David Geffen sem sagði að
það væri enginn vandi að einfalda
söguþráðinn, skella sætum litlum
hamingjusömum endi eins og í Litlu
Hafmeyjunni á myndina og allir
myndu hugsa, en huggulegt. En
þetta er ekki mín saga og maður hef-
ur ekki rétt á að ganga þannig frá
henni, ef maður ætlar að segja þessa
sögu verður maður að vera henni
trúr; hún hefur svo mikla merkingu
fyiir fjölda manns. Eflaust halda
margir að við séum klikkaðir að velja
biblíusögu sem okkar íyrstu teikn-
uðu mynd í fullri lengd. En þetta er
hrífandi saga um stórbrotinn mann
sem verður að sættast við fortíðina,
trú sína og menningararf. Samskipti
bræðranna eru mjög spennandi og
hvernig örlögin koma því fyrir að
þeir verða féndur.“
Hvernig gekk að fá allar þess-
ar stóm stjömur til að taka þátt?
Katzenberg: „Það er líklega ekki
til kvikmynd með fleiri stórleikuram,
engin önnur teiknimynd. Við urðum
að hafa bestu fáanlegu listamennina
í öllum hlutverkum og við vorum svo
ótrúlega heppnú að hver og einn ein-
asti leikari sem við buðum hlutverk
sagði já. Það hefur aldrei fyrr gerst
á mínum 25 ára ferli sem framleið-
andi leikinna kvikmynda að geta
skipað í öll hlutverkin samkvæmt
„óskalistanum“.“
Skiptu leikstjórarnh• með sér verk
um, eða varþetta unnið ísamvinnu?
Wells: „Við unnum þetta í mikilli
samvinnu. Við skoðuðum þetta vand-
lega strax í upphafi og komumst að
þeirri niðurstöðu að þegar maður
skiptir mynd niður í búta þá verður
útkoman bútasaumur. Við vildum ná
heilsteyptu myndrænu flæði og frá-
sagnarstíl sem mætti nema sem eina
heildarhreifingu út í gegnum alla
myndina þannig að hún liti út íyrir
að vera öll teiknuð af sömu hendinni.
Þannig að við kræktum saman örm-
um allan tímann og neituðum að láta
skilja okkur að.
Þó skiptum við okkur niður á
nokkrar undirdeildir, t.d. hafði
Steve Hickner yfirsýn yfir útliti
teiknuðu „leikaranna“ þ.e. sá til
þess að fígúrarnar héldu sama útliti
milli atriða. Brenda Chapman sá
um brelluatriðin og bakgrunns-
deildina og ég sá um almenna útlits-
hönnun, þ.e. hvernig myndskeiðin
era uppbyggð, myndbyggingu og
annað slíkt. I öllum stærri atriðum
eins og Rauðahafsatriðinu kræktum
við aftur saman örmum og unnum
sem einn rnaður."
HJARTAKNÚSARAR og
hörkutól era hlutverk sem
þessir tveir leikarar era vanari að
kljást við. Val Kilmer er þekktur
fyrir stór hlutverk á borð við Leður-
blökumanninn og Dýrlinginn. Ralph
Fiennes sló rækilega í gegn í aðal-
hlutverkinu I Enska sjúklinginum
og lék á móti Umu Thurman í The
Avengers. Þeir vora að hittast í
fyrsta skipti daginn sem undimtað-
m- tók viðtalið við þá, þrátt fyrir að
hafa leikið aðalhlutverkin í sömu
mynd sem hefur verið fjögur ár í
vinnslu.
Voivð þið með ákveðnar hug-
myndh• um hvemig manngerðh•
Ramses og Móses væm, eða réðu
leikstjóramirferðinni?
Fiennes: „Ég var ekki alveg viss
um hvaða væntingar eða kröfur
væru gerðar um íramlag mitt í
svona teiknimyndavinnu , en ég var
opin fyrir þeim aðferðum sem vora
notaðar. Þegar ég mætti til leiks var
búið að leggja mikla vinnu í gerð
handritsins og gera skissur af öllum
myndskeiðunum. Ég var síðan beð-
inn um að koma með hugmyndir að
raddbeytingunni. Við gerðum mai'g-
ar upptökur með mismunandi hug-
myndum og áherslum og þannig
þróaðist Ramses."
Hvað varþað sem laðaði ykkur að
verkefninu?
Fiennes: „Ég féll strax fyrir þeim
teikningum og myndum sem Jef-
frey [Katzenberg] sýndi mér upp-
haflega, og ég sá að það hafði verið
eytt gífm'lega miklum tíma og vinnu
í að undirbúa gerð myndarinnai',
ferðir til Egyptalands sem skiluðu
sér greinilega í áferð og heildai’svip
myndai'innar. Ég sá hvað þetta var
mikil sjónræn veisla og tækifærið að
fá að leika eitt af hlutverkunum var
einfaldlega nvjög freistandi.“
Kilmer: „Eg hef þekkt Jeffrey í
mörg ár og fannst mjög spennandi
að fýlgjast^ með stofnun Dr-
eamWorks. Ég var viss um að nýtt
kvikmyndaver af þessari stærð-
argráðu kæmi með nýjar hugmynd-
ir og gæti ekki verið annað en hollt
fyrir iðnaðinn. Því kom það mér
ekkert á óvart að Jeffrey hefði valið
svona metnaðarfullt verkefni. Mér
fannst það bara mjög spennandi. Ég
vissi reyndar ekkert um þetta iyrr
en ég var beðinn um að leika Móses
og það var bara svo skemmtilegt og
spennandi að það var ekki annað
hægt en að taka hlutverkinu."
Var mikill munur fyrir ykkur sem
leikara að vinna við teiknimynd,
þurftuð þið að beita annarri tækni?
Kilmer: „Svona mynd er gerð á
löngum tíma og það krefst annars
hugsanaferlis við vinnuna. Ég var í
tvö ár að leika í þessari mynd. Fyrst
ÞAÐ lá vel á Ralph Fiennes þeg-
ar viðtalið fór fram í London.
VAL Kilmer á frumsýning Eg-
ypska prinsins í Los Angeles.
er röddin tekin upp og síðan
nokkram mánuðum síðar kemur at-
riðið aftur fullteiknað og þá er gerð
ný hljóðupptaka og þá er kannski
kominn annar taktur í myndskeiðið
og svona hægt og bítandi þróaðist
myndin."
Var þetta kannski svipað og að -
leika í útvarpi?
Fiennes: „Já, að mörgu leyti, fýrir
utan þessa hægu þróun og mögu-
leikinn á að þreifa sig áfram og
prófa mismunandi útgáfur þegar
„útvarpsleikritið" kom aftur með lif-
andi myndum. Það voru svo miklu
meiri möguleikar á að gefa af sér og
taka virkan þátt í persónusköpun-
inni; mér fannst ég vera partur af
heildinni sem vann að þessari
mynd.“
Hvernig fannst ykkur að vinna -
saman án þess að nokkurn tím-
ann hittast?
Kilmer: „Það var „öðruvísi" efth’
að við höfðum báðir lokJð við eitt-
hvert ákveðið atriði, þá gátum við
tekið það aftui' og aftur og spilað á