Morgunblaðið - 28.01.1999, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Blendingur af langreyði og
steypireyði veldur ágreiningi
Bandarískir vísindamenn segja veiðina
árið 1989 ólöglega - Hafrannsóknastofn-
un segir veiðar og sölu kjöts löglega
BANDARÍSKIR vísindamenn telja
sig hafa sannað_ ólöglegar veiðar á
steypireyði við Island árið 1989 og
sölu kjöts af hvalnum í Japan. Það
hafa þeir gert með því að bera sam-
an erfðavísa úr sýni teknu úr hvaln-
um við erfðavísa úr öðru sýni, sem
tekið var úr hvalkjöti í stórmarkaði í
Osaka í Japan. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Hafrannsóknastofnun var
blendingur langreyðar og steypi-
reyðar veiddur á meðan hvalveiðar í
vísindaskyni stóðu árið 1989. Ekkert
ólöglegt hafi verið við þær veiðar og
útílutningur á kjötinu fyllilega heim-
ill.
I frétt frá Reuters-fréttastofunni
er haft eftir vísindamönnunum að
þrátt fyrir alþjóðlegt veiðibann hafi
þessi friðaða hvalategund verið
veidd undir yfirskini vísinda og kjöt-
ið selt í ágóðaskyni. Segjast þeir
Frank Cipriano og Stephen Palumbi
hjá „The Center for Conservation
and Evolutionary Genetics" við Har-
vard-háskóla hafa getað rakið ævi-
feril þessa tiltekna hvals, sem þeh'
nefna „númer 26“, frá því hann var
getinn í Norður-Atlantshafi 1964 og
fæddur árið eftir til þess að hann var
veiddur 24 ára gamall, 21,5 metra
langur og ófrjór.
Gísli Víkingsson, dýrafræðingur á
Hafrannsóknastofnun, segir að við
vísindaveiðarnar á árunum 1986 til
1989 hafi í fyrsta sinn veiðst svo þá
væri vitað blendingar langreyðar og
steypireyðar. Einn þessara blend-
inga hafi veiðst árið 1989 og fengið
númerið 26. Fjölmörg sýni hafi verið
tekin úr honum og nokkur óvissa
ríkt um það í fyrstu hvort hann væri
frjór eða ófrjór, en endanleg niður-
staða hafi sýnt að hann var frjór
þrátt fyrir kynblöndunina. Þremur
árum fyrr hafi til dæmis blendings-
kýr með fóstur veiðst. Greint hafi
verið frá þessum atvikum í alþjóð-
legum vísindatímaritum og líklega
hafi bandarísku vísindamennirnfr
upplýsingar sínar um æviferil hvals-
ins þaðan.
Gísli segir þessi dæmi hafa verið
þau fyrstu um að hvalir einnar teg-
undar ykju kyn sitt með öðrum
hvalategundum úti í náttúrunni, en
dæmi hafi verið um það í dýragörð-
um. Hann segir ennfremur að
blendingar af þessu tagi séu afar
líkir langreyði að ofan og því hafi
þeir verið teknir sem langreyðar,
en á kviðinn séu þeir líkari
steypfreyði.
,A þessum tima var ísland innan
Alþjóðahvalveiðiráðsins og ekkert
ólöglegt við veiðar eða útflutning.
Þótt steypireyðurin hafi verið alfi’ið-
uð við Island fi’á 1960 og reyndar
mefra og minna frá 1915, er Norð-
menn voru langt komnir með stofn-
inn, var þarna ekki um ólöglegt at-
hæfi að ræða,“ segir Gísli Víkings-
son.
Hann sagðist ekki vita til þess að
þessir tilteknu bandarísku vísinda-
menn hefðu fengið sýni úr umrædd-
um hval, en eitthvað væri um það að
sýni úr hvölum væru látin í té til sér-
stakra verkefna, tæpast þó af þessu
tagi.
Forsætisráðherra
í Guyamas
Guyamas. Morgunblaðið.
DAVIÐ Oddsson forsætisráðherra
og föruneyti hans komu á þriðju-
dag til borgarinnar Guyamas í
Sonora-fylki á vesturströnd Mex-
íkó, en þar og í Mazatlan eiga ís-
lensk fyrirtæki hlut í sjávarútvegs-
fyrirtækjum. Á mánudag átti ráð-
herrann fund með stjói-narmönnum
American Scandinavian Founda-
tion á Plaza-hótelinu í New York.
Á flugvellinum í Guyamas tóku
meðal annars ráðamenn Sonora-
fylkis á móti forsætisráðherra og
sögðust fagna viðskiptasamvinnu
Islendinga og Mexíkóa. Um kvöldið
bauð Emesto Zaragoza, samstarfs-
aðili íslensku fyriitækjanna í Naut-
ico-frystihúsinu í Guyamas, ráð-
herra og fylgdarliði hans til kvöld-
verðar en á fimmtudag verður
meðal annars farið í heimsókn í
frystihús Nautico.
Með ráðherranum eru eiginkona
hans, Ástríður Thorarensen, einnig
sendiherra Islands í Bandaríkjun-
um og Mexíkó, Jón Baldvin Hanni-
balsson, og kona hans, Bryndís
Schram, Brynjólfur Bjarnason, for-
stjóri Granda, og kona hans, Þor-
björg Jónsdóttir, auk embættis-
manna.
Forsætisráðherra heldur á föstu-
dag til borgarinnar Mazatlan og
þaðan til Mexíkóborgar á sunnu-
dag. Opinber heimsókn forsætis-
ráðherrahjónanna í Mexíkó hefst
síðan á mánudag og lýkur á þriðju-
dag.
Morgunblaðið/Golli
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra fór í gær í veiðiferð með bátnum
Magnum í boði Ernesto Zaragoza, sem er í samstarfi við Granda og
Þormóð ramma í Guaymas í Mexíkó.
Hagfræðingur VR segir raunveruleg kjör æðstu embættismanna falin
Raunveruleg
laun tvöfalt og
þrefalt hærri
„ÞAÐ er áleitin spurning hvers
vegna launakerfi æðstu embættis-
manna þjóðarinnar þarf að vera
öðruvísi en almennings í landinu og
með þeim hætti að laun þeirra virð-
ast lægri en þau í raun eru. Er verið
að blekkja almenning?" spyr Gunnar
Páll Pálsson, forstöðumaður fjár-
málasviðs Verzlunarmannafélags
Reykjavíkur, í gi-ein í nýjasta tölu-
blaði VR-blaðsins, sem kemur út í
dag. Gunnar bendir á að þær tölur
sem Kjaradómur og forsætisráð-
herra hafa lagt fram um laun æðstu
embættismanna sýni ekki hver raun-
veruleg heildarlaun þessa. hóps eru.
Ekki sé tekið tillit til launaígildis eft-
irlaunaréttinda og ýmissa hlunninda
sem þessi hópur nýtur.
I grein sinni leggur Gunnar mat á
launaígildi eftirlaunaréttinda æðstu
embættismanna, þingmanna og ráð-
herra, miðað við þær reglur sem
gilda á almennum vinnumarkaði og
leiðfr í ljós að raunveruleg mánaðar-
laun séu tvöfalt eða þrefalt hærri en
mánaðarlaunin skv. upplýsingum
Kjaradóms. Þannig séu raunveruleg
laun forseta Islands að eftfrlauna-
réttindum meðtöldum 1.235 þúsund
kr. á mánuði, forsætisráðherra 943
þúsund kr., ráðherra 863 þúsund og
alþingismanna 424 þúsund kr. Við
mat á launaígildi þessa hóps miðar
Gunnar við greiðslur úr lífeyrissjóði
ráðheira og þingmanna fyrir árið
1997. Hann segir að þar sem þessir
lífeyrissjóðir séu algerlega tómir og
sjóðfrnir í reynd hreinir gegnum-
streymissjóðir, gefi heildargreiðslur
lífeyris, að frádregnu framlagi sjóð-
félaga og 6% mótframlagi launa-
greiðenda, góða mynd af launaígildi
lífeyrisréttinda.
„Forseti Islands þarf ekki að
greiða ríkinu, launagi’eiðanda sínum,
skatta af launum sínum. Lífeyris-
greiðslur æðstu embættismanna eru
einnig duldar. Þannig skuldbindur
ríkið sig til að greiða í lífeyrissjóð
um og yfu’ 100% af mánaðarlaunum
á meðan sambærilegt mótframlag
atvinnurekenda á almennum vinnu-
markaði er 6%. Fyrir utan þetta
kemur reglulega fram í fjölmiðlum
að æðstu embættismenn njóta marg-
víslegra hlunninda umfram aðra.
Dæmi eru um að þeir séu sendir í
veikindaleyfi svo mánuðum skiptir
án þess að vera veikir. Stundum fá
þeir einnig ferðakostnað maka og
barna greiddan og jafnvel dagpen-
inga þeim til handa,“ segir í grein
Gunnars.
„En það eru ekki einungis ýmis
hlunnindi sem þeir njóta, heldur
vh’ðast skattyfirvöld fara öðrum
höndum um þá en almenning. Upp-
gjör ýmissa hlunninda virðist vera
skattfrjálsara hjá þeim en öðrum.
Aimenningur þarf að greiða skatta,
t.d. vegna útdreginna vinninga á út-
vai-psstöðvum, en bankastjórar ríkis-
banka komast upp með að fara í lax
án þess að taka viðskiptavini bank-
anna með, án þess að það teljist
hlunnindi hjá skattyfirvöldum," seg-
ir Gunnar ennfremur og segir um-
hugsunai-efni hvort verkalýðshreyf-
ingin eigi að setja það á oddinn í
ki’öfum á hendui’ ríkisvaldinu við
næstu samninga að lífeyris- og
skattalög skuli vera sambærileg og
að ein lög gildi hér á landi.
Vandi 6. bekkjar í
Austurbæjarskóla
Málið
leysist
ekki
NÚ ER orðið ljóst að sú lausn,
sem foreldrar barna í 6. bekk
M.H. í Austurbæjarskóla höfðu
vonast til að fyndist á vanda
bekkjarins, er ekki innan seil-
ingar. Sigi’ún Benediktsdóttir,
móðir nemanda í bekknum,
sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gærkvöldi að hún hefði
fengið staðfest í gær að um-
sjónarkennari bekkjarins,
Maggý Hermannsdóttir, ætlaði
ekki að endurskoða uppsögn
sína.
Foreldrar höfðu boðist til að
veita sjálfir stuðning inn í bekk-
inn fram á vor ef það mætti
verða til þess að kennarinn
endurskoðaði uppsögn sína en
Sigrún sagði að nú væri ljóst að
sú leið væri ekki fær til lausnar.
Kennarinn sagði upp vegna
fjölmennis í bekknum, þar sem
eru 28 nemendur, þar á meðal
þrír ofvirkir og aðrir sem
þarfnast sérkennslu vegna
námsörðugleika.
Alvarlegt ástand
Sigrún Benediktsdóttir sagði
að sér fyndist mjög alvarlegt að
ástandið hafi komist á það stig
að kennarar þui’fi að ganga út
vegna þess að aðstæður séu
ekki nógu góðar. „Það er yfir-
valda að koma inn í málið og
leysa það vegna þess að allt er
þetta háð fjárveitingum," sagði
hún. Sigrún kvaðst fallast á það
með kennaranum að aðstæður í
bekknum hefðu verið erfiðar að
ráða við og nemendur of margir
miðað við aðstæður. „Best hefði
verið ef kennarinn hefði fengið
stuðning allan tímann, ekki
bara þessar 16 stundir á viku.“
Ovíst er hvað verður í málum
bekkjarins eftir mánaðamót því
nýr kennari hefur ekki verið
ráðinn.
Ófremdarástand
í húsnæðismálum
Sigrún vildi að fram kæmi að
hún og þefr foreldrar sem hún
sé í sambandi við vilji ekki
gagnrýna skólastjórann og
kennara skólans vegna ástands-
ins enda vinni þeir gott starf við
erfiðar aðstæður; í kennara-
hópnum sé góður andi og þetta
virðist vera góðui- vinnustaður.
Hún sagði hins vegar að sér
vfrtist sem fræðsluyfirvöld
hefðu getað gert meira.
Ljóst væri hins vegar að
ófremdarástand ríkti í húsnæð-
ismálum skólans og ekki yrði
pláss fyrir alla nemendur næsta
haust. Hún sagðist binda vonir
við að hægt yrði að koma mál-
um þannig fyrir að skólinn
fengi húsnæði Vörðuskóla til
ráðstöfunar fyrir haustið eða þá
að komið yrði upp lausum stof-
um á skólalóðinni.
12 5jjSftjjfö
VIDSIflFn ÆMNNULÍF
LÁNASÝSLA
Spari-
skírteini
Engu tilboði
tekið/B2
Með blaðinu f dag fylgír 16 síðna
bæklingur frá ríkisstjórn íslands,
„Hálendi íslands - fjársjóður
þjóðarinnar“.
Drátturinn í HM í handknattleik
í Egyptalandi/C1
HK-menn stöðvuðu sjö leikja
sigurgöngu Stjörnunnar/C3
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is