Morgunblaðið - 28.01.1999, Qupperneq 16
16 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Kennarar semja
í Þorlákshöfn
Þorlákshöfn - Kennarar í grunn-
skólanum í Þorlákshöfn og sveitar-
stjóm Ölfushrepps hafa náð sam-
komulagi um viðbót við gildandi
kjarasamning. Viðbótin felur í sér
hækkun sem er á bilinu 11-14%.
Þeir fá mest sem lengstan starfs-
aldur hafa.
Samningaviðræður hafa staðið
yfir síðan í haust. Ekki kom til
þess að kennarar við skólann
segðu upp störfum til að leggja
áherslu á kröfur sínar. Tilboði sem
kennaramir fengu fyrir áramót var
hafnað en nú var tilboðið samþykkt
með 22 atkvæðum gegn 2.
Sesselja Jónsdóttir sveitarstjóri
sagði að hún teldi almenna ánægju
ríkja með samkomulagið, búið
væri að samþykkja það í hrepps-
ráði. Sveitarstjórnin á eftir að
fjalla endanlega um málið en engin
ástæða er til að ætla annað en það
verði samþykkt þar, sagði Sess-
elja.
Heildaraukning útgjalda sveit-
arfélagsins vegna þessa viðbótar-
samnings er á fimmtu milljón.
Eldd er fyrirhuguð hækkun gjalda
í Ölfushreppi í ár.
Stórgjöf til Safna-
hússins á Húsavík
Húsavík - Nýlega barst Safnahús-
inu á Húsavík stór dánargjöf, 20
millj. kr., frá Jóni Jónassyni
bónda og hreppstjóra á Þverá í
Laxárdal.
Jón fæddist 29. október 1935 en
lést 1. október sl. Hann var bóndi
á Þverá alla sína starfsævi en
gegndi jafnframt ýmsum trúnað-
arstörfum fyrir sitt sveitarfélag og
sýslu sem og ýmsar stofnanir í
Suður-Þingeyjarsýslu. A Þverá er
enn ein af fáum bændakirkjum í
landinu og hefur svo verið í fleiri
ættliði.
Eins og þeim er kunnugt sem
þekkja til byggingarsögu Safna-
hússins á Húsavík hefur uppbygg-
ing þess mikið byggst á framlög-
um frá einstaklingum, félagasam-
tökum og fyrirtækjum. Hafa
fjölmargir gefið til Safnahússins
þau 32 ár sem liðin eru frá því að
framkvæmdir hófust.
Dánargjöf Jóns Jónassonar er
ein allra stærsta gjöfin sem borist
hefur og gefur stjórnendum
möguleika á að hraða ýmsum
verkum sem beðið hafa árum sam-
an og má þar nefna að koma upp
fullkomnu öryggiskerfi í Safna-
húsið.
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
SLÖKKVILIÐ Brunavarna Rangárvallasýslu við nýja slökkvibílinn.
Nýr slökkvibíll hjá Bruna-
vörnum Rangárvallasýslu
Hvolsvelli - Nýr og fullkominn
slökkvibíll hefur verið tekinn í
notkun hjá Brunavörnum
Rangárvallasýslu bs. Bfllinn er af
MAN gerð, fjórhjóladrifínn 460
hö. og er að sögn Agústar Inga
Ólafssonar sveitarsljóra Hvol-
hrepps einn fullkomnasti slökkvi-
bfll landsins og tvímælalaust einn
sá öflugasti.
BíIIinn er með 3.400 1 vatnstank
og 100 I froðutank, og þrýstidæl-
um samkvæmt nýjustu kröfum.
Það var norska fyrirtækið Rosen-
bauer sem byggði yfir bflinn.
Að sögn Agústar Inga er
langþráðum áfanga náð í bruna-
vörnum í Rangárvallasýslu með
tilkomu bflsins. Atta af tíu sveit-
arfélögum sýslunnar hafa lagt
ákveðið gjald í sjóð til að fjár-
magna kaupin og kostar bfllinn
með öllum búnaði 15,3 milljónir
eða 19 milljónir með vaski og er
þá meðtalinn búnaður sem
Rauðakrossdeild Rangárvalla-
sýslu gaf, en það eru bflaklippur
og björgunarbúnaður fyrir 1,5
milljónir.
Böðvar Bjarnason er nýráðinn
slökkvistjóri hjá Brunavörnum
Rangárvallasýslu í 30% starf og
einnig hafa verið gerðir samning-
ar til að bæta kjör slökkviliðs-
manna hjá Brunavörnum Rangár-
vallasýslu.
Kolbrún Yr
íþróttamað-
ur Akraness
Akranes - Sunddrottningin Kol-
brún Yr Kristjánsdóttir var út-
nefnd íþróttamaður Akraness
1998 við hátíðiega athöfn sem
fór fram í Iþróttahúsinu á Jað-
arsbökkum á þrettándanum.
Hlaut hún að launum Friðþjófs-
bikarinn, sem nú var afhentur í
20. sinn
Hvert aðildarfélag IA tilnefn-
ir sinn íþróttamann og í lok árs-
ins voru þeir tíu að þessu sinni.
Ur þeim hópi er svo valinn sá er
hlýtur sæmdarheitið Iþrótta-
maður Akraness. Eins og áður
segir var Kolbrún Yr valin að
þessu sinni, en næstur var
kylfingurinn Þórður Emil Ólafs-
son og í þriðja sæti Steinar Ad-
olfsson knattspyrnumaður.
Þrátt fyrir ungan aldur er
Kolbrún Yr í hópi bestu sund-
kvenna landins, því auk glæsi-
legs árangurs á sundmótum
heima og erlendis, setti hún
þrjú Islandsmet í kvennaflokki
og átta íslensk telpnamet. Þá
varð hún margfaldur Islands-
meistari í flokki kvenna og ung-
linga.
Samráð kennara
á Snæfellsnesi
Hellissandi - Kennarar á norðan-
verðu Snæfellsnesi hafa tekið upp
á því að halda reglulega sam-
starfs- og samráðsfund fyrir
kennara við skólana í þorpunum á
norðanverðu Nesinu. Síðasta
fund sóttu um níutíu kennarar af
Hellissandi, úr Ólafsvík, Grund-
arfirði og Stykkishólmi.
Síðastliðinn föstudag fór slíkur
samráðsfundur fram í Grunn-
skóla Hellissands. Þar gafst
kennurunum tækifæri til að bera
saman ráð sín og ræða málefni
nemenda og einstakra bekkjar-
deilda.
Fyrirlesari á fundinum var
Guðni Kolbeinsson íslensku-
fræðingur. Fjallaði hann um lest-
ur og hvernig megi auka lestrar-
hraða og lesskilning.
Að fyrirlestrinum loknum lét
hann kennarana reyna aðferðir
sínar og greindist strax verulegur
árangur. Samstarfs- og samráðs-
fundi kennnaranna lauk með
sameiginlegri samverustund í
Félagsheimilinu Röst.
Morgunblaðið/Ólafur Jens Sigurðsson
FRÁ sainstarfs- og samráðsfundi kennara á Snæfellsnesi.
Grunnskólanemar á Selfossi mótmæla
Morgunblaðið/Sig. Fannar.
NEMENDUR grunnskólanna ásaint Gísla Sigurðssyni, fulltrúa kenn-
ara, afhenda Ingunni Guðmundsdóttur, forseta bæjarstjórnar Árborg-
ar, mótmæli vegna launadeilu sveitarfélagsins og grunnskólakennara.
Hörmung-
arástandi
ljúki
Selfossi - Nemendur í 10. bekk
grunnskólanna tveggja á Selfossi,
Sandvíkur- og Sólvallaskóla, gengu
fylktu liði til fundar við fulltrúa
bæjarstjórnar Arborgar til þess að
vekja athygli á því „hörmung-
arástandi" sem yfir þeim vofir eins
og segir í fréttatilkynningu um
málið.
Nemendur skora á bæjaryfirvöld
að beita sér sem fyrst til þess að
leysa megi launadeilu kennara við
sveitarfélagið Ái'borg. í áskorun
grunnskólanema kemur fram að ef
ekki verði gengið að kröfum kenn-
ara þá muni flótti kennara af
svæðinu verða óumflýjanlegur og í
beinu framhaldi muni sveitarfélagið
verða af vel menntuðum og hæfi-
leikaríkum kennurum.
Það var Ingunn Guðmundsdóttir,
forseti bæjarstjórnar Árborgar,
sem veitti áskoruninni viðtöku. Ing-
unn þakkaði krökkunum sýndan
áhuga á málinu. Hún kvað bæjar-
stjórn vera reiðubúna til þess að
gera allt svo að málið hljóti farsæl-
an endi.
Akranes á
Netinu
Akranesi - Heimasíða Akranes-
bæjai' á Veraldarvefnum var
formlega opnuð á þriðjudag. Síð-
an er á slóðinni: http://www.-
akranes.is
Tilgangurinn með heima-
síðunni er að nýta þá tækni og
þægindi sem Internetið býður
upp á við að koma á framfæri
upplýsingum til bæjarbúa og
taka við upplýsingum frá þeim.
Á heimasíðunni er m.a. kynning
á starfsmönnum og starfsemi
bæjarins. Þai' ei-u birtar fundar-
gerðir bæjarstjórnar, bæjan-áðs
og nefnda og frétta- og fróðleiks-
punktar úr stjórnsýslunni. Ytra
útlit og hönnum var unnin af
Hrannari Haukssyni en síðla árs
1998 tók íslensk upplýs-
ingatækni við vefnum. Ritstjóri
efnis er Björn S. Lárusson,
markaðs- og atvinnufulltrúi
Akranesbæjar, en yfirumsjón
með netvæðingu bæjarins hefur
verið í höndum Jóns Pálma Páls-
sonar bæjarritara.