Morgunblaðið - 28.01.1999, Side 22

Morgunblaðið - 28.01.1999, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU RtSM RYMINCAR Qm ÆX VERSLUNIN HÆTTIR á Fosshálsi og því seljum við allan lagerinn með allt að 80% afslætfti Fleece-peysur, jogginggallar, peysur, regngallar, húfur, fleece-húfur, lúffur, vettlingar, bolir, stuttbuxur, bakpokar o.fl. á krakkana. ALLT Á VERULEGA LÆKKUÐU VERÐI. Opid I dag 11-18 • RUSSELL ATHLETIC ►Columbia Sportswear Company* ogföstud. kl. 11-18 HREYSTI —sportvöRunus Fosshálsi 1 - Sími 577-5858 Byggt hjá Farsæli ehf. ÚTGERÐARFYRIRTÆKIÐ Far- sæll ehf. hefur reist nú veiðarfæra- skemmu í Grundarfirði. Byggingar- meistari er Pálmar Einarsson og er skemman um 300 fermetrar að flat- armáli og rúmir 6 metrar á hæð. Bygginarefni er steypa, límtré og yleiningar (einangruð stálklæðn- ing). Farsæll ehf. var stofnað árið 1946 fyrir tilstuðlan Sigurjóns Hall- dórssonar eldri. Alla tíð hefur fyrir- tækið gert út bátinn Farsæl SH 30 en um skeið var útgerðin einnig með Sæbjörgu SH 23 í útgerð. Nýjasti Farsæll SH 30 er 178 rúm- lestir og skipstjóri Sigurjón Hall- dórsson yngri en útgerðarstjóri er Hermann Sigurjónsson. Morgunblaðið/KVM Góð loðnuveiði fyrir austan land Eykur á bjartsýni um góða vertíð GÓÐ loðnuveiði var á miðunum rétt utan Reyðarfjarðardjúps í fyrrinótt og eykur það enn á vonir sjómanna um góða loðnuvertíð. Mörg skipin fengu góð köst, yfirleitt á bilinu 200 til 400 tonn í kasti. Flest skipin fengu fullfermi og voru á landleið í gær. Sveinn Isaksson, skipstjóri á Víkingi AK, segir veiði á þessu svæði hafa komið mönnum nokkuð á óvart, þar sem flestir héldu að nú færi loðnan að veiðast upp á land- grunninu. „Við teljum reyndar fyrstu gönguna komna upp á grunn- ið. Þar virðist hún hafa dreift sér og er ekki í veiðanlegu ástandi. Veiðin í nótt [fyrrinótt] gefur okkur síðan von um að nú sé að ganga meira upp að landinu. Þetta var ágæt loðna og okkur virðist sem hún sé á hægri hreyfmgu suðvestur. Vonandi getum við síðan byrjað „fjörufiskirí- ið“ innan viku ef allt gengur eftir,“ sagði Sveinn. Síldveiði að tregast Nokkur skip eru enn á síldveiðum og hafa Jóna Eðvalds SF og Húna- röst SF síðustu daga reynt við síld- ina með nót í Litladýpi, skammt austan Hvalbaks. Ingólfur Asgríms- son, skipstjóri á Jónu Eðvalds SF, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að talsvert hafi orðið vart við síld á svæðinu en hún gæfi lítið færi á sér. „Hún er ekki mjög þétt og heldur sig djúpt. Við náðum um 120 tonnum á aðfaranótt þriðjudags en höfum ekkert kastað síðan. Við ákváðum síðan að skoða okkur um í Berufjarðarál og Lónsdýpinu áður en við löndum aflanum," sagði Ingólfur. Þá hafa tvö skip reynt við síldina með flottrolli fyrir austan, Beitir NK og Hoffell SU. Beitir NK var í gær kominn með um 300 tonn eftir þrjá daga að veiðum og var búist við að skipið landaði aflanum á Nes- kaupstað í morgun. Þá hefur Óli í Sandgerði AK verið við leit á veiði- svæðinu í Faxaflóanum síðustu daga, en eftir því sem Morgunblaðið kemst næst sést þar nú mun minna til síldarinnar en áður. Síldarkvótinn óbreyttur í tillögum Hafrannsóknastofn- unnar síðasta vor um leyfilegan heildarafla í síld fyrir yfirstandandi fiskveiðiár kom fram að um bráða- birgðatillögu væri að ræða, sem endurskoðuð yrði næsta haust. í sfldarrannsóknaleiðangri sem far- inn var sl. haust mældist sumar- gotssíldarstofninn um 360 þúsund tonn, þar af mældust 70 þúsund tonn á venjulegri síldarslóð út af Austurlandi. Á fornum síldarmiðum út af Snæfellsnesi og Eldey mæld- ust hinsvegar tæp 300 þúsund tonn af kynþroska sfld, auk ókynþroska smásíldar. Sjávarútvegsráðuneyt- inu hefur nú borist endanleg tillaga frá Hafrannsóknastofnuninni og er lagt til að leyfilegur heildarafli verði óbreyttur, eða 90 þúsund tonn á vertíðinni. Loðna sem fór í bræðslu 1984-98 Ár Vetur (jan.- apríl) Sumar-haust (júlí-des.) SAMTALS 1998 1997 1996 1995 1994 1993 1992 1991 1990 1989 1988 1987 1986 1985 1984 634.567 475.280 521.056 485.065 564.957 197.485 579.431 552.127 553.441 457.037 275.113 307.908 54.522 j 173.338 | 83.655 I 50.493 291.780 306.328 830.736 11.325.998 1.166.059 648.618 764.759 937.851 780.491 252.007 663.086 602.620 845.221 763.365 842.424 924.949 817.649 Heildar hráefnismóttaka íslensku fiskimjölsverksmiðjanna 1998 Loðna, síld og kolmunni 998 VERKSMIÐJA Tonn, hlutfall Samherji hf., F&L, Grind. lyiMlftj 4,54% Snæfell hf., Sandgerði jjj 11.916 0,99% SR-mjöi hf., Helguvik BH-líi'H 3,51% Faxamjöl hf., Reykjavík §§§ 17.205 1,43% Har. Böðvarsson hf., Ak. M 7,56% Gná hf., Bolungarvík H 17.872 1,48% Samt.: 1.203.512 tonn VESTURLAND: 234.735 tonn, 19,50% SR-mjöl hf., Siglufirði B-ikii.-HIÉM 4,82% Krossanes, Óiafsfirði 12.900 0,24% Krossanes, Akureyri te¥Uil 3,51% SR-mjöl hf., Raufarhöfn 4,13% Hr.fr.st. Þórshafnar hf. Itiokhiiimfefi 5,85% NORÐURLAND: I | 219.258 tonn, 18,22% Tangi hf., Vopnafirði SR-mjöl hf., Seyðisfirði Síldarvinnslan hf., Nesk. Hr.fr.h. Eskifjarðar hf. SR-mjöl hf., Reyðarfirði Loðnuvinnslan hf., Fáskr. Búlandstindur hf., Djúpav. Ósland hf., Höfn Hornaf. 127.257 2,26% j 5,49% 119.526 1,62% g 27.967 2,32% SUÐURLAND: isf. Vestmannaeyja hf. Vinnslustöðin hf., Vestm. Hafnarmjöl ehf., Þorl.höfn 30.136 2,50% 6,81% 10.267 0,85% 122.417 tonn, 10,17%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.