Morgunblaðið - 28.01.1999, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Með þrumandi hljómi
KAMMERSVEIT Reykjavíkur.
Hátíðartón-
leikar Kammer-
sveitarinnar
TOIVLIST
Seltjarnarncskirkja
LÚÐRAÞYTUR
Blásarasveit Reykjavíkur flutti verk
eftir Tryggva M. Baidvinsson, Þor-
kel Sigurbjörnsson, Jón Leifs og Pál
P. Pálsson. Einleikari: Magnea
Árnadóttir. Stjórnandi: Kjartan
Óskarsson. Laugardagurinn 23. jan-
úar, 1999.
FLOKKASKIPAN hljóðfæra
var fyrrum mjög skýr og markað-
ist af notagildum samfélagsins
hverju sinni, þannig að leikur á
lúðra var fyrrum aðallega tengdur
hernaði, þ.e. útivist, en á tréblást-
urshljóðfæri var leikið innan húss
og þá fyrir dansi og á strengi og
orgel við trúarathafnir. I óperunni
var lúðraþytur notaður við túlkun
stórra atburða, og leikið á tré-
blásturshljóðfæri í öllum undir-
heimasenum en strengirnir fengu
ástaratriðin og orgelið hélt sínu
trúarhlutverki. Þrátt fyrir að hlut-
verkaskipan hljóðfæraleikara sé
ekki lengur bundin við áðurnefnd
atriði, eimir samt eftir með fólki
einhver minning um þessa flokkun
og tónskáldin eru heldur ekki laus
við hana. Aður fyrr réð munur á
leiktækni miklu en nú hafa orðið
svo miklar framfarir í gerð blást-
urshljóðfæra og leiktæknin er orð-
in slík, að allar gerðir hljóðfæra
eru orðnar samstiga, sem í raun
hefur blómstrað bæði í sinfónísk-
um verkum og kammertónlist.
Blásarasveit Reykjavíkur er í
raun það sem kallað er lúðrasveit,
þó þar sé að finna einnig allar
gerðir tréblásturshljóðfæra og jan-
fvel strengi. Eitt af því sem gerir
slíkar sveitir oft þunglamalegar, er
yfirmönnun í einstaka hljóðfæra-
flokkum, sérstaklega tréblásturs-
hljóðfærunum. Það gæti ráðið
miklu um framtíð Blásarasveitar
Reykjavíkur ef vel til tækist, bæði
með vali tónverka og vönduðum
leik. Þrátt fyrir að hljómsveitin sé
nýstofnuð var leikur hennar í heild
nokkuð góður, merkilega hreinn og
hefur stjómandinn, Kjartan
Óskarsson, þama unnið gott starf.
Tónleikar Blásarasveitar
Reykjavíkur sl. laugardag í Sel-
tjarnameskirkju hófust á fmm-
flutningi verks eftir Tryggva M.
Baldvinsson, sem hann nefnir
„Köld sturta“. Þetta er ágætlega
samið verk, hefst með glæsilegum
hætti og inniheldur víða skemmti-
leg blæbrigði, en endar eins og
„allt í ganni“, með smá poppkafla.
Bæði nafngiftin og niðurlag verks-
ins gefa til kynna, að höfundurinn
hafi ekki „í fullri alvöra" trú á list-
rænu gildi tónlistar fyrir blásara-
sveit.
Þetta mátti og heyra í verki Þor-
kels Sigurbjörnssonar, Oretheyja
íyrir flautueinleik og blásarasveit,
því það sem helst einkenndi notkun
hljóðfæranna í verki Þorkels, var
tillitssemin við einleikshljóðfærið,
en á það lék ágætur flautuleikari,
Magnea Amadóttir, sem skilaði
sínu mjög vel og er þetta í fyrsta
skipti sem undirritaður heyrir til
hennar. Þetta er fallega samið verk
og merkilegt nokk, að flautan fær
að fullu notið sín, er sýnir að blás-
arasveit þarf ekki alltaf að þeyta
lúðra sína með heimsenda-krafti,
eins og heyra mátti oft í verki Jóns
Leifs, „Víldngasvar", þar sem Jón
útmálar reiði sína yfir því að vera
hafnað sem þjóðgarðsverði á Þing-
völlum. Þetta er hressilegt verk,
ekta Jón Leifs, heiðið svar gegn
„valdatöku kirkjunnar á staðnum“,
eins og stendur skrifað í raddskrá
verksins, er var í heild mjög vel
flutt og af sannkölluðum heiðnum
krafti.
Konsert fyrir blásara og slag-
verk eftir Pál P. Pálsson er faglega
vel unnið verk og var sérlega vel
flutt undir stjóm Kjartans Óskars-
sonar, sem hefur tamið sér einstak-
lega skýran taktslátt og nær því oft
fram góðum og samstilltum sam-
leik.
Tónleikunum lauk með því að
Köld sturta var endurflutt. Þessir
tónleikar era góð byrjun á starfi
Blásarasveitar Reykjavíkur en trú-
in á slíkt fyrirtæki hlýtur að grand-
vallast á þeirri tónlist sem skal
flytja og með einhverjum hætti, að
mögulegt sé að yfirvinna þann
þramandi leik, sem oftar en ekki er
einum of hljómsterkur, þegar allt
„batteríð fer í gang“. Það liggur í
hlutarins eðli, eins og allt sem er
ofhlaðið, að það verður oftai- bros-
legt en hrífandi. Þrátt fyrir þetta
vora tónleikarnir í heild góðir og
sérlega fróðlegt að heyra Víkinga-
svar Jóns Leifs, sem er í raun
ágætt tónverk og var ótrúlega vel
flutt af hinni nýstofnuðu Blásara-
sveit Reykjavíkur.
Jón Asgeirsson
Vegna mistaka í vinnslu blaðs-
ins, birtust þessir tónlistardóm-
ar ekki í gær.
TONLIST
S a 1 n r i n n
KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR
flutti verk eftir Jón Leifs, John
Speight, Þorkel Sigurbjörnsson og
Atla Heimi Sveinsson. Einleikarar:
Rut Ingólfsdóttir og Erling Blöndal
Bengtsson. Stjórnandi: Guðmundur
Óli Gunnarsson. Sunnudagurinn 24.
janúar, 1999.
Á VEGUM Myrkra músikdaga
vora haldnir í Salnum s.l. sunnu-
dag, hátíðar-tónleikar í tilefni af 25
ára starfsafmæli Kammersveitar
Reykjavíkur, sem á drjúgan þátt í
glæsilegum viðgangi íslenskrar
tónmenntar. Rut Ingólfsdóttir,
fiðluleikari heíúr frá upphafi stýrt
þessum félagsskap og verðm- fram-
lag hennar seint fullþakkað. Tón-
leikarnir hófust á sérkennilegu
verki eftir Jón Leifs, sem hann
nefnir Scherzo concreto op. 58,
mjög líklega háð um tiltekinn fyrir-
lestur, enda má túlka seinni hluta
nafnsins á verkinu, sem storknun
eða steinsteypu, og eins og stendur
í efnisskrá, að „Hlustandinn má
ímynda sér sjálfur hvaða hugsun
liggur að baki verkinu, - og hvort
það sé alvara eða háð“. Þetta verk
er frekar smátt í sniðum en var vel
flutt og helst var af hálfu Jóns lagt
í hlutverk klarinettsins (Einar Jó-
hannesson) og cellósins (Inga Rós
Ingólfsdóttir).
Annað viðfangsefni tónleikanna
var frumflutningur á Djáknanum á
Myrká eftir John Speight, sem er
samið á s.l. ári, fyrir sögumann og
kammerhóp. Sögumaður var Arnar
Jónsson, er átti sinn þátt í ágætum
flutningi verksins. John Speight
velur sögusviðinu þjóðlagið Senn
er komið sólarlag, sem var fallega
flutt á selló (Inga Rós Ingólfsdótt-
ir) og síðan sungið, eða réttara sagt
raulað af öllum flytjendum. Síðan
hófst sagan, fléttuð saman við tón-
list á mjög skemmtilegan máta og
er næsta víst að þetta verk á eftir
að heyrast oftar.
Það má vera tilviljun en ein-
kennilegt nokk, þá eru þjóðlegheit
farin að gægjast fram hjá íslensk-
um tónskáldum, eins og heyra
mátti víða í fiðlukonsert eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson, sem hann
nefnir Umleikur og er tileikaður
Rut Ingólfsdóttur og Kammersveit
Reykjavíkur á 25 ára starfsafmæli
sveitarinnar. Þorkell leikur með
smástef og spinnur úr þeim lagferl-
ishugmyndir, sem undir það síð-
asta minntu á brot úr íslenskum
þjóðlögum og stefjum, sem jafnvel
minntu á austurlensk stef. Verkið
er næstum gegnumunnið sem sam-
leikur fiðlu og kammersveitar, þar
sem fiðluröddin var oft ekki sjálf-
stæð, heldur þátttakandi í stefja-
leik kammersveitarinnar. Það
glampaði oft á sérlega fallegan leik
Rutar, sérstaklega þar sem fiðlu-
röddin var leyst úr viðjum sam-
leiksins og fallegur tónn Rutar
fékk að njóta sín og syngja. í heild
var „konsertinn“ mjög vel fluttur
undir stjóm Guðmundar Ola Gunn-
arssonar.
Lokaverk tónleikanna var fram-
flutningur á sellókonsert eftir Atla
Heimi Sveinsson og þar var ein-
leikari sellósnillingurinn Erling
Blöndal Bengtsson. Kaflar verks-
ins heita Erjur, Orar og Ryskingar
og er tónrænt innhald þess mjög í
samræmi við þau hegðunarmynst-
ur, sem hér era tilgreind. Miðþátt-
urinn, Orar, er þýðasti hluti verks-
ins og töluvert um mystísk blæ-
brigði, sem þar gat að heyra. Alls
konar effektar prýða hina kaflana
og þrátt fyrir að Atli sé mjög
kröfuharður gangvart sellóinu, í
grófri útfærslu tónmálsins, mátti
vel heyra hversu góður sellisti Erl-
ing Blöndal Bengtsson er. Flutn-
ingur var allur hinn skarpasti og
vel mótaður undir stjórn Guð-
mundar Óla Gunnarssonar.
Nú líður að lokum Myrkra
músikdaga, sem haldnir era af
Tónskáldafélagi fslands og þegar
um er litast til heildar tónleik-
anna, þá verður þessi tónlistarhát-
ið munuð fyrir góðan flutning og
forvitnilega efnisskrá. Frumflutt
voru yfir 20 verk, stór og smá en
af öllum ólöstuðum, þá var hlutur
Jóns Leifs sá merkasti og með
þessum Myrku músikdögum, er
næsta víst, að dag fer að lengja í
afstöðu tónleikagesta til tónlistar
Jóns Leifs.
Jón Ásgeirsson
Vestur-íslenskar
skáldkonur í Lögbergi
Á VEGUM Vináttufélags íslands
og Kanada verður opinn fundur í
Lögbergi, Háskóla íslands, stofu
102, í kvöld, fimmtudagskvöld, kl.
20.30.
Helga Kress, prófessor í al-
mennri bókmenntafræði, fjallar
um vestur-íslenskar skáldkonur
úr bók sinni Stúlka: ljóð eftir ís-
lenskar konur. Síðan mun dr.
Jónas Kristjánsson handritafræð-
ingur, fjalla um ævi og örlög Guð-
rúnar Þorbjamardóttur, víðförl-
ustu konu miðalda, úr skáldsögu
sinni Veröld víð.
Aðgangur er ókeypis.
UTSALA
10-70% staðgreiðsluafsláttur af öllum vörum
k
V .|Ééé’
& í <d p-
Hi
Úlpur 20-70% staðgreiðsluafsl.
Barnaúlpur frá kr. 1.950.
Skíðagallar fullorðins frá kr. 4.900.
Skíðahanskar, lúffur og húfur.
íþróttafatnaður og íþróttaskór.
Eldri gerðir af skíðum, stöfum og
skíðaskóm, 20-60% staðgreiðsluafsl.
Rccboh
adidas
pumn
hT.point
CZ3N
Ármúla 40,
símar: 553 5320
568 8860
ferslunin
I
%