Morgunblaðið - 28.01.1999, Side 46
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999
UMRÆÐAN/PRÓFKJÖR
MORGUNBLAÐIÐ
Samfylkingin og
kvennalistinn
NÚ PEGAR Sam-
fylking Alþýðuflokks,
Alþýðubandalags og
Kvennalista er orðin
staðreynd er nauðsyn-
legt að allir sem að-
hyllast kvenfrelsi, jöfn-
uð og félagshyggju
fylki sér um þessa
hreyfingu og veiti
"henni það brautar-
gengi sem þarf til að
hún verði valkostur
gegn hægri öflunum
sem alltof lengi hafa
ráðið ferðinni í stjórn
landsins.
Eg er ein þeirra sem
hef trú á sameiningu
þeirra flokka sem hafa það á
stefnuskrá sinni að samfélagi jafn-
aðar, félagshyggju- og kvenfrelsis.
Eg gleðst því yfir þeim áfanga sem
nú hefur náðst að sameina flokks-
menn um eina stefnu. Hér er einnig
tækifæri fyrir þá sem áður hafa
ekki viljað binda sig einum flokki að
j^oma að, alla þá sem aðhyllast
stefnu sem tryggir jafnrétti og fé-
lagslegan jöfnuð í sem víðustum
skilningi. Nýr vettvangur fyrir
ungt fólk og valkostur fyrir þá sem
ekki aðhyllast hinn harða boðskap
frjálshyggju og peningahyggju.
Þátttaka Kvennalista
Lengi var tvísýnt um þátttöku
Kvennalista í sameiginlegu fram-
boði. Sú niðurstaða sem náðist með
opnu prófkjöri þar sem allir stuðn-
ingsmenn hreyfíngarinnar geta
Tneð atkvæði sínu haft bein áhrif á
það hverjir verða í framboði til
kosninga í vor er að mínu mati
mjög ákjósanleg. Fulltrúar
Kvennalistans hafa
tekið fullan þátt í mál-
efnavinnu og mótun
stefnu Samfylkingar-
innar og þátttakan ver-
ið samþykkt af
Kvennalistakonum.
Kvenfrelsi og
jafnrétti
Ég gef kost á mér í
3.^4. sæti í prófkjöri
Samfylkingarinnar á
Reykjanesi. Markmið
mitt, nái ég kjöri er að
vinna á vettvangi Al-
þingis að kvenfrelsis-
og jafnréttismálum.
Takmarkið er að jafn-
réttissjónarmið verði samþætt í alla
málaflokka og jafnréttis- og kven-
frelsissjónarmið setji mark sitt á
Eg fullyrði að það eru
bein tengsl, segir Birna
Sigurjónsdóttir, á milli
aukinna fjármuna í
menntun og betri ár-
angurs í skólum.
allar ákvarðanir í stjórnmálum og
innan stjórnsýslunnar. Alltof hægt
hefur miðað í að koma á kynjajafn-
rétti og nægir þar að benda á
launamismun kynjanna.
Menntun efld
Mér eru menntamálin hugleikin.
Það þarf að veita mun meiri fjár-
munum í menntun á öllum skóla-
stigum til að við verðum raunveru-
Birna
Sigurjónsdóttir
lega samkeppnisfær á alþjóðavett-
vangi. Við erum í dag að mennta
unga fólkið inn í samfélag sem
verður æ meira alþjóðlegt og þar
höfum við ekki efni á að spara. Ég
fullyrði að það eru bein tengsl á
milli aukinna fjái-muna í menntun
og betri árangurs í skólum. Það er
auðvitað ekki sama hvernig þeim
fjármunum er varið. Þegar litið er á
ytri aðbúnað skólastarfs stöndum
við vel og betur en margar aðrar
þjóðir, námsgagnagerð og kennsla
stenst aftur á móti ekki samanburð.
Það má líkja okkur við þann sem
hefur keypt sér fína tölvu en ekki
tímt að fjárfesta í góðum hugbún-
aði. Hver og einn sér í hendi sér að
það er ekki vænlegt til árangurs.
Umhverfismál
Vemdun umhverfis og ósnortinn-
ar náttúru er mál sem varðar alla
Islendinga. Við eigum stórkostlegt
land og ekki verður við það unað að
farið sé af stað með stórfram-
kvæmdir sem breyta landinu til
framtíðar án þess að fram fari um-
hverfismat. Mat á umhverfisáhrif-
um verður að vera meginregla sem
stjórnvöld geta ekki hhðrað sér hjá.
Ég hvet Kvennalistakonur og
alla jafnaðarmenn, félagshyggju-
fólk og kvenfrelsissinna, hvar í
flokki sem þeir standa að sleppa
ekki því tækifæri sem nú gefst til
að hafa áhrif á röðun á framboðs-
lista í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Reykjanesi sem verður haldið dag-
ana 5. og 6. febrúar nk.
Höfundur er aðstoðarskólastjóri
og býður sig fram í 3. til 4. sæti
í prófkjöri Samfylkingarinnar
á Reykjanesi.
Fjölskyldan
í öndvegi
HEILL og ham-
ingja fjölskyldunnar er
kjami jafnaðarstefn-
unnar. Við viljum að
þegnum þessa lands
séu tryggðar forsend-
ur mannsæmandi lífs-
skilyrða, frá vöggu til
grafar, óháð uppmna
og efnahag. Sérstak-
lega ber að hlúa að
þeim sem standa höll-
um fæti. Áköll öryrkja
og eldra fólks sem býr
langt undir fátæktar-
mörkum er dapurleg
staðreynd. Það er of
algeng sjón á íslandi
að sjá gamalt fólk og
vanheilt ganga um bæinn og leita
að tómum dósum eða flöskum. Vilj-
um við svona samfélag? Ég held
varla.
Við þurfum að stuðla að því að
sérhver einstaklingur fái að njóta
sín um leið og við myndum þéttrið-
ið öryggisnet fyrir þá sem ekki
njóta heilsu eða fullra starfskrafta.
Til að slíkt sé mögulegt verðum
við að leita sem flestra leiða til að
draga björg í sameiginlegt bú, en
endurmeta jafnframt
með hvaða hætti þeirri
björg er skipt á milli
eigenda búsins.
En jafnaðarstefnan
snýst um fleira ef hún
ber nafn með rentu.
Hún snýst ekki síður
um jafnan rétt kynja
til lífs og launa, jafnan
rétt til náms, jafnan
rétt þeirra sem hér
kjósa að stunda vinnu
eða eyða ævikvöldi.
Hún snýst um réttinn
til viðunandi lífs. Eitt
megininntak jafnaðar-
stefnunnar er umburð-
arlyndi og jákvæð lífs-
hugsjón, og við hljótum til dæmis
að beita okkur fyrir því að samkyn-
hneigðir geti brotist úr fjötrum
fordóma og tortryggni og njóti hér
sama réttar og aðrir borgarar. A
sama hátt þarf að tryggja jafnan
bótarétt þeirra sem verða fyrir
áföllum eða heilsutapi og tekju-
missi af þeim sökum. Réttur þeirra
sem t.d. eru haldnir flogaveiki er
nánast enginn í þeim efnum. Þeir
sem eiga við geðræn eða sálræn
Jakob Frímann
Magnússon
Tölvur og tækni á Netinu
& mbl.is
mbl.is
f- ALLTAH eiTTHVAO HÝTl ALLTAf= GiTTHVAé? tJÝTl
vandamál að stríða verða nokk að
borga sín lyf sjálfir.
Ætla mætti að hvers kyns mein-
semdir tengdar mannshöfðinu
hljóti síður en aðrir sjúkdómar við-
urkenningar sem „alvöru“ sjúk-
dómar. Þessu skulum við kippa í
lag.
Heiðra skaltu föður þinn og
móður segir Biblían. Okkur ber að
sýna öldruðum sérstaka virðingu
og nærgætni. Gerum sem bærileg-
ast líf þeirra sem bjuggu í haginn
fyrir okkur og tryggjum þeim kjör
í ellinni sem ekki ganga gegn
sjálfsvirðingu þeirra. Langir
Bjóðum öldruðum,
óháð efnahag, segir
Jakob Frímann
Magnússon, ódýrt hús-
næði, niðurgreitt raf-
magn, hita og síma.
biðlistar eftir vistun við hæfi eru
lítilsvirðing við aldraða borgara.
Og þar til okkur tekst að lækka
verð á matvælum og annarri nauð-
synjavöru er það réttlætismál að
takmarka eftir föngum fasta út-
gjaldaliði þeirra sem komnir eru á
efri ár. Knýjum á um að fleiri fylgi
fordæmi Ríkisútvarpsins sem býð-
ur öldruðum lægri afnotagjöld:
Bjóðum öldi-uðum, óháð efnahag,
ódýrt húsnæði, niðurgreitt raf-
magn, hita og síma.
Beitum okkur þó fyrst og fremst
fyrir því að hinir eldri fái notið sín
til fulls, að haft sé ofan af fyrir
þeim er kraftar fara þverrandi og
að þeir gleymist ekki hreinlega inn
á öldrunar- og sjúkrastofnunum.
Örvum samskipti hinna yngstu og
hinna elstu með skipulögðum
hætti. Það mun koma báðum vel.
Höfundur gefur kost á sér í2. sæti
í Alþýðuflokkshólfinu á lista
Síimfylkingarinnur.
Prófkjör
Útdráttur greina um prófkjör vegna alþingiskosninga vorið 1999.
Greinarnar eru birtar í heild á Netinu www.mbl.is
• •
Ossur til
forystu
Stefán Jóhann Stefánsson,
hagfræðingur og formaður
knattspyrnudeildar IR, skrifar:
Það er ánægju-
legt að sjá hve
margir frambæri-
legir einstaklingar
gefa kost á sér til
starfa fyrir Sam-
fylkinguna í
Reykjavík. Við
þurfum á þeim öll-
um að halda, en ég
tel að einn sé best
til þess fallinn að leiða listann sök-
um foringjahæfileika sinna; Össur
Skarphéðinsson.
Össur hefur sýnt það sem þing-
maður að hann hefur lag á að stýra
málum vel til lykta, hann er glöggur
og fljótur að setja sig inn í mál og
finna þær lausnir sem best henta.
Hann er kraftmikill ræðumaður,
geðþekkur og skemmtilegur. Össur
þekkir af eigin reynslu kjör fólks til
sjávar og sveita, hann er víðsýnn og
baráttumál hans spanna allt hið
pólitíska svið. Reynsla hans og per-
sónulegir eiginleikar gera hann að
þeim mikilhæfa stjómmálaforingja
sem við verðum að hafa í forystu á
nýrri öld. Þess vegna skora ég á
Reykvíkinga að mæta á kjörstað 30.
janúar og setja Össur í sæti númer
eitt.
Bryndísi til
forystu i sam-
fylkingunni
Guðmundur Þ. Jónsson,
formaður Iðju, skrifar:
Bryndís Hlöð-
versdóttir hefur
sinnt réttindamál-
um launafólks á AI-
þingi eftir föngum,
enda býr hún að
þekkingu á málefn-
um verkalýðs-
hreyfingarinnar
Guðmundur Þ. eftir störf á vegUm
Jónsson Alþýðusambands
Islands. Frá sjónarhóli okkar launa-
fólks er mikilvægt að á Alþingi sé
fólk sem hefur reynslu af starfsemi
samtaka okkar.
Laugardaginn 30. janúar n.k.
gefst öllum Reykvíkingum sem hafa
kosningarétt kostur á að taka þátt í
sögulegu prófkjöri þar sem í fyrsta
sinn er valið á sameiginlegan fram-
boðslista Alþýðubandalags, Alþýðu-
flokks og Kvennalista til Alþingis.
Ég tel að Bryndís sé vel til þess
fallin að gegna forystuhlutverki á
lista samfylkingarinnar í Reykjavík.
Hún myndi sóma sér vel sem odd-
viti listans og tryggja það að sjónar-
mið launafólks og verkalýðshreyf-
ingar hljómi sterkt í samfylking-
unni.
Ég vel Bryndísi til forystu í
Reykjavík og hvet aðra þátttakend-
ur í prófkjörinu að gera slíkt hið
sama.
Mörd í
2.-3. sæti
Duvíð Þór Jónsson, ritstjóri
í Reykjavík, skrifar:
Mig langar að
vekja athygli á
frambjóðanda sem
berst ekki mikið á
en þeim mun meira
býr í. Þetta er
Mörður Árnason,
en hann er í hópi
þeirra sem ávallt
hafa farið fram á
sem nánast sam-
starf vinstra fólks, jafnvel áður en
það komst í „tísku“ að setja hug-
sjónir sínar ofar forpokaðri flokks-
hollustu. Mörður er víðsýnn og gáf-
aður, greindur og vel máli farinn,
eins og allir vita, sem fylgdust með
kappræðum hans og Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar á Stöð 2.
Þar talaði Mörður jafnan af skyn-
semi og yfirvegun þess sem veit að
hann veit betur.
Mörður er búinn þeim kostum
sem krefjast verður af leiðtogum
okkar á þeirri öld sem nú er í eld-
ingu. Því er brýnt að hann njóti
þess stuðnings sem hann verðskuld-
ar. Ég hvet alla sem taka þátt í
prófkjörinu til að velja Mörð Árna-
son í 2. eða 3. sæti listans.
►Meira á Netinu
Jóhanna
Sigurðardóttir
áfram á þingi
Þóra Guðmundsdóttir, fornmður
Félags einstæðra foreldra, skrifar:
A ráðstefnu sem
Félag einstæðra
foreldra hélt í
Hveragerði í nóv-
ember s.l. kom í
ljós að einstæðir
foreldrar standa
ekki eingöngu ver
en aðrir þjóðfélags-
hópar, heldur hef-
ur bilið milli þeirra
og sambúðar- og hjónafólks verið að
breikka hin síðari misseri. Stjórn-
völd hafa ekki sýnt áhuga á að bæta
stöðu barnafjölskyldna en fjölskyld-
ur einstæðra foreldra eru lakast
settar á Islandi. Þannig hafa ein-
stæðir foreldrar því aðeins þriðj-
unga launa hjónafólks og laun
þeirra hækkuðu aðeins um 5,66%
milli áranna 1996 og 1997 meðan
laun hjóna hækkuðu um 7,05% á
sama tíma. Jóhanna Sigurðardóttir
er einn fárra alþingismanna sem
hafa látið málefni einstæðra for-
eldra til sín taka. Hún hefur m.a.
flutt tillögu um að einstæðir foreldr-
ar fái heimild til að nýta sér ónýttan
persónufrádrátt barna á aldrinum
16 til 19 ára sem eru á framfæri
þeirra. Þetta er réttlætiskrafa sem
miðar að því að jafna kjör bamafjöl-
skyldna í landinu. Við megum ekki
missa málsvara okkar út af þinginu.
Bryndísi til
forystu
Egill Eyjólfsson, menntaskólancmi,
skrifar:
í fyrsta sinn í
sögu íslenska lýð-
veldisins gengur
félagshyggjufólk til
lýðræðislegra
kosninga undir ein-
um fána. Samfylk-
ing vinstri manna
er að verða að
veruleika og það er
lífsnauðsynlegt að
ungt fólk taki afstöðu til allra þeirra
hápólitísku álitaefna sem nú eru á
dagskrá. Nægir að nefna sjávarút-
vegsmál, hálendismál, heilbrigðis-
og menntamál.
Hér í höfuðborginni munum við á
laugardaginn velja okkur forystu-
menn í samfylkingu vinstri manna
og skiptir miklu hvernig til tekst.
Oddviti listans í Reykjavík þarf að
sameina reynslu og að hafa skilning
á sjónarmiðum yngra fólks. Bryndís
Hlöðversdóttir er stjórnmálamaður
sem hefur alla burði til að gegna
slíku hlutverki. Stefnumál hennar
um jöfn tækifæri, samhjálp og heil-
brigða samkeppni án forréttinda
eru einmitt þau mál sem skipta
mestu máli fyrir ungt fólk.
Kjósum Bryndísi Hlöðversdóttur
í 1. sæti samfylkingarinnar á laug-
ardaginn. Hún er traustsins verð.
Davíð Þór
Jónsson
Þóra
Guðmundsdóttir