Morgunblaðið - 28.01.1999, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 28.01.1999, Qupperneq 48
M8 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ Prófkjör Útdráttur greina um prófkjör vegna alþingiskosninga vorið 1999. Greinarnar eru birtar í heild á Netinu www.mbl.is Eldri borgarar styðja Jóhönnu Ásta Þórðardóttir, fyrrverandi félagsráðgjafi, skrifar: Ég fullyrði að enginn alþingis- maður hefur lagt meira af mörkum varðandi hagsmuni aldraðra en Jó- hanna Sigurðar- dóttir. Nú eigum við von á að hún leggi fram fram- varp á Alþingi sem felur í sér lækkun skatta á lífeyris- sjóðsgreiðslur. Pað yrði þá mesta kjarabót fyrir þennan aldurshóp um áratugaskeið. Enginn vafi leikur á að hún mun berjast fyrir því máli af þeim dugnaði sem hún er þekkt fyr- ir. Reyndar geta fleiri hópar en elli- lífeyrisþegar þakkað Jóhönnu Sig- urðardóttur óbilandi dugnað og ár- vekni í málaflokkum sem snerta líf- —*tyrismál, jafnréttismál og velferð yfirleitt. Hún hefur ævinlega látið sig málefni fatlaðra miklu varða, fjölskyldufólks, unga fólksins í hús- næðisöflun og lífsbaráttu hins al- menna launþega. Þess vegna förum við á kjörstað næstkomandi laugar- dag og kjósum Jóhönnu Sigurðar- dóttur í 1. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík. ►Meira á Netinu .Kjósum Huldu til forustu innan Sam- fylkingarinnar! Guðrún Sigurjónsdóttir, fisverkunarkona, skrifar: Hulda Ólafsdótt- ir gefur kost á sér í prófkjöri Samfylk- ingarinnar í Reykjavík í hólfi Kvennalistans. í starfi sínu hjá Vinnueftirliti ríkis- ins hefur hún kynnst vinnuað- stöðu fjölmargra starfshópa í landinu. Hún hefur lagt sig fram við að benda á hve slæm vinnuaðstaða margra starfshópa er. Má þar sérstaklega benda á vinnu- aðstöðu fiskverkunarkvenna sem vinna við flæðilínu. Ég hef unnið við fiskvinnslu stóran hluta starfsævi minnar. Hulda hefur margoft talað máli okkar við mörg tækifæri bæði innanlands sem utan. Hún lætur sig varða hvernig vinnuaðstaða okkar er. Fiskverkunarfólk og annað verkafólk, ég hvet ykkur til að kjósa Huldu í 1-2 sæti í komandi prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Dyggari og betri talsmann á Alþingi fáum við ekki. Kjósum Huldu til forustu! Formann Sjálfsbjargar á þing Sigurður Pdlsson, Hátúni 10, skrifar: Nú liggur fyrir að Amór Péturs- son, formaður Sjálfsbjargar, landsambands fatl- aðra, hefur gefið kost á sér í 1.-3. sæti hjá Alþýðu- bandalaginu inn á lista Samfylkingar- innar. Það væri ómetanlegt fyrir alla ^réttinda- og kjarabaráttu öryrkja að maður með hans reynslu og þekkingu á málefnum öryrkja ætti sæti á Alþingi. Arnþór slasaðist í bílslysi 13.1. 1971 og hef síðan verið bundinn við hjólastól, hann hefur starfað sem fulltrúi hjá Trygginga- stofnun ríkisins frá því í júlí 1974. Amór hefur unnið að félagsmál- um fatlaðra í mörg ár og verið þar í trúnaðarstörfum. Þeir sem þekkja málin af eigin raun og þau hafa brunnið á þeirra eigin skinni ættu að vera mun fær- ari um að gæta slíkra hagsmuna en aðrir. Ég skora því á alla sem láta sig þessi málefni varða að stuðla að því á allan hátt að Amór komist á þing og er fyrsta skrefið að kjósa hann í komandi prófkjöri Samfylk- ingarinnar. Kjósum Vilhjálm H. Unnur Brá Konráðsdóttir háskóianemi skrifar: Hinn 30. janúar gefst öllum Reykvíkingum átján ára og eldri kostur á að velja fulltrúa á fram- boðslista Samfylk- ingarinnar í Reykjavík. Próf- kjörið er öllum opið og því lag að velja fulltrúa okkar kynslóðar á Alþingi Islendinga. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, laga- nemi, hefur gefið kost á sér í próf- kjörinu en hann hefur verið virkur í hagsmunabaráttu námsmanna um árabil. Sem formaður Stúdentaráðs og fulltrúi námsmanna í stjórn Lánasjóðsins. Því þekkir Vilhjálmur vel kjör og aðstæður ungs fólks og barnafólks, sem á stundum virðist þurfa að velja á milli náms og hús- næðis. Því ástandi þarf að breyta en það gerist ekki nema rödd okkar heyrist í sölum Alþingis og vil ég hvetja alla til að kjósa Vilhjálm í próíkjörinu í lok janúar. Okkar mann á Alþingi. Stuðmann á þing Ingi Hans Jónsson, handverksmaður á Grundarfirði, skrifar: Nú við samruna íslenskra jafnaðar- mannaflokka gef- ast sérstæð tæki- færi. Sum þessara tækifæra eru fólgin í uppgjöri á brest- um fortíðarinnar. Önnur í tækifærum framtíðarinnar. Því miður var of miklu púðri eitt í það í fyrra og of margir héldu að allt þetta snerist um þá sjálfa, aðrir sáu sóknarfærin. Þótt okkur virðist sem hin nýja hreyfing leggi upp af minni krafti en vonir stóðu til má sjá bjarma við sjón- deildarhring. Von um ný færi með nýjum mönnum. Jakob Frímann Magnússon stuðmaður burstar nú skóna albúinn til að takast á hendur að verja gildi nýrrar jafnaðar- mennsku. Þetta er óvenjulega vel boðið. Þarna er nefnilega á ferð maður sem í senn er bráðgreindur, heiðarlegur og duglegur. Um Jakob hafa löngum leikið vindar nýrra strauma og hárra markmiða. Sá sem einhvem tímann hefur verið honum samvista veit að með honum munu íslensk stjórnmál fá nýtt yfir- bragð. Yfirbragð sem mun verða til þess að auka virðingu alþingis og ís- lenskra stjómmála. Þið kjósendur sem eigið þess kost, hikið ekki við það veita nýrri hreyfingu það glæsilega veganesti að velja Jakob Frímann til þing- framboðs. Guðrún Siguriónsdóttir Sigurður Pálsson Ingi Hans Jónsson Jafnrétti kynja á Alþingi Elísabet Þorgeirsdóttir, lega reynsla af Ástu Ragnheiði er sú að hún er sanngjörn og hrein- skiptin og hennar hjartans mál er að standa vörð um og bæta hag þeirra sem einhverra hluta vegna hafa farið halloka í lífsbaráttunni. Ollum er nú að Það yrði alvarlegt mál fyrir þjóðina verða ljóst mikil- ef einn helsti talsmaður lífeyrisþega vægi þess að hlut- dytti út af þingi. fall kynjanna á Al- Ég hvet því alla þá Reykvíkinga, þingi sé sem jafn- sem vettlingi geta valdið að fara í ast en tilvera prófkjör, greiða Ástu atkvæði sitt Kvennalistans hef- og trvggja bar með áframhaldandi ur frá upphafi mið- þingsetu hennar, lífeyrisþegum til að að því. Guðný hagsældar. Svandís Sigurðardóttir Eiísabet Guðbjörnsdóttir er Þorgeirsdóttir sköruleg þingkona sem hefur látið til sín taka á Al- þingi. Hún hefur beitt sér sérstak- lega fyrir málum sem brenna á kon- um og vakti með eftirminnilegum hætti athygli á því ójafnvægi sem ríkir á milli kynjanna í nefndum og stöðuveitingum á vegum ráðuneyta og í nefndum um málefni kirkjunn- ar. í sama dúr var þingsályktunar- tillaga hennar um jafnréttisfræðslu fyrir æðstu ráðamenn þjóðarinnar. Ér vonandi að slíkum námskeiðum verði komið á sem fyrst en mikill ár- angur var af þeim í Svíþjóð. Undan- farin tvö ár hefur Guðný Guð- björnsdóttir beitt sér af alefli fyrir sameiningu félagshyggjufólks og kvenfrelsissinna og er árangur þeirrar vinnu að skila sér nú. Með Guðnýju í forystuliði Samfylkingar- innar er hægt að vænta glæsilegs kosningasigurs í vor. Setjum Guð- nýju í 1. sæti Kvennalistans í próf- kjörinu. Þjóðin þarf Ástu Ragnheiði Svandís Sigurðardóttir lektor, Langholtsvegi 156, skrifar: Það þarf í raun- inni lítið að skrifa um Astu Ragn- heiði, alþingis- mann, því hún hef- ur nú þegar kynnt sig svo vel sjálf með verkum sínum á Alþingi. Allir, hvar í flokki sem þeir standa, hafa tekið eftir skeleggri framgöngu hennar á þinginu og einlægum áhuga hennar á að bæta hag hinna lægra settu. Asta Ragnheiður skipt- ir sér af ótrúlega fjölbreytilegum málum, hvort sem það eru land- verndarmál, samgöngumál, kirkju- mál, bankamál, öryggismál eða ann- að, rétt eins og henni sé ekkert mannlegt óviðkomandi. Vasklegast hefur hún þó gengið fram í heil- brigðis- og tryggingamálunum, enda helst hægt að bæta og jafna kjörin með þrotlausri vinnu í þeim málum. Ásta er orðin sérlega fróð um stöðu heilbrigðis- og trygginga- mála og hefur m.a. kennt háskóla- nemum um þau efni undanfarin ár. Það er brýnt fyrir þjóðina að hafa Ástu Ragnheiði áfram á þingi. Hún hefur beðið um stuðning í 2. sæti hjá Alþýðuflokknum og við eigum endilega að hlýða því kalli í próf- kjöri Samfylkingarinnar, laugar- daginn 30. janúar. Astu Ragnheiði i annað sæti Auður Guðjónsdóttir, Nesbala 56, Seltjarnarnesi, skrifar: Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir sem gefrn- kost á sér í annað sæti í prófkjöri félags- hyggjufólks í Reykjavík er ötull baráttumaður þeirra sem treysta þurfa á almanna- tryggingar sér til framfærslu. Með störfum sínum á Alþingi hefur hún sýnt og sannað að hún stendur öllum þingmönnum framar hvað snýr að þekkingu og skilningi á reglugerðarfrumskógi almannatrygginga. Mín persónu- Auður Guðjónsdóttir Hennar tími er kominn Gunnar Þórðarson, Oldugötu 11, skrifar: í prófkjöri Sam- fylkingarinnar í Reykjavík er boðið upp á marga góða kosti. En mér er ljúft og skylt að undirstrika sér- staklega nauðsyn þess að 1. sæti list- ans skipi Jóhanna Sigurðardóttir. Hún hefm’ lengst allra staðið vörð um þá grandvallarþætti réttláts þjóðfélags sem gera það að siðuðu samfélagi. Jóhanna hefur barist fyr- ir málstað öryrkja og gamalla, fjöl- skyldufólks og barna. Hún hefur oftsinnis þurft að heyja baráttuna í andstöðu við nánasta umhverfi sitt og með storminn í fangið. En hún hefur aldrei látið bilbug á sér finna. Jóhanna Sigurðardóttir hefur einnig sýnt það og sannað að hún er trausts kjósenda verð, þegar hún hefur sinnt því aðhaldi að fram- kvæmdavaldinu á Alþingi sem flest- ir telja að sé alger forsenda lýðræð- isþjóðfélags. Menn virða hana fyrir þessi stjórnmálastörf hvar í flokki sem þeir standa. Jóhanna Sigurðar- dóttir stendur auk þess djúpum rót- um í hreyfingu félagshyggju og jafnaðar og hefur verið leiðandi í þein-i þróun sem leiða mun til stórr- ar breiðrar samfylkingar allra vinstri manna á íslandi. Enginn er betur til þess fallinn að leiða lista Samfylkingarinnar í höfuðborginni. Jóhönnu í 1. sæti - hennar tími er kominn! Guðný og Kvennalistinn Hulda Björg Sigurðardóttir, Hálsaseli 10, Reykjavík, skrifar: Árið 1994 gekk ég til liðs við Kvennalistann. Ekki endilega af því að ég ætlaði að hasla mér völl í stjórnmálum held- ur fannst mér Kvennalistinn vera Huida Björg sá vettvangur þar Sigurðardóttir gem unnið værj markvisst að réttindamálum kvenna. Á það bæði við vinnumark- að og launamál, stöðu innan stjórn- sýslunnar og ekki síst hinar hefð- bundnu undirstöðustofnanir, hjóna- band og fjölskyldu. Á þessum tíma var ég komin með yfir tuttugu ára reynslu af þessum hlutum og þeim vandamálum sem fylgja því fyrir konur að reyna að flétta saman heimilisrekstri og barnauppeldi annars vegar og atvinnu og stöðu sinni á vinnumarkaði hins vegar. Ég var svo heppin að fá strax í upphafi tækifæri til að starfa með Guðnýju Guðbjömsdóttur sem nú er alþing- ismaður fyrir Kvennalistann. 1994 var orðin knýjandi þörf fyrir Kvennalistann að endurskoða starfsaðferðir sínar í stjórnmálum og ennfremur taka tillit til breyttra viðhorfa í kvennabaráttu. Sýndi fylgi Kvennalistans í kosningunum 1995 þetta glögglega. Guðný Guð- björnsdóttir hefur verið eindreginn talsmaður þess að leita leiða til þess að femínistar mættu sem sameinað afl halda áfram þátttöku í stjórn- málum. Hafa hún og þær konur sem unnið hafa að því máli þessa síðustu lotu sýnt ómælda þrautseigju og langlundargeð. Gisli Sigurðsson Mörður er maðurinn Gfsli Sigurðsson, íslenskufræðingur, skrifar: Því miður gátu flokksbroddar Samfylkingarinnar í Reykjavík ekki náð saman um opið prófkjör. Þess vegna þarf ég að velja á milli hólfa í stað þess að geta kosið Bryndísi Hlöðversdóttur, Guðrúnu Ögmundsdóttur og Mörð Árnason, eins og ég vildi helst. Ég hef því ákveðið að styðja Mörð. Hann hefur um árabil verið mál- snjallasti maður í íslenskri stjóm- málaumræðu. Hann er geysilega rökfastur og fylginn sér, margfróð- ur og stendur á traustum hug- myndafræðilegum grunni í íslenskri vinstrihreyfingu. Á þessu kjörtíma- bili sat hann nokkram sinnum sem varamaður á Alþingi og var þá óð- ara kominn fram með þjóðþrifatil- lögur og lét til sín taka í umræðum með þeim hætti að eftir var tekið, ávallt með ferska sýn sem horfði til jöfnuðar, framfara og sátta manns og náttúru. Slíkan mann verðum við að hafa á Alþingi. Jóhönnu Sigurðardótt- ur í 1. sætið Jónas Ástráðsson, fv. formaður FUJ, skrifar: Jóhanna Sigurð- ardóttir hefur boð- ið sig fram í 1. sæt- ið í prófkjöri sam- fylkingarinnar, sem fram fer 30. janúar n.k. Jó- hanna hefur allan þann tíma sem hún hefur verið á þingi staðið vörð um þá Jónas Ástráðssoi1 sem minna mega sín í samfélaginu. Hún hefur sýnt það og sannað með starfi sínu fyrir þjóðina að hún er hvergi bangin, hún hefur upp raustina og berst gegn hvers konar spillingu og mismunun hver sem í hlut á og hún stendur vörð um al- mannahagsmuni. Hún er heiðarleg- ur og einlægur stjórnmálamaður sem við megum ekki missa út af þingi. Með því að kjósa Jóhönnu í 1. sætið tryggjum við að hin gömlu og góðu gildi jafnaðarmanna ráði ferð- inni hjá samfylkingarmönnum. Kjósum Huldu á þing Auður Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari, skrifar: Hulda Ólafsdótt- ir hefur mikla reynslu af stjórn- málum. Hún hefur starfað með Kvennalistanum í mörg ár og sækist nú eftir 1.-2. sæti þeirra á lista Sam- fylkingarinnar. Á síðasta kjör- Hulda Ólafsdóttir tímabili fluttust skólamálin yfir til sveitarfélaganna og reyndi þá mikið á yfirstjórn fræðslumála. Hulda hefur m.a. reynslu af setu í fræðslu- ráði Reykjavíkur, sem er yfirstjórn grunnskóla hér í borg. Þar hefur Hulda látið að sér kveða og hefur flutt tillögur er varða aðbúnaðarmál skólabarna bæði almennt og varð- andi skólahúsgögn. Einnig flutti hún tillögu um hæfileikarík börn, en skv. grunnskólalögum eiga öll börn að fá kennslu við sitt hæfi, hvort sem um bóklega eða verklega hæfi- leika er að ræða. Ég þekki Huldu af störfum henn- ar á hinum ýmsu sviðum og veit að hún er verðugur fulltrúi á Alþingi íslendinga. Hún er réttsýn og mál- efnaleg, rökföst og hripdir hug- myndum í framkvæmd. Ég hvet til kröftugra viðbragða - kjósum Huldu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.