Morgunblaðið - 28.01.1999, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999 51
fyrst við verslunarstörf en síðan
lengst af sem umsjónarmaður við
íþróttahús Háskóla íslands, þar til
hann lét af störfum vegna aldurs.
Mér er kunnugt um að hann var
vinsæll í því starfi bæði meðal
íþróttakennara og stúdenta við Há-
skólann. í tómstundum var söngur
mikið áhugamál hans, enda var
hann ágætur söngmaður sjálfur og
þátttakandi í kórsöng en naut líka
að hlusta á söng. Annað áhugamál
Hjálmars var lista-tréskurður, og
slípun íslenskra steina og gerð háls-
festa og eyrnalokka með skraut-
steinum. Margir þessara skraut-
muna eru listasmíð, og tréskurðar-
myndir hans á gestabókum sem
hann bjó til gerði hann gjaman eftir
eigin teikningum.
Eftirlifandi eiginkona Hjálmars
er Sigríður Pétursdóttir og fóstur-
sonur Ásgeir Guðnason. Vil ég að
lokum þakka Hjálmari fyrir alla
hans tryggð, alúð og vinsemd á liðn-
um þeim árum sem ég hefi notið
samfylgdar hans. Þá vl ég þakka
hjartanlega vinsemd og^ gestrisni
þeiri-a hjóna og Sigríði, Asgeiri og
afabömunum flyt ég innilegar sam-
úðarkveðjur.
Hjálmar R. Bárðarson.
Vinur okkar og nágranni í tæp
29 ár er kvaddur í dag. Það er tóm-
legt heim að líta, engin ljós í
gluggum, engin hreyfing. Hjálmar
stendur ekki lengur á tröppunum á
góðviðrisdögum með pípuna sína
og veifar yfir til okkar. A hátíðum
og tyllidögum er fáninn ekki leng-
ur dreginn að hún.
Samverustundirnar okkar á
laugardögum, sem var orðinn fast-
ur liður í hinu daglega lífi, verða
ekki fleiri. Ég sakna þeirra, það
var svo notalegt að eiga þær með
ykkur Siggu, sem um þessar
mundir dvelur á Landakoti. Þegar
hárrúllurnar hennar voru komnar
á sinn stað var sest yfir kaffibolla
og gjarna líkjörstaupi, sagðar sög-
ur og ljóð frá liðnum tíma, ijóð sem
trúlega eru hvergi skráð. Þau
höfðu frá svo mörgu skemmtilegu
og fróðlegu að segja. Þar sem við
erum ættuð frá sama stað, Flat-
eyri, bar margt á góma þaðan frá
gamalli tíð.
Hjálmar var mikill nátturuunn-
andi. Nú göngum við ekki lengur
um garðana og gróðurhúsin okkar,
skoðum rósir, brögðum á jarðar-
berjauppskerunni eða skiptumst á
fræjum og afleggjurum. Eða fylgj-
umst með gróðrinum frá þvi hann
stingur upp kollinum á vorin, og
lýtur að lokum höfði til uppruna
síns að hausti. En það er raunar
saga okkar allra. Margt annað í
ríki náttúrunnar átti líka hug
Hjálmars. Hann átti gott steina-
safn og þekkti þá alla með nafni.
Suma slípaði hann og bjó til eigu-
lega skartgripi. Hagur var hann
einnig á tré og skar út marga fal-
lega hluti úr þeim efniviði. Ekki
má svo frá þessum kafla ganga að
minnast ekki á fuglana, sem nú
hafa misst góðan við, vin sem vék
að þeim ýmsu á köldum vetrardög-
um.
Fræðimaður var Hjálmar í góðu
meðallagi og listelskur. Veðurfars-
dagbækur hélt hann í marga ára-
tugi. Eru þær gagnmerkar heim-
ildir, þar sem hægt er að lesa sér
nákvæmlega til um veðurfar frá
degi til dags. Söngelskur var hann
mjög, var hann bæði í kirkjukór
Áskirkju og kór eldri borgara.
Hafði hann af þessu hið mesta
yndi, enda félagslyndur.
Nágranni var hann góður og
traustur. Þegar við brugðum okk-
ur af bæ, gætti hann hússins,
vökvaði blómin úti sem inni, og
fylgdist með að allir hlutir væru í
lagi.
Hjálmar veiktist af alvarlegum
sjúkdómi í mars á síðasta ári, en
varð að lokum að lúta í lægra
haldi, og gerði það af sömu reisn
og einkenndi allar hans gerðir.
Hafðu, Hjálmar, þökk fyrir sam-
fylgdina, samfylgd sem aldrei bar
skugga á.
Guð styrki Siggu, Ásgeir og fjöl-
skylduna.
Kolbrún og Erling.
Móðir mín,
FRIÐRIKA GUÐMUNDSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir aðfaranótt mið-
vikudagsins 27. janúar.
Heimir Guðjónsson.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
VALDIMAR JÓHANNSSON
bókaútgefandi,
Fornuströnd 5,
Seltjarnarnesi,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir aðfaranótt miðviku-
dagsins 27. janúar.
ingunn Ásgeirsdóttir,
Ásgeir Már Valdimarsson,
Anna Valdimarsdóttir, Bragi Kristján Guðmundsson,
Jóhann Páll Valdimarsson, Guðrún Sigfúsdóttir,
Ingunn Ásgeirsdóttir, Þórunn Ásgeirsdóttir,
Steinunn Ásgeirsdóttir, Örn Ásgeirsson,
Óðinn Ásgeirsson, Elísabet Ásgeirsdóttir,
Elín Ósk Ásgeirsdóttir, Valdimar Sverrisson,
Jón Helgi Jónsson, Jóhann Páll Jónsson,
Egill Örn Jóhannsson, Sif Jóhannsdóttir,
Valdimar Jóhannsson
og barnabarnabörn.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Snaefellsási 3,
Hellissandi,
lést í St. Fransiskusspítalanum í Stykkishólmi þriðjudaginn 26. janúar.
Útför hennar fer fram frá Ingjaldshólskirkju laugardaginn 30. janúar
kl. 14.00
Guðmundur Sölvason,
Sölvi Guðmundsson, Aðalheiður Másdóttir,
Hafrún Guðmundsdóttir, Georg MTaylor
og barnabörn.
+
Elskulegur stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
BJÖRN G. BJÖRNSSON
forstjóri,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði mánudaginn
18. janúar.
Útförin verður gerð frá Dómkirkjunni föstu-
daginn 29. janúar kl. 15.00.
Erla Sigurðardóttir,
Óskar G. Sigurðsson, Sóley Sigurjónsdóttir,
Ágústa Sigurðardóttir, Úlfar Sigurðsson,
Þór R. Björnsson,
afabörn og langafabörn.
+
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
JÓNA REIMARSDÓTTIR,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju föstudaginn 29. janúar kl. 15.00.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Maðurinn minn,
GEOFFREY LIONEL MATTHEWMAN,
lést á Derbyshire Royal Infirmary miðvikudaginn 20. janúar sl.
Útför hans fer fram í Derby fimmtudaginn 4. febrúar kl. 13.30.
Herdís Ásgeirsdóttir Matthewman.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
GUÐBJÖRN GUÐMUNDSSON
byggingameistari
frá Böðmóðsstöðum, Laugardal,
Vesturhúsum 14,
Reykjavík,
lést á heimili sínu aðfaranótt miðvikudagsins
27. janúar.
Unnur Dóróthea Haraldsdóttir,
Arnbjörg Edda Guðbjörnsdóttir,
Hafdís Karólína Guðbjörnsdóttir,
Kristján Vaiberg Guðbjörnsson,
Guðmundur Guðbjörnsson,
Sólrún Guðbjörnsdóttir,
Ásgerður Guðbjörnsdóttir,
Arinbjörn Guðbjörnsson,
Jóhanna Guðbjörnsdóttir,
Þuríður Guðbjörnsdóttir,
Grímur Valdimarsson,
Kristján Gíslason,
Eygló Eyjólfsdóttir,
Ólafur Sigurðsson,
Baldvin Jónsson,
Eggert Snorri Guðmundsson,
Torfi Markússon,
barnabörn og aðrir ástvinir.
+
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
EVA ÞORFINNSDÓTTIR,
Austurvegi 21B,
Selfossi,
andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudaginn
26. janúar.
Aagot F. Snorradóttir,
Sigríður Snorradóttir,
Gunnar S. Snorrason,
Þorfinnur Snorrason,
Árni Snorrason,
Anna María Snorradóttir,
Sigurður Hjaltason,
Skúli Magnússon,
Rannveig Friðriksdóttir,
Ingunn Stefánsdóttir,
Jóhanna Bogadóttir,
Óli R. Ástþórsson.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi
GUÐJÓN JÓNSSON
rafvirki
frá Þingeyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði þriðju-
daginn 26. janúar.
Kristjana Guðsteinsdóttir,
Margrét Guðjónsdóttir, Sigurður Þ. Gunnarsson,
Sigurður G. Guðjónsson, Lára Lúðvígsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Ástkær móðir okkar, fyrrverandi eiginkona,
dóttir og systir,
STEINUNN KARLSDÓTTIR,
Vatnsholti 8,
Keflavfk,
sem andaðist þriðjudaginn 19. janúar, verður
jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 29.
janúar kl. 14.00.
Þóra B. Hilmarsdóttir, Hildur Hilmarsdóttir,
Hilmar D. Hilmarsson, Hilmar Hjálmarsson,
Þorbjörg Þorgrímsdóttir, Karl Þorsteinsson
og systkini hinnar látnu.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARTA SVEINBJÖRNSDÓTTIR
frá Bræðraborg,
Fáskrúðsfirði,
síðar til heimilis
á Hrafnistu, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstu-
daginn 29. janúar kl. 13.30.
Selma Ágústsdóttir, Uni Hjálmarsson,
Halla Ágústsdóttir, Þorvaldur Guðmundsson,
Birgir Ágústsson,
Unnar Ágústsson,
Ágúst Sigurðsson,
Sigríður Emilsdóttir, Pálmi Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabarn.