Morgunblaðið - 28.01.1999, Síða 52
52 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Móðir mín og tengdamóðir,
SIGRID 0DEGÁRD,
lést í Molde, Noregi, mánudaginn 25. janúar.
Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Molde föstudaginn 29. janúar.
Knut Odegard, Þorgerður Ingólfsdóttir.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og
bróðir,
STEFÁN JÓHANNES SIGURÐSSON,
Móatúni 7,
Tálknafirði,
er lést af slysförum laugardaginn 23. janúar,
verður jarðsunginn laugardaginn 30. janúar kl.
14.30.
Athöfnin fer fram í [þróttahúsi Tálknafjarðar og
jarðsett verður í Stóra-Laugardalskirkjugarði. Ferð verður með Breiða-
fjarðarferjunni Baldri frá Stykkishólmi kl. 10.00 árdegis 30. janúar og til
baka frá Brjánslæk sama dag kl. 18.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á minningarsjóð Héraðssam-
bandsins Hrafna-Flóka sem stofnaður hefur verið í Eyrasparisjóði nr.
1118-05-430590.
Kristín Ólafsdóttir,
Ólafur Sveinn Jóhannesson,
Árni Grétar Jóhannesson,
Eydís Hulda Jóhannesdóttir,
Gunnar Smári Jóhannesson,
Sigurður Karl Jóhannesson,
Egill Sigurðsson,
Þórdís Eygló Sigurðardóttir
og Gunnar Sigurðsson.
t
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir, tengda-
móðir, systurdóttir, systir og amma,
ÞÓRUNN BJÖRGÓLFSDÓTTIR,
sem lést miðvikudaginn 20. janúar, verður
jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
29. janúar kl. 15.00.
Ragnar Halldórsson,
Ingibjörg Ingimundardóttir,
Ingimundur Guðmundsson, Oddný Sigrún Magnúsdóttir,
Ólafur Hafsteinn Einarsson,
Halldór Ragnarsson, Andrea Ó. Ólafsdóttir,
Björgvin Ragnarsson, Sigríður Jóhannsdóttir,
Gróa Ingimundardóttir
systkini og barnabörn.
t
Afi okkar, tengdafaðir og langafi,
ÁRMANN JAKOBSSON
fyrrverandi bankastjóri,
Skólavörðustíg 23,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 29. janúar kl. 13.30.
Bergljót Njóla Jakobsdóttir, Hildur Svavarsdóttir,
Ármann Jakobsson, Ásta Svavarsdóttir,
Sverrir Jakobsson, Ingibjörg Svavarsdóttir,
Katrín Jakobsdóttir,
Signý Thoroddsen,
Ingibjörg Ásta Egilsdóttir
og langafabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
SIGTRYGGUR SVEINBJÖRNSSON
frá Sandhólum,
sem andaðist á Kristnesspítala mánudaginn
18. janúar, verður jarðsunginn frá Akureyrar-
kirkju föstudaginn 29. janúar kl. 13:30
Helga Margrét Jóhannesdóttir,
Sveinbjörn Sigtryggsson,
Jóhannes Rúnar Sigtryggsson, Jóna Sigurlaug Friðriksdóttir,
Hulda Sigurborg Sigtryggsdóttir, Haukur Magnússon,
Grétar Sigtryggsson,
afabörn og langafabörn.
OSKAR G.
SUMARLIÐASON
+ Óskar Guð-
mundur Sumar-
liðason fæddist á
ísafirði 11. júlí 1920.
Hann andaðist á
Hrafnistu í Reykja-
vík hinn 20. janúar
siðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Sumarliði Vil-
hjálmsson og Sól-
veig Silfá Gestsdótt-
ir. Hann var fjóröi í
röðinni af átta
systkinum sem eru
Vilhelmína, Guðrún
látin, Gestína, látin,
Elín, látin, Guðmunda, Gunnar
og Jens.
Hinn 12. júlí 1941 giftist Ósk-
ar Margréti Krisfjánsdóttur, f. á
ísafirði 1. febrúar 1921. Börn
þeirra eru: 1) Magnús, f. 28.9.
1941, maki Birna Haukdal
Garðarsdóttir. Þau eiga þrjú
börn, Garðar, Katrínu og Dóru
Elsku afi minn, mér hefur alltaf
þótt mjög vænt um þig og hvað ég
dái þig af öllu hjarta fyrir að vera
svona frábær. En það var einsog
smellt væri fingri og þú ert horfinn
í þann góða heim Drottins. Það er
sárt að segja, en einhvern tímann
þurfum við að kveðja en það er svo
sárt, því enginn er tilbúinn að
missa ástvin. En nú er kveðju-
stundin komin og ég mun alltaf
sakna þín og minnast þín.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
(V. Briem.)
Þín
Berglind.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guði þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Elsku afi, við viljum með
nokkrum orðum þakkar fyrir allar
þær góðu stundir sem við áttum
saman með þér og ömmu. Alltaf
var jafn gaman að koma til ykkar í
Hlaðbæinn og það eru margar
góðar minningar sem skjótast upp
í hugann á stundu sem þessari.
Bestu og Ijúfustu minningarnar
um þig verða ekki festar á blað,
þær geymum við í huga okkar.
Þegar við vorum á Islandi síðast-
liðið sumar heimsóttum við þig að
sjálfsögðu en að það væri síðasta
skiptið sem við ættum eftir að hitt-
Persónuleg,
alhliða útfararþjónusta.
Svemr Otsen, Sverrir Einarsson,
útfararstjóri útfararstjóri
Útfararstofa íslands
Suðurhlið 35 ♦ Sími 581 3300
Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/
og fimm barnabörn.
2) Hafþór, f. 18.6.
1943, d. 16.8. 1978.
Maki var Margrét
Finnbogadóttir. Þau
áttu þijú böm, Ósk-
ar, Bergeyju og
Finnboga, og þijú
barnabörn. 3) Veig-
ar, f. 7.5. 1948, maki
Hallfríður Krist-
jánsdóttir. Þau eiga
þijár dætur, Mar-
gréti Ingu, Berg-
lindi og Krisljönu
Ósk. Fyrir átti Veig-
ar Brynhildi. 4)
Kristján, f. 20.9. 1957. Maki Sal-
ome Einarsdóttir. Þau eiga
fimm böm saman, Guðmund Ar-
inbjöm, Hafþór, Margréti, Stef-
aníu og Emil Öm.
títför Óskars fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30. Jarðsett
verður í Gufúneskirkjugarði.
ast hvarflaði ekki að okkur. Búseta
okkar erlendis gerir okkur það
erfitt að fylgja þér síðustu sporin,
en hugurinn er hjá þér. Bless afi
og Guð geymi þig.
Elsku amma, pabbi, Veigar og
Diddi, við vottum ykkur okkar
dýpstu samúð. Megi Guð vera með
ykkur.
Garðar, Katrín og Dóra.
Mig langar að skrifa nokkrar
línur til minningar um hann Oskar
afa. Þegar ég og Linda vorum í
heimsókn hjá afa hvarflaði ekki að
mér að ég væri að tala við hann í
síðasta sinn. Hann var bara hress
og glaður og sagðist ætla að koma
að heimsækja okkur út til Tulsa
fyrir sumarið og síðustu orðin voru
bara; sjáumst í sumar. Síðan fékk
ég hringingu frá pabba og ég
heyrði strax á röddinni að það var
eitthvað að. Þá sagði hann mér að
afi væri farinn og að Veigar hefði
verið hjá honum. Eg varð hálfdof-
inn eftir að fá þessar fréttir og eft-
h- símtalið lagðist ég upp í rúm og
grét. Ég fór að hugsa um allar
góðu stundirnar sem ég átti með
afa. Ég man t.d. þegar ég kom út á
smurstöð og afi gaf mér alltaf litla
kók úr sjálfsalanum og um helgar
var uppáhaldið að fá að gista hjá
ömmu og afa í Hamrahlíðinni,
leigja vídeó kaupa nammi og ísbílt-
úrinn niður á höfn á sunnudögum.
Það var alltaf dekrað við mann
og mér leið alltaf vel hjá þeim. Afi
var svo ánægður með okkur Haf-
þór, að við værum úti að læra og
var alltaf að hrósa okkur fyrir það
hvað við værum duglegir. Hann
Óskar afí var góður maður sem
vildi allt fyrir mann gera og mun
ég alltaf minnast hans svoleiðis svo
lengi sem ég lifi.
Guðmundur Arinbjöm.
Síðast þegar við heimsóttum afa
á DAS þá vorum við Herdís að
kveðja hann, því að við vorum á
leið aftur til Tulsa, Oklahoma í
nám eftir jólafrí. Okkar síðustu orð
voru „sjáumst í sumar“. Þessi orð
var ég ekki búinn að hugsa mér
sem þau síðustu, enda finnst mér
erfitt að hugsa til þess hér, svona
[ iiiiiiixiixii11:
H H H H H H H H H H H H H H h h h Erfisdrykkjur 1 1 P E R L A N Sími 562 0200 H H H H H H H H H H H H H H H H
[ xi ixixx'xiixixx i:
Áralöng
langt í burtu að hann afi minn er
látinn og að ég geti ekki talað við
hann aftur. Þennan miðvikudag
sem faðir minn hringdi og sagði
mér að hann hefði slæmar fréttir
að færa, heyrði ég það á rödd hans
að eitthvað alvarlegt hefði komið
fyrir. Þegar hann sagði að afi væri
látinn gat ég lítið sagt, enda man
ég varla hvað ég sagði þar sem að
þetta tók svo á mig. Éftir að ég
kvaddi föður minn sat ég kyrr í
sófanum og grét.
Minningar mínar um afa eru að
hann hefur alltaf reynst mér góð-
ur. Þegar ég var ungur gisti ég oft
hjá ömmu og afa um helgar og afi
var þá vanur að leyfa mér að taka
spólu á laugardagskvöldum og
kaupa nammi, svo á sunnudögum
fór hann alltaf með mig og ömmu
í sunnudags-ísbíltúr niður að höfn
í Reykjavík. Þau tóku mig með til
Spánar þegar ég var ungur og
dekruðu við mig þar. Þegar ég var
í leikriti í Tjarnarbíói var mér
alltaf velkomið að gista hjá þeim í
íbúð þeirra í Ofanleiti 3 sem ég
gerði oft þegar æfingar stóðu yfir
í heilan mánuð. Þegar ég hjálpaði
til í garðinum eða ryksugaði gaf
afi mér pening fyrir og smeygði
stundum aukaseðli í jakkavasann
minn. A jólunum og þegar ég átti
afmæli fékk ég alltaf það sem ég
bað um frá ömmu og afa. Þegar
ég var á Islandi núna um jólin
virtist afi vera nokkuð hress, eins
og til dæmis þegar ég og Adda
systir fórum á þrettándanum að
heilsa upp á afa var bara fjör hjá
honum, hann stóð fyrir framan
sjoppuna í anddyri á DAS og hélt
á bjór í sitthvorri hendi alsæll að
sjá okkur á meðan starfsmaður
hélt á stafnum (Sumarliða) fyrir
hann. Afi var svo hress að ég og
Adda kvöddum. Daginn eftir
heimsótti ég afa og var hann þá í
góðu skapi eftir kvöldið og sagði
að hann hefði hitt fullt af gömlum
félögum og skemmt sér konung-
lega.
Allar minningar um afa eru mér
góðar og dýrmætar, allt sem hann
hefur kennt mér hefur verið mér
til góðs. Ég mun minnast og sakna
hans svo lengi sem ég lifi.
Hafþór Kristjánsson.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur. Nú er hann
tengdapabbi okkar dáinn. Ekki
áttum við von á að hann færi frá
okkur svo skyndilega. Hann var
svo stór þáttur í okkar lífi, sterk
persóna og skilur svo mikið eftir
sig. Hann reyndist okkur svo vel
og var svo traustur og góður afi
barna okkar.
Elsku Óskar, takk fyrir allt og
allt. Blessuð sé minning þín.
Hallfríður Kristjánsdóttir,
Salome Einarsdóttir.
Oft er það svo, að sá gestur sem
við gamla fólkið eigum öll von á að
mæta áður en langt um líður birt-
ist snögglega og fyrirvaralaust, og
þannig var það með andlát svila
míns, Óskars Sumarliðasonar.
Hann var fæddur og uppalinn á
Isafirði. Þar störfuðu flestir ungir
menn við sjósókn og fiskvinnslu og
við þau störf hóf Óskar ævistarf
sitt. Hann fylgdi félögum sínum
einnig í tómstundum þeirra, spilaði
knattspyrnu, sönghneigðina lánaði
hann Sjómannakórnum. Óskar
kvæntist ungur Margréti Krist-
jánsdóttur sem kölluð er Adda.
Þau bjuggu nokkur ár á ísafirði en
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett, Sé handrit tölvusett er æskilegt,
að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveld-
ust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa,
öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect eru einnig
auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til
blaðsins í bréfasíma 569 1115, eða á net-
fang þess (minning@mbl.is) — vinsamleg-
ast sendið greinina inni í bréfinu, ekki sem
viðhengi. Nánari upplýsingar má lesa á
heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að
lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4
miðað við meðallínubil og hæfilega línu-
lengd - eða 2.200 slög. Höfundar eru beðn-
ir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt-
nefni undir greinunum.