Morgunblaðið - 28.01.1999, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 28.01.1999, Qupperneq 54
54 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU AUGLYSINGA A i&á Heilsugæslan í Kópavogi óskar eftir að ráða starfsfólk til eftirtalinna starfa: Heilsugæslulæknar Lækna vantar til afleysinga í júní, júlí og ágúst nk. Starfskjör eru samkvæmt gildandi úrskurði kjaranefndar um launakjör heilsugæsluiækna. Hjúkrunarfræðingar Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa í heilar eða hlutastöður til afleysinga. Um er að ræða almenn hjúkrunarstörf við heilsugæslu, svo sem við heimahjúkrun, skólaheilsugæslu og ungbarnavernd. Launakjöreru samkvæmt samningum stofnunar og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Læknaritarar Læknaritarar óskast til starfa í hlutastöður til framtíðarstarfa og afleysinga í sumar. Sjúkraskráning ertölvuunnin á Medicus-for- ritið og væntanlega nú í vor á Sögu-forritið. Krafist er löggildingar sem læknaritari og reynsla er æskileg. Launakjör eru samkvæmt samningum stofnunarvið starfsmannafélög ríkisstofnana og Kópavogsbæjar. Móttökuritarar og gjaldkerar Móttökuritarar óskast til starfa í heilar og hluta- stöðurtil framtíðarstarfa og afleysinga. Störfin felast einkum í símasvörun og tímaskráningu .sem ertölvuunnin, vinnu við spjaldskrá, al- mennri afgreiðslu og móttöku þjónustugjalda og uppgjöri í lok vinnudags. Viðskiptamenntun eða reynsla af afgreiðslu- og þjónustustörfum er æskileg. Launakjör eru samkvæmt samningum stofnunar við starfsmannafélög ríkisstofnana og Kópavogsbæjar. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar nk. Um störf starfsmanna heilsu- gæslustöðva gilda lög nr. 97/1990 um heilbrigðisþjónustu og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Heilsugæslan í Kópavogi er reyklaus vinnustaður. Frekari upplýsingar um störf lækna veitir yfirlæknir Björn Guðmunds- son og hjúkrunarforstjóri Una O. Guðmundsdóttir um störf hjúkrunar- fræðinga. Ennfremur veitir framkvæmdastjóri Heilsugæslunnar í Kópavogi, Birna Bjarnadóttir, upplýsingar í símum 554 0400 og gsm 895 6500. Umsóknum ber að skila til framkvæmdastjóra Heilsugæslunnar í Kópavogi. Umsóknareyðublöð eru fáanleg i afgreiðslu i Fannborg " 7—9. Öllum umsóknum verður svarað skriflega eftir að um þær hefur verið fjallað og ráðning staðfest. Eldri umsóknir eða fyrirspurnir um störf óskast endurnýjaðar. Heilsugæslan í Kópavogi er staðsett í húsnæði í Fannborg 7—9 og I marsmánuði verður tekið í notkun annað húsnæði til viðbótar við Smárann í Kópavogsdal. Starfsmenn stöðvarinnar eru nú um 50 talsins í 35 stöðum og eru ráðnir við Heilsugæsluna í Kópavogi. Heilsugæslan í Kópavogi, Fannborg 7—9, pósthólf 140, 200 Kópavogur. 66°N - MAX Fataframleiðsla Óskum að ráða starfskraft í framleiðslusal. Starfið felst aðallega í að undirbúa framleiðslu- pantanirfrá sníðastofu inná framleiðslulínur, hafa umsjón með vöruflæði í vinriusal, þ.e. niðurröðun og mötun verkefna á vinnustöðvar, . í samvinnu við verkstjóra. Leitum að starfsmanni, sem hefur í sér þjón- ustulund, er skipulagður, áhugasamur, athu- gull og getur tekið frumkvæði þegar við á. Þekking á saumaskap væri æskileg, en er ekki nauðsynleg. Upplýsingar gefur verkstjóri í símum .588 9485/86 eða á vinnustað í Faxafeni 12. Slökkvilið Reykjavíkur Slökkviliðsmaður Hjá Slökkviliði Reykjavíkur eru nokkrar stöður lausar til umsóknar. Starfid í starfinu felst m.a. eftirfarandi: ★ Sjúkraflutningar úr heimahúsum, milli spítala o.s.frv. ★ Almennt slökkvistarf og reykköfun. ★ Björgun fólks og neyðarflutningar. ★ Reglulegar þrek- og starfsæfingar, starfs- menntun og -þjálfun. ★ Þrekpróf og læknisskoðun einu sinni á ári. ★ Vaktavinna. ★ Möguleiki á starfsmenntun og starfsþjálfun erlendis. ★ Umhirða tækjabúnaðar slökkviliðsins. ★ Hægt er að sækja um í björgunarköfunarhóp og landflokk. Grunnkröfur Umsækjendur þurfa að: 1. Vera á aldrinum 20 — 28 ára, reglusamir og háttvísir. 2. Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd. 3. Hafa aukin réttindi til að stjórna a) vörubifreið og b) leigubifreið. 4. Hafa iðnmenntun, sem nýtist í starfi slökkvi- liðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu. Með iðnmenntun er átt við sveinspróf eða vél- stjórapróf en stúdentspróf telst sambærileg menntun. Umsækjandi þarf aðskila læknisvott- orði með umsókn. Umsækjendur mega búast við að vera kallaðir í próf, viðtöl og læknisskoðun trúnaðarlæknis. Ráðning er hugsuð frá 1. mars og verður þá um reynsluráðningu að ræða fyrst um sinn. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavík- urborgar og Landssambands slökkviliðs- manna. Einungis karlar starfa í Slökkviliði Reykjavíkur og hvetjum við því konur sérstaklega að sækja um. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri í síma 570 2040 en umsóknareyðublöð er að finna á skrifstofu Slökkviliðs Reykjavíkur, Skógar- hlíð 14, 101 Reykjavík. Umsóknum, ásamt afritum prófskírteina, skal skila þangað í seinasta lagi 15. febrúar. Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík. Alþjóðlegt stórfyrirtæki óskar eftir fólki í stjórnunar- og markaðsstörf. Tungumála- og tölvukunnátta æskileg. Góðar tekjur í boði fyrir rétta aðila. Nánari upplýsing- arveitir Alma Hafsteinsdóttir í síma 552 1000. Einnig er hægt að senda umsóknir á afgreiðslu Mbl. merktar: „Stjórn — 2000". Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Ljósmæður — Sjúkrahús Akraness Tvær stöður Ijósmæðra við Sjúkrahús Akraness eru lausar til umsóknar. Æskilegt að viðkom- andi geti hafið störf sem fyrst. Upplýsingar um vinnuaðstöðu og launakjör gefa Elín Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri, og Steinunn Sigurðardóttir, hjúkrunarforstjóri, í síma 431 2311. FL UGFÉLAGtÐ = ATLAHTA Flugfélagið Atlanta ehf. var stofnað árið 1986. Félagið sérhæfir sig í leiguverkefnum og er með starfsemi víða um heim Flugfélagið Atlanta ehf. auglýsir eftirfarandi stöðu lausa tii umsóknar. Yfirmaöur þjónustuliöa (flugfreyjur/þjónar): Þjónustuliðadeild er hluti af Flugrekstrarsviði. Starfssvið yfirmanns er meðal annars að hafa umsjón með: Greiningu á áhafnaþörf, ráðningu og þjálfun á þjónustuliðum, þjónustu og sölu um borð, samvinnu við Tæknideild um undirbúning við komu nýrra flugvéla, útgáfu og dreifingu öryggistilmæla, samskiptum við innlend og erlend flugfélög, ferðaskrifstofur og erlendar stöðvar félagsins. Leitað er að umsækjanda með umtalsverða reynslu af stjórnunarstörfum, sem á auðvelt með mannleg samskipti. Góð ensku- og tölvukunnátta áskilin. Reynsla og þekking af störfum tengdum flugrekstri æskileg. Umsóknir sendist til Flugrekstrardeildar á aðalskrifstofu í Mosfellsbæ fyrir 10. febrúar n.k. merktar: Flugfélagiö Atlanta - Flugrekstrardeild Hafþór Hafsteinsson flugrekstrarstjóri P.O. Box 80 270 Mosfellsbæ Verslunarstörf — Egilsstaðir Hraðkaup óskar að ráða starfskrafta í eftirtalin störf í nýrri verslun sinni á Egilsstöðum: 1) Svæðisstjóri matvöru: Um erað ræða 100% almennt starf á „gólfi" verslunarinnar; við áfyllingar, pantanir og annað er lýtur að rekstrinum. Svæðisstjóri ereinnig staðgeng- ill verslunarstjóra. 2) Kvöldáfylling: Starfið er fólgið í frágangi nýrrar vöru í versluninni utan opnunartíma. Vinnutími erfrá kl. 20.00—23.00, alla daga vikunnar. 3) Kvöldræstingar: Starfið er fólgið í hrein- gerningu verslunarinnar, með aðstoð ræsti- véla. Vinnutími erfrá kl. 20.00—22.00, alla daga vikunnar. Upplýsingar um þessi störf gefur verslunar- stjóri Hraðkaups á Egilsstöðum, Þorkell Hróar Björnsson, í síma 897 5605. Prentari óskast Prentara vantar strax á nýlega GTO. Góð laun í boði. Upplýsingar í síma 897 8821. Förðunarfræðingar Vantar förðunarfræðinga strax. Erum að fá frábæra snyrtivörulínu. Svör óskast send til afgreiðslu Mbl., merkt: „F - 7376".
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.