Morgunblaðið - 28.01.1999, Qupperneq 57

Morgunblaðið - 28.01.1999, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999 5 7 ^ FRÉTTIR VINNINGSHAFINN ásamt fulltrúum tryggingafélaganna, lögreglunnar og Umferðarráðs. S Atak gegn ölvunarakstri Lyfja- kostnaður mun lægri en 1997 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi frá heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu: „Fréttastofa sjónvarpsins hefur síðustu daga flutt fréttir um lyfja- kostnað þar sem því hefur rang- lega verið haldið fram, beint og óbeint, að hið opinbera hafi ekkert sparað síðan breytingar voru gerð- ar á lyfjalögum og að kostnaður Ti-yggingastofnunar ríkisins vegna lyfja hafi aukist um 120 milljónir króna á mánuði frá 1993. Tekið skal fram að væru fullyrð- ingarnar réttar næmi kostnaðar- auki Tryggingastofnunar ríkisins einn og sér um 8,6 milljörðum króna frá 1. janúar 1993. Heildarkostnaður Trygginga- stofnunar ríkisins vegna lyfja er nú um íjórir milljarðar á ári og því fráleitt að halda fram að kostnað- araukningin ein sé rúmlega tvö- faldur heildarkostnaður Trygg- ingastofnunar vegna lyfja. Sá samfélagslegi spamaður sem náðst hefur með breytingum í lyf- sölumálum og aðgerðum sem heil- brigðisráðherra hefur gripið til, skilar sér í að lyfjaþátturinn í neysluverði, eins og Hagstofa ís- lands mælir hann, er aðeins um áttatíu af hundraði þess sem hann var í mars 1997. Með öðrum orð- um: Það er ekki aðeins að hið opn- bera hafi sparað á annan milljarð króna. Lyfjakostnaður þeirra sem þurfa lyf er nú mun lægri en hann var í ársbyrjun 1997. I tilefni fréttanna skal ítrekað það sem fram kom hjá forstjóra Tryggingastofnunar ríkisins fyi’ir skemmstu þegar hann upplýsti að fyrirsjáanlegur heildarkostnaður stofnunarinnar hafi minnkað um 1200 milljónir króna á þremur ár- um.“ Norðurland eystra Fimm í próf- kjöri Samfylk- ingarinnar FIMM taka þátt í prófkjöri Sam- fylkingarinnar á Norðurlandi eystra. Frestur til að tilkynna um framboð rann út á miðnætti 25. janúar. Þeir sem gefa kost á sér eru Svanfríður Jónasdóttir alþingis- maður, Dalvíkurbyggð, Örlygur Hnefill Jónsson lögfræðingur, Húsavík, Sigbjöm Gunnarsson sveitarstjóri, Skútustaðahreppi, Pétur Bjarnason framkvæmda- stjóri, Akureyri og Finnur Birg- isson arkitekt, Akureyri. Að Samfylkingunni í Norður- landi eystra standa Alþýðu- bandalag og Alþýðuflokkur. Ör- lygur Hnefill er eini frambjóð- andi Alþýðubandalags; aðrir bjóða sig fram fyrir Alþýðuflokk. Að sögn Hreins Pálssonar, for- manns kjörstjórnar, mun Örlyg- ur Hnefill því annaðhvort hljóta 1. eða 2. sætið á listanum. Hreinn sagði ekkert útiloka að fleiri gætu tekið þátt í prófkjörinu, fengist til þess heimild frá kjör- dæmisráðum flokkanna. Prófkjörið fer fram laugardag- inn 13. febrúar og er öllum náð hafa 18 ára aldri 8. maí, og hafa lögheimili í kjördæminu á laugar- dag heimil þátttaka enda séu þeir ekki félagar í andstæðum stjórnmálasamtökum. Þátttaka í prófkjörinu jafngildir stuðnings- yfirlýsingu við framboðið. FJÖGUR tryggingafélög, Sjóvá- Almennar tryggingar hf., Trygg- ing hf., Tryggingamiðstöðin hf. og Vátryggingafélag íslands hf., stóðu að sérstöku átaki í nóvem- ber og desember sl. í samstarfi við Læknafélag Islands, lögregl- una og Umferðarráð. Kostnað átaksins, sem var venilegur, báru vátryggingafélögin fjögur að fullu, segir í fréttatilkynningu frá Sambandi íslenskra trygg- ingafélaga. Þar kemur fram að megin- þungi áróðurs og kynningar hafi verið í formi sjónvarpsauglýs- Samstöðuverk- efni í stríðs- hrjáðu landi SAMTÖK verslunannanna á Norð- urlöndum hafa haft frumkvæði að margvíslegu uppbyggingarstarfi Hádegisfundur í Múlakaffí MÖRÐUR Árnason, frambjóð- andi í prófkjöri Samfylkingarinn- ar í Reykjavík, heldur almennan umræðufund í hádeginu í Múla- kaffi við Hallarmúla fimmtudag- inn 28. janúar. Meðal umræðuefna: Þjóðar- eign á miðunum, gætum hálend- isins, gegn fátækt og eymd og reykvísk viðhorf. Allir áhugamenn um stjórnmál eru velkomnir til hádegisumræð- unnar í Múlakaffi. Heimasíða og kosninga- skrifstofa Rannveigar RANNVEIG Guðmundsdóttir al- þingismaður hefur opnað heima- síðu á vefnum þar sem hún mun birta greinar og pistla um stjórn- mál og þjóðmál svo og hugleið- ingai- um málefni sem efst eru á baugi. Þar er boðið upp á skoðana- skipti og opinn aðgangur fyrir þá sem heimsækja síðuna til að koma sínum sjónarmiðum að. Slóðin er www.jafnadar- menn.is/rannveig Þá hefur Rannveig opnað kosningaskrifstofu í Hamraborg 14a, 2. hæð, Kópavogi, sem er op- in frá kl. 14-22, alla daga. Það er alltaf heitt á könnunni og allir velkomnir. inga sem fylgl var eftir með stuttum útvarpsauglýsingum. Jólakort með viðeigandi boðskap voru send 4.000 fyrirtækjum í landinu og prentuðum vegg- spjöldum víða dreift. Þá voru settir upp kynningarbásar í Kr- inglunni og Smáranum, þar sem upplýsingum var komið á fram- færi. Ur hópi þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun um ölvun- arakstur var dreginn út vinn- ingshafi á gamlársdag, Birgir Þórðarson frá Selfossi. Hann hlaut ferð fyrir tvo til London með Samvinnuferðum-Landsýn. með systursamtökum sínum í Bosníu og Hersegóvínu. Með samstöðuverkefnunum er lögð áhersla á að koma á samvinnu og samskiptum milli hinna fyrrum stríðandi þjóðarbrota, byggja upp starf sameinaðra verkalýðshreyfing- ar og styðja launafólk til vh-ki-ar þátttöku í þeirri efnhagslegu upp- byggingu sem stendur fyrir dyrum. Það er trú þeirra sem að þessu standa að aðeins þannig sé tryggt að félagsleg sjónannið og réttindi launafólks verði höfð til hliðsjónar og að allir taki virkan þátt. A vef Landssambands íslenzkra verzlunai'manna hefur verið settur sérstakur vefur helgaður þessum samstöðuverkefnum verkalýðshreyf- ingarinnar. Þar er að finna upplýs- ingar um verkefnin, frásögn og inyndir frá Sarajevó auk fjölda teng- inga í aðra vefi. http://www.livis.is/frettir/bosnia http://www.livis.is http://www.asi.is Vinstrihreyfingin - grænt framboð Félag stofnað á Norðurlandi vestra KJÖRDÆMISFÉLAG Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs á Norðurlandi vestra var stofnað sl. þriðjudagskvöld í félagsheimilinu Miðgarði í Skagafirði. Steingrímur J. Sigfússon alþingis- maður flutti framsöguerindi á fund- inum og kynnti hreyfinguna. Sam- þykkt voru lög fyrir félagið og kosin fimm manna stjórn. Formaður var kjörinn Þórarinn Magnússon, Frostastöðum, en aðrir stjórnarmenn eru Sigurður Sigfús- son, Vík, Kolbeinn Friðbjarnarson, Siglufirði, Skúli Jóhannsson, Sauðár- króki og Örn Guðjónsson, Hvamms- tanga. Til vara voru kjörin Heiðbjört Kiistmundsdótth-, Sjávarborg og Hannes Baldvinsson, Siglufirði. Þing um menn- ingararf og ferðaþjónustu FÉLAG háskólamenntaðra ferða- málafræðinga (FHF) og Reykjavík- urakademían (RA) boða til málþings 12. febrúar nk., undir yfirskriftinni: „Islenskur menningararfur - auð- lind í ferðaþjónustu". Á málþinginu munu 14 fyrirlesar- ar ræða um stöðu menningartengdr- ar ferðaþjónustu hér á landi og þá möguleika sem felast í samvinnu fræðimanna og ferðuþjónustuaðila. Sérlegur gestur málþingsins verður Christian Sulheim, framkvæmda- stjóri sjálfseignarstofnunarinnar „Norsk Kulturai-v“. Málþingið verður haldið í nýjum tónlistar- og ráðstefnusal í Strand- bergi, safnaðarheimili Hafnarfjarð- arkirkju, við Strandgötu í Hafnar- firði og hefst kl. 9 með skráningu þátttakenda. Áætlað er að dag- skránni ljúki kl. 17. Aðgangseyrir með kaffi og hádegisverði er 3.000 kr. Ski'áning í netfangi: rogn- vÉmmediaás Yfirlýsing- frá Miðgarði MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá fram- kvæmdastjóra fjölskylduþjónust- unnar Miðgarði í Grafarvogi: „Vegna auglýsinga frá forsvars- mönnum Samfylkingarinnar í Reykjavík um kjörstaði í prófkjör- inu næstkomandi laugardag er því hér með komið á framfæri að kosið verður í kjallara verslunarhúsnæðis við Langarima 21 en ekki í húsnæði fjölskylduþjónustunnar Miðgarðs. í umfjöllun og auglýsingum for- svarsmanna Samfylkingarinnar hef- ur komið fram að Miðgarður sé h kjörstaður Grafarvogsbúa en að- gengi fyrir fatlaða sé ekki fyrir hendi og þeim íbúum sem ei-u fatlað- ir bent á að kjósa í Gerðubergi. Miðgarður er opinber þjónustu- stofnun fyrir Grafarvogsbúa og er sem slík að sjálfsögðu með gott að- gengi fyrir fatlaða m.a. rúmgóða lyftu á jarðhæð. Miðgarður er hins vegar ekki kjörstaður í kosningunum næstkom- andi laugardag heldur er kosið í kjallara verslunanniðstöðvarinnar að Langarima 21 (áður líkamsrækt- arstöðin Máttur) og þar er ekki að- gengi fyrir fatlaða." Afhenti trúnaðarbréf KRISTINN F. Ámason, sendi- herra, afhenti sl. þriðjudag, 26. janú- ar, Haraldi V Noregskonungi, trún- aðarbréf sitt sem sendiherra Is- lands. Predikanir í guðfræðideild GUÐFRÆÐINEMARNIR Óskar Hafsteinn Óskarsson og Þórður Guðmundsson flytja lokapredikanir í kapellu Háskóla fslands föstudaginn 29. janúar. Athöfnin hefst kl. 15.15 og eru allir velkomnir. LEIÐRÉTT Rangt föðumafn RANGT var farið með föðurnafn Laufeyjar Guðnadóttur á bls. 32 í laugardagsblaðinu þegar fjallað var - um rannsókn hennar á íslensku tón- listarstarfi. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum. Tekjur búa í dreifbýli í FRÉTT um hag kvenna í dreifbýli í Norðurlandi vestra í blaðinu gær var ranglega sagt að tekjur 65% íbúa á Norðurlandi vestra nægðu ekki til að framfleyta fjölskyldunni. Hið rétta er að tekjur 65% búa í dreifbýli á Norðurlandi vestra nægja ekki til að framfleyta fjöl- skyldunni. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Heyrnarlaus stúdent í GREININNI Handa systur minni r . sem birtist sl. sunnudag sagði að fyrsti heyi'narskerti stúdentinn hafi útskrifast frá MH 1995. Það er ekki rétt. Kristinn Jón Bjarnason, sem er heyrnarlaus, lauk stúdentsprófi frá MH árið 1985. Áman opnar eina stærstu sérvi á íslandi með víngerðarefni B0Ð % afsláttur af vörum Frábær tilboð á brúguefnum, rauðum, hvítum og rósa. Byrjunarsett með fillu sem bart til víngerðar kr. 2.990 Sólarhrings vingerðarefni, hvit og rauð, (er tilbúið á 24 tímum) Vikuvin í rauðu, hvítu og ýmsum ávaxtaúttærslum. Nýr þjónustusími : 533 10 20 Verslanir Amunnar Nóatúni og Faxafeni hafa verið fluttar í SKEIFUNA 11D (milli Griffils og Kentucky Fried) Prófkjör
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.