Morgunblaðið - 28.01.1999, Side 72
*
BUNADARBAMUNN
VERÐBRÉF
ÖRUGG AVÖXTUN
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Kristinn
l n. .. * Wi
1 • / 1
...... W;W--
• ‘WMé' jp' v u- jf \
BLAUTUR snjórinn er heldur
leiðinlegur og þungur viður-
eignar þegar ryðja þarf stéttir
og tröppur. Það átti við í til-
viki mæðginanna Gríms Guð-
Þungur snjór
jónssonar og Ingu Grímsdótt-
ur en snjónum hafði verið rutt
inn á stétt hjá þeim í Hlíðun-
um í gær. Þá er ágætt hjá
þeim að sameina kraftana því
margar hendur vinna létt
verk.
Mjólkurframleiðslan eykst verulega
Nýtt smjörfjall
að myndast
hvetja mjólkursamlögin til að
greiða fullt verð fyrir próteinhluta
mjólkurinnar, eða 75% af verðinu,
og sum greiða fullt afurðastöðva-
verð fyrir umframmjólkina.
Úr böndunum
Hjá stærsta mjólkursamlagi
landsins, Mjólkurbúi Flóamanna á
Selfossi, hefur verið tekið á móti
12-14% meiri mjólk í vetur en á
sama tímabili á síðasta ári. Birgir
Guðmundsson mjólkurbússtjóri
segir að aðgerðimar séu að fara úr
böndum og að með sama áfram-
haldi verði framleiðslan á verðlags-
árinu 5-8 milljónir lítra umfram
greiðslumark. Myndi það leiða til
þess að mjólkurdufts- og smjörfjall
færi að myndast aftur í landinu.
Segir Birgir að það myndi bitna
síðar á bændum og mjólkurstöðv-
um.
■ Jörfabúið setur/6
MJÓLKURFRAMLEIÐSLA á
Suðurlandi er 12-14% meiri í vetur
en á sama tíma á síðasta ári. Fyrir
utan mikil og góð hey bænda er
aukningin skýrð með aðgerðum
mjólkursamlaganna til að auka
framleiðslu. Með sama áframhaldi
stefnir í að nýtt smjörfjall myndist
I landinu.
Meðalnyt kúa landsins var 4.392
kíló mjólkur á síðasta ári, tæplega
160 kílóum meiri en árið á undan,
og er það mesta aukning frá því
skýrsluhald var tekið upp. Mest
hefur framleiðslan aukist á Suður-
landi. Skýrist það af miklum og
góðum heyfeng bænda þar en ekki
síður af hvatningu afurðastöðv-
anna til bænda um að auka fram-
leiðslu.
Vegna lítilla ostabirgða vildu for-
ráðamenn mjólkuriðnaðarins auka
framleiðsluna um eina til eina og
hálfa milljón lítra umfram greiðslu-
mark. Varð það gert með því að
Banaslys
í Skaga-
fírði
Sauðárkröki. Morgunblaðið.
KARLMAÐUR á sextugsaldri
beið bana í umferðarslysi í
Skagafírði í gærkvöldi.
Slysið varð um klukkan 20
framan Varmahlíðar, þar sem
áður hét Lýtingsstaðahrepp-
ur. Maðurinn var einn á ferð í
bifreið. Bílnum var ekið útaf
og var maðurinn látinn þegar
að var komið.
Lögreglan á Sauðárkróki
var við störf á vettvangi langt
fram eftir kvöldi í gær og voru
tildrög slyssins óljós. Ekki er
unnt að greina frá nafni hins
látna að svo stöddu.
Ný Boeing 757-300 Flugleiða fær alþjóðlega viðurkenningu
MorgunDiaoio/nanaor
Veitt lofthæfísviðurkenning
BANDARISKA flugmálastjórn-
in, FAA, og Samband flugmála-
stjórna Evrópuríkja hafa veitt
nýrri Boeing 757-300 þotu loft-
hæfísviðurkenningu. Flugleiðir
eiga tvær slíkar þotur í pöntun
og verður sú fyrri afhent í mars
2001 og hin síðari ári seinna.
Nýja 757-300 þotan er 7 metr-
um lengri og tekur 30-40 fleiri
farþega en 757-200 gerðin. Þessi
nýja gerð var á ferð hérlendis á
síðasta ári, annars vegar vegna
lendingarprófana í hliðarvindi
sem fóru fram á vegurn Boeing
á Keflavíkurflugvelli og hins
vegar þegar fullbúin slík þota
hafði hér viðdvöl eftir að hafa
verið í prófun hjá fyrsta kaup-
andanum, þýska leiguflugfélag-
inu Condor, sem fær þotu sína
afhenta í mars. Þijár þotur af
nýju gerðinni voru notaðar til
ýmissa flugprófana sem stóðu
alls í rúma fimrn mánuði. Fóru
vélarnar í 356 flugferðir, voru á
lofti í 912 klukkutíma og í
margs konar prófunum á jörðu
niðri í tæpa 1.300 tíma.
Flugleiðir eiga fímm B-757
þotur í pöntun og fá eina vél af-
greidda á hveiju ári til ársins
2003. Þrjár þeirra eru af 200-
gerðinni og tvær verða eins og
áður segir af 300-gerðinni.
Hönnun vindaflstöðvar byggð á hugmynd íslensks uppfínningamanns
Einkaleyfi feng-
ið á heimsvísu
FYRIRTÆKIÐ Vindorka hf. hef-
ur fengið alheimseinkaleyfi fyrir
vindaflstöð sem er byggð á hug-
mynd og hönnun Nils Gíslasonar
j uppfinningamanns, sem stofnaði á
sínum tíma DNG. Um tvenns kon-
ar einkaleyfi er að ræða að sögn
Karls L. Jóhannssonar, stjómar-
formanns Vindorku, annars vegar
einkaleyfi sem snýr að útfærslu
burðarþols vindaflstöðvarinnar og
hins vegar einkaleyfi sem snýr að
raforkuframleiðslunni sjálfri.
Kostnaður tugir milljóua
Rífiega þrjú ár eru síðan sótt var
um einkaleyfi vegna hönnunar Nils
að sögn Karls og skiptir kostnaður
við að afla þess milijónum króna.
^ Hann kveðst halda að heildar-
kostnaður vegna stöðvarinnar til
þessa nemi nokkrum tugum millj-
óna króna, en frumsmíði hófst fyrir
um fimm árum. Meðal þeiira aðila
sem styrkt hafa verkefnið em Iðn-
tæknistofnun, Rannsóknarráð rík-
isins, Landsvirkjun, Orkubú Vest-
~ fjarða, Akureyrarbær, Rafveita
Akureyrar o.fl.
Einkaleyfið hefur í för með sér
að hugmyndin nýtur vemdar á
heimsvísu. „Þetta þýðir að enginn
annar getur notað þessa hugmynd
og framkvæmt hana. Það er eitt að
hafa góða hugmynd og annað að
hafa einkaleyfi á henni, því þegar
svo er í pottinn búið verður hug-
myndin miklu verðmætari á mark-
aði,“ segir Karl.
Breska ráðgjafarfyrirtækið
Gerrad-Hassan & Partners, sem
er eitt virtasta fyrirtæki á sínu
sviði hvað endurnýtanlega orku-
gjafa varðar auk þess að vera sér-
frótt um vindaflstöðvar, hefur gert
úttekt á hönnun Nils. Fleiri aðilar
hafa komið að þeirri rannsókn og
gefið umsagnir, þar á meðal Dur-
ham-háskólinn í Englandi, breskt
verkfræðifyrirtæki og einnig einn
stærsti framleiðandi reiðhjóla í
heiminum.
„Rannsóknir allra þessara aðila
ber að sama branni, þ.e. að þessi
hönnun sé betri en hin hefðbundna
á allan hátt. Stöð Nils nýtir land-
rými 40% betur en hefðbundnar
stöðvar, viðhald er þriðjungi
minna, hún er hljóðlaus, virkar í
miklu minni vindi, er ódýrari í
byggingu og einfaldari að allri
gerð, auk þess sem hönnunin er
umhverfisvæn að því leyti að stöðin
á ekki að valda dauða fugla eins og
hefðbundnar vindaflstöðvar gera,“
segir Karl.
Möguleiki á stærri stöð
„Þá telja sérfræðingamir hjá
Gerrad-Hassan að með þessari að-
ferð sé hægt að smíða miklu stærri
vindaflstöðvar en unnt hefur verið
hingað tíl, eða stöð sem framleiðir
allt að 20 megawöttum. Það em því
engir gallar sjáanlegir.“
Hann segir að búið sé að gera
verk- og kostnaðaráætlun fyrir
vindaflstöðina. Meðal annars komi
til greina að selja hönnunina á nú-
verandi stigi, þróa hana frekar og
selja hana að því loknu, fara út í
samstarf við framleiðanda eða
hefja eigin framleiðslu.
„Þarna er um frábæra hugmynd
að ræða og risastóran markað sem
er þar að auki í ömm vexti. Við
vonum því hið besta og teljum
okkur hafa allar forsendur til að
þessi hugmynd njóti velgengni, en
getum ekki neglt neitt niður frek-
ar en annað það sem snertir ný-
sköpun. Bandarísk áhættufjár-
magnsfyrirtæki hafa sýnt þessu
verkefni áhuga og sömuleiðis
margir innlendir aðilar, auk þess
sem ýmsir vonbiðlar aðrir koma til
greina. Þá má geta þess að Ný-
sköpunarsjóður hefur gefið til
kynna áhuga sinn á þátttöku,"
segir Karl.
Bandarískt fyrir-
tæki kaupir 10%
í Flögu hf.
Kaupverð
um 70
milljónir
BANDARÍSKA fyrirtækið
ResMed hefur keypt 10% í há-
tæknifyrirtækinu Flögu hf.
fýrir um 70 milljónir króna.
Flaga framleiðir meðal ann-
ars kerfislausn til rannsókna á
svefni í lækningaskyni, en
bandaríska fj'rirtækið ResMed
sérhæfir sig í framleiðslu tækja
til meðferðar á kæfisvefni.
Styrkir
trúverðugleika
Böðvar Þórisson, markaðs-
stjóri Flögu, telur að kaupin
komi til með að styrkja trú-
verðugleika afurða Flögu er-
lendis enda sé ResMed vel
þekkt á alþjóðlegum markaði.
Flaga fær aðgang að öflugu
söluneti bandaríska fyrirtæk-
isins um heim allan og einnig
er gert ráð fyrir að fyrirtækin
styðji hvort annað í sölu á
tækjum og búnaði sem þau
hafa unnið að.
Velta um
400 milljónir króna
Velta Flögu var um 400
milljónir króna á síðasta ári en
gert er ráð fyrir að veltan tvö-
faldist á þessu ári. Áætlað
markaðsvirði fyrirtækisins er
um 700 milljónir króna. Tekj-
ur ResMed vom um 100 millj-
ónir dollara, eða um sjö millj-
arðar króna á síðasta ári.
Markaðsvirði þess er um 53
milljarðar króna og hefur
verðmæti þess tvöfaldast frá
því í nóvember.
■ Markaðsvirði /B1