Morgunblaðið - 16.02.1999, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Clinton sýknaður
REPUBLIKANAR héldu upp á Valentínusardaginn með pomp og prakt.
Fjögurra mánaða fangelsi
fyrir kynferðisbrot
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
áfellisdóm Héraðsdóms Reykjavík-
ur yfir karlmanni á fertugsaldri
fyrir kynferðisbrot gagnvart tólf
ára stúlku á ættarmóti á Reykhól-
um.
A ættarmótinu sem fram fór í
Reykhólaskóla sumarið 1997 voru
um fimmtíu manns. Þegar
skemmtunin stóð sem hæst fór
maðurinn inn í herbergi þar sem
stúlkan lá sofandi. Sagðist hún
hafa vaknað við að allsnakinn
maður var inni í herberginu hjá
henni og að maðurinn strauk getn-
aðarlim sínum við læri hennar og
þegar hún varð þess áskynja að
hún var ekki í nærbuxunum og
náttkjóllinn var upp um hana hafi
hún reynt að bera náttkjólinn fyr-
ir kynfæri sín. Hafi maðurinn rifið
hann frá og strokið eða þuklað
ytri kynfæri hennar. Eftir lítils
háttar stimpingar hljóp telpan síð-
an niður í matsal og sótti móður
sína.
Móðir telpunnar bar að er hún
kom í herbergið hafi ákærði verið
þar fyrir, ber að ofan og skólaus að
hysja upp um sig buxurnar. Hálf-
systir telpunnar, sem kom skömmu
síðar inn í herbergið, sá ákærða
sitja þar á rúmi, berfættan og ber-
an að ofan. Akærði neitaði sök og
kvaðst ekkert hafa gert á hlut
telpunnar heldur ráfað ofurölvi inn
í herbergið og verið þar fullklædd-
ur er móðurina bar að.
Var að Iýsa
raunverulegum atburði
í héraðsdómi segir: „Eftir að
hafa hlýtt á framburð telpunnar
velkist dómurinn ekki í vafa um að
hún var að lýsa raunverulegum at-
burði kynræns eðlis. Hefur fram-
burður hennar verið skýr og grein-
argóður í öllum meginatriðum við
rannsókn og meðferð málsins og
hafi eitthvað út af brugðið er þar
um smáatriði að ræða. Það er álit
dómsins að framangreindur fram-
burður kæranda og þessara
tveggja vitna sé trúverðugur og að
ákærði hafi ekki gefið trúverðuga
skýringu á ferðum sínum og veru í
herberginu." Taldist þessi hátt-
semi varða við 2. ml. 1. mgr. 202.
gr. almennra hegningarlaga, nr.
19/1940.
Maðurinn var dæmdur í fjögurra
mánaða óskilorðsbundið fangelsi
og til þess að greiða stúlkunni 200
þúsund krónur í miskabætur.
Málið fluttu Bogi Nilsson ríkis-
saksóknari af hálfu ákæruvaldsins
en skipaður verjandi ákærða var
Hilmar Ingimundarson hrl.
Nicotinell'
Tvær leiðirtil að
Kætta!
I
Nicotinell býður upp á tvær árangursríkar leiðir
til að losna við reykingarávanann.
Nicotinell nikótínplásturinn. Einn plástur á dag
heldur nikótínþörfinni niðri allan sólarhringinn.
Nicotinell plásturinn fæst með þremur styrkleikum.
Nicotinell nlkótíntyggjóið hefur sömu eiginleika
og venjulegt tyggjó og fæst bæði með piparmyntu-
og ávaxtabragði. Nicotinell tyggjóið ^
fæst með tveimur styrkleikum.
Komdu í næsta apótek og fáðu bæklinga
um það hvernig Nicotinell plásturinn
og Nicotinell tyggjóið hjálpa þér
í baráttunni við tóbakið.
Thorarensen Lyf
V»ioigitð<r 1H ■ 104 R«)rki«*(k ■ S(mi 568 6044
A
NicobnoB lyggigúmmi or lyf sem er notaö som hiálparefni til þoss aö hætta reykingum. Aöeins má nota lytið ef roykingum er hætt
Það mniholdur rukótín sem losnar úr því þegar luggiö er. trásogast í munninum og dregur úr fróhvarfsoinkennum þegar reykingum
er hætt. Tyggja skal oitt stykki í oinu, haogt og rólega. til aö vmna gogn reykingaþöd. Skammtur or oiristaklingsbundinn ©n okki
má tyggja fletri en 25 stk. á dag. Ekki er ráölagt aö nota lyfiö lengur en i 1 ár.
Nicotínell plóstur inmholdur nikótin og er ætlaöur som hjálpartyf til að hætta reykingum. Notist emungis af fullorönum. Plásturinn
skat lima á háriausa og hoila húö. Skömmtun Fyrir þá som reykja 20 sigarcrttur á dag eöa moira; 1 plástur moö 21 mg á í
i 3-4 víkur, því næst 1 pláslur meö 14 mg á söiartiring. dagloga í aðrar 3-4 vikur og aö síöustu ptástur moö 7 mg á í
i 3-4 vikur, Fyrir þá sem reykja minna en 20 sígarettur á dag: 1 plástur með 14 mg á sólarhring, daglega í 3-4 vik
moðplástriffn sem innihalda 7 mg á sólarhring, daglega (3-4 vikur. Moðferö skal okki standa Itmgur cn (3
skal sotja ptásturinn á sama staö dag eftir dag. hetdur finna annan stað á Wkamanum. Kynniö ykkur vel toiöbeimngar 6« . _
skal lyfln þar sem börn ná ekki tíl. Lesa skal vandlega leíðbolníngar á íylgiseðlum sem fyfgís
Stjörnuspá á Netinu
Breiðfirðingafélagið 60 ára
Hafa gefið út
tímarit í 56 ár
TILEFNI 60 ára af-
mælis Breiðfirð-
ingafélagsins á sl.
ári var mikið um hátíða-
höld og þá sérstaklega á
haustmánuðum. Akveðið
var að gefa út sérstakt
aukarit tímaritsins Breið-
firðings sem komið hefur
út allar götur frá árinu
1942. Sveinn Sigurjóns-
son, formaður Breiðfirð-
ingafélagsins, segir að í
aukaritinu sé efnisskrá
allra útkominna blaða og
skiptist í aðalskrá, atriða-
orðaskrá og höfundatal.
„Tímaritið Breiðfirðing-
ur hefur komið út á hverju
ári frá árinu 1942 og er
þetta 56. árgangur sem nú
er kominn út og einmitt í
dreifingu þessa dagana.“
- Um hvað hefur aðal-
lega verið skrifað í tímaritið
Breiðfirðing?
„Breiðfirðingur er stórkost-
legt tímarit og þar er auðvitað að
finna margar fróðlegar og fræð-
andi greinar um byggðir Breiða-
fjarðar. Það hafa margir verið
teknir tali um árin þar sem þeir
segja frá atburðum og sögum
sem tengjast þessum landshluta.
Þá hafa verið birt ljóð og annar
skáldskapur eftir Breiðfirðinga
og látinna minnst. Það verður að
segja eins og er að margt er
þarna skráð sem annars hefði
farið forgörðum.“ Sveinn segir
að margir safni tímaritinu og
eigi alla árgangana. Hægt er að
kaupa einstök hefti eða safnið í
heild sinni hjá félaginu. Ritstjór-
ar Breiðfirðings eru þeir Arni
Bjömsson þjóðháttafræðingur
og Einar G. Pétursson
cand.mag. Dreifingu annast
Bergsveinn B. Gíslason ásamt
mörgum áhugasömum félögum.
-Hverjir stofnuðu Breiðfírð-
ingafélagið?
„Það voru Breiðfirðingar á
höfuðborgarsvæðinu sem stofn-
uðu þennan félagsskap 17. nóv-
ember árið 1938. Á þessum árum
fluttu margir suður til Reykja-
víkur frá svæðum í kringum
Breiðafjörð og sýndu því fljótt
áhuga að halda hópinn hér
syðra. Þarna voru karlar og kon-
ur sem létu hlutina ganga fljótt
og vel og náði félagafjöldinn
fljótlega á níunda hundrað. Til-
gangur félagsins var að efla og
viðhalda kynningu milli Breið-
firðinga sem búsettir voru heima
í héraði og þeirra sem að heiman
voru fluttir. Félagið studdi ýmis
mál sem að dómi félagsmanna
voru til menningarhagsbóta íyrir
Breiðafjörð. Að ýmsu var mynd-
arlega staðið í þeim efnum. „
- í hverju fólst starfsemi fé-
lagsins á árum áður? ___________
„Þetta var áræðið
og stórhuga fólk sem
festi fljótlega kaup á
félagsheimili sem fékk
nafnið Breiðfirðinga-
búð og var við Skóla- “““““
vörðustíg. Margir muna eflaust
eftir þeim stað því þar voru
haldnir fjörugir dansleikir um
árabil.
Ýmsar deildir voru stofnaðar
innan félagsins, svo sem Breið-
firðingakórinn sem starfaði fram
á sjötta áratuginn. Þá var starf-
rækt Bridgefélag Breiðfirðinga
frá árinu 1950 og starfar enn
sem sjálfstæð deild. Tafldeild er
innan félagsins. Handavinnu-
deild var stofnuð og hún er enn
við lýði en nú undir nafninu Fé-
lag breiðfirskra kvenna og
starfar nú sjálfstætt. Minningar-
sjóður var stofnaður og eru
Sveinn Sigurjónsson
► Sveinn Sigurjónsson er fædd-
ur á Sveinsstöðum í Dalasýslu
sem nú heitir Kvennahóll í
Dalabyggð árið 1944.
Hann rak ásamt öðrum vinnu-
vélastarfsemi í Dölunum frá
1961-1966. Sveinn lærði hús-
gagnasmfði og vann við hana til
ársins 1973.
Sveinn var innheimtufulltrúi
hjá Hafnarflarðarbæ frá 1973-
1985 og var sölumaður fast-
eigna til ársins 1997. Hann
starfar nú við trésmíði og garð-
yrkjustörf hjá Skrúðgarðaþjón-
ustunni.
Eiginkona Sveins er Kristín
H. Kristbjörnsdóttir og eiga þau
þijú böm.
Ymsar deildir
innan Breið-
firðinga-
félagsins
minningarkort til sölu. „Þá stóð
Breiðfirðingafélagið fyrir kvöld-
vökum í Ríkisútvarpinu hér á ár-
um áður og fyrir um 35 árum
hófu félagar að planta trjám í
Heiðmörk."
- Hvað eru margir í félaginu
núna?
„Við erum nálægt 400 félagar.
Við erum svo heppin að eiga okk-
ar Breiðfirðingabúð sem nú er til
húsa í Faxafeni 14. Þar höfum
við alla okkar félagsstarfsemi.
Við höldum dansleiki a.m.k. fimm
sinnum á vetri, árshátíð á þorra
sem alltaf er beðið eftir með mik-
illi óþreyju, aðventudag, jólatrés-
skemmtun fyrir börn og sérstak-
an kaffidag íyrir aldraða. Þá höf-
um við haldið dansnámskeið sem
hafa verið vel sótt. Breiðfirðinga-
kórinn hóf aftur starfsemi á
haustmánuðum árið 1997 og nú
syngja saman um 50 Breiðfirð-
ingar undir stjórn Kára Gests-
sonar söngstjóra."
- Hvernig hélduð þið upp á af-
mælið öðruvísi en með útgáfu af-
mælisritsins?
--------- „Við héldum hátíð að
Laugum í Sælingsdal
og fengum heimamenn
í heimsókn. Tekið var
vel á móti okkur og var
félaginu afhent lóð
“““““ undir sumarhús og eru
framkvæmdir á athugunarstigi.
Við tókum þar í fóstur gróðurreit
og plöntuðum 60 birkiplöntum.
Auk þessa héldum við kvöldvök-
ur í heila viku, frá 15.-23. nóvem-
ber síðastliðinn. Við buðum til af-
mælisveislu á afmælisdaginn og í
vikunni var félagsvist, skák, við
höfðum mynda- og kvikmynda-
sýningu, kántrídans, leiklist,
djass og kórinn söng, það var
boðið upp á hagyrðingakvöld og
göngutúr um Elliðaárdalinn svo
dæmi séu tekin. Þessi afmæl-
isvika tókst vel og verður að telj-
ast metaðsókn miðað við síðari
tíma.“