Morgunblaðið - 16.02.1999, Síða 10

Morgunblaðið - 16.02.1999, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Nýtt frumvarp til náttúruverndarlaga kynnt Almannaréttur til umferð- ar um landið rýmkaður GUÐMUNDUR Bjarnason umhverfísráð- herra hefur kynnt nýtt frumvarp til náttúru- vemdarlaga, þar sem réttur manna til um- ferðar um landið, svokallaður almannaréttur, er m.a. rýmkaður mjög. Frumvarpið er afrakstur nefndar sem ráð- herra skipaði árið 1996 og var undir for- mennsku Guðjóns Olafs Jónssonar, aðstoðar- manns ráðherra. Um er að ræða heildarlög- gjöf, sem ætlað er að leysa af hólmi eldri lög sem að grunni til em frá árinu 1971 en sum atriði laganna eru frá 1956 en þá voru fyrstu náttúruvemdarlögin sett. Ráðherra sagði að sátt hefði verið um frumvarpið innan nefnd- arinnar og benti í því skyni á að enginn hefði skilað séráliti. f frumvarpinu segir að tilgangur laganna sé að stuðla að samskiptum manns og náttúra, þannig að ekki spillist líf eða land, né mengist sjór, vatn eða andrúmsloft. Gert er ráð fyrir að framvarpið verði að lögum íyrir þinglok. Ráðherra sagði rýmkun almannaréttarins vera stærsta þáttinn í fram- varpinu. Samkvæmt honum er mönnum heim- ilt, án sérstaks leyfis landeiganda eða rétt- hafa, að fara gangandi um óræktað land og dvelja þar en íor um ræktað land er háð sam- þykki eiganda þess eða rétthafa. Á ferð sinni um eignalönd skulu menn þó ávallt sýna land- eiganda og öðrum rétthöfum lands fulla tillits- semi. Lagðar eru til skýrar reglur um bann við akstri utan vega en þess getið að heimilt sé að aka vélknúnum ökutækjum á jöklum og snjó utan þéttbýlis. Brjóti menn þessi lög geta þeir átt von á sekt eða fangelsi í allt að tvö ár. Aukin ábyrgð sveitarfélaga í frumvarpinu er ábyrgð heimamanna á framkvæmd laganna aukin, þ.e. stjómsýslan er færð meira inn í hérað. Hvert sveitarfélag eða héraðsnefnd á að skipa náttúravemdarnefnd, sem á að vera þeim til ráðgjafar um náttúruvemdarmál. Sveitarstjórnir greiða kostnaðinn sem hlýst af störfum nefndanna. í kafla um landslags- vernd era tilgreindar lands- lagsgerðir sem njóta skulu sérstakrar vemdar. Eld- vörp, gervigígar og eld- hraun skulu njóta sérstakr- ar verndar sem og stöðuvötn og tjarnir sem eru 1.000 fermetrar að stærð eða stærri, mýr- ar og flóar sem era þrír hektarar að stærð eða stærri, fossar, hverir og aðrar heitar upp- sprettur og loks sjávarfitjar og leirar. Sérstakur kafli um nám jarðefna er í fram- varpinu. Lagðar era til nýjar og hertar regl- ur, þar sem meðal annars era ákvæði um heimildir til efnistöku. Áður en leyfi til efnis- töku er veitt skal liggja fyrir áætlun fram- kvæmdaraðila, þar sem m.a. er gerð grein fyrir magni og gerð efnis, vinnslutíma og frá- gangi á efnistökusvæði. Náttúravernd ríkisins er heimilt að krefjast þess að framkvæmdar- aðili leggi fram tryggingu, sem stofnunin tel- ur fullnægjandi fyrir áætluðum kostnaði við eftirlit og frágang efnistökusvæðisins. Þá mun Náttúravernd ríkisins gera tillögur um frágang efnistökusvæða sem hætt er að nota og hafa umsjón með þeim frágangi en því skal lokið eigi síðar en árið 2003. Friðlýsing náttúi-umyndana í hafi Ráðherra sagði lögin hingað til iyrst og fremst hafa tekið til náttúraverndar á landi en vitað væri að veiðarfæri og ýmsar athafnir manna hefðu áhrif á náttúrufyrirbæri á hafs- botni. Þess vegna er þess sérstaklega getið í frumvarpinu að ráðherra geti, með samþykki sjávarútvegsráðheira, friðlýst í landhelgi og efnahagslögsögu náttúramyndanir í hafi, þ.m.t. eyjar og sker. I framvarpinu er einnig mælt fyrir um að umhverfisráðherra skuli leggja sérstaka nátt- úravemdaráætlun fyrir Alþingi fimmta hvert ár, í fyrsta sinn árið 2000. Þessi áætlun á að vera hluti af náttúruminjaskrá. 7^-.. I A'\ [ - . j-í V - 5 i! j; “ Jb ji i'J íffil Í ALÞINGI Morgunblaðið/Golli ÞÓTT mörg mál hafi verið á dagskrá í gær var fámennt í þingsalnum. Hér ræða þeir málin Tómas Ingi Olrich og Magnús L. Sveinsson. Um 80 þingmál í gær og í dag ÓLAFUR G. Einarsson, forseti Alþingis, til- kynnti á þingfundi í gær að um áttatíu þing- mannamál biðu fyrstu eða fyrri umræðu á Al- þingi. Af þeim voru 33 þingmál á dagskrá Al- Alþingi Dagskrá ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 13.80 í dag. Að Iokinni utandagskrárumræðu um málefni rækjuvinnslunnar hefst atkvæða- greiðsla um hið svokallaða kjördæmamál. Að því búnu er gert ráð fyrir því að hátt á ljórða tug þingmannamála fari til fyrstu eða fyrri umræðu. þingis í gær og verður annar eins fjöldi til um- ræðu á Alþingi í dag. Ólafur sagði í gær að sum þessara þingmála hefðu verið lögð fram snemma á yfirstandandi þingi en hefðu ekki komist á dagskrá ýmist vegna aðstæðna framsögumannanna sjálfra eða vegna tímaskorts í þinghaldinu. „Forseti [Alþingis] og forsætisnefndin öll raunar hefur haft af þessu nokkrar áhyggjur," sagði Ólaf- ur. „Það var tillaga forseta á fundi með for- mönnum þingflokka í síðustu viku að gera í þessari viku góða atlögu að þingmannamál- um, eitthvað í lfkingu við það sem gert var á síðasta þingi, þ.e. að taka á tveimur dögum sem mest af fyrirliggjandi þingmálum, annars vegar stjórnarþingmanna og hins vegar þing- manna stjórnarandstöðuflokka." Ólafur sagði að eins og háttaði í þinghald- inu nú [þ.e. vegna þess að stefnt væri að því að þingi yrði slitið í mars nk.] væri þessi lausn besta leiðin, enda færu þingmálin þá til um- fjöllunar í fastanefndum þingsins og gætu fengið einhverja afgreiðslu þótt lítill tími væri til stefnu. „Ljóst er að þetta tekst ekki nema framsögumenn og aðrir sem taka þátt í um- ræðunum takmarki mjög ræðutíma sinn, helst við um það bil fimm mínútur til þess að allir komist að með mál sín,“ sagði Ólafur. Alþingi Jarðgöng á Austurlandi ARNBJORG Sveinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokks, mælti í gær fyrir tillögu til þingsályktunar um að sam- gönguráðherra verði falið að undir- búa nú þegar undirbúning að gerð jarðganga milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarljarðar. Miðað verði við að framkvæmdir heljist árið 2003. I greinargerð tillögunnar kemur fram að samkvæmt skýrslu Vega- gerðarinnar, Jarðgöng á Austurlandi - nefndarálit 1993, myndi kostnaður við þessar vegaframkvæmdir nema 2.250 milljónum króna á verðlagi þessa árs. „Ef dreginn væri frá kostnaður við vegaframkvæmdir milli Breiðdalsvíkur og Egilsstaða og með ströndinni frá Fáskrúðsfirði til Reyðarfjarðar stæðu einungis eftir um það bil 1.300 milljónir kr. sem er nettókostnaður við framkvæmdina,“ segpr í greinargerð. Þingmaðurinn sagði m.a. í framsögu sinni í gær að jarðgöngin væru einkar ákjósanleg- ur kostur í vegaframkvæmdum og að þau myndu m.a. leiða til mikillar hagræðingar í samgöngulegu og byggðarlegu tilliti. Hringleiðin með fjörðum myndi styttast um um það bil 35 km og Suðurfirðir Austfjarða kæmust inn í sama atvinnu- og þjón- ustusvæði og kjarni byggðarinnar á Mið-Austurlandi. Samskiptatækni bætt á landsbyggðinni ÍSÓLFUR Gylfi Pálmason, Fram- sóknarflokki, hvatti Halldór Blöndal samgönguráðherra til þess, í fyrir- spurnartíma á Alþingi í gær, að skikka Landssíma Islands til að bæta úr samskiptatækni í dreifbýli. ísólfur sagði að símalínur væru oft lélegar á landsbyggðinni; hefðu litla flutnings- getu og gerðu samskipti á Netinu erfíðari sem og samskipti með myndsendi. „Eg hvet samgönguráð- herra til að skikka Landssímann til að endurnýja þessar boðleiðir því þetta er mjög brýnt mál fyrir dreif- býlið. Landssími Islands er forríkt fyrii-tæki og það er sjálfsagt mál að þar verði ákveðnum peningum varið til að endurnýja þessar samgöngu- leiðir. Ég treysti samgönguráðherra til þess að svo megi verða.“ Halldór Blöndal sagði það stefnu sína og Landssímans að bæta sam- skiptatæknina í dreifbýli. „Fjárfest- ing í fjarskiptabúnaði er mjög dýr. Landssíminn hefur borið fram fyrir- spurnir um það til Póst- og fjar- skiptastofnunar meðal annars og Samskeppnisstofnunar hvernig farið skuli með fjárfestingu sem Lands- síminn leggur í samkvæmt sam- skipta- og póst- og fjarskiptalöguin. En því miður verður að svara því svo að sumt sem þar er sagt er ekki upp- örvandi og hvetur ekki til nýrra fjár- festinga hjá Landssímanum.“ Aflaheimildir ekki færðar ÞORSTEINN Pálsson sjávarútvegs- ráðherra sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að ekki hefði verið rætt um það í ríkisstjórn að færa afiaheimildir frá einum hópi fiski- skipa til annarra hópa. Ráðherra sagði að Iögmál markað- arins yrðu að ráða og að ekki stæði til að fara að handstýra þessum viðskipt- um. Þeir sem hefðu keypt skip með litlum aflaheimildum yrðu sjálfír að bera ábyrgð á þeim fjárfestingum. Sighvatur Björgvinsson, þingmað- ur jafnaðarmanna, vakti máls á þessu umræðuefni og gagnrýndi Kristin H. Gunnarsson, formann sjávarútvegsnefndar Alþingis, fyrir að gefa til kynna í fjölmiðlum að hægt væri að koma til móts við þá bátaeigendur sem hefðu lítinn sem engan kvóta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.