Morgunblaðið - 16.02.1999, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 13
Islendingar taki þátt í endurhæfingar-
áætlun ásamt hinum Norðurlöndunum
Börn frá
Tsjernobíl
hingað í end-
urhæfíngu
„ Ljósmynd/Áke Ericson
FORSTOÐUMAÐUR Norrænu barnahjálparinnar, Bo Wallenberg, í
hópi barna á Filippseyjum, sem Islendingar hafa stutt til nýs lífs,
fjarri ruslahaugum og misnotkun.
kjöri Framsóknarflokksins í kjör-
dæminu í seinasta mánuði en um
2.500 manns tóku þátt í því.
Kristján efstur
á Norðurlandi vestra
Kristján Möller varð í fyrsta sæti
í prófkjöri Samfylkingarinnar í
Norðurlandskjördæmi vestra með
852 atkvæði í 1. sæti. Anna Kristín
Gunnarsdóttir varð í öðru sæti með
1.117 atkvæði, þar af 810 atkvæði í
fyrsta sætið. Signý Jóhannesdóttir,
formaður Vöku á Siglufirði, sem
bauð sig fram undir merkjum Al-
þýðubandalagsins, varð í þriðja sæti
með 1.060 atkvæði í 1.-3. sæti og
Jón Bjarnason, skólastjóri á Hólum,
sem bauð sig fram undir merkjum
Aiþýðubandalagsins, varð í fjórða
sæti með 1.306 atkvæði í 1.-4. sæti.
Þessi fjögur stefndu öll á fyrsta
sætið.
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
fyrrv. þingmaður Alþýðuflokks,
ienti í 5. sæti en hann fékk 1.274 at-
kvæði í 1.-4. sæti.
Mikil spenna ríkti fyrir prófkjörið
og þrátt fyrir að Alþýðubandalagið
hafi alla tíð verið mun sterkara í
kjördæminu en Alþýðuflokkurinn
var ekki talið sjálfgefið að alþýðu-
bandalagsmaður næði fyrsta sæti.
Prófkjörið var algjörlega opið og án
girðinga þannig að flokkarnir höfðu
enga tryggingu fyrir því að þeirra
flokksmenn yrðu í efstu sætunum.
Er kosningin bindandi í efstu tvö
sætin.
Mikil þátttaka var í prófkjörinu
en alls gi’eiddu 2.478 manns at-
kvæði, þar af voru ógild atkvæði 84.
Þetta er lítið eitt meiri kosninga-
þátttaka en í prófkjöri Framsóknar-
flokksins í kjördæminu í seinasta
mánuði en þá kusu 2.290 manns.
Sérstaka athygli vakti mikil kosn-
ingaþátttaka á Siglufirði í prófkjöri
Samfylkingarinnar en þar kusu um
800 manns af alls um 1.200 sem eru
á kjörskrá.
FORSTOÐUMAÐUR Non-ænu
barnahjálparinnar, Bo Wallenberg,
var hér á landi fyrir helgi í stuttri
heimsókn í tvíþættum tilgangi.
Annars vegar að hitta íslenska
stuðningsaðila, sem taka þátt í að
kosta nauðstödd börn á Filippseyj-
um til náms og bjarga þeim af göt-
unni, undan misnotkun og vændi og
hins vegar að kynna fyrir Islend-
ingum verkefni sem felst í aðstoð
við börn á geislamenguðum svæð-
um í Úkraínu eftir Tsjernobílslysið
1986.
„Það eru um 100 þúsund börn á
þeim svæðum sem við vinnum á,
sem þjást vegna mengunarinnar.
Fæða þeirra er menguð af geisla-
virkum efnum, sem leiðir tii þess að
ónæmiskerfið hrynur. Þá er greið
leið fyrir ýmsa sjúkdóma að leggj-
ast á börnin, en um síðir leiðir
mengunin til hvítblæðis," segir Bo.
Mest ríður því á að koma börnun-
um út úr menguðu umhverfi sínu,
þar sem þau geta nærst á hreinu
lofti og ómengaðri fæðu og notið
ástar og hlýju. Bo segir að Nor-
ræna barnahjálpin vinni að því að
koma eins mörgum börnum og
mögulegt er til óniengaðra svæða
annars staðar í Úkraínu, en flest
þeirra þurfa að búa á menguðum
svæðum vegna fátæktar foreldr-
anna sem og stjórnvalda.
Bo hefur farið um öll Norður-
löndin á undanfórnum ái-um og
vakið athygli á ástandinu og flutt
þann boðskap að Norðurlandabúar
geti hjálpað og er nú kominn til ís-
lands í sama tilgangi. Hugmynd Bo
er að börn frá Úkraínu komi til
Norðurlandanna í eins mánaðar
endurhæfingu og til þessa hafa 800
börn fengið slíka endurhæfingu.
Segir hann að það taki líkamann
einn mánuð að losna við geisla-
mengunina ef skipt er um um-
hverfí, en taki síðan eitt ár að fara í
sama horf fari börnin aftur á
heimaslóðirnar.
Skólar hentugt húsnæði
Sumarið 2000 er ætlunin að flytja
til íslands um 30 börn frá menguð-
um svæðum, sem Bo segir að líta
megi á sem nokkurs konar sendi-
herra mengaðra svæða í Úkraínu.
Hann mun leita samstarfs hjá
kirkjum landsins um að taka
ábyrgð á verkefninu og útvega
mannskap til að hlynna að börnun-
um. Ennfremur mun hann biðja
stjórnvöld um að lána húsnæði
vegna dvalar barnanna. „Skólar eru
lokaðir á sumrin og henta mætavel
því í þeim gætu börnin sofið og
snætt,“ segir Bo.
En hvaða gagn er að því að flytja
börn frá menguðum svæðum í mán-
aðar endurhæfingu þegar þau
þurfa svo að fara aftur á mengaðar
heimaslóðirnar, svo ekki sé minnst
á þær tugþúsundir barna, sem ekki
komast í endurhæfingu á ómenguð-
um svæðum?
„Þegar sjúk börn hafa verið hér í
endurhæfingu mun fólk ekki
gleyma þeim og halda hjálparstarf-
inu áfram með því að senda þeim
ýmis hjálpargögn eins og mat og
fatnað til Ukraínu,“ svarar Bo.
„Það þýðir ekki að senda þeim pen-
inga því ekki er hægt að kaupa
neitt fyrir þá. Það er búið að senda
1600 tonn af hjálpargögnum frá
Norðurlöndum til Ukraínu og
þannig verður endurhæfingin eins
og það þegar steini er kastað á
lygnan vatnsflöt og hringirnir
stækka og stækka,“ segir Bo og lík-
ir hringjunum við áframhaldandi
hjálparstarf, eins og reyndin hefur
verið á Norðurlöndunum.
FJOLSKYLDAN E R OKKAR SKYLDA
Það getur verið talsvert fyrirtæki að halda
utan um eina fjölskyldu.
Hver fjölskyldumeðlimur hefur sitt áhugamál, það þarf að sækja þennan og skutla
hinum. Svo bætast við ýmsar útréttingar þannig að dagurinn getur verið býsna
erilsamur. Bíllinn er því afar mikilvægur hlekkur í heimilishaldin u.
Honda Civic er tilvalinn fjölskyldubíll; rúmgóður, sprækur.frábær í akstri og það
fer vel um alla. Og farangursrýmið er ekki af skornum skammti.
Gerðu fjölskyldunni glaðan dag.Taktu alla með og prófaðu Honda Civic.
HONDA
- betri bíll
Honda á íslandi • Vatnagörðum 24 • Sími 520 I 100
Opið virka daga kl. 9-18 og kl. 12-16 á laugardögum
Frá 1.549.000 kr.