Morgunblaðið - 16.02.1999, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ
14 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999
FRÉTTIR
Tillaga um lista Sjálfstæðisflokks á Vestfjörðum
Olafur víki úr þriðja sæti
Gísli Einarsson um prófkjörsreglur
Samfylkingar á Vesturlandi
„Hálfgerður
bastarður“
KJÖRNEFND Sjálfstæðisflokksins
á Vestfjörðum hefur skilað tillögum
að lista flokksins fyrir Alþingiskosn-
ingarnar í vor og verða þær lagðar
fyrir kjördæmisráð flokksins innan
skamms.
Samkvæmt tillögum nefndarinnar
víkur Ólafur Hannibalsson úr 3. sæti
listans. Þórii' Örn Guðmundsson,
formaður nefndarinnar, sagði það
hafa komið í ljós að Ólafur hefði ekki
fylgi innan kjörnefndar til að skipa
það sæti. að öðru leyti vildi hann
ekki tjá sig um málið.
I stað Ólafs kemur Guðjón A.
Kristjánsson, formaður Farmanna;
og fiskimannasambands fslands. í
prófkjöri flokksins fyrir seinustu
Alþingiskosningar fékfy Guðjón
heldur fleiri atkvæði en Ólafur, en
þar sem ekki var um bindandi
kosningu að ræða ákvað kjör-
dæmisráð flokksins að sá síðar-
nefndi myndi taka þriðja sætið á
framboðslistanum.
Skýrsla gerð um
bókhald Vestur-
Landeyjahrepps
Kynnt á opn-
um fundi í
hreppnum
í SKÝRSLU endurskoðanda
Vestur-Landeyjahrepps, sem
kynnt verður á opnum fundi í
hreppnum á morgun, koma
fram margvíslegar athuga-
semdir við bókhald sveit-
arfélagsins. Þetta kom fram í
fréttum Ríkisútvarpsins í
hádeginu í gær.
Eggert Haukdal, fyrrver-
andi alþingismaður, sagði sig
úr hreppsnefnd Vestur-Land-
eyjahrepps í desember sl.
þegar lögð voru fram drög að
þeirri skýrslu sem kynnt
verður á morgun. Hann hafði
þá verið oddviti hreppsnefnd-
arinnar frá árinu 1970.
í DV í gær upplýsir Eggert
Haukdal að hann hafi lánað
manni sem var að hefja bú-
skap í Landeyjum peninga.
Maðurinn hafí ekki staðið í
skilum og segist Eggert hafa
greitt til sveitarsjóðs úr eigin
vasa 4,5 milljónir króna svo
sveitarsjóður hafi ekki tapað
einni krónu.
Eggert vildi ekki ræða
þetta mál þegar Morgun-
blaðið talaði við hann í gær.
Leiguþota
Heimsferða með
James Bond
og félaga
BOEING 737-800 þota Sabre
Airways, sem Heimsferðir munu
nota í leiguflugi sínu frá íslandi í
sumar, er nú í ferðum með leikara
og tökulið fyrir næstu James Bond-
kvikmynd. Myndin hefur ekki hlotið
annað nafn en 0019 enda er hún sú
nítjánda í röðinni um útsendara
hennar hátignar.
Heimsferðaþotan flaug í gær með
James Bond-hópinn frá Lundúnum
til Biibao á Norður-Spáni. Verður
hópurinn þar við störf þar til á
morgun og bíður vélin í Bilbao á
meðan. Haldið verður til Genfar á
morgun og þar fara fram tökur
fram undir vikulokin.
Þessi sama þota kemur til Islands
um páskana og fer þá fyrstu ferð-
irnar fyrir Heimsferðir. Hefst
reglulegt ieiguflug til sólarstranda
og Lundúna síðast í maí.
„Þeir vildu mig í þetta sæti á sín-
um tíma en nú hafa þeir metið
landslagið með öðrum hætti,“ segir
Ólafur Hannibalsson. „Ég gaf kost á
mér ásamt fleirum og þeir kusu að
velja annan mann.“
Telur listann veikari
Hann kveðst ekki kunna skýring-
ar á þessu vali kjörnefndar, en gerh'
ráð fyrir að hún hafi einhverjar
skýringar á reiðum höndum.
„Kannski er niðurröðunin sjálf
helsta ástæðan, þ.e. að á eftir mönn-
um sem viðriðnir hafa verið útgerð í
efstu tveimur sætum hafi nefndar-
menn viljað launþegaforingja úr
sjávarútveginum í þetta sæti. I
fjórða sæti er sýslumaðurinn á suð-
urfjörðum [Þórólfur Halldórsson,
sýslumaður á Patreksfirði], þannig
að þama virðast landfræðilegar
vangaveltur búa einnig að baki. Ég
gerði mér alltaf grein fyrir að það
var á valdi uppstillingarnefndar að
STURLA Böðvarsson alþingis-
maður lýsti því yfír á fundi kjör-
dæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í
Vesturlandskjördæmi í Stykkis-
hólmi um helgina að hann gæfi
ekki kost á sér í starf varafor-
manns Sjálfstæðisflokksins, en nýr
varaformaður verður kosinn á
landsfundi í mars.
„Þegar menn fóru að ýta á mig
með að gefa kost á mér í þetta
velja og það er ekkert hægt að
bregðast við því,“ segir Ólafur og
kveðst ekki ætla að reyna að beita
sér fyrir neinum mótmælum eða
breytingum á listanum.
„Ég gaf kost á mér vegna þess að
ég taldi mig geta bætt við listann, en
þeir eru ekki sammála mér í þeim
efnum. Persónuleg skoðun mín er sú
að þessi ráðstöfun veiki listann, en
ég ætla ekki að gefa út neinar yfír-
lýsingar um það eða vera með sár-
indj í því sambandi,“ segir hann.
Ólafur kveðst ekki búast við að
pólitísk afskipti hans verði mikil á
næstunni, önnur en þau að hann
muni láta skoðanir sínar á einstök-
um málum í ljós þegar hann telji
ástæðu til. Óráðið sé hvort hann
muni taka þátt í formlegu flokks-
starfi Sjálfstæðisflokksins, en ljóst
sé hins vegar að hann telji sig ekki
eiga samleið með þeim nýju fram-
boðum sem komið hafa fram sein-
ustu mánuði.
embætti var það fyrst og fremst
gert á þeirri forsendu að menn
vildu að mér yrði teflt fram sem
sérstökum fulltrúa af lands-
byggðinni. Það er vissulega rétt að
ég hef litið á mig sem talsmann
landsbyggðarinnar, en þó fyrst og
fremst míns kjördæmis. Ég hef
m.a. unnið sem formaður Hafnar-
sambands sveitarfélaga fyrir sveit-
arfélögin og þá sérstaklega sjávar-
SAMRÁÐSNEFND Samfylkingar-
innar á Vesturlandi hefur
samþykkt tilhögun prófkjörs undir
formerkjum Samfylkingar. Davíð
Sveinsson, formaður kjördæmis-
ráðs Alþýðuflokks á Vesturlandi,
segir prófkjörslistann skiptan í
hólf. „Þátttakendur mega merkja
við einn til þrjá, en samt aðeins
einn í hverju hólfi, þ.e.a.s. það má
setja eitt, tvö, eða þrjú merki, en þó
aðeins eitt í hvert hólf,“ segir Dav-
íð. „Þetta er dálítið óvenjulegt en
við erum að reyna að koma í veg
fyrir flokkamyndanir og viljum fá
sem breiðasta útkomu.“
Davíð segir að þegar hafi komið
byggðirnar. Það er því ekki óeðli-
legt að menn hafí litið til mín þess
vegna.“
Vii ekki efna til ófriðar
milli landshiuta
„Ákvörðunin um að gefa ekki
kost á mér er til komin m.a. vegna
þess að ég lít svo á að varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins geti aldrei
verið kosinn sem fulltrúi ákveðins
fram gagnrýni á þetta fyrirkomulag
en ekki hafi náðst sátt um viður-
kenndar leiðir. Hann telji gallana
ekki svo stórvægilega að þeir skipti
máli.
Ekki jafnræðisreglur
„Menn segja til dæmis galla að
alþýðuflokksmaður sem gefur kost
á sér getur ekki hvatt fólk til að
kjósa annan alþýðuflokksmann, og
það sem verra er að það þurfa að
vera tiltölulega jafnmargir í hverju
hólfí til að niðurstaðan sé á að giska
jöfn. Þess vegna hefur kjörstjórn
möguleika á að fá fleiri í hólf sem
fáir eru í, en þó mega ekki vera
fleiri en fimm í hverju hólfi,“ segir
Davíð.
Gísli S. Einarsson, 5. þingmaður
Vesturlands, kveðst líta svo á að
búið sé að samþykkja tillögur kjör-
nefnda um tilhögun prófkjörs og
hann muni vinna eftir þeim. „Það er
rangt með farið að prófkjörsregl-
urnar séu í óþökk minni, að öðru
leyti en því að ég tel að reglur sem
væru jafnræðisregiur væra ekki í
þessari mynd,“ segir Gísli.
Hann kveðst líta svo á að reglurn-
ar bjóði upp á að ójafnræðis gæti á
milli flokka.
„I rauninni er búið að bjóða upp á
alla þekkta möguleika í prófkjörum,
aðra en þann sem nefndirnar
ákváðu að samþykkja. Þetta er nýtt
fyrirkomulag sem þekktist hvergi
úr prófkjörum á landinu og er hálf-
gerður bastarður. Ég var beðinn
um að koma með tillögu að lausn og
bauð í fyrsta lagi upp á uppstillingu,
þar sem Jóhann Ársælsson fengi
fyrsta sætið, ég fengi annað sætið
og Hólmfríður Sveinsdóttir þriðja
sætið. í öðru lagi bauð ég upp á
þekktar prófkjörsaðferðir. Þessu
var hafnað. Fyrirkomulagið er hins
vegar ekkert verra fyrir mig en
aðra og ég geng til leiks með sigur
að leiðarljósi. Þegar komið er með
svona reglur verð ég bara harðari,"
segir Gísli.
landshluta eða hagsmunahópa.
Varaformaðurinn er auðvitað kjör-
inn af landsfundi algerlega óbund-
inn af einstökum hópum eða lands-
hlutum. Mér fínnst að ég geti alls
ekki gefið kost á mér á þessari for-
sendu í þetta embætti sem fulltrúi
landsbyggðarinnar.
Þó að ég vildi draga fjöður yfir að
ég væri harðdrægur fulltrúi lands-
byggðarinnar þá lít ég svo á að ég
hafi svo mikilvægum verkefnum að
sinna fyrir kjördæmi mitt og þau
verkefni sem flokkurinn kann að
fela mér að ég vilji fremur vinna að
þeim verkefnum en þeim verkefn-
um sem varaformennska í flokkn-
um gefur tilefni til.
Ég tel að ef mér hefði verið teflt
fram sem fulltrúa landsbyggðarinn-
ai' hefði ég verið að gefa færi á mjög
illvígum kosningaslag á milli lands-
byggðarfulltrúa og fulltráa höfuð-
borgarinnar. Ég vil ekki bera
ábyrgð á því að efnt sé til slíks ófrið-
ar innan flokksins, enda algerlega
tilefnislaust, því við þurfum einmitt
að sjá til þess að fólk af lands-
byggðinni og úr höfuðborginni vinni
sem mest saman,“ sagði Sturla.
D-listinn á Vesturlandi ákveðinn
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
Á FUNDI kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í
Vesturlandskjördæmi, sem haldinn var í Stykkis-
hólmi 14. febrúar, var samþykktur framboðslisti
flokksins í kjördæminu fyrir alþingiskosningarn-
ar 8. maí nk.
Kjördæmisráð ákvað í haust að stilla upp lista í
stað þess að efna til prófkjörs. Þá lá fyrir að báðir
alþingismenn flokksins, þeir Sturla Böðvarsson og
Guðjón Guðmundsson, gæfu kost á sér til áfram-
haldandi setu á Alþingi. Skipuð var uppstillingar-
nefnd til að gera tillögu að framboðslista fyrir
komandi kosningar. A fundi kjördæmisráðs í
Stykkishólmi var tiliaga uppstillingarnefndar
samþykkt samhljóða og er listinn þannig skipað-
ur:
1. Sturla Böðvarsson, alþingismaður, Stykkis-
hólmi, 2. Guðjón Guðmundsson, alþingismaður,
Akranesi, 3. Helga Halldórsdóttir, skrifstofumaður,
Borgarbyggð, 4. Skjöldur Orri Skjaldarson, bóndi
Dalabyggð, 5. Sigríður Finsen, hagfræðingur,
Grundarfirði, 6. Edda Þórarinsdóttir, dýralæknir,
Borgarfirði, 7. Sigurður Valur Sigurðsson, nemi,
Akranesi, 8. Ólafur Helgason, tæknifræðingur,
Borgarfirði, 9. Karen Lind Ólafsdóttir, nemi, Akra-
nesi, 10. Sigurður Kristjónsson útgerðarmaður,
Hellissandi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
STURLA kynnti ákvörðun sína á fundi á Stykkishólmi, þar sem Björn Bjarnason var gestur. Á myndinni eru
einnig Guðjón Guðmundsson alþingismaður og Helga Halldórsdóttir, sem skipar 3. sætið á lista
sjálfstæðismanna.
Sturla Böðvarsson ekki
í kj öri til varaformanns