Morgunblaðið - 16.02.1999, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Aukin umsvif KEA í matvöruverslun á höfuðborgarsvæðinu
Fleiri störf skap-
ast á Akureyri
Á SAMA tíma og Kaupfélag Eyfirð-
inga er í frekari landvinningum á
matvörumarkaðnum á höfuðborgar-
svæðinu er félagið einnig að vinna
að breytingum á félagssvæðinu í
Eyjafírði. KEA stefnir að því að
fjölga matvöruverslunum á suðvest-
urhorninu og eru kaupin á hlut í
Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík
liður í því. Á Akureyri er stefnt að
stækkun húsnæðisins í Hrísalundi
og að færa KEA Nettó í stærra hús-
næði.
Sigmundur Ofeigsson, fram-
kvæmdastjóri verslunarsviðs KEA
sagði félagið hafa mikinn hug á að
opna matvöruverslun í Grafarvogi í
Reykjavík en einnig væri til skoðun-
ar að opna matvöruverslanir í
Garðabæ og Hafnarfirði. „Við erum
að leita fyrir okkur að húsnæði við
fjölfarnar umferðaræðar og stór
íbúðahverfi."
Ekki liggur fyrir hvenær KEA
opnar matvöniverslun á svæðinu við
Umferðarmiðstöðina enda margir
endar lausir enn. Sigmundur sagði
því mjög líklegt að félagið myndi
opna matvöruverslun annars staðar
í borginni áður en til þess kæmi.
KEA opnaði Nettó-verslun í
Mjódd í Reykjavík síðastliðið haust
og sagði Sigmundur að sú verslun
hefði hitt í mark. Hann sagði að síð-
asta ársfjórðung í fyrra hefði orðið
40-50% aukning í framleiðslu hjá
Kjötiðnaðarstöð KEA, miðað við
sama tímabil árið áður og þá aðal-
lega vegna Nettó-verslunarinnar í
Reykjavík. Þessi mikla aukning hafi
jafnframt skapað 5-6 ný störf hjá
Kjötiðnaðarstöð KEA á Ákureyri.
Aukin umsvif á höfuð-
borgarsvæðinu
Sigmundur sagði að einnig hefði
orðið veruleg söluaukning í ákveðn-
um mjólkurvörum KEA og að aukin
umsvif í Reykjavík hefðu skilað sér í
fleiri framleiðslustörfum á Akur-
eyri. Hins vegar hefði eitthvað verið
um að samkeppnisaðilar KEA á
höfuðborgarsvæðinu settu vörur fé-
lagsins út úr verslunum sinum og
það hefði einna helst bitnað á Kaffi-
brennslu Akureyrar og Efnaverk-
smiðjunni Sjöfn, dótturfélögum
KEA.
„Það er engu að síður alveg nauð-
synlegt fyrr félagið að auka umsvif-
in á Reykjavíkursvæðinu. Þar
stækkar þjóðarkakan og ef við ætl-
um okkur hlut í þein-i stækkun
þurf'um við að auka umsvifin.“
Eins og komið hefur fram hafa
KEA og Rúmfatalagerinn sótt um
byggingarleyfi fyrir verslunannið-
stöð á Akureyrarvellinum. For-
svarsmenn Rúmfatalagersins hafa
jafnframt lýst yfir áhuga á að
byggja 12.000 fermetra verslunar-
miðstöð á vellinum og boðið KEA að
leigja og eða kaupa rými undir
Nettó-verslun sína, svo og minni
sérverslunum. Svars er að vænta
frá bæjaryfirvöldum á Akureyri í
næsta mánuði.
„Norðlendingar munu heldur
ekki fara varhluta af okkar út-
þenslu. Það er mjög farið að
þrengja að KEA Nettó og því nauð-
synlegt að færa verslunina í stærra
húsnæði. KEA Nettó hefur gengið
mjög vel og er að mínu mati mesta
kjarabót Norðlendinga og reyndar
fólks úr fleiri landshlutum."
KEA Nettó í
Sjafnarhúsið?
Fáist ekki byggingarleyfi á Akur-
eyrarvellinum, hefur komið til tals
að færa KEA Nettó í húsnæði
Sjafnar við Austursíðu. Húsnæðið
er um 10.000 fermetrar og er starf-
semi Sjafnar aðeins í hluta þess. Þá
hafa bæjaryfirvöld á Akureyri tekið
Morgunblaðið/Kristján
HUN Sigrún Vésteinsdóttir var að skoða úrvalið í grænmetisborðinu
á Akureyri er ljósmyndari Morgunblaðsins var þar á ferð í gær.
jákvætt í erindi frá KEA um stækk-
un húsnæðisins við Hrísalund um
tæpa 200 fermetra, fyi'ir verslun og
þjónustu. KEA rekur þrjú apótek á
Akureyri, Stjörnuapótek og Akur-
eyrar Apótek í Hafnarstræti og
Sunnuapótek í verslunanniðstöðinni
Sunnuhlíð. Hugmyndin er að færa
Akureyrar Apótek úr Hafnarstræti
í Hrísalund og hefur húsnæði apó-
teksins í miðbænum verið auglýst
til sölu.
Þungur rekstur í Suniiuhlíð
Einnig er unnið að ýmsum breyt-
ingum og áherslum í matvöruversl-
ununinni í Hrísalundi og þá hefur
KEA fengið leyfi fyrir útafakstur
frá bílastæðum við Hrísalund og út
á Þingvallastræti. Innkeyrslan frá
Þingvallastræti verður á sama stað
en hún verður breikkuð og auk þess
sett upp iítil umferðareyja.
Verslunarrekstur í verslunarmið-
stöðinni Sunnuhlíð á Akureyri hefur
verið ei'fiður og hefur KEA ekki
farið varhluta af því. Félagið rekur
þar matvöruverslun og apótek og
hefur sá rekstur gengið illa. Starf-
semi KEA í Sunnuhlíð er því í end-
urskoðun en þeir sem til þekkja
telja að það yrði reiðarslag fyrir
aðrar verslanir ef matvöruverslun-
inni yrði lokað.
KEA rekur einnig matvöruversi-
anir á Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík-
urbyggð, Hrísey og Grímsey en
leigir einkaaðiia reksturinn á Greni-
vík. Reksturinn í stóru sveitarfélög-
unum þremur hefur gengið vel en
illa í Hrísey og Grímsey. Á Siglu-
firði er unnið að því að auka af-
greiðsiutímann enn frekar og í
Ölafsfirði er unnið að endurbótum
og m.a. verið að setja þar upp nýjar
innréttingar.
Vorfíðringur
í ökumönnum
ÞÓNOKKUÐ margir ökumenn
voru teknir fyrir að aka of hratt um
helgina og sagði Ólafur Ásgeirsson
aðstoðaryfirlögregluþjónn að svo
virtist sem vor væri komið í öku-
menn. Aðstæður væru hins vegar
langt í frá þess eðlis að fýsilegt
væri að aka greitt.
„Við höfðum afskipti af mörgum
ökumönnum og eins og gengur er
alltaf eitthvað um að menn hafi
ekki ökuskírteini meðferðis eða
spenni ekki á sig bílbelti," sagði
Olafur.
Fjöldi fólks var á ferðinni um
helgina, en „það var þorrablót í
öðru hverju félagsheimili í firðin-
um,“ eins og Óiafur orðaði það. Þótt
í einhverjum tiifellum hafi verið
ótæpilega drukkinn mjöðurinn fór
allt vel fram, engin kjaftshögg og
„allir fóru heim með sinni kellu.“
Leiftur fær tvo Brassa
Skákþing Akureyrar
Rúnar
efstur
RÚNAR Sigurpálsson er efst-
ur á Skákþingi Akureyrar sem
stendur yfir um þessar mund-
ir. Tefldar hafa verið fjórar
umferðir og er Rúnar með 3
vinninga. Þór Valtýsson og
Stefán Bergsson eru næstir
með 2,5 vinninga.
Tíu mínútna mót fyrir 45 ára
og eldri verður haldið í skák-
heimilinu við Þingvallastræti
18 á Akureyri næsta föstudag,
19. febrúar og hefst það ld. 20.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
Láta snjóinn
ekki á sig fá
TVEIR Brasihubúar komu á
dögunum til Ólafsfjarðar en þeir
ætla að leika með knattspyrnuliði
Leifturs næsta sumar. Að sögn
Páls Guðlaugssonar, þjálfara
Leifturs, eru þeir kærkomin
viðbót við leikmannahópinn. Það
eru mikil viðbrigði að koma dr
hitanum þar syðra í kuldann á
íslandi, en þeir Alexandre
Barraeto dos Santos og Sergio
Luis Barbosa de Maleno Iáta
engan bilbug á sér finna og bera
sjg vel. Þeim líst vel á sig í
Ólafsfirði og eru þegar búnir að
fá vinnu í fiskvinnslu.
Aukalandsþing- Félags framhaldsskólanema um miðjan mars
Morgunblaðið/Kristján
FULLTRÚAR nemenda í framhaldsskólunum tveimur á Akureyri, framhaldsskólunum á Laugum í Reykja-
dal, Húsavík og Egilsstöðum hittust á fundi á Akureyri sl. sunnudag og ræddu fyrirliggjandi tillögur um
breytingar á starfsemi Félags framhaldsskólanema og fleira. Þá voru fundarmenn í símasambandi við
kollega sína á Sauðárkróki og ísafirði.
Miklar breytingar á
félaginu lagðar til
UMFANGSMIKLAR tillögur um
breytingar á skipulagi Félags fram-
haldsskólanema, FF, voru lagðar
fram á landsþingi félagsins nýlega.
Lagt var til að ráðinn yrði fram-
kvæmdastjóri fyrir félagið í fullt
starf, fjármálastjóri í hálft starf og
að skipuð verði þrjú svæðisráð, tvo
á landsbyggðinni og eitt í Reykja-
vík. í núverandi fyrirkomulagi eiga
forsvarsmenn allra skóla sæti í yfir-
stjórn félagsins, auk þess sem starf-
andi er 7 manna framkvæmda-
stjórn.
Guðfinnur Sigurvinsson, inspect-
ore scholae Menntaskólans á Ákur-
eyri, og Gestur Einarsson, formað-
ur Nemendafélags Verkmennta-
skólans á Akureyri, fóru fyrir þess-
um tillögum, sem einnig nutu stuðn:
ings fulltrúa fjölda annarra skóla. I
kjölfarið var samþykkt að boða til
aukalandsþings FF um miðjan
mars nk. þar sem tillögurnar verða
teknar til afgreiðslu.
Framhaldsskólar landsins eru 29
og eru framhaldsskólanemendur
hátt í 20.000 talsins. Aðeins Versl-
unarskóli íslands stendur utan Fé-
lags framhaldsskólanema. „Þessi
mikli fjöldi framhaldsskólanemenda
er á við stórt sveitarfélag og það er
því nokkuð mikið staif að halda ut-
an um starfsemina. Þótt sitjandi
framkvæmdastjóm hafi skilað góðu
verki að undanförnu, dugir það ekki
til. Það er ekki hægt að reka félagið
í sjálfboðavinnu og við teljum nauð-
synlegt að ráðnir verði starfsmenn
til félagsins," sagði Guðfinnur.
Þrjú svæðisráð
Hann sagði að nokkur togstreita
hafi myndast milli skóla innan FF
og að ekki hafi tekist að fylgja eftir
stefnumálum og markmiðum félags-
ins. „Félagið er hagsmunasamtök
nemenda og því er jafnframt ætlað
að stuðla að bættum samskiptum
skólanna. Þetta hefur ekki tekist og
á tímabili stefndi í fjöldaúrsagnir úr
félaginu.“
Tilgangurinn með stofnun svæð-
isráða er m.a. sá að skoðanir nem-
enda heyrist betur og að forsvars-
menn skóla á nálægum svæðum
hittist og ræði málin. Jafnframt er
lagt til að svæðisráðin verði í mjög
góðum tengslum við framkvæmda-
stjórn FF. Gert er ráð fyrir að í
öðru svæðisráði landsbyggðarinnar
séu skólar á svæðinu frá Isafirði til
Neskaupstaðar en í hinu frá Aust-
ur-Skaftafellssýslu til Reykjaness.
Jafnframt að miðstöð svæðisráðsins
frá ísafirði til Neskaupstaðar verði
á Akureyri, með aðsetur í félags-
miðstöðinni Kompaníinu.
Sem fyrr sagði ráðast þessar
breytingar af því að fjármagn fáist
til starfseminnar.
Þeir Gestur Einarsson og Guð-
finnur Sigurvinsson munu ræða
þessi mál við Kristján Þór Júlíus-
son, bæjarstjóra á Akureyri, í dag
þriðjudag og þeir hafa einnig óskað
eftir að hitta Björn Bjarnason
menntamálaráðherra.