Morgunblaðið - 16.02.1999, Síða 22

Morgunblaðið - 16.02.1999, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR ÚR VERINU Mismikið öryggi fjölskyldubila FEBRÚARBLAÐ Neytendablaðs- ins er komið út og er það fyrsta tölublað ársins. Meðal efnis er árekstraprófun á sex tegundum fjölskyidubíla, sem Neytendablaðið vann í samvinnu við danska neyt- endablaðið Tænk. Niðurstaðan var sú, að fjórar bíltegundir af sex komu mjög vel út með tilliti til ör- yggis þeirra sem í bílunum sitja, en í öllum tilvikum er hönnunin afar óhagstæð fyrir þá gangandi vegfar- endur sem kynnu að verða fyrir bíl- unum. Samkvæmt könnuninni og frétt Neytendablaðsins getur hætta ver- ið á ferðum I umferðaróhappni fyr- ir ökumann Nissan Almera við árekstur að framan, hætta sé á lífs- hættulegum áverka á brjóstkassa og vernd barna sé einnig rýr í þessari bifreið. Á hinum kantinum séu Ford Focus og Reunault Megane, þar sem vernd bílstjóra jafnt sem annarra farþega sé mun meiri. Tekið var þó fram að staðal- öryggisbúnaður sem fylgi bílunum geti verið annar hér á landi en var í sömu bflum á prófunum og geti það skipt mjög miklu fyrir öryggi far- þega. í hverju tilviki fyi-ir sig er slíkt tekið fram í úrvinnslu Neyt- endablaðsins. Það voru sem sagt Ford Focus, Merceded A Class, Renault Megane og Opel Astra sem komu best út í öryggi bílstjóra og annarra farþega, m.a. barna. Slakasta útkoman var hjá Ford Escort og þó einkum Niss- an Almera. Varðandi gangandi veg- farendur þá voru þeir í öllum tilvik- um í vondum málum, en þó einna skástum gagnvart Ford Focus og Ford Escort. Dæmi um slæma nið- urstöðu er Renault Megane, þar sem 18 atriði voru athuguð, en í tólf tilvikum fékk bíllinn einkunnina Slæmur. HINAR nýju mjólkurumbúðir. Ný málrækt á mj ólkurumbúðum MJÓLKURSAMSALAN hefur lát- ið íslenska málrækt til sín taka síðustu fímm árin, einkum í formi ábendinga um íslenskt mál á mjólkurumbúðum. Enn heldur þessi stefna áfram, en um siðustu helgi varð þó áherslubreyting. I yfirlýsingu frá Baldri Jónssyni, markaðsstjóra Mjólkursamsölunn- ar, er nú leitast við að sýna auðgi íslenskrar tungu með því að birta brot úr athyglisverðum bók- menntatextum, þannig að í stað þess að tala um fslenska notkun hennar er íslenskan látin tala meira sjálf. MS hefur í þessu skyni breytt umbúðum léttmjólkur og nýmjólkur og í tilefni þess var efnt til íslenskudaga í Kringlunni um siðustu helgi þar sem boðið var upp á Qölbreytta dagskrá sem helguð var íslenskri tungu. Að sögn Baldurs hefur mark- mið íslenskuátaksins ávallt verið að styðja við íslenskt mál með ferskum hætti og með breyttum áherslum nú undirstriki Mjólkur- samsalan enn frekar forystuhlut- verk sitt í stuðningi við fslenska tungu og málrækt. Sérstök fyrirtæki 1. Falleg fataverslun sem selur barna- og kvenfatnað, nýjar innrétt- ingar. Mikil álagning. 2. Fiskvinnsla, útflutningur, er með ferskfisk, saltfisk og frystileyfi. 3. Ein elsta billjardstofa landsins og sú þekktasta til sölu strax af sérstökum ástæðum. Selst á sérlega góðum kjörum eða í skiptum fyrir íbúð, bíl eða öðrum verðmætum. 4. Falleg og björt hársnyrtistofa á góðum stað, umvafin íbúðarblokk- um, vel tækjum búin, sérinnréttingar og mikið að gera. 5. Framleiðslufyrirtæki sem framleiðir úr plasti í lokuðum mótum og er með fasta stóra viðskiptavini. Einstakt tækifæri fyrir dug- lega aðila, vinna sem getur gefið góðar tekjur. Kennsla fylgir. 6. Ein helsta og besta gjafa- og blómabúð borgarinnar til sölu. Mikil aukning á sölu varð á sl. ári. Vaxandi möguleikar fyrir þá sem vilja vinna og þéna peninga. 7. Góð og þekkt efnalaug til sölu sem er í eigin húsnæði sem einnig ertil sölu. Framtíðarfyrirtæki. Góð vinna fyrir samhent hjón. 8. Gjafa- og blómavöruverslun í miðborginni á frábærum stað innan um stór fyrirtæki sem eru þar í viðskiptum. Einnig liggur hún sérstaklega vel varðandi sölu til ferðamanna. Laus strax. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni SUÐURVE R I SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. Morgunblaðið/Birgir Þórbjarnarson TUNFISKSKIPIÐ Byr VE landaði stórlúðu í Vestmannaeyjum fyrir skömmu, alls um 7 tonnum. Lúðunni landað • BYR VE liggur nú í höfn í Vestmannaeyjum meðan verið er að búa skipið til túnfiskveiða á ný. Skipið hóf veiðarnar seint síðastliðið haust og fór svo einn túr á lúðulínu (haukalóð) út af Reykjanesi og varð aflinn um 7 tonn af stórri lúðu. Sveinn Val- geirsson, skipstjóri, segir í samtali við Morgunblaðið að nú sé stefnan sett á túnfiskinn á ný. Hann sé veiddur allt árið, en á þessum árstíma þurfi að siekja hann nokkuð langt í suð- ur. Loðnukvótinn verður aukinn um 200.000 tonn „Ætti að vera mesti bylurinn af þakinu“ AKVEÐIÐ hefur verið að auka loðnukvótann um 200.000 tonn í kjölfar þess að rannsóknaskipið Árni Friðriksson fann töluvert af loðnu út af Austfjörðum. Loðnan þar var ekki veiðanleg og mikið smælki í henni, en hún var á um 35 til 40 mflna löngum flekk, 4 til 8 mfl- ur á breidd. Til greina getur komið að kvótinn verði enn aukinn fínnist enn meiri loðna í leiðangri skipsins, sem heldur nú suður með Austfjörð- um eftir því sem veður leyfir. Verð- mæti þessarar aukningar gæti verið um einn milljarður ki-óna upp úr sjó, miðað við hráefnisverð í dag. Útflutningsverðmæti afurðanna gæti á hinn bóginn verið að minnsta kosti um 1,5 milljarðar króna, hugs- anlega nálægt tveimur, en það fer eftir frystingu og hrognavinnslu. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðing- ur segir að eftir þetta ætti að vera mesti bylurinn af þakinu. Bráðabirgðakvóti frá því í sumar var 950.000 tonn og komu um 688.200 tonn af þvi í hlut okkar ís- lendinga. Gert var ráð fyrir að end- anlegur kvóti gæti orðið um 1.420.000 tonn og var úthlutað til Norðmanna og Grænlendinga á þeim grundvelli. Aukningin nú kem- ur því öll í okkar hlut og leyfilegur heildarafli okkar verður alls um 890.000 tonn af 1.150.000 tonna kvóta. Þau skip, sem lokið höfðu kvóta sínum, geta því haldið til veiða á ný. Kvótanum verður skipt á skipin í samræmi við aflahlutdeild þeirra. Nú eru því óveidd af leyfi- legum heildarkvóta okkar um 390.000 tonn samkvæmt upplýsing- um frá samtökum fiskvinnslustöðva. Mikil og góð loðnuveiði var á Skarðsfjöru og þar um slóðir í gær. 31 skip var úti samkvæmt upplýs- ingum Tilkynningaskyldunnar og fylltu þau sig flest í fáum köstum. Sverrir Ólafsson, skipstjóri á Odd- eyri EA, lét vel af veiðinni, en miður af veðri, er Verið ræddi við hann í gær. „Við komum á miðin í morgun og fylltum okkur í þremur köstum. Nú erum við á leið til Grindavíkur í leiðindaveðri, 7 til 8 vindstigum af vestan og tilheyrandi sjó. Þetta er ágætis vinnsluloðna sem við erum að fá núna eftir að hún gekk á Verðmæti afurð- anna að minnsta kosti 1,5 milljarð- ar króna grynnra vatn og það er engin áta í henni. Hún fer hins vegar illa á leið- inni í svona veðri, verður ansi slegin og líklega ekki hæf til vinnslu fyrir vikið. Veðurfarið hefur verið hund- leiðingt allt frá því í haust en við því er lítið að gera,“ sagði Sverrir. Rólegt í frystingunni Það er rólegt í frystingunni enn þá, enda var bræla um helgina. Þá er erfitt að koma loðnunni vinnslu- hæfri í land í brælunni nema mjög stutt sé að fara. Eins og er kemur það Vestmanneyingum hvað best. Hrognafylling er nu um 17% og má samkvæmt því gera ráð fyrir að hrognavinnsla gæti hafizt eftir um það bil þrjár vikur. Þá þarf hrogna- fylling að hafa náð 22 til 23%. Var hætt að lítast á blikuna Hjálmar Vilhjálmsson, leiðangurs- stjóri á Ama Friðrikssyni, segir að þeim hafi alveg verið hætt að lítast á blikuna og ekki skilið neitt í neinu. „Það komu engar tölur út úr þessum lóðningum, sem við vorum að skarka í í janúar. Trúlega af því hún hefur þá verið of dreifð og hluti hennar langt úti í hafi. I fyrradag vorum við inni fyrir austan enda leiðindaveðm'. Við fréttum þá af lóði úti í köntum. Við lögðum af stað og ætluðum að byrja út af Fætinum, en hann tekur við af Hvalbakshallanum. Þá kom ný frétt sunnan af Öræfagrunni. Við drösluðumst þangað, en þar var ekk- ert annað en síld. Aumingjalegt hrygningarsfli Við snerum því við og þegar við komum til baka á svæðið sunnan við Reyðarfjarðardjúpið, komum við þar í loðnu. Síðan var lóðningateppi um kantinn og dálítið upp á grunn- ið. Þetta hefur náð í einar 35 til 40 mílur frá norðri til suðurs, en var ekki breitt, svona 3 til 4 upp í 7 til 8 mílur. Þetta er svona heldur aum- ingjalegt hrygningarsfli, jafnvel á núverandi mælikvarða. Eitthvað er reyndar í þessu af fiski, sem ekki hrygnir fyir en á næsta ári. Þegar við vorum komnir á móts við Gerpi, fluttum við okkur ofar og leituðum aftur til suðurs. Það var dálítið að sjá þar suður undir Tangaflakið, en þá tók undan í bili. Þá var komið vit- laust veður, 10 vindstig, og við kom- um hér upp undir við illan leik klukkan 6 í morgun, allir skeknir," segir Hjálmar. Hann segir að þessi viðbót, sem nú hafi fundizt, ætti að duga í 200.000 tonn til viðbótar. Það ætti því að vera mesti bylurinn af þak- inu. Hann væri einnig að vona að það væri eitthvað meira á grunninu suður af Reyðarfjarðardýpinu og suður undir Hvalbak. Það hafi verið sagt frá lóðningum uppi á Tangaflaki fyrir nokkrum dögum. Sú loðna hafi að öllum líkindum haldið suður fyrir og þeir ættu því eftir að sjá hana ennþá. 5,4 millj- ónir sela SEL hefur fjölgað gífurlega við austurströnd Kanada, Nýfundnaland og Labrador. Talið er að þar séu nú um 5,4 milljónir sela og nauðsynlegt sé að auka selveiðikvótann út 275.000 dýrum í 400.000 til að halda vexti stofnsins í skefjum. Talið er að verði ekki gripið í taumana með þeim hætti, sé nauðsynlegt að drepa selinn í stórum stíl í einu átaki. Sam- kvæmt niðurstöðu rannsókna vísindamanna er heppilegur heildarfjöldi sela á þessum slóðum um tvær milljónir, bæði með tilliti til umhverfissjónar- miða og ástands fiskistofna. Mikil fjölgun sela getur haft í för með sér miklar selagöngur suður með ströndinni í leit að æti, eins og gerðist við Noreg fyi'ir nokkrum árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.