Morgunblaðið - 16.02.1999, Page 53

Morgunblaðið - 16.02.1999, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999 53 Tor Helness bætti enn einni rósinni í hnappagatið Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Sigurvegarai’ mótsins, Tor Helness og Jon Egil Furunes. Sigurinn hékk á bláþræði í lokin eftir yfirburðastöðu fyrir síðustu umferðina. SIGURÐUR Vilhjálmsson og Ragnar Magnússon saumuðu að sigur- vegurunum í lokaumferðinni en urðu að láta sér nægja annað sætið. BRIPS Hólel Loftleiðir TVÍMENNINGUR A BRIDSHATÍÐ 23 umferðir - 124 pör - 10.-11. febrúar Norðmennimir Tor Helness og Jon Egil Furunes sigruðu í tvímenn- ingskeppninni sem lauk um kvöld- matarleitið sl. laugardag og sýndi Helness enn einu sinni hve ílrna- sterkur spilari hann er. Hann hefur ásamt landa sínum Geir Helgemo myndað eitt sterkasta pai- heims undanfarin ár, og þeir eru nýbúnir að að vinna Macallan-tvímenninginn í London annað árið í röð. Tor og Jon Egil tóku forystuna strax á laugardag og spiluðu á fyrsta borði allan daginn. Fyrir- komulag mótsins var með þeim hætti að þeir spiluðu við öll efstu pörin í mótinu sem mættu á fyrsta borð hvert af öðru og reyndu að klekkja á þessu sterka pari. Flest þeirra fóru bónleið til búðar þar til í síðustu umferð að Valur Sigurðs- son og Sigurður Sveinsson mættu til leiksins og fengu 63 stig á móti þeim og settu spennu í mótið eftir að Norðmennirnir höfðu haft þægilega stöðu í toppsætinu lengi vel. A meðan spiluðu helztu keppi- nautarnir Ragnar Magnússon og Sigurður Vilhjálmsson gegn Sel- fyssingunum Þórði Sigurðssyni og Gísla Þórarinssyni. Ragnai- og Sig- urður áttu afburðasetu og skoruðu 129 stig þannig að það var Tor og Jon Egil til happs að þeir áttu lið- lega 200 stiga forystu fyrir síðustu umferðina. Lokaskor Tors og Jons Egils var 868 stig en Ragnars og Sigurðar 840. Dæmigerð Ziasveifla Zia Mahmood mætti til leiks á ný, nú með Barnett Shenkin. Þeir voru lengst af í kringum 10. sætið og þegar þeir mættu Ragnari og Sigurði í þriðju síðustu lotu virt- ust íslendingarnir ætla að hafa mun betur því fyrstu þrjú spilin voru þeim hagstæð. En í síðasta spili setunnar greip Zia til sinna ráða: Suður gefur, allir á hætti. Norður * 10864 ♦ ÁD ♦ 7 * D109874 Vestur Austur ♦ ÁK73 * DG952 ♦ 752 ♦ 963 ♦ K43 ♦ G2 *G52 + ÁK6 Suður ♦ ♦ KG1084 ♦ ÁD109865 ♦ 3 Zia virðist hafa ákveðið að búa til sveiflu og opnaði því á veikum 2 tíglum með suðurspilin. Og honum varð að ósk sinni: RM BS SV ZM - - — 2 tígiar Pass Pass 2 spaðar 3 tyortu 4 spaðar Pass Pass 4 grönd dobl 5 lauf dobl 5 tíglar dobl 5 työrtu dobl/ Þótt þá Ragnar og Sigurð hafí væntanlega grunað að Zia væri með óvenjulega hönd, er erfitt að áfellast þá fyrir sagnir. Gegn 5 hjörtum dobluðum spilaði Ragnar út spaðaás en Zia trompaði, tók tígulás og spilaði tíguldrottningu og hleypti henni þegar Ragnar lét lítið. Hann trompaði næst tígul með ás, spilaði hjartadrottningu og yfir- drap með kóng, og þegar hjai'tað lá 3-3 átti Zia 12 slagi og hreinan topp; við mörg borð var spilaður tígulbútur í NS. Þetta kom Zia á bragðið og í síð- ustu umferðinni skutust þeir Shenkin í þriðja sætið með jákvæðri skor gegn bræðnmum frá Akureyri Antoni og Sigurbirni Haraldssonum í síðustu umferðinni og eins og þekkt er skiptir máli að vera í toppsætunum á réttum tíma en Zia hafði aldrei komist svo ofar- lega fyrr en í síðustu umferðinni. Anton og Sigurbjörn náðu að halda fjórða sætinu þrátt fyrir tapsetu en það var hart að þeim sótt. Jón Þor- varðarson og Sverrir Kristinsson fengu risaskor í síðustu umferðinni eða 147 stig og fóru úr 13. sætinu í það funmta en lokastaðan í mótinu varð annars þessi: Tor Helness - Jon Egil Furunes 858 Ragnar Magnúss. - Sigurður Vilhjálmss. 840 Zia Mahmood - Barett Shenkin 7190 Anton Haraldsson - Sigurbjöm Haralds. 653 Jón Þorvarðarson - Sverrir kristinsson 651 Knut Blakset - Frederik Bjerregaard 626 Valur Sigurðsson - Guðmundur Sveins. 580 Vignir Hauksson - Guðjón Bragason 579 Ralph Katz - Steve Garner 570 Sigurður Sverriss. - Aðalsteinn Jörgens. 557 Verðlaunin í mótinu voru glæsi- leg eða liðlega ein milljón ki-. Fyrir fyrsta sætið voru 3400 dalir eða tæp 240 þúsund, fyrir annað sætið voru 2400 dalir eða um 170 þúsund. Þriðju verðlaunin voru 1600 dalir, fjórðu verðlaun 1200, fimmtu verð- laun 800 dalir og fóru síðan lækk- andi en 13.-15 sætið gáfu 100 dali eða um 7000 krónur. Keppnisstjórar á mótinu voru Sveinn Rúnar Ein'ksson, Eiríkur Hjaltason og Stefán Jóhannsson. Steingrímur Gautur Kristjánsson sá um útreikning mótsins en Stefanía Skai'phéðinsdóttir var mótsstjóri. Um 80 sveitir tóku þátt í Flug- leiðamótinu, sem lauk í gærkvöldi. Því verða gerð skil í blaðinu á morgun. Arnór Ragnarsson Guðmundur Sv. Hermannsson Fréttir á Netinu FRÉTTIR Vika gegn vímuefn- um í MK VIKUNA 16.-19. febrúar helgar Menntaskólinn í Kópavogi barátt- unni gegn vímuefnum. Hver kennari fjallai’ um vímuvamir í kennslu sinni þessa tilteknu viku, og auk þess verð- ur haldin samkoma miðvikudaginn 17. febrúar í matsal skólans kl. 14-16. Á samkomunni afhendir Margrét Friðriksdóttir skólameistari verð- laun fyrir besta veggspjald og slagorð gegn vímuefnum, sem bár- ust í samkeppni er efnt var til meðal nemenda skólans. Veggspjaldið verður prentað og hengt upp í helstu stofnunum og verslunum bæjarins. Meðal skemmtiatriða verður söng- ur skólakórs MK undir stjórn Sigrúnar Þorgeirsdóttur og Guðrún Lilja Magnúsdóttir syngur við undir- leik Helgu Kolbrúnar Magnúsdótt- ur. Einnig syngup Sigrún Eva Ár- mannsdóttir og Ágústa Eva Er- lendsdóttir og Edgar Smári Atlason við undirleik Þóris Úlfarssonar. Kynnir á samkomunni verður Helga Braga Jónsdóttir, leikkona. -------------- • • Oskudagurinn í Reykjanesbæ HALDIN verður öskudagshátíð fyr- ir nemendur í 1.-6. bekk grunnskól- anna í Reykjanesbæ. Hátíðin stend- ur yfir frá kl. 14-16. Nemendur í Myllubakkaskóla mæti í íþrótta- húsið við Sunnubraut og nemendur Njarðvíkurskóla í Iþróttamiðstöðina. Dagskráin verður með hefðbundnu sniði. „Kötturinn" sleg- inn úr tunnunni, leikir, dans, glens og gi’ín. Allir fá viðurkenningu fyrir að mæta og einnig fá þeir verðlaun sem slá „köttinn" úr tunnunni. Ekki verða veitt verðlaun fyrir búninga. Að hátíðinni stenda Tómstundaráð Reykjanesbæjar, Léttsveit Tónlist- arskólans í Keflavík og Lúörasveit Tónlistarskóla Njarðvíkur. í frétta- tilkynningu eru foreldrar beðnir að taka virkan þátt í þessari skemmtun og aðstoða bömin. ------♦-♦-♦------ • • Oskudagsball í Kaplakrika LIONSKLÚBBURINN Kaldá, Æskulýðsráð og Sparisjóður Hafn- arfjai’ðar halda öskudagsball í íþróttahúsinu Kaplakrika miðviku- daginn 17. febrúar kl. 13-15. Skemmtunin hefst á því að köttur- inn verður sleginn úr tunnunni. Tunnurnar verða 3, ein fyrir 10 ára og eldri, ein fyrir 6-9 ára og sú þriðja fyrir 6 ára og yngri. Hljómsveitin Gleðigjafar ásamt André Bachmann og Helgu Möller heldur uppi fjörinu. Veitt verða verðlaun fyrir skemmti- legustu búningana. Aðgangur er ókeypis og allir fá gefms svala. Engin sala verður á gosdrykkjum eða sælgæti, segir í fréttatilkynningu. Dagbók I wl Háskóla fslands DAGBÓK Háskóla íslands 14.-20. febrúar. Allt áhugafólk er velkomið á fyrh’lestra í boði Háskóla íslands. Dagbókin er uppfærð vikulega á heimasíðu Háskólans http://\vww.- hi.is/HIhome.html Þriðjudagur 16. febrdar: Axel Kristinsson sagnfræðingur flytur fyrirlestur í boði Sagn- fræðingafélags íslands sem hann nefnir: „Félagssaga og flækju- fræði“. Fundurinn verður haldinn í Þjóðarbókhlöðu á 2. hæð, kl. 12.06-13 og er hluti af fyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins sem nefnd hefur verið: Hvað er félagssaga? Miðvikudagur 17. febrúar: Háskólatónleikar í Norræna hús- inu kl. 12.30. Þá leikur tríóið Austan 3 Tríó V op. 70 no. 1 eftir Ludvig van Beethoven. Austan 3 skipa konur úr Austurbænum, þær Svana Víkings- dóttir, píanóleikari, Sigurlaug Eð- valdsdóttir, fiðluleikari og Lovísa Fjeldsted, sellóleikari. Verð aðgöngumiða er 400 kr. Ókeypis fyr- ir handhafa stúdentaskírteina. Fimmtudagur 18. febrúar: Ólöf Ragna Ámundadóttir flytur erindi sem nefnist: „Samanbui’ður á tveimur þjálfunaraðferðum fyrir hjartasjúklinga á íslandi" á málstofu í læknadeild. Málstofan fer fram í sal Krabbameinsfélags Islands, Skógar- hlíð 8, efstu hæð og hefst kl. 16.00 með kaffíveitingum. Föstudagur 19. febrúar: Magnús Jóhannsson grasa- fræðingur flytur fyrirlestur sem nefnist: „Frjópípur: vöxtur, sam- keppni og val“ í boði Líffræðistofn- unai’. Fyrirlesturinn er haldinn í G- 6, Grensásvegi 12, kl. 12.20. Wibeke Hallensleben frá veiru- deild háskólans í Freiburg, Þýska- landi, flytur fyrirlestur sem nefnist: „Borna Disease Virus infection in mice and men“ á Fræðslufundi Keldna. Fundurinn verður haldinn á bókasafni Keldna kl. 11 og stendur yfir í 30-35 mín. Laugardagur 20. febrúar: Tveir fyrirlestrar um hafið verða fluttir á vegum Hollvinaasamtaka HI. Fyrirlestrana flytja dr. Guðrún Marteinsdóttir fiskvistfræðingur og Jóhann Sigurjónsson forstjóri Haf- rannsóknastofnunar. Fyi’irlestur Guðrúnar nefnist: „Hrygning, klak og nýliðun þorsks“ og fyrirlestur Jóhanns: „Hafrannsóknir á nýrri öld“. Fyrirlestrarnir verða í sal 3 í Háskólabíói og hefjast kl. 14. Námskeið á vegum Endurmenntunarstofnunar vikuna 5.-20. febrúar: Sýningar Þjóðarbókhlaða. Sýning á rannsóknartækjum og áhöldum í læknisfræði frá ýmsum tímum á þessari öld. Sögusýning haldin í til- efni af 40 ára afmæli Rannsóknar- deildar Landspítalans (Department of Clinical Biochemistry, University Hospital of Iceland) og að 100 ár eru liðin frá því að Holdsveikraspítalinn í Laugarnesi var reistur. (The Leper Hospital at Laugarnes, Reykjavík). Sýningin stendur frá 10. október og fram í mars. Bríet Bjarnhéðinsdóttir - Örsýn- ing í forsal þjóðdeildar. Kvenna- sögusafni Islands bai'st nýlega að gjöf málverk Gunnlaugs Blöndal af Bríeti Bjarnhéðinsdóttur frá 1934. Gefandi er Guðrún Pálsdóttir, tengdadóttir Bríetar. í tilefni af þvi hefur verið sett upp örsýning um Bríeti í forsal þjóðdeildar Lands- bókasafns íslands - Háskólabóka- safns. Þar er málverkið til sýnis ásamt skrifborði Bríetar og gögnum úr fórum hennar. Sýningin stendur frá 8. febrúar til 31. mars. Sýningin er opin mánudaga til fóstudaga kl. 8.15-19 og laugardaga kl. 10-17. Stofnun Árna Magnússonar, Árnagarði við Suðurgötu. Frá 1. september til 14. maí er handrita- sýning opin þriðjudaga, miðvikudaga og fímmtudaga kl. 14.-16. Unnt er að panta sýningu utan reglulegs sýn- ingartíma sé það gert með dags fyr- irvara. Orðabankar og gagnasöfn Öllum er heimill aðgangur að eft- irtöldum orðabönkum og gagnsöfn- um á vegum Háskóla Islands og stofnana hans. Islensk málstöð. Orðabanki. Hefur að geyma fjölmörg orðasöfn í sér- greinum: http://www.ismal.hi.is/ob/ Landsbókasafn Islands - Háskóla- bókasafn. Gegnir og Greinir. http://www.bok.hi.is/gegnir.html Gagnasafn Orðabókai' Háskólans: http://www.lexis.hi.is Rannsókna- gagnasafn íslands. Hægt að líta á rannsóknai-verkefni og niðurstöður rannsókna- og þróunarstarfs: http://www.ris.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.