Morgunblaðið - 16.02.1999, Side 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
(SlFrtVBeXJ S/cyUMJ S3pMI//X2teSTÖE>\//1&
\jsiaci r/j G/usM&ýtJ/ /' Bt ö£>QMO^i? A
vJVT2».
ÍÍF
llP ri i
oo
dj-
Grettir
HlkTK HIKK HIKK HIKK Y RIKK HIKK mm> hicciftV! ! HitteJ'rHtctóV , i (jHtK5Tl MEB) \
o PAVT6 u z.
Hundalíf
Ljóska
Ferdinand
Sámur, ertu vak-
andi? Þetta er ég,
Nanna...
Ég sá nafnið þitt
innan á hálsólinni
þinni... Mamma
mín er dýralækn-
irinn liérna ...
Hann er ennþá sof- Sjáðu ... hann
andi, mamma ... var í Mikka-
músar skóm!
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sírni 569 1100 • Símbréf 569 1329
Nýjan kvarða á
veðurlýsingar
Frá Sveini Guðmundssyni:
NÝLEGA létu veðurfræðingar í sér
heyra og sögðu frá einhverjum
breytingum í sambandi við vindstig.
Mér skilst hélzt, að breytingin sé að
nota kerfíð metra og sekúndur en
ekki kílómetra og klukkustundir.
Gallinn á þessu öllu er sá, að í veð-
urlýsingum eru notaðar skilgrein-
ingar, sem ég og örugglega fleiri
hafa ekki almennilega á tilfinning-
unni. Hvað er kaldi, hvað er stinn-
ingskaldi? Rok er í mínum huga
eitthvað, sem Islendingurinn er
vanur, og gerir hann ekki endilega
veður út af því. Jafnvel skilst mér
að stórhríð sé ekki hið sama að
norðan og sunnan. Ekki veit ég um
neitt vísindalegt samhengi milli orð-
anna, sem maður heyrir í veður-
spám.
Mér finnst að veðurlýsingamenn
ættu að koma með nýjan kvarða.
Legg ég til, að hann sé í aðalatrið-
um frá logni til hundrað prósent
veðurs. 100 skal vera það veður,
sem byggingarsamþykktir segja til
um að kunni að koma hvað verst.
Byggingar skuli því standast slíkan
vind. Víða eru mörkin sett við hund-
rað hnúta, og er eðlilegt að segja að
slíkt veður gefi tilefni til þess að
skríða inn í hellana, því húsin kynnu
að fjúka. Nú er það svo, að vindálag
eykst með öðru veldi vindhraðans.
Vindstigin ættu að standa í réttu
hlutfalli við álagið. Ekki kunna allir
formúluna. Því skyldi geta um vind í
stigum frá núlli upp í eitthundrað.
Við 50 vindstig er þá komið í helm-
ing af því sem mannvirkið þolir eða
helminginn af þeim krafti, sem mað-
Ur þyrfti að spyrna með á móti
hundrað prósent vindi, ætli hann
ekki að fjúka. Við 100 vindstig er
fjandinn laus! Vissulega geta veður
jafnvel orðið verri, en ég tel rétt að
setja 100 vindstig við 100 hnúta. Má
þá halda áfram hærra, en þessi tólf
vindstig, sem menn halda í, eru mið-
uð við of lítinn styrk og því oft talað
um sextán eða svo.
Hefi ég teiknað ferli, sem sýnir
samhengið á milli vindhraða og
minna nýju vindstiga. Fylgir þetta
þessari grein. Skora ég á veður-
fræðinga að kanna málið og koma
síðan með veðurlýsingu með þeim
vindstigum, sem allir ættu að geta
fengið tilfinningu fyrir.
SVEINN GUÐMUNDSSON,
Háteigsvegi 2, Reykjavík.
Landssúninn hættir kost-
un á Rauðu stjörnunni
Frá Ólafí Þ. Stephensen:
ARNAR Gíslason skrifar lesenda-
bréf í Morgunblaðið sl. sunnudag
vegna útvarpsþáttarins Rauðu
stjörnunnar á X-inu, í umsjá Þor-
steins Hreggviðssonar. Þátturinn
hefur verið í boði Símans GSM
(ekki Símans Intemets, eins og
Arnar skrifar), þ.e. Síminn GSM
hefur styrkt gerð hans.
Arnar rekur að í Rauðu stjörn-
unni mánudaginn 8. febrúar síðast-
liðinn hafi verið á dagskrá svokall-
aður Topp tíu-listi. Arnar segir í
bréfi sínu: „Viðfangsefni mánudags-
ins voru topp-tíu setningar sem
maður skyldi ekki segja við fjórtán
ára frænku sína. Eftir því sem leið á
listann kom í ljós að verið var að
tala um sifjaspell. Númer eitt var
setningin: „Ég drep þig ef þú segir
mömmu þinni frá.“„ Spyr Amar
hvort Landssími íslands vilji láta
bendla sig við dagskrárgerðar-
menn, sem hafi sifjaspell og kyn-
ferðisofbeldi í flimtingum með þess-
um hætti.
Svarið við fyrirspurn Ai'nars er
afdráttarlaust; Landssíminn vill
alls ekki láta bendla nafn sitt við
málflutning af þessu tagi, sem er
ósmekklegur, í hæsta máta ófynd-
inn og til þess fallinn að valda
þolendum kynferðisofbeldis sárind-
um og hugarangri. Hefur stjóm-
endum X-ins verið skýrt frá þess-
ari afstöðu fyrirtækisins. Jafn-
framt hefur forsvarsmönnum
stöðvarinnar verið tjáð að Lands-
síminn sé hættur kostun á Rauðu
stjörnunni.
Dagskrá X-ins er auðvitað á
ábyrgð forsvarsmanna stöðvarinnar
og Landssíminn ræður ekki efnis-
tökum útvarpsmanna þótt hann
styi-ki þáttagerð í auglýsingaskyni.
Topp tíu-listinn svokallaði er reynd-
ar í boði annars fyrirtækis, en var
sendur út í þætti, sem Landssíminn
styrkti. Fyrirtækinu þykir því eink-
ar miður að nafn þess hafi tengzt
útvaipsefni af þessu tagi.
ÓLAFUR Þ. STEPHENSEN,
forstöðumaður upplýsinga- og
kynningarmála Landssíma íslands,
Landssímahúsinu við Austurvöll.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.