Morgunblaðið - 20.02.1999, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýstárlegt gripahús tekið í notkun í dag
Morgunblaðið/RAX
SIGURBJORN Hjaltason, bóndi á Kiðafelli í Kjós, mun hafa nýja gripahúsið, sem hann telur vera tímamóta-
hús í íslenskum landbúnaði, til sýnis almenningi á niorgun, sunnudag, milli klukkan 14 og 17.
100 stórgrip-
um gefíð á
hálfri mínútu
NÝSTÁRLEGT gripahús
verður tekið formlega í notk-
un í dag klukkan 15, á bæn-
um Kiðafelli í Kjós. Húsið
verður siðan til sýnis al-
menningi á morgun, sunnu-
dag, milli klukkan 14 og 17.
Húsinu er ætlað að hýsa
fé, nautgripi og hesta og er
520 fermetrar að flatarmáli
og hýsir rúmlega 240 fjár
allt að 70 nautgripi og 40 hross.
Húsið, sem hannað er af ábú-
endum jarðarinnar með aðstoð
Magnúsar Sigsteinssonar búfræði-
ráðunautar, þjónar breyttum
kröfum í íslenskum landbúnaði og
fer þar fram eldi dilka fyrir
páskamarkað, bæði innlendan og
erlendan, fyrir Sláturfélags Suð-
urlands.
Sigurbjörn Hjaltason bóndi að
Kiðafelli segir sérstöðu hússins
felast í ýmiss konar vélrænum
búnaði sem lágmarki vinnuna við
hirðingu skepnanna.
„Hurðir eru allar opnanlegar
með íjarstýringu og fóðurgjöf fer
fram með vélrænum hætti þannig
að það tekur innan við hálfa mín-
útu að gefa 100 stórgripum á ein-
um fóöurgangi," segir Sigurbjörn.
„Þá er húsið mjög vel upplýst og
vel loftræst og með mörgum
gluggum þannig að skepnurnar
njóta dagsbirtu, en það var lögð
áhersla á að skepnunum liði vel í
húsinu og því var það gert eins
náttúrulegt og mögulegt var.“
I húsinu verður ennfremur
hestahótel, sem nefnist „Fimm-
stjarnan" og mun vera hið fyrsta
sinnar tegundar hérlendis. Enn-
fremur verið innréttaðar sjö sér-
búnar stíur fyrir graðhesta.
Sveitamannsins
draumur
Sigurbjörn segir að hin
nýja bygging, sem kostaði 15
milljónir króna, hafi verið
„sveitamannsins draumur",
en hann segist ekki hafa haft
sérstaka fyrirmynd að hús-
inu. „Eg vildi vera með góða
og létta aðstöðu og fara úr
þessum saggakofum og myrkrinu
og öllu sem því fylgir og hefur
slæm áhrif á mann á veturna,"
segir hann.
Sigurbjörn hefur verið með
mjólkurframleiðslu síðastliðin 20
ár og vonast til að hætta því, enda
segir hann tímann sem hafi farið í
umhirðu kúnna hafa tekið tíma
frá fjölskyldunni og nú sé kominn
tími til að breyta til.
Sigurbjörn og kona hans Berg-
þóra Andrésdóttir liafa ennfrem-
ur gert ráð fyrir ferðamönnum,
sem vilja skoða húsið og hafa ver-
ið að markaðssetja húsið sem slíkt
fyrir sumarið.
Flugfélag íslands skrifar Samkeppnisstofnun
Yill bæta við
þriðju áætlunar-
ferð til Egilsstaða
FLUGFELAG Islands hefur skrif-
að Samkeppnisstofnun vegna
þeirrar fyrii'huguðu breytingar á
áætlun sinni til Egilsstaða að bæta
í næsta mánuði við þriðju ferðinni
þangað á dag frá Reykjavík. Jón
Karl Olafsson, framkvæmdastjóri
félagsins, segir aukna flutninga
kalla á þessa breytingu.
Samkeppnisstofnun gerði Flug-
félagi Islands í fyrra að fella niður
eina ferð af þremur í vetraráætlun
sinni milli Reykjavíkur og Egils-
staða á grandv.elli samkeppnis-
stöðu. Að sögn framkvæmdastjór-
ans getur félagið ekki breytt áætl-
un til stærstu áfangastaðanna
nema að höfðu samráði við stofn-
unina. Hann segir forráðamenn
sveitarfélaga á Austurlandi hafa
óskað eftir fleiri ferðum á dag til
Egilsstaða.
Frá því innanlandsflug var gefið
frjálst hefur Flugfélag Islands
flogið fyrstu ferð frá Akureyri
snemma morguns með Metró-vél
og hefur sú vél verið höfð til vara
eða notuð í verkefni út frá Reykja-
vík á daginn. Henni er síðan ftogið
til Akureyrar að kvöldlagi vegna
ferðar morguninn eftir.
Metró-vél tóm til Akureyrar
Jón Karl segir félagið ekki hafa
heimild til að flytja farþega með
þeirri vél af samkeppnisástæðum
og fljúgi 19 farþega vélin því tóm
til Akureyrar á kvöldin. Síðasta
áætlunarferð frá Reykjavík til
Akureyrar er um kvöldmatarleytið
en tóma vélin fer iðulega nokkra
seinna norður og þá án farþega.
Segir Jón Karl oft mögulegt að
selja í þessi sæti. Jón Karl segir
talonarkanirnar gera félaginu
erfítt fyi'ir, það sé grundvallarat-
riði í þessum rekstri að geta stjórn-
að tíðninni og nýtt sætin.
, Morgunblaðið/Kristinn
UNDIRBUNINGUR stóð yfir fyrir tónleika Gus Gus í kvöld í flugskýli
4 á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöld.
*
Gunnar S. Björnsson, formaður Ibúðalánasjóðs
Sjóðurinn bætir ekki
hugsanlegt fjárhagstjón
GUNNAR S. Bjömsson, formaður stjórnar
Ibúðalánasjóðs, segir að sjóðurinn muni ekki
bæta fjárhagslegt tjón sem fólk í fasteignavið-
skiptum geti hugsanlega orðið fyrir vegna tafa á
afgreiðslu lánsumsókna hjá íbúðalánasjóði, sem
tók yfir hlutverk Húsnæðisstofnunar ríkisins
um áramót. Hann segir að um 500 umsóknir
hafí borist sjóðnum frá þvi um áramót. Búið hafí
verið að afgreiða um 100 í upphafi þessarar
viku, um 150 til viðbótar hafi verið afgreiddar
síðan og ráðgert sé að afgreiða það sem á vantar
um helgina.
Stjóm Félags fasteignasala hefur sent Páli
Péturssyni félagsmálaráðherra skeyti þar sem
segir að ófremdarástand ríki á fasteignamark-
aðnum og krefst stjómin þess að ráðherra grípi
tafarlaust til aðgerða vegna langvarandi tafa á
afgreiðslu umsókna hjá íbúðalánasjóði. Jón
Guðmundsson, formaður Félags fasteignasala
segir í Morgunblaðinu í gær að verði þessu ekki
kippt í liðinn sem fyrst muni ekki líða á löngu
þar til fólk í fasteignaviðskiptum geti orðið fyrir
fjárhagslegu tjóni.
Dálítið hissa á
aðgerðum fasteignasala
Gunnar sagðist, aðspurður um viðbrögð við
skeyti fasteignasala til félagsmálaráðherra, vera
dálítið hissa á þessum aðgerðum fasteignasala.
Það væri verið að vinna á fullu í þessum málum
og fasteignasalar vissu það ósköp vel. „Eg
hugsa að við leysum úr öllum þessum málum
sem era inni hér hjá okkur bara núna um helg-
ina. Fasteignasalar vita ósköp vel af því. Þeir
hafa verið hér í sambandi við okkur, en kannski
lítið spurt,“ sagði Gunnar.
Hann sagði að íbúðalánasjóður hefði átt í
ákveðnum erfiðleikum, sem væra fyrst og
fremst tæknilegs eðlis. Þetta kerfi hefði ekki
gengið upp eins og þeir vonuðu til að byrja með,
fyrst og fremst vegna þess að meðan tölvukerfi
Ibúðalánasjóðs hefði ekki verið komið í fullkom-
ið lag og bankarnir ættu aðild að ferlinu væra
leiðirnar kannski dálítið lengri en þær hefðu
verið í gamla kerfinu. „Nú er það allt að lagast
þannig að bankarnir era komnir á fullt í
greiðslumatinu og þá er raunveralega það sem
snýr að okkur að klára þennan gamla bunka
sem við ætlum að reyna að gera núna um helg-
ina,“ sagði Gunnar.
Sum mál eru
enn 1 bönkunum
Hann sagði að sum þeirra mála sem fast-
eignasalar væra búnir að afgreiða frá sér væru
enn úti í bönkunum og hefðu ekki borist íbúða-
lánasjóði. Þegar búið væri að vinna það sem
safnast hefði upp um helgina reiknuðu þau með
að þetta ferli tæki ríflega viku til að byrja með,
þannig að kæmi umsókn um lán til sjóðsins á
mánudaginn mætti búast við að afgreiðslan lægi
fyrir fljótlega eftir aðra helgi. Málin væra að
komast í þann feril sem reiknað væri með að
yrði í framtíðinni og hann teldi að bankastarfs-
mennirnir væra að komast mjög vel inn í þessa
vinnslu, en menn hefðu verið á fullu úti í bönk-
unum að kenna fólkinu.
Aðspurður hvort ekki hefði verið nauðsynlegt
að kenna fólki þetta á síðasta ári áður en Ibúða-
lánasjóður tók til starfa játti Gunnar því og
sagði að kannski hefðu menn verið einum of
vissir um að tæknimálin myndu ganga upp.
„Hins vegar var svolítið erfitt fyrir okkur að
fara að kenna meðan við voram ekki komnir
með tæknimálin í lag og ekki komnir með forrit-
ið í það endanlega form sem það á að hafa,“
sagði Gunnar.
Aðspurður neitaði Gunnar því að íbúðalána-
sjóður myndi bæta hugsanlegt fjárhagstjón af
töfum á afgreiðslu frá sjóðnum. Það væru alveg
hreinar línur að sjóðurinn myndi ekki bæta slíkt
tjón. Fasteignasalarnir hefðu vitað af þessum
erfiðleikum sem sjóðurinn hefði átt í og hefðu
átt að gera sér grein fyrir þeim.
Yfirmaður gæða- og markaðsmála hjá íbúða-
lánasjóði, Þóranna Jónsdóttir, sendi fjölmiðlum
yfii’lýsingu vegna umfjöllunar síðustu daga um
málefni Ibúðalánasjóðs. Segir þar að sett hafi
verið upp ný tölva sem taki við upplýsingum um
umsóknir bankanna og sé vonast til að hægt sé
að bæta úr hnökrum sem verið hafi á kerfinu
síðustu tvær vikur.
Verðbréfin flutt
á Sauðárkrók
Hann sagði aðspurður að búið væri að flytja
meginhluta af verðbréfum sjóðsins norður á
Sauðárkrók í eldtrausta geymslu, en þau væra
um 140 þúsund talsins. Bréfin væra flutt í
ákveðnu öryggishólfi norður og eins þyrfti að
flytja þau að norðan þegar um uppgreiðslu lána
væri að ræða. Aðspurður hvort það tæki ekki
langan tíma sagði Gunnar svo ekki vera. Ef ósk-
að væri eftir uppgreiðslu væri skuldabréfið til-
búið í Ibúðalánasjóði daginn eftir.
Tónleikar
Gus Gus
í kvöld
GUS GUS heldur fyrstu tónleika til
kynningar á nýrri breiðskífu sveitar-
innar This Is Normal í Flugskýli 4 á
Reykjavíkurflugvelli í kvöld og hefj-
ast tónleikarnir klukkan 21.
A undan Gus Gus koma fram
grindverk og Sigur Rós. Mark Bell
spilar með grindverki í forfóllum
Hilmars Ai’nar Hilmai'ssonar, en
hann var upptökustjóri á síðustu
breiðskífu Bjarkar Homogenic og
gerði endm-hljóðblöndun á laginu
Believe með Gus Gus sem var á
fyrstu breiðskífu sveitarinnar
Poiydistortion. Tónleikarnir í kvöld
era haldnir í samvinnu við Tal hf., en
Gus Gus lék síðast hér á landi í
fyrrasumar á tónleikum í tengslum
við gerð myndarinnar Popp í
Reykjavík. Breiðskífan This Is
Normal kemur út 26. apríl en smá-
skífan Lady Shave kemur út 1. mars.
----------------
Kynjahlutfall á
framboðslista
gagnrýnt
ÓÁNÆGJA kvenna á Vestfjörðum
með tillögu kjörnefndar Sjálfstæðis-
flokksins á Vestfjörðum um að í
fyrstu fjórum sætum listans sitji að-
eins karlar verður rædd á þingi kjör-
dæmisráðs flokksins um helgina.
Morgunblaðið leitaði til Þóris Amar
Guðmundssonar, formanns kjör-
nefndar, um viðbrögð nefndarinnar
við þessu. Vildi Þórir Örn ekki tjá sig
um málið á þessu stigi og sagði að
málið yrði tekið upp á þingi kjör-
dæmisráðsins.