Morgunblaðið - 20.02.1999, Síða 22
22 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Viðskipti með hlutabréf Nýherja á gamlársdag
Verðbréfaþing hefur
málið til skoðunar
VERÐBRÉFAÞING íslands hefur
til skoðunai- fjölmörg viðskipti með
hlutabréf í félögum á síðustu dög-
um ársins og eru viðskipti með
hlutabréf í Nýherja hf. þar á meðal.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvort málinu verði vísað til
Fjármálaeftirlits eða ekki að sögn
framkvæmdastjóra Verðbréfa-
þings. Hann segist ekki vita til þess
að einstök verðbréfafyrirtæki bjóði
þá þjónustu að halda gengi hluta-
bréfa uppi með því að fá framlag
frá viðkomandi félagi sem kaupi þá
eigin bréf.
Stjórnarformaður Nýherja,
Benedikt Jóhannesson, hefur gefið
í skyn að Þróunarfélag Islands hf.
hafi gert sér leik að því að hafa
áhrif á gengi hlutabréfa félagsins á
Verðbréfaþingi. A aðalfundi Ný-
herja sl. miðvikudag greindi hann
frá því að Verðbréfaþing hefði tekið
ákveðin viðskipti með hlutabréf fé-
lagsins til rannsóknar.
Verðmyndun viðkvæm
á síðustu dögum ársins
Stefán Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfaþings,
segir að samkvæmt starfsreglum
þingsins eigi það ekki frumkvæði
að því að greina frá málefnum ein-
stakra félaga eða manna, sem til
athugunar eru hjá því, nema sér-
stakar aðstæður séu fyrir hendi.
Þar sem hins vegar opinberlega
hafi nú verið fjallað um viðskipti
með hlutabréf Nýherja hf. á gaml-
ársdag geti hann staðfest að Verð-
bréfaþing hafí skoðað umrædd við-
skipti eins og raunar fjölmörg önn-
ur viðskipti á gamlársdag og síð-
ustu dögum ársins. „Síðustu dagar
ársins er tími þegar verðmyndun á
hlutabréfamarkaðnum er sérlega
viðkvæm enda eru margir sem
byggja á lokaverði ársins, til dæm-
is við gerð ársreikninga, við sam-
anburð á ávöxtun o.s.frv. Kaup-
hallir um allan heim vaka því sér-
staklega yfir markaðnum á þess-
um tíma og viðskipti með hlutabréf
í Nýherja á gamlársdag eru eitt af
þeim málum sem við höfum skoð-
að. Það hefur hins vegar ekki verið
tekin ákvörðun um það ennþá
hvort því verður vísað til Fjár-
málaeftirlitsins eða ekki,“ segir
Stefán.
Viðskiptavakt
með hlutabréf?
Stjórnarformaður Nýherja sagði
einnig í ræðu sinni á aðalfundinum
að einstök verðbréfafyrirtæki hefðu
boðið þá þjónustu að halda gengi
hlutabréfa uppi með því að fá fram-
lag frá viðkomandi félagi sem
keypti þá eigin bréf.
Stefán segir að Verðbréfaþing
kannist ekki við það og viti ekki til
þess að slíkt sé stundað. „Hitt er
annað mál að menn hafa velt því
fyrir sér að taka upp sams konar
viðskiptavakt og Seðlabankinn
gerði á sínum tíma við þrjú verð-
bréfafyrirtæki með spariskírteini
og önnur ríkisverðbréf. Sú vakt
byggðist á þvf að bankinn lagði
þeim til fjármuni og þau sáu um að
setja fram kaup- og sölutilboð og
greiddu þannig fyi-ir viðskiptum.
Engin fyrirmæli um verðmyndun
voru hins vegar gefin af hálfu
Seðlabankans heldur átti viðskipta-
vakinn að laga verð að framboði og
eftirspurn. Markmiðið með samn-
ingnum var að tryggja að alltaf
væri hægt að eiga viðskipti og að
tímabundið ójafnvægi í framboði og
eftirspurn bitnaði ekki á kaupend-
um eða seljendum."
Stefán segir að Verðbréfaþingi
hafi ekki verið tilkynnt um neinn
slíkan viðskiptavakasamning með
hlutabréf þótt honum sé kunnugt
um að menn hafi velt því fyrir sér
að gera slíka samninga. „Slíkur
samningur bi-yti ekki í bága við
reglur verðbréfaþings ef umgjörðin
væri með þeim hætti sem hér hefur
verið lýst, enda hefði útgefandi
bréfanna, þ.e. hlutafélag, engin
áhrif á verðmyndun enda þótt það
legði fram fjármagn til að stuðla að
því að viðskipti gætu gengið eðli-
lega fyrir sig,“ segir Stefán.
íbúðaveðlán Landsbanka íslands og húsbréfalán Dæmi 1: Miðað er við hjón með eitt barn, og 250.000 kr. heildarmánaðartekjur. Tryggingartaki líftryggingar er 30 ára karlmaður sem reykir ekki. Upphæð láns 4.000.000 kr. Veðdeildarlán LÍ ÆaÆi Veðdeildarlán LÍ Veðdeildarlán LÍ með söfnunarliftr. Húsbréfalán • ; vhtt til 30 ára, með líftr. til 30 ára, til 30 ára, til 25 ára, frnmril 11 lll I I i I I i I I I I I vextir5,65% vextir5,6% vextir5,5% vextir5,1%
Mánaðarleg útgreiðsla 23.714 24.336 24.103 24.174
Heildargreiðslubyrði á lánstímanum 8.537.117 8.760.873 8.677.177 7.252.351
Vaxtabætur á lánstímanum* 392.766 371.180 1.270.288 152.074
Samtals greiðslubyrði m.t.t. vaxabóta 8.144.351 8.389.693 7.406.889 7.100.277
Nettó vextir að teknu tilliti til vaxtabóta 5,41% 5,68% 4,96% 5,20%
Dæmi 2: Miðað er við einstakling með 150.000 kr. í mánaðartekjur.
Tryggingartaki líftryggingar er 30 ára karlmaður sem reykir ekki.
Upphæð láns 4.000.000 kr. Veðdeildarlán LÍ
Veðdeildarlán LÍ Veðdeildarlán LÍ með söfnunarlíftr. Húsbréfalán
til 30 ára, með líftr. til 30 ára, til 30 ára, til 25 ára,
:riTiTi N I! I M I vextir 5,65% vextir 5,6% vextir 5,5% vextir 5,1%
Mánaðarleg útgreiðsla 23.714 24.336 24.103 24.174
Heildargreiðslubyrði á lánstímanum 8.537.117 8.760.873 8.677.177 7.252.351
Vaxtabætur á lánstímanum* 1.609.451 1.572.005 3.330.714 940.948
Samtals greiðslubyrði m.t.t. vaxabóta 6.927.666 7.188.868 5.346.463 6.311.403
Nettó vextir að teknu tilliti til vaxtabóta 3,71% 4,01% 2,28% 3,75%
■ Skv. núverandi reglum um vaxtabætur. Heimild: Landsbanki Islands
„Frítt spil til hé-
gómlegra, fimleika “
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Bene-
dikt Jóhannessyni, stjórnarfonnanni
Nýherja:
„Formaður og varaformaður Þró-
unarfélagsins birta í Morgunblaðinu
19.2. 1999 yfirlýsingu um viðskipti
félagsins með hlutabréf Nýherja á
gamlái-sdag. Þeir verja þar fram-
kvæmdastjóra sinn af miklum
drengskap og víkja jafnframt vin-
samlegum orðum að Nýherja og
stjóm hans. I yfirlýsingunni kemur
fram að það sé „hluti af starfsemi
Þróunarfélagsins að eiga viðskipti á
hlutabréfamarkaði með hlutabréfa-
safn þess með hámörkun hagnaðar
að leiðarljósi...“ Hagnaður Þróun-
arfélagsins er reiknaður í ársreikn-
ingi með því að miða við ársloka-
gengi á Verðbréfaþingi. Hvernig það
samrýmist framangreindu markmiði
um hámörkun hagnaðar að selja bréf
á genginu 7,70 einni mínútu fyrir há-
degi í stað 8,10, sem þeir upplýsa að
gert hafi verið fyrr um morguninn
og lækka þannig viðmiðunina um
5%, er mér ekki jafn ljóst og þeim fé-
lögum.
í yfirlýsingunni birta þeir jafn-
framt frásögn af tilboði sem Þróun-
arfélaginu barst rúmu ári áður í
hlutabréf sín í Nýherja. Það er
óvenjulegt að blanda því máli inn í
umræðuna nú en þar sem þá félaga
hefur skort pláss til þess að rekja þá
sögu frekar vil ég gera það hér.
Þróunarfélagið eignaðist hlutabréf
í Nýherja eftir að það keypti
Draupnissjóðinn sem var einn stofn-
enda Nýherja. Það ákvað fljótlega að
selja hluta af sínum hlut í Nýherja
sem það og gerði sumarið 1995. Þró-
unarfélagið var fyrir einn af stærstu
hluthöfum í Opnum kerfum hf. sem
er eitt af helstu tölvufyrirtækjum
landsins. Fljótlega kom í ljós að það
gat leitt til óþægilegrar stöðu að
sami hluthafi væri í framlínu keppi-
nauta á þessum markaði. Ég ræddi
oft við bæði Þorgeir Eyjólfsson, for-
mann Þróunarfélagsins, og Þórarin
V. Þórarinsson, varaformann, og
sagði þeim frá áhyggjum mínum af
þessari stöðu mála. Þeir sögðu mér
þá að hlutur Þróunarfélagsins í Ný-
herja væri til sölu. Ég sagðist þá
myndu safna saman hópi fjárfesta til
þess að bjóða í þennan hlut, sem ég
og gerði. Ég hafði svo sérstaklega
samband við Þorgeir sama morgun
og tilboðið var lagt fram til þess að
ganga úr skugga um að þessi hlutur
væri falur. Hann sagði svo vera og
hvatti mig til þess að senda tilboð
fyrir stjórnarfund þann dag. Þar
mun hafa verið boðið það gengi sem
þá var á markaði eða 3,4. Daginn eft-
ir var hringt í mig af stjórnarmanni í
Opnum Kerfum hf. og sagt að Þró-
unarfélagið myndi ekki selja hluta-
bréf sín í Nýherja það árið „því að
söluhagnaður af bréfunum yi-ði of
mikill.“ Þessi orð framkvæmdastjór-
ans urðu mér mikið umhugsunarefni
en í ljósi sölunnar á gamlársdag 1998
sem þeir tvímenningar segja af „við-
skiptalegum hvötum“ er mér ljóst
hvað var að: Tilboðið var einfaldlega
of hátt!
Eftir að Morgunblaðið bh'ti grein
fimmtudaginn 18. febrúar þar sem
greint vai' frá ræðu minni á aðal-
fundi Nýherja hafa fjölmargir aðilar
úr atvinnulífinu þakkað mér fyrir að
hafa vakið athygli á þessum við-
skiptaháttum. Mai'gir vonuðust til
þess að sú umræða sem varð um ára-
mótin 1997-98 vegna sýndarviðskipta
á Verðbréfaþingi yrði til þess að
menn hættu viðskiptum með smá-
upphæðir til þess að hafa áhrif á ára-
mótagengi. Fyrst ekki var gripið til
neinna aðgerða gegn þeim sem í við-
skiptunum stóðu þá, virðast sumir
telja sig hafa frítt spil til hégómlegra
fimleika. Viðskipti á Verðbréfaþingi
verða að vera trúverðug og stjórn
þess hlýtur að grípa til aðgerða til
þess að svo geti orðið á ný.“
Nýtt útboð verður aug-
lýst á EES-svæðinu
HITAVEITA Rangæinga hefur
ákveðið að falla frá auglýstu útboði á
pípum og pípuefni fyrir aðveituæð í
kjolfar þess að Samtök verslunarinn-
ar sendu Eftirlitsstofnun EFTA
kvörtun vegna útboðsins, sem aug-
lýst var í Morgunblaðinu 9. febrúar
síðastliðinn.
Telja samtök verslunarinnar að
auglýsa hefði átt útboðið á Evrópska
efnahagssvæðinu þar sem ljóst sé að
samningsfjárhæðin sé yfir tilgreind-
um mörkurn um auglýsingu útboða
orkufyrirtækja sveitarfélaga á EES-
svæðinu. Samkvæmt upplýsingum
frá Hitaveitu Rangæinga verður
nýtt útboð auglýst á EES-svæðinu
innan skamms.
Að sögn Guðrúnar Astu Sigurðar-
dóttur, lögfræðings Samtaka versl-
unarinnar, barst ábending frá fyrir-
tæki innan raða Samtaka verslunai'-
innar um að ekki væri rétt staðið að
útboði Hitaveitu Rangæinga og var
málið skoðað í kjölfarið.
„Það gUda ákveðnar reglur sam-
kvæmt EES-samningnum, annars
vegar fyrir ríki og stofnanir þess
sem þurfa að bjóða út öll verk og
vörukaup, og hins vegar sveitarfé-
lögin og fyrirtæki í þeirra eigu sem
eru undanþegin þessum almennu
reglum um útboð nema ef kaupin eða
verkið fara yfii' ákveðna hámarks-
fjárhæð. í þessu tilviki var okkur
nokkuð Ijóst að um væri að ræða út-
boð sem færi yfir verðmætamörkin,
sem eru 400.000 ECU í þessu tilfelli,
eða í kringum 33 milljónir íslenskra
króna,“ sagði Guðrún Ásta.
Leiðrétting
Endurgreiðsla tryggingargjalds til atvinnurekenda
Eðlilegt að fá val
í KORTI er fylgdi frétt um Heim-
ilislán Landsbanka Islands í
Morgunblaðinu síðastliðinn
þriðjudag komu fram rangar töl-
ur. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum og er kortið birt aft-
ur með réttum tölum. Bent skal á
að í veðdeildarlánum með líf-
tryggingu og söfnunarlíftrygg-
ingu er iðgjald líftryggingar inni-
falið en ekki í öðrum lánsformum
sem birtast í kortinu.
VILHJÁLMUR Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs ís-
lands, segir að eðlilegt sé að afslátt-
ur sem atvinnurekendur fá af
tryggingargjaldi, vegna 0,2% gjalds
sem þeir borga í viðbótarlífeyrissjóð
starfsmanna sinna, verði borgaður
bæði mánaðarlega og árlega, að vali
viðkomandi atvinnurekanda.
Eins og kom fram í Morgunblað-
inu í gær fá atvinnurekendur þenn-
an afslátt greiddan í einu lagi í des-
ember, sem frádrátt af desemberg-
reiðslu tryggingargjalds.
Vilhjálmur segh' að heyrst hafi
gagnrýni frá einhverjum fyrirtækj-
um sem telja að þægilegra væri að
gera upp einu sinni í mánuði en
upphaflega hafi verið ákveðið að
endurgreiða einu sinni á ári, sökum
þess að það sé almennt þægilegra
fyrir atvinnurekendur.
„Ég reikna með að það verði ekki
mikið mál að koma því í gegn að
menn hafí val um þetta. Það er
spurning hvort ekki væri rétt að
breyta þessu fyrir næsta ár,“ sagði
Vilhjálmur.
Hann telur að mánaðarlegt upp-
gjör sé einkum hagstæðara fyrir
stærri fyrirtæki sem borgi hærri
upphæðir í tryggingargjöld í hverj-
um mánuði, en í flestum tilfellum
sé hagstæðara að borga einu sinni
á ári.
I Morgunblaðinu í gær kom fram
að greiðslan ber ekki inneignar-
vexti. Vilhjálmur telur að sé um
stórar upphæðir að ræða geti vextir
skipt máli í þessu sambandi, en al-
mennt sé ekki um svo stórar upp-
hæðir að ræða að vextir skipti miklu
máli.
Simplex
Compact
ónusta
HONNUN / SMIÐI / VIÐGERÐIR / ÞJONUSTA
= HÉÐINN =
SMIÐJA
Stórási 6 »210 Garðabæ
sími 565 2921 • fax 565 2927
Bókaðu í sólina
www.urvalutsyn.is