Morgunblaðið - 20.02.1999, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 25
ERLENT
Breytt afstaða breskra stjórnvalda til erfðabreyttra matvæla
Viðurkenna að huga þurfi
að áhyggjum almennings
London. The Daily Telegraph.
Ottast minni niðurgreiðslur
NOKKRIR ráðherrar bresku ríkis-
stjómarinnar sendu í íyrradag frá sér
yíii-lýsingu þar sem almenningur er
fullvissaður um að stjórnin muni
koma í veg fyrir að erfðabreytt mat-
væli fari á almennan markað í Bret-
landi verði sýnt fram á að þau hafí
slæm áhrif á umhverfíð. Pótt ríkis-
stjórnin hafni að vísu enn hugmynd-
um um bann við ræktun erfða-
breyttra matvæla viðurkennir hún
nú í íyrsta skipti að huga þurfi að
áhyggjum almennings vegna máls-
ins. Þykir yfírlýsingin marka nokk-
ur umskipti á afstöðu ríkisstjórnar-
innar sem haldið hefur uppi vörnum
fyrir erfðabreytt matvæli, og jafn-
framt sakað bresk dagblöð og
stjórnarandstæðinga um hræðslu-
áróður og ýkjur.
I bréfi sem dreift var til allra
þingmanna sögðust ráðherrar heil-
brigðis-, umhverfis-, matvæla- og
landbúnaðarmála sannfærðir um að
þau erfðabreyttu matvæli sem þeg-
ar væru komin á markað væru full-
komlega skaðlaus heilsu manna.
Engu að síður er ritun bréfsins sögð
til marks um að Tony Blair og ríkis-
stjórn hans geri sér ljóst að hún
standi höllum fæti í áróðursstríði
vegna málsins.
„Helsta markmið stjórnarinnar er
að vernda almenning í landinu og
umhverfi okkar,“ segir í bréfinu.
„En við verðum þó að ná þessu
markmiði án þess að neita þjóðinni
um þá bættu heilsugæslu og þróun í
umhverfis- og efnahagsmálum sem
hlýst af framþróun í tækni og vísind-
um.“
Lét stjórnin umrætt bréf frá sér
einungis skömmu eftir að umhverf-
isverndarsinnar höfðu hellt fimm
tonnum af erfðabreyttum sojabaun-
um fyrir framan bústað Blairs við
Downingstræti 10 í London í mót-
mælaskyni við afstöðu stjórnarinn-
ar. Lögreglan í Liverpool hafði jafn-
framt handtekið sex Grænfriðunga
sem reyndu að koma í veg fyrir að
skip með erfðabreytt matvæli innan-
borðs væru affermd.
Gleymist alveg að reglur ESB
ei'u skýrar
Deilan um erfðabreytt matvæli
hefur mjög sett svip sinn á þjóð-
málaumræðu í Bretlandi þessa vik-
una en í leiðara The Daily Tel-
egraph á fimmtudag er bent á að
staðreyndin sé í raun sú að Bretar
geta lítið aðhafst í málinu til eða frá.
Segir blaðið að Tony Blair sé því
verulega að ýkja eigin áhrif í málinu
er hann segist hafa „ákveðið" að
ekki yrði um bann að ræða, enda
valdi reglur ESB því í raun að búið
er að taka ákvörðunina fyrir hann.
Að sama skapi sé það hræsni af
William Hague, leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar, að krefjast slíks
banns því honum sé fullkomlega
Ijóst að af því getur ekki orðið.
ÍTALSKUR bóndi með hana
Skjöldu sína hjá langri lest drátt-
arvéla, sem stöðvuð var á landa-
mærum Belgíu og Lúxemborgar.
Var hún komin alla leið frá Italiu
og stefndi til Brussel þar sem land-
búnaðarráðherrar Evrópusam-
bandsríkjanna ræða um umbætur
á landbúnaðarstefnunni. Þar ætl-
uðu einnig að koma saman um
30.000 bændur víðs vegar að úr
sambandinu til að mótmæla hug-
myndum um minni niðurgreiðslur.
Þær gleypa nú um lielming allra
útgjalda ESB eða um 3.195 millj-
arða isl. kr.
Skerst í
odda yfir
N-írak
Ankara, Bagdad. Reuters.
BANDARÍSKAR F-16 herþotur
skutu í gær tveimur flugskeytum
að ratsjárstöð í Norður-Irak eftir
að flugmenn urðu varir við að íra-
skar loftvarnarsveitir höfðu fest
skotmið sín á þotunum. Sögðu tals-
menn bandaríska varnarmálaráðu-
neytisins að þoturnar hefðu snúið
heilu og höldnu aftur til bækistöðva
sinna en að eftir væri að meta þann
skaða sem flugskeytin ollu á jörðu
niðri.
„Hinar morðóðu krákur vanvirtu
lofthelgi okkar í dag,“ sagði í yfir-
lýsingu Iraka. Kom jaínframt fram
að loftvamarsveitir Iraka hefðu
hafið skothríð á herþoturnar sem,
skv. upplýsingum Iraka, voru að
koma frá bækistöðvum sínum í Sá-
dí-Arabíu og Kúveit.
Skærar sem þessar hafa verið
nánast daglegur viðburður frá því
fjögurra daga árásum Breta og
Bandaríkjamanna á Irak lauk í des-
ember en írakar neita að viður-
kenna flugbannssvæði yfir landinu
sem Sameinuðu þjóðirnar settu í
kjölfar Persaflóastríðsins árið 1991.
Taha Yassin Ramadan, varafor-
seti Iraks, sagði fyrr í vikunni að
stjórnvöld í Bagdad gætu „valdið
umtalsverðum skaða“ ef Kúveit og
Sádí-Ai-abía héldu áfram að leyfa
vesturveldunum að gera árásir sín-
ar út frá bækistöðvum þar.
Mistókst Tareg Aziz, aðstoðarfor-
sætisráðherra Iraks, hins vegar ný-
lega að telja Tyrki á að banna
Bandaríkjamönnum að gera út her-
þotur frá Tyrklandi.
OKKAR MARKMIÐ ER AÐ ÞU NAIR ÞINU
Það krefst sérstakrar þekkingar og tækni að búa til þægilegan en jafnframt kraftmikinn fjölskyldubíl.
Við nýtum reynslu okkar úr kappaksturskeppnum víða um heim til að gera spræka og kraftmikla
vél, þjált gírakerfi og sportlega fjöðrun. Við nýtum áratugalangt þróunarstarf okkar færustu
vísindamanna til að tryggja hámarks öryggi ökumanns og farþega. Við nýtum rannsóknir NASA á
líkamsstuðningi og plássþörf við hönnun innra rýmis til
að ná hámarksþægindum og nýtingu.
Takmark okkar er að búa til bíl sem þjónar þér betur.
Prófaðu Honda Civic - og þú finnur um leið að okkur hefur tekist það býsna vel.
Frá 1.459.000 kr.
- hér eru gæði á ferðinni
Honda á íslandi • Vatnagörðum 24 • Sími 520 1100
Opið virka daga kl.9-18 og kl. 12-16 á laugardögum