Morgunblaðið - 20.02.1999, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 39
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FR AMKVÆMDASTJÓRI:
RITSTJÓRAR:
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
YIÐVÖRUN VEGNA
ÚTLÁNAÞENSLU
SEÐLABANKINN hefur séð ástæðu til að koma al-
mennum viðvörunum á framfæri við bankakerfið
vegna mikillar þenslu í útlánum á síðasta ári. Þá hækk-
uðu útlán innlánsstofnana um nær þriðjung (31,2%) og
var mestur hluti aukningarinnar vegna endurlána er-
lends lánsfjár. Hversu mikil útlánaaukningin var á síð-
asta ári má sjá af því, að útlán jukust um 12,7% á árinu
1997, einnig að mestu leyti vegna endurlána erlends
lánsfjár.
Seðlabankinn bendir á, að mikill vöxtur útlána á
skömmum tíma geti verið merki um hættu á fjár-
málakreppu, enda leiði hann til áhættusamari útlána;
eignaverðbólgu og ójafnvægis í utanríkisviðskiptum. I
riti bankans, Hagtölur mánaðarins, segir m.a., að
reynsla annarra landa sé víti til varnaðar. Fjármálaerf-
iðleikar nokkurra Norðurlanda í upphafi þessa áratugar
voru í kjölfar efnahagsþenslu og óheftra viðskipta með
erlendan gjaldeyri. Aukin notkun á erlendu lánsfé geti
spennt eignaverð upp fyrir eðlileg mörk og gert útlán
lánastofnana ótryggari. Fjármálakreppa geti leitt af því,
að markaðurinn endurmeti fyrirvaralítið horfur á hag-
vexti og hvort gengi gjaldmiðils og eignaverðs sé óraun-
hæft. Hagfræðingur Seðlabankans, Már Guðmundsson,
segir, að óræk merki um bankakreppu hér á landi hafi
ekki enn komið fram, bankinn beiti peningalegu aðhaldi
til að hafa hemil á þróuninni og hafi brýnt fyrir bönkun-
um að fara varlega. Þá kom fram hjá Má Guðmundssyni,
að talnagögn sýni ekki enn mikla hækkun fasteigna-
verðs, en þó sé það farið að taka við sér.
Full ástæða er til að taka viðvaranir Seðlabankans al-
varlega. Hér hafa verið ýmis þenslumerki í góðærinu,
þótt verðbólgan hafí ekki farið á skrið á nýjan leik. Mik-
ill viðskiptahalli er skuggi á efnahagsþróuninni. Fullyrt
er, að launaskrið sé hjá ýmsum atvinnugreinum, einkum
þar sem skortur er á sérhæfðu starfsfólki. Þensla er
augljóslega í útgjöldum heimila, fyrirtækja, ríkis og
sveitarfélaga eins og talnagögn Seðlabankans sýna.
Islendingar lifa nú eitthvert mesta velmegunarskeið í
sögu sinni og allar spár gera ráð fyrir áframhaldi á því
fram yfír aldamótin. Efnahagsumgerðin er hins vegar
brothætt, m.a. vegna einhæfni atvinnulífsins, og það er
góðra búmanna siður að hafa varann á.
MENGUN BREYTT
íGRÓÐUR
ENDURVINNSLA lífræns úrgangs og endurnýting
hans til uppgræðslu á höfuðborgarsvæðinu er mark-
mið verkefnis, sem hleypt hefur verið af stokkunum og
nefnist Skil 21. Vonast er til að úrgangur til urðunar
minnki um 50 til 60% vegna verkefnisins.
Að því standa verkfræðistofan Línuhönnun og Land-
græðslusamtökin Gróður fyrir fólk í landnámi Ingólfs í
samvinnu við Reykjavík, menningarborg Evrópu árið
2000. Stofnaðilar að verkefninu eru ennfremur 11 stór-
fyrirtæki og stofnanir, sem þegar munu hefja flokkun
úrgangs samkvæmt reglum áætlunarinnar.
Verkefnið Skil 21 er í senn áhugavert og skemmtilegt.
Það er byggt á sérstakri bókun Ríó-ráðstefnunnar, sem
nefnd hefur verið Dagskrá 21, en í henni er ákveðið ákall
til sveitarfélaga um að taka umhverfismál í eigin hendur
og vinna að lausn þeirra í þeirri nálægð við borgarana
og fyrirtæki þeirra, sem sveitarfélögum er eiginlegt.
Astæða er til að fagna þessu framtaki Reykjavíkur-
borgar og allra þeirra aðila annarra, sem að þessu verk-
efni standa. En jafnframt eru önnur sveitarfélög í land-
námi Ingólfs og annars staðar á landinu hvött til að láta
einnig til sín taka á þessu sviði. Verkefnið er skemmtileg
leið til þess að breyta mengandi úrgangi í frjósaman
jarðveg, sem getur orðið undirstaða aukins gróðurs,
m.a. skógræktar, sem um þessar mundir fagnar 100 ára
skipulegum aðgerðum til að græða landið og fegra. Með
þessu má breyta örfoka landi í gróðursælan reit.
Tillögur um leiðarval Sundabrautar yfír Kleppsvík kynntar
Nýr þingflokkur Samfylkingar stofnaður við lok kjörtímabilsins
Saltvík
Fyfirhuquð vegtengini
ur Sunaum í Kollafjön
Alfsnes
Víðines
Gunnu
nes
Geldinga
nes
MOSF
svæði á
loftmynd
Gufunes
Ulfars
fell
verkinu og „meiri en við sjáum fyrir
okkur núna.“ Þörf væri á því að
„stíga létt og örugg skref ‘ við fram-
gang málsins. Halldór þakkaði þeim
sem að verkefninu höfðu unnið og
bar fram þá ósk að „þessi fallegi
draumur megi rætast sem fyrst“.
Samgönguráðherra
líst betur á leið III
Hofsvík
Brimnes
Skógrækt
Mógilsá
VINNUHÓPUR um undir-
búning Sundabrautar boð-
aði til fundar í gær og
kynnti þá niðurstöðu sína
að svokölluð leið III væri vænlegasti
kosturinn við svokallaða „þverun“
Kleppsvíkur. Samkvæmt þeiiTÍ til-
lögu mundi vegur um brú frá Gufu-
neshöfða tengjast Sæbraut við
Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog. Leið
eitt með tengingu við Sæbraut norð-
an Holtagarða sem einnig var til
skoðunar þykir ekki eins fýsilegur
kostur vegna meiri kostnaðar og
minni arðsemi.
Á kynningarfundinum, sem hald-
inn var í Borgartúni 6 í gær á vegum
Vegagerðarinnar og Borgarverk-
fræðings, fengu fundargestir ítar-
lega bæklinga með tillögunum og
ýmsa þætti sem þær varða, s.s. arð-
semismat, umferðarskipulag og fjár-
mögnun. Að auki gafst færi á að
skoða uppdrætti, tölvuunnar ljós-
myndir og iíkön af þeim tillögum
sem voru til skoðunar í þessum
áfanga verkefnisins.
Langstærsta verkefni sem
fjallað hefur verið um á Islandi
Undirbúningur verkefnisins hófst
í ársbyrjun 1996. Fundurinn í gær
var annar opinberi fundur vinnu-
hópsins en haustið 1997 voru kynnt-
ar þær tillögur sem þá lágu fyrir.
Eftir þann fund var valkostum
fækkað og hefur vinna hópsins á síð-
ustu tólf mánuðum einkum beinst að
samanburði á þeim tveimur leiðum
yfír Kleppsvík sem voru kynntar á
fundinum nú.
Fram kom í upphafí hjá fundar-
stjóra, Jón Birgi Jónssyni ráðuneyt-
isstjóra, að lagning Sundabrautar er
sennilega langstærsta verkefni sem
fjallað hefur verið um á Islandi. Til
samanburðar benti hann á að áætl-
aður kostnaður væri 3-4 sinnum
meiri en kostnaður við Hvalfjarðar-
göng, „sem þó hafi þótt ærinn.“
Dr. Ríkarður Kristjánsson, verk-
fræðingur og stjórnandi verkefnis-
ins, hélt fyrsta erindi fundarins þar
sem verkefnið og niður- __________
stöður vinnuhópsins voru
kynnt. Hann byrjaði á því
að gera grein fyrir um-
fangi verkefnisins og þeim
flóknu tæknilegu vanda-
málum sem við er að etja.
Þekkingu þurfti að sækja út fyrir
landsteinana og „aðalráðgjafi verk-
efnisins" Verkfræðistofan Línu-
hönnun réð sér undirráðgjafa tO
samstarfs.
Meðal ráðgjafarfyrirtækja eru t.d.
Symonds Travers Morgan, Bret-
landi, sem hefur 250 þús. manns á
sínum snærum. Aðrir voru Sverd-
rup, Bandaríkjunum, Schlaich,
Bergermann und Partner, Þýska-
Mælt með
brú frá Gufu-
neshöfða að
Skeiðarvogi
Lagning Sundabrautar var kynnt á fundi í
gær og meðal annars bornir saman kostir
um að reisa brýr á tveimur stöðum yfir
Elliðaárvog, en ein útfærslan felst í 70
metra hárri brú, sem hægt yrði að sigla
undir. Geir Svansson kynnti sér hugmyndir
um „dýrasta verkefni, sem Islendingar
hafa tekið sér á hendur“.
Ekki afger-
andi munur
hvað varðar
umferð
landi, Studio Granda, Reykjavík og
Landslagsarkitektar sf. Ríkharður
sagði að á tímabili hefði verið unnið
að verkefninu í þremur heimsálfum
og kallaði það „dreifðasta hönnunar-
verkefni sem unnið hefur verið á Is-
landi hvað dreifingu á ráðgjöfum
varðar."
Mikill kostnaðarmunur
á leiðunum tveimur
Ríkarður rakti forsögu málsins.
Við útreikninga á kostum og göllum
leiðanna tveggja, I og III, var stuðst
við spár um umferð, þróun byggðar
og atvinnuhúsnæðis. Að sögn Rík-
_________ arðs hafði ekki komið fram
afgerandi munur á leiðun-
um gagnvart umferð. Leið
I hentar betur til að tengja
norð-austurhverfin við
Kvosina en leið III er
betri fyrir norður-suður-
tenginguna á höfuðborgarsvæðinu.
Helsti munurinn á leiðunum
tveimur liggur í kostnaði og arðsemi
leiðanna. Leið I felur í sér mun dýr-
ari og flóknari lausn. En Ríkharður
sagðist hreykinn af þeirri einstöku
„seglbrú" sem hann hefði hannað,
ásamt dr. Schlaieh, „þótt ég viti að
hún verður aldrei byggð,“ eins og
hann tregaði. I sinni fullkomnustu
útfærslu yrði brúin, sem mátti skilja
að væri tæknilegt afrek, allt að 70
metra há þar sem hún teygði sig
hæst. Munurinn á leið I og leið III er
því á bilinu 4-6 milljarðar, eftir út-
færslu. Arðsemi leiðar III er 13-21%
en leiðar I 8-13%. Vegna þessa
kvaðst verkfræðingurinn „leggja
fram með tánim að seglbrúin verði
ekki byggð“.
Fram kom að stofnkostnaður við
leiðirnar, miðað við fjórar akreinar
upp á Álfsnes en tvær aki’einar um
Álfsnesið, er fyrir leið I, yfir Klepps-
vík, 8,5-10,5 milljarðar króna, eftir
útfærslu, en 4,5-6,5 milljarðar fyrir
leið III. Heildarkostnaður er 13,0-
16,0 milljarðar fyrir leið I en 9,0-12,0
milljarðar fyrir leið III. Tillaga
vinnuhópsins er því að leið III verði
farin. Á þessu stigi er ekki lögð fram
tillaga um eina ákveðna útfærslu á
leið III. Áður en það verður gert
þarf að „kanna betur umhverfísleg
og skipulagsleg áhrif valinnar út-
færslu,“ eins og segir í tillögubæk-
lingi.
Fjögurra kflómetra
löng jarðgöng
Sú framtíðarsýn kom fram hjá dr.
Ríkarði að í framhaldi af þverun
Kleppsvíkur með leið III, með 2
akreinum, væri, að sínu mati, æski-
legt, þegar umferðarþungi í framtíð-
inni krefðist, að velja þann kost að
leggja 4 km löng jarðgöng úr Gufu-
nesi sem kæmu upp við vesturenda
Hringbrautar. Þar á eftir væri síðan
hægt að tvöfalda leið III.
Einnig lagði hann fram hugmynd-
ir, sem ekki fylgdu tillögubæklingi,
um lausn á tengingu við Sæbraut
sem fælu í sér 3 hæða gatnamót,
göng og tvær hæðir, til að komast
hjá því að umferð krossist. Jafn-
framt yrði komist hjá því að beina
umferð um Skeiðarvog en fyrir það
yrði tekið með sérstökum aðgerðum.
Þessi þáttur mundi þýða 600 millj-
arða aukakostnað. En „sem væri
þess virði“ að mati verkefnisstjóra.
Stefán Hermannsson, borgarverk-
fræðingur, fjallaði því næst um
skipulag og umferð í tengslum við
þverun Kleppsvíkur. Hann sagði að
Sundabraut væri nauðsynleg, m.a.
vegna tengingar við Grafarvogs-
hverfi og bætt aðgengi að miðbæn-
um. Hún væri auk þess forsenda
nýtingar á Geldinganesi og Álfsnesi
og stytti og bætti leiðir.
Borgarverkfræðingur fór yfír
framkvæmdaáætlun þar sem gert er
ráð fyrir að þverun Kleppsvíkur
verði lokið árið 2003, áfanga yfir í
Geldinganes 2004-2006, yfir í Álfs-
nes 2008-2010 en tímasetning teng-
ingar við Vestm-landsveg er enn
óákveðin. Áhersla var þó lögð á að
aðeins væri raunhæft að ræða um
fyrsta áfangann á þessu stigi.
Miklir möguleikar á að
skipta verkinu í áfanga
Helgi Hallgrímsson, vegamála-
stjóri, fór nánar út í framkvæmdirn-
ar og fjármögnun þeirra. Einkenni
þessa dýrasta verkefnis sem Islend-
ingar hefðu tekist á hendur kvað
hann einkum af þrennu tagi: um væri
að ræða dýr mannvirki; þörfin fyrir
þau verður til á löngum tíma; og
möguleikar á áfangaskiptingu væru
miklir. Þannig yrði hver áfangi sjálf-
stætt verk og það auðveldaði verkið.
Varðandi framkvæmd og útboð
taldi Helgi fýsilegast að famar væru
hefðbundnar leiðir. Alút- _______
boð og einkaframkvæmd
ættu erfitt uppdráttar í
verki af þessu tagi og um-
fangi. Helgi kynnti þá nið-
urstöðu Hagfræðistofnun-
ar Háskóians að „lang-
heppilegast væri að verkkaupi aflaði
lánsfjár og útboð yrðu með hefð-
bundnum hætti.“
Að lokinni kynningu á verkefninu
steig Halldór Blöndal samgönguráð-
hen-a í pontu. Hann hóf mál sitt á því
að lofa gott samstarf ríkis og borgar.
Hann kvaðst sannfærður um „að við-
stöðulaust yrði haldið áfram við
verkið um Álfsnes upp á Vestur-
landsveg“, að „knýjandi þörf ‘ væri á
Helsti munur
fólginn í
kostnaði og
arðsemi
Aðspurður kvað Halldór Blöndal
sér lítast mjög vel á leið III. „Eg tel
að hún falli betur að landslaginu en
leið I. Ég ber ekki ugg í brjósti um
það að þeir leggi ekki leið sína til
miðborgarinnar eða vestur í bæ sem
þangað eiga erindi. Ég vonast svo
sannarlega til þess að umhverfismat
og skipulagsvinna gangi það vel að
hægt sé að ráðast í þessar fram-
kvæmdir á tilætluðum tíma.“
Samgönguráðherra sagðist álíta
skynsamlegast að fjármagna verkið
með hefðbundnum hætti. „Ríkið þarf
ekki að láta aðra taka lán fyrir sig.
Lánið yrði síðan greitt á hæfilega
löngum tíma.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borg:
arstjóri, ávarpaði því næst fundinn. I
máli hennar kom fram að enn ættu
menn að skoða kostina til hlítar.
Henni þætti t.a.m. leið I að mörgu
leyti betri kostur; hún hentaði betur
norð-austurtengingu við Kvosina.
Hún lýsti auk þess áhyggjum út af
tengingu leiðar I inn á Sæbraut við
Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog; að ekki
mætti beina umferð (allt að 20 þús-
und bílum á dag) inn í íbúðarhverfi
og fram hjá skólum. Þetta þyrfti að
skoða mjög ítarlega áður en endan-
leg ákvörðun yrði tekin. Hún taldi
hugmyndir um 3 hæða gatnamót at-
hyglisverðar og hugsanlega lausn.
Að auki benti borgarstjóri á að El-
liðavogur væri viðkvæmt svæði, að
ýmsir hefðu t.d. áhyggjur af uppfyll-
ingu og að umhverfismat væri nauð-
synlegt. Hún fagnaði að lokum áhuga
ráðheiTa og lagði áherslu á mikil-
vægi þess að komast sem fyrst að
niðurstöðu. Enn þyrfti þó meiri um-
ræðu, innan borgarinnar sjálfrar og
borgar við ríki. Hún þakkaði vinnu-
hópnum fyrir vandaða vinnu og
áhugaverða skýrslu.
Ákvarðanir um leiðarval
verður að taka nrjög fljótlega
í viðtali lagði borgarstjóri áherslu
á mikilvægi Sundabrautar fyrir
höfuðborgarsvæðið og einnig teng-
ingu þess við Vestur- og Norður-
land. „Sundabraut er auk þess algjör
forsenda þess að hægt að sé_ að
byggja uppi í Geldinganesi og Álfs-
nesi.“ Um leiðarval sagði borgar-
stjóri: „Almennt má segja að leið III
hafi þann kost umfram leið I að hún
er umtalsvert ódýrari og munar þar
allt frá 2 upp í 6 milljarða.
Leið I hefur það kannski fram yfir
leið III, að minnsta kosti sálfræði-
lega, að það virðist vera beinni teng-
ing úr Grafarvogshverfum og við
norðursvæði Reykjavíkur og miðbæ-
inn og Kvosina. Sem er auðvitað
mjög mikilvægt. En þá verða menn
að minnsta kosti, hvað leið III varð-
ar, að skoða mjög vel allar útfærslur
til þess að hún nýtist með sama
hætti fyrir höfuðborgina og norður-
hlutann.“
Um kostnaðarskiptingu ríkis og
borgar sagði borgarstjóri að á því
hefði enginn útreikningur enn farið
fram. „Miðað við aðrar slíkar fram-
kvæmdir má ætla að í hlut borgar-
innar komi 10-20% af kostnaðinum.
Allt miðað við hvað það verða viða-
_________ miklar tengingar, eða
tengibrautir að stofn-
braut.“
Brýnt er að ákvörðun
um endanlegt leiðarval
fari fram innan tíðar, að
' mati Ingibjargar Sólrún-
ar. „Ég held að að það þurfi að taka
„prinsipp" ákvörðun um leiðarvalið
mjög fljótlega. Það þarf að fara að
vinna að umhverfismatinu, sem er að
vissu leyti komið í gang, til að hægt
sé að bjóða verkið út árið 2000 og
ljúka því 2002-2003, yfir Kleppsvík-
ina, yfir í Grafarvoginn. Ef umhverf-
ismat á að geta farið fram í haust
þarf ákvörðun að liggja fyrir í sum-
ar. Það má ekki seinna vera.“
Táknræn yfirlýsing um
samstarf flokkanna
Stofnun þingflokks Samfylkingar, þremur
vikum fyrir þinghlé, felur fyrst og fremst í
sér táknræna yfirlýsingu um að þau stjórn-
málaöfl sem að honum standa ætla að ganga
sameinuð til kosninga og starfa saman að
--------------------7---------------------
kosningum loknum. I talsverðan tíma hefur
stofnun flokksins verið til umræðu, en ýmis
vandamál hafa komið í veg fyrir að hægt
væri að hrinda henni í framkvæmd. Að mati
Egils Ólafssonar hefur atburðarás síðustu
vikna leyst flest þessi vandamál.
FRÁ því að umræður hófust
af fullri alvöru um sameigin-
legt framboð Alþýðubanda-
lags, Alþýðuflokks og
Kvennalista um mitt þetta kjörtíma-
bil var öðru hverju rætt hvort rétt
væri að stofna sameiginlegan þing-
flokk þessara stjórnmálaflokka.
Veruleg andstaða var við þessa hug-
mynd innan Alþýðubandalagsins, en
meirihluti þingmanna hans var
andsnúinn því að stefna að sameigin-
legu framboði strax í næstu kosning-
um. Þrátt fyrir að þrír af hörðustu
andstæðingar sameiginlegs fram-
boðs yfirgæfu flokkinn um mitt árið
var málið áfram viðkvæmt innan
þingflokksins.
Síðastliðið haust var þessi um-
ræða tekin upp að nýju, en samfylk-
ingarsinnar innan flokkanna töldu
sterkt að flokkarnir mættu til þings
sameinaðir í einum þingflokki. Ekk-
ert varð af því, ekki síst vegna þess
að málið var erfitt innan Alþýðu-
bandalagsins. Svavar Gestsson hafði
þá ekki lýst yfir afdráttarlausum
stuðningi við Samfylkinguna og
sumir alþýðubandalagsmenn óttuð-
ust að klofningur innan flokksins
myndi aukast ef þingflokkurinn yrði
lagður niður. Að leggja þingflokk Al-
þýðubandalagsins niður var auk
þess í andstöðu við yfirlýsingar for-
ystu flokksins um að sameiginlegt
framboð þýddi ekki að flokkurinn
yrði lagður niður. Margrét
Frímannsdóttir, formaður Alþýðu-
bandalagsins, lagði áherslu á það á
landsfundi flokksins í júlí, að tillagan
sem lögð var fyrir fundinn væri um
stofnun kosningabandalags til fjög-
urra ára.
Vandi innan Alþýðu-
bandalags og Kvennalista
Vandamál voru einnig innan
Kvennalistans því að fyrir lá að
Kristín Halldórsdóttir myndi aldrei
taka þátt í að stofna nýjan þingflokk.
Afstaða hennar til Samfylkingar á
þessum tíma var að taka ekki þátt í
undirbúningi að sameiginlegu fram-
boði, en jafnframt taldi hún ekki rétt
að leggja stein í götu þeirra kvenna-
listakvenna sem vildu vinna að sam-
fylkingu.
Eitt af því sem var í veginum íyrir
stofnun nýs þingflokks var spurning-
in um hver ætti að verða formaður
hans. Utilokað var talið að hægt yrði
að ganga framhjá Svavari Gestssyni,
þingflokksformanni Alþýðubanda-
lagsins. Aftur á móti töldu margir að
Svavar hefði ekki þá ímynd sem væri
heppileg fyrir flokkinn. Hugmyndm
um stofnun þingflokks Samfylkingar
voru því lagðar á hilluna, enda tók
umræða um önnur mál allan hug for-
ystumanna Samfylkingar þegar leið
á haustið.
Eftir að samkomulag tókst um
prófkjörsreglur í stærstu kjördæm-
unum og niðurstaða þeirra lá fyrir
var aftur farið að ræða um stofnun
sameiginlegs þingflokks. Þá höfðu
ýmsar forsendur breyst. Svavar
Gestsson hafði ákveðið að hætta
þingmennsku og andstaðan við sam-
fylkingu flokkanna var lítil innan
þingflokks Alþýðubandalagsins, sem
nú taldi einungis fimm þingmenn.
Bæði Svavar og Ragnar Arnalds
höfðu að mestu sætt sig við niður-
stöðuna.
Ekki ágreiningur um
formann eftir að Svavar hætti
Erfiðleikar við að ná samkomulagi
um foi-ystu nýs þingflokks urðu
einnig úr sögunni þegar Svavar
Gestsson var skipaður sendiherra.
Eftir að framkvæmdastjóm Alþýðu-
flokksins samþykkti að styðja Mar-
gréti Frímannsdóttur sem talsmann
Samfylkingar lá beinast við að al-
þýðuflokksmaður yrði þingflokksfor-
maður nýs þingflokks. Rannveig
Guðmundsdóttir, formaður þing-
flokks jafnaðarmanna, var því sjálf-
kjörinn formaður. Samkomulag tókst
síðan um að Ragnar yrði varaformað-
ur og Guðný Guðbjörnsdóttir ritari.
Samfylkingarsinnar líta á kjör Ragn-
ars sem yfirlýsingu um að alþýðu-
bandalagsmenn, sem höfðu efasemd-
ir um Samfylkinguna, sætti sig við
niðurstöðuna og ætli að styðja hana.
Þegar Kristín Halldórsdóttir lýsti
því yfir að hún ætlaði að ganga til liðs
við Vinstrihreyfinguna - grænt fram-
boð gerði hún munnlegt samkomulag
við Guðnýju Guðbjömsdóttur um að
þær störfuðu áfram saman í þing-
flokki. Kristín sagði í yfirlýsingu sem
hún sendi fjölmiðlum á þessum tíma-
mótum, að hún teldi eðlilegt að hún
starfaði fyrir Kvennalistann út kjör-
tímabilið því kjósendur hefðu kosið
sig til að starfa fyrir hann. Innan
Kvennalistans var hins vegar
óánægja með ákvörðun Kristínar um
að ganga til liðs við Vinstrihreyfmg-
una og eins það að hún skyldi vera
formaður þingflokks Kvennalistans á
sama tíma og hún var að undirbúa
framboð fyrir annan stjórnmálaflokk.
Með stofnun þingflokks Samfylking-
ar er Kristín svipt þessum titli.
Kristín taldi hins vegar að Guðný
hefði gert samkomulag við sig um að
þær störfuðu saman í þingflokki
Kvennalistans út kjörtímabilið og
hún lítur því svo á að þetta sam-
komulag hafi Guðný rofið.
Á stýrinefndarfundi Samfylkingar-
innar fyrir nokkrum vikum vakti
Guðný Guðbjörnsdóttir máls á því
hvort ekki væri rétt að stofna þing-
flokk Samfylkingar og í framhaldi af
því var grundvöllur fyrir því kannað-
ur. Niðurstaðan varð sem kunnugt er
sú að nýr 17 manna þingflokkur var
stofnaður.
títlit fyrir að það fækki
um einn í nýja þingflokknum
Svavai- Gestsson hefur störf hjá ut-
anríkisráðuneytinu um næstu mán-
aðamót og því liggur fyrir að þing-
flokkur Alþýðubandalagsins hefði
þurft að kjósa sér nýjan formann
hefði ekki komið til stofnunar þing-
flokks Samfylkingar. Við brotthvarf
Svavars sest Guðrún Helgadóttir að
nýju á Alþingi, en hún hefur gengið
úr Alþýðubandalaginu og til liðs við
Vinstrihreyfinguna. Við brotthvarf
Svavars hefðu því einungis fjórir
þingmenn verið eftir í þingflokknum
sem taldi níu menn við upphaf kjör-
tímabilsins. Stofnun nýs þingflokks
var því að mörgu leyti heppilegur
kostur fyrir Alþýðubandalagið á þess-
um tímapunkti.
Það er að heyra á þingmönnum
Samfylkingarinnar, að þeir vonist eft-
ir að hægt verði að koma í veg fyrir
að Guðrún Helgadóttir setjist á þing,
en við innkomu hennar mun fækka
um einn í nýstofnuðum þingflokki
Samfylkingar. Þau rök eni m.a. sett
fram að svo stutt sé eftir af þinginu
að ekki taki því fyrir nýjan þingmann
að setjast inn á þing. Ljóst þykir að
Guðrún og þingflokkur óháðra munu
ekki sætta sig við slíka niðurstöðu.
Stofnun þingflokks Samfylkingar
hefur ekki síst táknræna þýðingu.
Stjórnmálaöflin sem að honum
standa eru með þessu að lýsa því yfir
að þeir gangi sameinaðir til kosninga
og ætli að starfa saman að þeim lokn-
um. ►
ÞINGFLOKKAR A ALÞINGI...
...við upphaf kjörtímabilsins 1995 (fjöldi þingmanna)
Framsóknarflokkur
Alþýðubandalag
og óháðir —
Sjálfstæðis-
flokkur
Alþýðuflokkur
Þjóðvaki
Kvennalisti
...við lok kjörtímabilsins 1999 (fjöldi þingmanna)
Framsóknarflokkur
Samfylking
Óháðir
Kvennalisti (1)
Sjálfstæðis-
flokkur