Morgunblaðið - 20.02.1999, Blaðsíða 48
.48 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ
Hvað er erfða-
greining?
FYRIR nokkrum ár-
um hringdi margsinnis í
mig tryggingasali og
vildi fá mig til að taka
þátt í svokallaðri hóp-
tryggingu lækna. Þar
kom að ég bauð hann
velkominn á heimili
mitt, þar sem ég fyllti
út viðeigandi eyðublöð.
Nokkru síðar barst mér
* bréf þar sem mér var
tilkynnt að því miður
hefði mér verið hafnað.
Ég var sem sagt of lé-
legur fyrir tryggingafé-
lagið. Takmark tiygg-
ingafélaga er gróði.
Þetta hefur satt að
segja ekki angrað mig. Ég efast ekki
um að ég hef verið íslenzku heilbrigð-
iskeifi heill þjónn. Og verð áfram.
En gæti erfðagreining gert eitt-
hvað fyrir afkomendur mína? í nokk-
ur ár hef ég verið að bíða eftir grein
frá Kára Stefánssyni um gagnsemi
erfðagreiningar, enda hefur hann
Rannsóknir
Ekki einasta er heilsan
það dýrmætasta sem
þú átt, segir Jóhann
Tdmasson, heldur
gildir það sama um
upplýsingar um hana.
haft til þess ómælt rúm í fjölmiðlum.
Ég hef spurt marga „samstarfs-
lækna“ Islenzkrar erfðagreiningai'
hvað erfðagreining sé? Enginn
þeiira hefur getað svarað mér. Þrátt
fyrir það skirrast sumir þessara
lækna ekki við að rita bréf tii sjúk-
linga og aðstandenda þeirra með ósk
um þátttöku í rannsókn, þar sem þeir
segja markmið sitt að fínna orsök
alzheimer-sjúkdóms og æðakölkun-
ar, svo dæmi séu tekin, í samvinnu
við íslenzka erfðagreiningu. Ekkert
minna. Fremstu vísindamenn heims
sýna meiri hógværð. Isaac Newton
líkti sér á gamals aldri við dreng sem
fundið hefði fallegar steinvölur á út-
hafsströnd.
Hver Iifsins þraut
Að undanfórnu hef ég horft á
nokkra þætti sem Stöð 2 hefur gert í
samráði við Islenzka erfðagreiningu
og bera ofangreint nafn. Ekki hafa
þeir þættir varpað neinu ljósi á gildi
erfðagreiningar. Einn þáttanna
fjallaði um heilablóðfóll. Þar var
m.a. talsvert sagt frá arfgengri
heilablæðingu og rannsóknum á
henni án þess að geta þeirra ís-
lenzku lækna, sem eiga þar heiður
að máli. Hér á ég við
Olaf Jensson, fyrrver-
andi yfirlækni í Blóð-
bankanum, og Gunnar
Guðmundsson, prófessor
í taugasjúkdómum, sem
helguðu sig rannsóknum
á umræddum sjúkdómi
um áratuga skeið. Og
þar á undan Arni Arna-
son héraðslæknir. Allir
alvöru vísindamenn og
háskólaborgarar þekkja
það heiðursorð og virða,
að skreyta sig aldrei með
fjöðrum annarra. Jafnvel
ekki þótt líf liggi við. Há-
skóli íslands fylgir heið-
ursviðurkenningum úr
hlaði með orðunum „enda sé það
góðú heilli gjört og vitað“.
I þættinum um heilablæðingu
sagði ung kona frá því að hún hefði
haldið sjúkdómsáhættu sinni leyndri
fyrir maka sínum þar til þau höfðu
eignazt tvö böm. Hver vill dæma
hana? I þættinum um MS sagði eig-
inkona sjúklings að lán þeirra hefði
verið að vita ekki rétta sjúkdóms-
greiningu fyrr en varð. Enn er því
spurt. Hvað er erfðagreining og
hvaða gagn gerir hún?
Afkomendarannsókn
Hjartaverndar
Fyrir nokki-u óskaði ég eftir því
við yfirlækni Hjartaverndar að mér
yrði sent afrit af umsókn og grein-
argerð Hjartaverndar til vísinda-
siðanefndar um afkomendarann-
sókn Hjartaverndar. Af einhverjum
ástæðum hefur yfirlæknirinn ekki
gert það. Hins vegar er í nýjasta
hefti blaðsins Hjartavernd sagt frá
hugmyndafræði að baki rannsókn-
inni, annars vegar í rammagrein á
bls. 14, en hins vegar í viðtali við
stjómanda rannsóknarinnar, Vil-
mund Guðnason. Ég gæti gert
margar athugasemdir við málflutn-
ing Vilmundar. Ég hef alla tíð stutt
rannsóknarstarf Hjartaverndar og
hvatt skjólstæðinga mína til að taka
þátt og nýta sér starfsemi hennar.
Á hinn bóginn ætlast ég til þess að
samtökin geri mér og öðrum lækn-
um betri grein fyrir þeirri „erfða-
greiningu" sem þau hyggjast fara
út í. Hvað getur „erfðagreining"
Hjartaverndar gert fyrir afkomend-
ur okkar sem greinzt höfum með
kransæðasjúkdóm? Ekkert, nema
útiloka þá á einn eða annan hátt,
samanber upphaf þessarar greinar.
Þess vegna ráðlegg ég þér sem
þetta lest að fara ekki í „erfðarann-
sókn“. Ekki einasta er heilsan það
dýrmætasta sem þú átt, heldur gild-
ir það sama um upplýsingar um
hana. Vertu því spar á þær. Veldu
þína lækna vel.
Höfunclur er Iæknir.
Jóhann
Tómasson
Bens til sölu
Bens 220C eleg., árg. 1996(7), ekinn 17 þús. km.
Grænsanseraður, sjálfskiptur, ABS bremsur, fjarstýrð sam-
læsing, sóllúga, 2 líknarbelgir, álfelgur, litað gler, útihitamælir,
rafmagn í rúðum og loftneti, höfuðpúðar afturí o.fl. Mjög fal-
legur bíll. Verð 2.990 þús. staðgr.
Upplýsingar í síma 896 0747.
Samfylkingarfé?
TALSMAÐUR
Margrét nú er hálft ár
liðið síðan ég spurði
þig um ástæður fyrir
skuldaaukningu Al-
þýðubandalagsins úr
33-35 miljónum króna
í 52 miljónir. Þú hefur
ekki enn virt mig
svars.
Það er öllum lýðum
ljóst að þú hefur haft í
mörgu að snúast. Og
ekki allt léttaverk. Þú
hefur til dæmis þurft
að takast á við að
semja stefnuskrá sem
á augabragði varð
fræg um allt land.
Einhver tími fór í að koma í veg
fyrir prófkjör á vegum samfylk-
ingar á einum stað og knýja það
fram á öðrum. Og að semja regl-
urnar. Gleðistundirnar hafa líka
verið tímafrekar; Kúbuferðin
með framámönnum í viðskiptalíf-
inu, kveðjustundir með félögum
sem voru að hætta þingmennsku
eða fara yfir í aðra flokka. Svo sá
ég í blöðum að þú varst að prjóna
jólagjafir í framhjáhaldi og tókst
meira að segja til varnar fyrir al-
þýðuna á þingfundi í nóvember
eða desember.
Og ekki allt upp talið.
Á þessum sama tíma tókst þér
það sem fyrirrennari þinn hóf en
lauk ekki við; að leggja Alþýðu-
bandalagið í rúst.
Að launum ertu orðin talsmað-
ur Alþýðuflokksins, Þjóðvaka og
rústanna. Fram á kjördag.
Og! Bíddu nú hægur, Bogi
minn!
Hingað kominn í skrifunum
heyri ég í útvarpsfréttum að þú
munir ganga í þingflokk jafnaðar-
manna síðdegis!
Það ætlar bara ekkert lát að
verða á pólitískum frama þínum?
Allt þetta sem upp er talið var
og er að sjálfsögðu svo brýnt að
það hlaut að ganga fyrir því smá-
ræði að gera grein
fyrir því hvernig þú
og fyrirrennarinn
fóruð með miljónatug-
ina sem við trúðum
ykkur fyrir, við þessir
óbreyttu í Alþýðu-
bandalaginu.
Ég sá það í blöðum
á dögunum og haft
eftir þér að varafor-
maður þinn færi með
ýkjur og ósannindi
þegar hann talaði um
að skuldirnar væru 52
miljónir því það hefði
verið tekið til hendi
og þær væru komnar
niður fyrir 40 miljón-
ir. Þetta er aldeilis góður gangur
og til hamingju með það.
Engu að síður eru spurningar
mínar enn í fullu gildi. Og þeim er
Spurningar
Ætlarðu kannski að
láta Alþýðuflokkinn og
Þjóðvaka taka við
þrotabúinu? spyr tilfar
Þormóðsson, í opnu
bréfí til formanns AI-
þýðubandalagsins.
ósvarað. Því spyr ég þeirra nú í
hið þriðja sinn.
Vegna þess að ég þekki nokkur
hundruð af þeim sem létu fé af
hendi rakna til AJþýðubandalags-
ins á sínum tíma veit ég að þeir
muna hvers spurt var. Því þarf ég
ekki að endurbirta spurningarnar
þeirra vegna. Þér vil ég benda á
að þær eru í Morgunblaðinu 14.
ágúst og 19. september og í Degi
í lok september, allar í greinum
sem birtar voru í fyrra. Þær voi-u
áréttaðar af fyrrverandi félaga
okkar í Flokknum í grein í Mbl. 9.
sept. og 15. október á síðasta ári.
En nýir tímar krefjast nýrra
spurninga.
Sökum þess að ég get ekki siglt
með þér þann hægri byr sem þú
hefur lagað þín segl að spyr ég þig
ekki sem félagi að þessu sinni
heldur Islendingur sem styður þá
tilhögun að þjóðin reiði fram nokk-
urt fé til reksturs stjórnmálahreyf-
inga og til eflingar lýðræðis. Þar í
mót eiga þeir sem við fénu taka að
gera fulla grein fyrir því hvernig
þeir fara með það.
Þess vegna er spurt og ég bið
þig að hnýta svörin aftan við þau
sem þú veitir mér við gömlu
spurningunum:
Hvaðan kom þér fé til að borga
skuldirnar niður um 12 til 13 milj-
ónir króna á 6 mánuðum? Ekki
reyna að telja mér trú um að það
sé allt sparnaður sem varð við það
eitt að loka kontómum, þótt hann
hafi kostað sitt, því enn ertu með
húsnæðið á leigu.
Þar sem þingflokkurinn var veð-
settur fyrir skuldunum er ekki
nema eðlilegt að spurt sé hver taki
við þeim nú þegar þú hefur lagt
hann niður? Skuldari þarf að vera
til; því spyr ég: Hefiirðu fengið
leyfi bankans fyrir nafnabreytingu
á láninu? Hvernig ætlarðu að afla
fjár til þess að greiða það sem eftir
stendur? Ætlarðu ef til vill að
halda áfram að hvetja hina
óbreyttu til þess að senda þér af
naumindum sínum, eða hyggstu
hlaupast frá skuldunum?
Ellegar!
Ég þori nú barasta varla að
nefna það!
Ætlarðu kannski að láta Alþýðu-
flokkinn og Þjóðvaka taka við
þrotabúinu? Fá Sighvat og Guð-
nýju í pukrið?
Hvað segir Jóhanna þá?
En þú ert talsmaðurinn.
Það er hann sem svarar.
Höfundur er rithöfundur.
tílfar
Þormóðsson
Oflugt framhaldsnám -
hornsteinn Háskólans
UNDANFARIN ái-
hefur Háskólinn verið
að taka upp framhalds-
nám í fjölmörgum deild-
um, ýmist meistara- eða
doktorsnám. I einhverj-
um tilfellum hefur verið
byggt upp af vanefnum
sökum þess að Háskól-
inn hefur búið við
fjársvelti í langan tíma.
Einnig eru dæmi þess
að nýtt framhaldsnám
hafi gengið á fjármagn
sem veita átti í grunn-
nám viðkomandi deild-
ar. Þannig hafi nám-
skeiðum í grunnnámi
fækkað og möguleikar
stúdenta skertir. Slíkt er
óviðunandi og stúdentar munu
aldrei sætta sig við slíkt. Röskva
hefur skýra stefnu um framþróun
framhaldsnáms við Háskóla íslands.
á stefnu varðandi fram-
haldsnám. Röskva ætl-
ar að beita sér fyrir því
að Háskólinn setji sér
stefnu varðandi fram-
haldsnám til að einfalda
deildum að taka það
upp.
Röskva vill aðstöðu
fyrir framhaldsnema
Ef Háskólinn vill
skipa sér sess sem öfl-
ugur Háskóli með
áherslu á framhalds-
nám og rannsóknir
verður að sýna viljann í
verki. Það er ekki gert
með þeirri bágbomu
aðstöðu sem fram-
haldsnemum er búin. Röskva vill í
samstarfi við Félag framhaldsnema
Stúdentaráð
Hjörtur
Einarsson
Háskólinn þarf stefnu
um framhaldsnám
Til þess að Háskóli Islands geti
talist rannsóknarháskóli þarf að
auka hlut rannsókna við skólann.
Lykill að auknum rannsóknum er
blómlegt framhaldsnám innan skól-
ans. Framhaldsnám byggir að stór-
um hluta á rannsóknum sem nýtast
innan skólans og úti í þjóðlífinu.
Þannig mætti auka hlut framhalds-
nema í kennslu og veita prófessor-
um meiri tíma í rannsóknir. Það
sem hefur staðið framhaldsnámi í
Háskólanum fyrir þrifum er skortur
Það er nauðsynlegt,
segir Hjörtur Einars-
son, að Háskólinn
myndi sér stefnu um
framhaldsnám við
skólann.
HÍ fá fram breytingar á aðstöðu-
leysinu sem nú ríkir í Háskólan-
um.
Til þess að Háskólinn geti státað
af öflugu rannsóknar- og fram-
haldsnámi þarf að stíga skrefið til
fulls. Auk þess að móta stefnu þarf
hugarfarsbreytingu, ekki aðeins
innan Háskólans, heldur úti í þjóð-
félaginu og á sviði stjórnmálanna.
Fyrir alþingiskosningar í vor ætlar
Röskva að krefja íslenska stjórn-
málaflokka um stefnu í rapnsókn-
ar- og framhaldsnámi. íslenska
þjóðin á skilið að vita hvert stjórn-
málamenn vilja stefna í þessum
málaflokki. Hvernig staðið verður
að þessum málum varðar framtíð
íslensku þjóðarinnar.
Þarf að gera þjónustusamning
um framhaldsnám
Það er nauðsynlegt að Háskól-
inn myndi sér ákveðna stefnu hvað
varðar framhaldsnám við skólann.
Nú stendur til að gera þjónustu-
samning milli ríkis og Háskólans
sem lýtur að fjármögnun grunn-
náms við skólann. f samningnum
miðast fjárframlög við fjölda nem-
enda við skólann hverju sinni og
verður samningurinn gerður til
nokkurra ára í senn sem er mikil
bót frá því óvissuástandi sem nú
ríkir um fjármál skólans. Röskva
telur nauðsynlegt að gera ámóta
samning milli ríkis og Háskólans
varðandi framhaldsnám og tryggja
þannig uppbyggingu framhalds-
náms við Háskóla íslands.
Höfundur cr íslenskunemi og
skipur 2. sæti á lista Röskvu til
Stúdentaráðs.