Morgunblaðið - 20.02.1999, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 55í
AÐALS TEINN
SVEINBJÖRN
ÓSKARSSON
+ Aðalsteinn
Sveinbjörn
Oskarsson fæddist á
Hverhóli í Skíðadal
16. ágúst 1916.
Hann lést á heimili
sínu á Akureyri 13.
febrúar síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Snjólaug Aðal-
steinsdóttir, f. 30.
október 1893, d. 27.
mars 1980, og Ósk-
ar Kristinn Júlíus-
son, f. 8. maí 1892,
d. 14. janúar 1993.
Aðalsteinn ólst upp
hjá foreldrum sínum fyrst á
Hverhóli og síðan á Kóngsstöð-
um í Skíðadal. Hann var elstur
þeirra barna en systkini hans
eru Kristín, f. 16. september
1920, Valdemar, f. 25. október
1922, Friðrika Elísabet, f. 25.
júní 1925, Ástdís Lilja, f. 21. jan-
úar 1934, og Árni Reynir, f. 21.
jan 1934.
Hinn 9. september 1939
kvæntist Aðalsteinn Sigurlaugu
Jóhannsdóttur frá Brekkukoti í
Hjaltadal, f. 3 júní 1918, d. 4.júlí
1975. Bjuggu þau fyrst á hluta
af Kóngsstöðum frá 1939-1941
en síðan á Ytri-Másstöðum til
1950 er þau fluttu til Dalvíkur
og vann Aðalsteinn þar lengst
af við verslunarstörf hjá Kaup-
félagi Eyfirðinga á Dalvík. Árið
1976 fluttist hann til Akureyr-
ar, þar sem hann vann fyrst hjá
KEA, en siðan hjá dagblaðinu
Degi. Aðalsteinn var oddviti
Dalvíkurhrepps 1962-1966,
meðlijálpari við
Upsa- og Dalvíkur-
kirkju í 18 ár og tók
þess utan alla tíð
virkan þátt í störf-
um ijölmargra fé-
laga. Þau hjónin
eignuðust þrjár
dætur. Þær eru: 1)
Ásta Ingimaría, f.
20. júlí 1941, d. 12.
maí 1994. Maki
Haukur Haralds-
son, f. 14. maí 1933.
Þeirra börn eru Að-
alsteinn f. 1959,
Kristinn, f. 1962,
Auður Elfa, f. 1964, Sigurlaug,
f. 1975, og fris Dögg, f. 1982. 2)
Snjólaug Ósk, f. 7. júlí 1946.
Maki Þorsteinn Sigurjón Pét-
ursson, f. 27. maí 1945. Þeirra
synir eru Pétur Björgvin, f.
1967, Aðalsteinn Már, f. 1969,
og Jóhann Hjaltal, f. 1972. 3)
Karlotta Birgitta, f. 11. ágúst
1949. Maki Lárus Pétur Ragn-
arson, f. 10. mars 1947. Þeirra
synir eru Sigurbjörn Birkir, f.
1976, Jón Bjartmar, f. 1984, og
sonur Lárusar, Ragnar Jóhann,
f. 1970. Auk þess ólst upp hjá
þeim Aðalsteini og Sigurlaugu í
nokkur ár Eva Pétursdóttir frá
Árskógssandi, nú búsett á
Akranesi. Sambýliskona Aðal-
steins frá 1979 er Sigrún Guð-
brandsdóttir, f. 1. janúar 1917,
áður húsfreyja á Áshóli í Grýtu-
bakkahreppi.
Utför Aðalsteins fer fram frá
Dalvíkurkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
í dag verður jarðsunginn frá Dal-
víkurkirkju tengdafaðir minn Aðal-
steinn Óskarsson. Aðalsteinn var
um margt sérstakur maður. Hann
hlaut í vöggugjöf að vera vandvirk-
ur og svo sannarlega bera verk
hans þess merki. Leitun mun vera
að manni sem hefur sýnt móður
jörð aðra eins umhyggju og hann
gerði og mættu margir í þessu landi
taka hann sér til fyrirmyndar í allri
umgengni við hana. í Skíðadalnum
átti hann sína Paradís. Þar kom
hann sér og sínum upp athvarfi sem
hann sýndi einstaka natni og um-
hyggju. Þar sinnti hann bændaþörf
sinni og ófáar voru ferðirnar hans
þangað árið um kring meðan heils-
an entist og oft fór hann þangað í
seinni tíð meira af vilja en mætti.
Drottinn gaf og Drottinn tók.
Lífshlaup Aðalsteins var ekki
alltaf dans á rósum. Það varð hon-
um þungur baggi að veikjast alvar-
lega á miðjum aldri og búa við skert
starfsþrek eftir það og ekki var það
síður erfitt fyrir hann að missa sína
góðu eiginkonu skömmu seinna. Þá
átti hann erfiðar stundir og ekki síð-
ur þegar hann missti elstu dóttur
sína, mjög skyndilega, úr sama
sjúkdómi og konu sína. En alltaf
gekk hann hnarreistur og bar sorg
sína í hljóði. í tæpa tvo áratugi átti
hann öruggt og gott skjól hjá eftir-
lifandi sambýliskonu sinni, sem
honum þótti afar vænt um. Sigrúnu
Guðbrandsdóttur eru hér færðar
þakkir fyrir góða umönnun hans í
erfiðum veikindum.
Lárus Ragnarsson.
Finn ég þrátt mig þrýtur mátt,
þrotin brátt er glima.
Guð, mig láttu sofoa í sátt,
sígur að háttatíma.
(Pétur B Jónsson)
Hinn þrettánda dag þessa mán-
aðar var burtu kallaður frá þessu
lífí tengdafaðii' minn, Aðalsteinn
Sveinbjörn Óskarsson. Aðalsteinn
var kominn tvö ár yfir áttrætt, orð-
inn aldraður, hafði skilað löngum
vinnudegi. Nú um nokkurn tíma
hafði Aðalsteinn ekki gengið heill til
skógar. Hann skynjaði að brátt
mundi þessari glímu ljúka, máttur-
inn var á þrotum. Aðalsteinn var
sáttur við Guð og menn. Hans
háttatími var kominn.
Aðalsteinn var fæddur í Skíðadal
og ólst þar upp. Hann unni dalnum
öllu öðru fremur. Búfræðingur var
hann frá Hólum í Hjaltadal. Þar
lágu leiðir hans og Sigurlaugar Jó-
hannsdóttur saman. Þau hófu síðan
búskap á Ytri-Másstöðum í Skíða-
dal. Þar byggðu þau upp bæði íbúð-
arhús og fjárhús, en vegna heilsu-
brests Sigurlaugar hættu þau bú-
skap og fluttu til Dalvíkur. Er ég
kynnist þeim hjónum bjuggu þau í
Karlsrauðatorgi 10 á Dalvík, en þar
höfðu þau byggt sér myndarlegt
hús.
Aðalsteinn var vinnusamur maður
er sjaldan lét sér falla verk úr hendi.
Hann hafði alla tíð unun af búskap
og ræktunarstarf var honum hjart-
ans mál. Hann unni dalnum sínum,
dalnum þar sem angan gróðursins
var honum sætur keimur. Þar sem
hann sá undur lífsins vakna af veti'-
ardvala vor hvert. Dalnum, þar sem
tignarleg fjöll rísa og teygja sig til
himins, dalnum þar sem jökullinn
skríður fram í þröngum dalbotnin-
um. Þar, já, einmitt í dalnum, þar
sem berin verða blá á einni nóttu.
Hann kunni nöfn jurtanna í dalnum
betur en flestir, og ömefni í dalnum
voru honum afar kær. Eitt af erind-
um úr kvæðinu Bóndinn eftir Davíð
Stefánsson hefur mér alltaf þótt til-
heyra Aðalsteini.
Pú fannst, að það er gæfa lýðs og lands
að leita Guðs og rækta akra hans.
I auðmýkt nauzt þú anda þeirra laga,
sem öllum vildir skapa góða daga.
I dagsverki og þökk hins þreytta manns,
býr þjóðarinnar heill - og ævisaga.
(DaviðStef.)
Sumarbústaðurinn Birkimelur,
ræktunin, áformin um viðbyggingu
og viðhald girðinga, var hans hjart-
ans mál. Þremur dögum fyrir and-
látið fékk hann bréf um að heimilt
væri að hefjast handa um viðbygg-
ingu. Ákafi og gleði í rödd hans
leyndu sér ekki. Hann var athafna-
maður að eðlisfari. Við ræddum um
framkvæmdina. Eg var hugfanginn
af ákafa hans. Nú lyftir hann ekki
hamri framar, hann hlúir ekki að
gróðrinum né reisir við brotna
grein. Skarexin hans og hefillinn
voru þó nýbrýnd. Hann hafði undir-
búið verkið, hann var tilbúinn að
hefjast handa. En handbragð hans
og plönturnar vitna um vinnandi
kærleikshendur.
Aðalsteinn og Sigurlaug voru
hamingjusöm. Samtaka bjuggu þau
fjölskyldunni gott heimili. Mér var
tekið af kærleik. Tillitssemi og
skilningur, jákvæði og hvatning
varð veganesti mitt frá þeim. Það
var mitt lífslán að fá að koma inn í
slíka fjölskyldu. Sigurlaug var
burtu kölluð á besta aldri. Frá árinu
1979 hefur Aðalsteinn verið í sam-
búð með Sigi'únu Guðbrandsdóttur
frá Áshóli. Hún bjó Aðalsteini gott
heimili þar sem honum leið vel. Sig-
rúnu votta ég samúð mína, jafn-
framt sem ég þakka henni fyrir allt
er hún var Aðalsteini.
Aðalsteini þakka ég samfylgdina.
Þorsteinn Pétursson, Akureyri.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, tengdasonur og afi,
ANDRÉS ÓLAFSSON,
Laugabóli,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 17. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Valgerður Valgeirsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við
andlát og útför ástkærs föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
KRISTJÁNS JÓNSSONAR
forstjóra,
Þingvallastræti 20,
Akureyri.
Fjölskyldan þakkar starfsfólki Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir
alla þeirra alúð og umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Kristín Kristjánsdóttir, Símon Magnússon,
Anna María Kristjánsdóttir, Ágúst Már Ármann,
Jón Kristján Kristjánsson, Heiðrún Jónsdóttir,
Helga Kristjánsdóttir, Helgi Magnús Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
GUNNLAUGUR H.G.ÞORLÁKSSON
bifreiðarstjóri,
Kleppsvegi 118,
Reykjavík,
lést á Landakotsspítala miðvikudaginn 17. febr-
úar. Útför Gunnlaugs verður frá Fossvogs-
kapellu miðvikudaginn 24. febrúar kl. 10.30.
Sigríður Dóra Jónsdóttir,
Jón Þórir Gunnlaugsson,
Halldór Gunnlaugsson, Bára Fjóla Friðfinnsdóttir,
Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir, Einar Þórir Dagbjartsson,
Sigurður Ingi Gunnlaugsson, Þóra Geirsdóttir,
Hrafnkell Gunnlaugsson,
Þráinn Gunnlaugsson,
Gunnlaugur Einarsson,
Sigurdór Halldórsson,
Skarphéðinn Halldórsson,
Geir Ingi Sigurðsson,
Jón Örn Sigurðsson.
+
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ARNÓR VALGARÐUR JÓNSSON
frá Mýrarlóni,
fyrrum bifreiðastjóri ísafirði,
lést að morgni fimmtudagsins 18. febrúar si. á
Landspítalanum.
Jarðarför auglýst síðar.
Inga J. Arnórsdóttir,
Jón Viðar Arnórsson,
Steinunn K. Arnórsdóttir,
Sigurður Jónas Arnórsson,
Bjargey Á. Arnórsdóttir,
Þórður Arnórsson,
Laufey Ósk Arnórsdóttir,
Sigmundur A. Arnórsson,
Sóley Guðfinna Arnórsdóttir, Þorlákur Ragnarsson,
Herdís Skarphéðinsdóttir, Gunnar S. Gunnarsson
og barnabörn.
Sigrún Briem,
Svanur Auðunsson,
Unna Guðmundsdóttir,
Guðmundur Gunnarson,
Sigríður Guðmundsdóttir,
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGURÞÓRA SIGURÞÓRSDÓTTIR,
Rauðafelli 1,
Austur-Eyjafjöllum,
andaðist á heimili sínu að morgni fimmtudagsins 18. febrúar.
Ástþór Tryggvason,
Bergþóra Ástþórsdóttir, Ólafur Steinar Björnsson,
Kristín Ástþórsdóttir, Gísli Valdimarsson,
Tryggvi Ástþórsson, Ragnheiður Högnadóttir,
Sigurþór Ástþórsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ELÍSABET SIGURÐARDÓTTIR,
andaðist á heimili sínu, Grandavegi 47, fimmtudaginn 18. febrúar.
Páll Þorgeirsson,
Hekla Pálsdóttir, Þorgeir Pálsson,
Björgvin Schram, Anna Snjólaug Haraldsdóttir,
Brynjóifur Páll Schram, Sigrún Þorgeirsdóttir,
Arnaldur Geir Schram, Brynhildur Þorgeirsdóttir,
Elísabet Þorgeirsdóttir.
+
Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við
fráfall eiginmanns míns, stjúpsonar, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
BIRGIS GUÐMUNDSSONAR,
Hjaltabakka 8,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Sigrúnar Reykdal og deild-
ar 11F, Landspítalanum.
Helena Svavarsdóttir,
Sigurbjörn Ólafsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og langafabörn.