Morgunblaðið - 20.02.1999, Síða 63
I
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. FEBRÍJAR 1999 63
BREF TIL BLAÐSINS
Frá Rúnarí Krístjánssyni:
NÝLEGA barst mér í hendur
fréttabréf frá Samtökum um að-
skilnað ríkis og kirkju - SARK.
Oftast lít ég nú yfir þetta blað,
svona til að vega og meta rökin sm
sett eru fram varðandi baráttumál-
ið, sem er aðskilnaður ríkis og
kirkju. í sjálfu sér finnst mér það
mál vel geta komið til greina, en
samt myndi ég ekki vilja ganga til
liðs við þessi samtök. Það er nefni-
lega grunur minn að nokkuð marg-
ir sem í samtökum þessu eru, séu
þar vegna andúðar á kristinni trá.
Mér finnst sú afstaða skína mjög
víða í gegn í því efni sem frá sam-
tökum þessum kemur. Kæmi mér
ekki á óvart að sumir hugsuðu sér
þai- aðskilnað ríkis og kirkju aðeins
sem fyrsta skrefið á þeirri braut að
koma kristindómnum á kné í þessu
landi. Allt er þó sett fram á ákaf-
lega jákvæðan hátt í nafni réttlæt-
iskenndar, undir formerkjum frels-
is og lýðréttinda, svo yfirborð mál-
anna er stundum undur sætt á að
líta. En þegar grannt er að gáð
kemur sitthvað í ljós hjá samtökum
þessum. Heiðnir tímar eru dásam-
aðir og talað um drengskap og orð-
heldni sem heiðin gildi! Við þurfum
nú ekki að fara ýkja langt aftur í
tímann til að finna fólk sem stóð
við öll sín orð og lét handsöl gilda í
hvívetna. Ekki var fólk heiðið þá,
heldur svo vel kristið að fólk í dag
þolir þar sennilega engan samjöfn-
uð. Lítum bara til fólks á fyrri
Enga
sögufölsun
hluta þessarar aldar. Við höfum
nefnilega glatað ýmsu í því botn-
lausa lífsgæðakapphlaupi sem
þjóðin hefur staðið í síðustu ára-
tugina.
Gerviþarfirnar hafa tekið fyrir
rétta sýn í svo mörgu og þær hafa
vaxið okkur upp fyrir haus. Margir
virðast vilja kristindóminn feigan,
en vilja þó halda fast í kristna sið-
fræði. Þar áttar fólk sig ekki á því
að siðfræðin er aðeins grein á hin-
um kristna meiði. Ef meiðurinn er
höggvinn fer greinin með. Hún lifir
ekki og dafnar - ein og sér. Við
skulum ekki koma okkur í þá stöðu
í þessum málum að enginn viti
hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
í umræddu fréttabréfi SARK er
sett upp smásöguhorn þar sem
spurt er: Vissir þú...? Síðan koma
útlistanir á sex sögulegum atriðum.
Margt mætti nú að þeirri sögu-
skoðun finna sem þarna kemur
fram. Ég ætla þó að láta mér
nægja að gagnrýna eitt þessara at-
riða. Sagt er: „Vissir þú að frá
landnámi íslands til ársins 1000
voru hér engir fjölmennir bardag-
ar?
Þarna er greinilega verið að
koma því viðhorfi fram, að friður
hafi ríkt hér mikið til í heiðni og
ófriður fyrst hafist að marki eftir
kristnitökuna! Ég tel þetta tilraun
til sögufölsunar. Vita menn ekki
um friðaröldina sem yfirleitt er tal-
in hafa staðið frá 1030 til um 1120,
einmitt eftir að kristin trá hafði
fest sig í sessi? Segir ekki um Giss-
ur biskup Ileifsson, að hann hafi
friðað svo vel landið að engar stór-
deilur hafi orðið með höfðingjum
og vopnaburður lagst mjög niður?
Nú skulum við taka eitt dæmi: Um
965 var Þórður gellir í mestu vand-
ræðum með að ná lögum í eftirmál-
um Blund-Ketils brennu vegna
andstöðu Tungu-Odds. Þeir höfðin-
gjarnir lentu tvívegis í bardaga. í
fyrra skiptið var Þórður með 240
menn og Oddur 480. Þá féllu fjórir
menn af Þórði og einn af Oddi og 3
urðu alvarlega sárir. I seinna
skiptið var Oddur með 360 menn
en Þórður sagður miklu fjölmenn-
ari. Féllu þá sex menn af Oddi og
margir urðu sárir. Þarna átti sér
því stað tvívegis fjölmennur bar-
dagi áratugum fyrir kristnitökuna.
í framhaldi af umræddri deilu voni
svo fjórðungsþingin sett. Mörg
fleiri dæmi má nefna um mikla bar-
daga fyrir kristnitöku, en ég læt
þetta nægja.
Ef við myndum svo víkja okkur
til hinna Norðurlandanna vantar
nú ekki orrustumar og svo var til
dálítið sem hét víkingaferðir og
þótti ekki beinlínis friðsamlegt at-
hæfi. Enginn var óhultur fyrir rán-
um og gripdeildum. Skyldi sögu-
skoðari SARK hvorki hafa lesið ís-
lendingasögumar né Fomaldar-
sögur Norðurlanda? Mér finnst að
það ætti að vera algert grundvall-
aratriði þegar menn em að reyna
að vinna baráttumálum sínum
fylgi, að notuð séu meðöl sem sam-
ræmast sannleikanum. Osannar
fullyrðingar hljóta að verða við-
komandi málstað til skaða og þótt
menn hugsi sér að láta tilganginn
helga meðalið gengur það engan
veginn eftir. Það vantar alla sið-
mennt í svona málafylgju. Sá sem
tekur ósannindi í þjónustu sína
verður að vera því viðbúinn að þau
séu rekin öfug ofan í hann aftur.
Sannleikurinn er sagna bestur. Það
er einlæg von mín að þessi áminn-
ing verði til þess að vinnubrögð
skili sér á heiðarlegri hátt en þetta
héðan af í fréttabréfum frá SARK
- samtökum um aðskilnað ríkis og
kirkju.
RÚNAR KRISTJÁNSSON,
Bogabraut 21, Skagaströnd.
Frá Guðvarði Jónssyni:
í BYRJUN desember var grein
eftir mig í Morgunblaðinu þar sem
ég vakti athygli á þeim mikla mun
sem er á staðgreiðslu- og langtíma
raðgreiðsluverði. Þar tók ég dæmi
ef keyptur væri bíll sem kostaði
eina milljón og gefinn væri 10% af-
sláttur við staðgreiðslu. Sagði ég í
greininni að mismunurinn á stað-
greiðslu- og raðgreiðsluverði, mið-
að við 10% staðgreiðsluafslátt,
væri 440 þús. Mér urðu á þau mis-
tök í útprentun greinarinnar að
bæta þessum 400 þús. við milljón-
ina í staðinn fyrir að bæta þeim við
900 þús. og heildarverðið þar með
1.300.000, en verð í útprentun
1.400.000. Þetta hefði ekki átt að
koma að sök, ef menn hefðu tekið
eftir því, að ég var að tala um mis-
mun á raðgreiðslu- og stað-
greiðsluverði.
Aðstoðarframkvæmdastjóri Visa
ísland, Leifur Steinn Elísson, svar-
aði mér í Morgunblaðinu og sagði
að ég byggði grein mína á lygi. Ég
svaraði strax þessari ásökun Leifs,
en bréfið mun hafa villst í skamm-
degismyrkrinu og komst því aldrei
Að horfa á málið
frá báðum hliðum
til skila á síður Morgunblaðsins.
Ég vil því gera aðra tilraun og leit-
ast við að sundurliða kostnaðinn, í
samræmi við það sem ég hef sjálf-
ur þurft að greiða, þegar ég hef
keypt bíl með raðgreiðslum.
Þegar bílasali hefur samþykkt að
selja manni einnar milljónar kr. bíl
með 36 mán. raðgreiðslum, þarf
maður að byrja á því að greiða hon-
um lánskostnað og virðisaukaskatt
af lánskostnaðinum og er sá kostn-
aður um 62.000 kr., vaxtakostnaður
155.000 kr., verðbætur 30.000 kr.,
stimpilgjöld og innheimtukostnaður
25.000 kr., svo er nú orðið gefinn
tveggja til þriggja mánaða frestur á
fyi-stu greiðslu af stofnverði eftir
undirskrift, en greiddir vextii- fyinr
þá mánuði. Ef við segjum að frest-
urinn sé tveir mánuðii' verða vextir
af þeim 16.700 kr. Samtals verður
þessi kostnaður 288.700 kr. Þar með
er heildarkostnaðurinn orðinn
Aðsendar greinar á Netinu
S' mbl.is
1.288.700 ki\ og mismunurinn á
staðgreiðslu og raðgreiðslu orðinn
388.700 kr. Þetta miðast við það að
allt gangi fyiir sig samkvæmt samn-
ingi. Ég sagði hka í fyrri greininni
að þeh' sem væru í erfiðastri
greiðslustöðu þyrftu oft að fresta
greiðslum og þá eru dráttarvextir
fljótii' að hækka kostnaðinn. Ég veit
að Visa ísland leggui' kapp á að inn-
heimta heiðarlega samkvæmt samn-
ingum og að starfsmenn gleymi eng:
um kostnaðarhð við innheimtu. I
fýrri gi-eininni beindi ég ekki orðum
mínum til kaupmanna eða kortafyr-
irtækja, heldur tók ég það fram að
þetta greiðslukerfi væri afleiðing
láglaunastefnu sem forusta atvinnu-
<U-L.TZ\/= eiTTHV'AO HVTT
íoo',;
baúmullarnærí«»t
Fást í öllum
betri verslunum
um land allt
Börnum, tengdabörnum, barnabörnum, vinum
og velunnurum sem fierðu okkur mikla gleði,
gjafir og hlýjar kveðjur d 70 afinæli mínu
4. febrúar sl., sendum við hjónin hjartkærar
kveðjur og góðar óskir.
Guð launi og blessi ykkur öll.
Kristófer Þorgeirsson
og Olína Gísladóttir.
nr, Blönduiiaítæki
Hitastilltu Mora Mega
blöndunartækin fyrir bað tryggja
öryggi og þægindi. Mora Mega er
árangur maigra ára vöruþróunar
og betrumbóta.
Mora sænsk gæðavara
Heildsöludreifing:
Smiðjuvegi 11. Kópavogi
'LW'ILÞ' Sími 564 ,0B8',ax564 1089
Fæst í bvgoinBavöruverslunum um landallt.
rekenda og ríkisvalds bæru ábyrgð
á.
Það er gott að hafa það í huga að
ef fjárhagsstaða láglaunafólks
batnaði, legðust svona langtímar-
aðgreiðslur af sjálfkrafa. Það er
einnig rétt að veita því athygli að
kaupmenn hafa orðið að bjóða sí-
fellt lengri greiðslufrest til þess að
geta selt láglaunafólki heimilistæki
og bíla. Það má líka veita því at-
hygli að lenging greiðslutímans
hefur lengst í réttu hlutfalli við
vöxt góðærisins og er nokkuð rétt
spegilmynd af því tvöfalda þjóðfé-
lagskerfi sem búið er að þróa í
landinu. Annars vegar hálauna-
menn og fjármagnseigendur, sem
baða sig í plús góðæri og hins veg-
ar láglaunafólk, sem er að sökkva í
skuldafeni mínus góðæris.
GUÐVARÐURJÓNSSON,
Hamrabergi 5, Reykjavík.
WHITE
SWAN
(0
C
0
>o
co
(/)
ö)
Drcifing: Engey chf. Hvcrfisgata 103
s: 552 88/7 fax: 552 0060
1 1 \ w ...
sí lÍi í 21 1 (,i |J 1 Landsvirkjun
TÖLVUG
FJÖLDI NÝRRA TITLA! fsTÐ ASTl
Efþú ótt ekki heimangengt er I |T IL C* ft 1 H i
www.boksala.is einföld og örugg leið til að |U »» “ * *
nálgast mörg þúsund bókatitla.
Opið i dag frá kl. 10:00 - 16:00 \ \
DA6
\ I
15-20 febrúar
bók/Ua. /túdeixta,
Stúdentaheimilinu við Hringbraut • Simi: 5700 777